Reykjavík - 23.02.2013, Side 12
23. febrúar 2013
Heil og sæl og
gleðilegt heilsu ár 2013
Ég heiti Sigríður Einarsdóttir (Sigga) og er íþróttakennari B.ed. Að auki hef ég sótt mér
viðbótarmenntun í næringar- og líf-
eðlisfræði. Ég hef sótt fjöldan allan
af námskeiðum og ráðstefnum inn-
anlands og erlendis til að byggja upp
og þróast í þessu skemmtilega starfi
sem ég er í. Í mínum huga er það
líka fólkið sem hefur komið til mín í
tíma og þjálfun sem hefur tekið fullan
þátt í að þróa mig og móta í starfinu.
Fyrir það er ég þakklát.
Ég hef starfað í HRESS
síðustu 25 ár og fengist
við kennslu og þjálfun
ásamt öðrum störfum
þar innan dyra. Ég kenni
hóptíma og er með einka/
hópþjálfun, ráðgjöf, mæl-
ingar, fjarþjálfun, set upp
prógröm og matarplön
svo fólk nái þeim árangri
sem það sækist eftir. Ég
hef víðtæka reynslu og
þekkingu á mörgu (vil
ekki segja öllu, þar sem ég
held að það sé ógerlegt að
vita allt sem er ) sem við
kemur hreyfingu, heilsu
og næringafræði.
Ég ætla að vera með
heilsupistil í blaðinu og fara um víðan
völl. Það síðasta sem ég gerði á árinu
2012 var að stofna síðu á Facebook
sem heitir fitbody365.is, nafnið á síð-
unni á hvetja fólk til að bera ábyrgð
á eigin heilsu, vera í góðu formi og
hugsa um heilsuna allan ársins hr-
ing. Ég ætla að segja mína sögu og
annarra. Fjalla um næringu og æf-
ingar, hvetja fólk til dáða og fá til mín
gesti á síðuna. Ef ég er hreinskilin þá
er ég orðin þreytt á ofurfótósjopp-
uðum myndum af fólki í ræktinni
með killer kviðvöðva og rosa skorna
kroppa. Ég vil fjalla um venjulegt
fólk og hafa hráar myndir þar sem
ekki er búið að laga allt til og búa til
væntingar og vonir um óraunveru-
legan árangur eða keppn-
isárangur í fitness/vaxtar-
rækt. Ég hef hjálpað og
þjálfað fólk sem vill losna
við aukakílóin, koma sér
í draumaformið sitt eða
keppt í fitness en hef aldrei
blastað árangrinum út í al-
heiminn.
Ég hlakka til að vera
með ykkur hér í blaðinu
og vonandi láta gott af
mér leiða á nýju og frá-
bæru ári sem ég hef kosið
að kalla ár breytinganna,
árið 2013. Bara talan 13
er hvetjandi og kallar á
eitthvað meira.
Kær kveðja, Sigga.
HeiLSuÁRið 2013 Með Siggu í HReSS
12
Fermingartilboðin
hafin
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Jón Bjarnason
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elíasson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
1988–2013
ár á Íslandi
ÞÝSKA STÁLIÐ
wurth.is
Höfundur er
sigríður Einarsdóttir
íþróttakennari B.ed.
www.facebook.com/FitBody365.is
Spurt um kostnað vegna breytinga
á skipuriti Ráðhúss Reykjavíkur
Töluverðar breytingar hafa verið gerðar á skipuriti Ráðhússins sem og á ýmsum sviðum borg-
arinnar á kjörtímabilinu.
Borgarráðsfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins vill fá að vita hver heildarkostn-
aðurinn sé við þessar breytingar og
hefur lagt fram fyrirspurn þar að lút-
andi í borgarráði. Í fyrirspurninni er
óskað upplýsinga um heildarkostnað-
inn vegna allra breytinga sem gerðar
hafa verið á skipuriti borgarinnar og
skipulagi Ráðhússins, sviða og deilda
á þessu kjörtímabili. Óskað er eftir því
að teknar verði saman vinnustundir
starfsfólks vegna vinnu við skipulags-
breytingarnar, tilgreindur verði
kostnaður vegna starfslokasamninga
og nýrra samninga. Einnig auglýs-
ingakostnaður vegna þessa sem og
kostnaður við ráðgjöf vegna ráðninga,
utanaðkomandi sérfræðikostnaður og
annað sem breytingunum tengist.
Útivist og strokufangar í Norðlingaholti
Febrúarmánuður er útivistar-mánuður í Norðlingaholti, en félagsmiðstöðin Holtið stendur
fyrir átakinu. Hugmyndin er í takt við
starfsáætlun félagsmiðstöðvarinnar, en
í upphafi árs voru skipulagðir nokkrir
viðburðir sem fram fara utandyra óháð
veðri.
Norðhyltsk æska hélt bolludagskaffi
í Björnslundi og lék sér í battabolta,
en hápunktur mánaðarins eru
Hungurleikar og Næturleikar, sem eru
krefjandi blanda af hópeflisleikjum og
hlutverkaleikjum. Í Næturleikunum
etja ungmennin kappi við starfsmenn
félagsmiðstöðvarinnar, þar sem ung-
mennin leika strokufanga, en starfs-
menn félagsmiðstöðvarinnar fanga-
verði.
Hægt er að nálgast Vikublaðið Reykjavík á
www.fotspor.is
v i k u b l a ð