Reykjavík - 05.04.2014, Qupperneq 2
2 5. apríl 2014REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Lani og Andri Snær tilnefnd
Lani Yamamoto og Andri Snær Magnason hafa verið tilnefnd til barnabókarverðlauna Norð-
urlandaráðs, en tilkynnt var um til-
nefningarnar á dögunum.
Andri Snær er tilnefndur fyrir bók
sína Tímakistuna, sem hefur hlotið
bókmenntaverðlaun Íslands, en Lani
Yamamoto er tilnefnd fyrir bókina
Stína Stórasæng.
Stína Stórasæng er fyrsta barnabók
Lani á íslensku, en hún hlaut fyrr á ár-
inu Dimmalimm verðlaunin fyrir hana.
Borgar Apótek | Borgartúni 28, 105 Reykjavík | sími 553-8331
Ókeypis lyfjaskömmtun
Engin skömmtunargjöld.
Heimsending möguleg.
Snögg og örugg afgreiðsla.
Þægilegt og einfalt að koma
skipulagi á lyfjatökuna.
Sveigjanleiki ef læknir breytir
um lyf.
Snögg
og örugg
afgreiðsla
Átak gegn ofbeldi
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt að ráðast í átak gegn heimilisofbeldi, en
tillaga Vinstri grænna um málið var
samþykkt í vikunni. Horfa verður sér-
staklega til árangurs sem náðst hefur
á Suðurnesjum í þessum efnum og
víða á Norðurlöndum, með breyttu
og bættu verklagi, til þess að berjast
gegn heimilisofbeldi. Til þess að það
megi ná fram að ganga skuli borgin
leita samstarfs við önnur sveitarfélög,
lögreglustjórann á höfuðborgarsvæð-
inu, Lögregluskólann og grasrótar-
og stuðningssamtök. Kunnugir segja
Reykjavík vikublaði að helstu ástæður
þess að litið sé til Suðurnesja séu að
þar séu heimilisofbeldismál sett í for-
gang, þeim sé fylgt eftir, bæði gagn-
vart þolanda og geranda, auk þess
sem austurríska leiðin svonefnda hafi
verið nýtt, en hér á landi er heimild
í lögum til að fjarlægja ofbeldismann
af heimili.
Byrjuð
að sópa
Götusópun er hafin eftir vetur-inn í Reykjavík. Fram kemur á vef borgarinnar að byrjað sé
á því að sópa göngu- og hjóleiðastíga í
austurhluta borgarinnar. Fyrst sé gróf-
sópað, því óvenju mikið af sandi sé á
stígum eftir snjóinn í vetur.
Gjaldtaka við Dettifoss:
Eins og við Geysi
Framkvæmdastjóri Vatnajök-ulsþjóðgarðs segir að áform Landeigendafélags Reykja-
hlíðar um að rukka inn á nátturu-
svæði norðanlands minni á Geysis-
málið í Haukadal.
Landeigendafélag Reykjahlíðar
hefur sett upp heimasíðu þar sem
boðið er upp á að kaupa „passa“
inn að Dettifossi, hverasvæðið við
Námufjall og Leirhnjúk við Kröflu,
en landeigendur vilja fá 1.800 krónur
frá þeim sem vilja fara á staðina þrjá.
Passana á meðal annars að selja á
vefnum natturugjald.is en lénið var
skráð 25. mars.
Rukka við Dettifoss
Dettifoss er í Jökulsárgjúfrum en
þau eru hluti Vatnajökulsþjóðgarðs.
Landeigendafélag Reykjahlíðar á land
að fossinum að vestanverðu, en ríkið
á líka fossinn, auk þess sem tveir að-
ilar aðrir eiga land að fossinum að
austanverðu.
„Þetta er ekki ósvipuð staða og
við Geysi,“ segir Þórður H. Ólafs-
son, framkvæmdastjóri Vatnajök-
ulsþjóðgarðs í samtali við Reykjavík
vikublað.
Þar hafa landeigendur byrjað
að rukka fólk fyrir að fara inn á
hverasvæðið. Fjármálaráðuneytið
krafðist lögbanns á gjaldtökuna, en
sýslumaður varð ekki við því. Ráðu-
neytið hyggst því höfða dómsmál
til að hnekkja gjaldtökunni. Ríkið
hafði einnig boðið landeigendum að
standa straum af framkvæmdum við
betri aðstöðu. Bjarni Benediktsson,
fjármálaráðherra sagði á Alþingi í
vikunni að slíkum hugmyndum
hefði verið hafnað, „enda virðast
landeigendur fyrst og fremst ganga
út frá því að þær verði að skila arði
til landeigenda.“
Frekari spurningar
Gjaldtaka við Dettifoss frekari vekur
spurningar, þar sem ekki er langt
síðan að Vegagerðin lagði veg niður
að fossinum að vestanverðu og lét enn
fremur gera þar bílastæði. Land var
þá tekið eignarnámi og voru land-
eigendum greiddar eignarnámsbætur.
Þessar samgöngubætur hins opinbera
eru greiðasta leiðin að fossinum að
vestanverðu.
Hátt í 200
milljarða
sparnaður
Verði spornað við fjölgun bíla og dregið úr umferð á einkabílnum, samfara
fólksfjölgun á höfuðborgarsvæðinu,
og áhersla lögð á fjölbreyttari sam-
göngur en einkabíla, mætti spara
samfélaginu allt að 195 milljarða
króna á tímabilinu 2015-2040. Þetta
kemur fram í spá um þróun byggðar-
og samgangna á höfðborgarsvæðinu,
í tengslum við nýtt svæðisskipulag
höfuðborgarsvæðisins.
Sjá umfjöllun bls.14.
Óskar hættir
Óskar Bergsson sem var í fyrsta sæti á framboðslista Fram-
sóknarflokksins fyrir borgarstjórn-
arkosningarnar í vor hefur ákveðið
að hætta við framboð. Hann tilkynnti
þetta á fimmtudag og sagði í yfirlýs-
ingu að staða flokksins í borginni væri
„grafalvarleg“.
Óskar Bergsson sat í borgarstjórn
um hríð á síðasta kjörtímabili og starf-
aði meðal annars í meirihluta með
sjálfstæðismönnum, í borgarstjóratíð
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur.
Framsóknarmenn í Reykjavík
höfðu ekki ákveðið hvernig staðið
yrði að vali á nýjum oddvita þegar
blaðið fór í prentun, en Guðrún Bryn-
dís Karlsdóttir var valin í annað sæti
listans á eftir Óskari. Guðrún Bryndís
starfaði með Hægri grænum áður en
hún gekk til liðs við Framsóknar-
flokkinn.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
vegna borgarstjórnarkosninganna
hefst í dag.
Lendi
ekki á
tekjulágum
„Útsvar og skattar eru ágæti leið til að sjá til þess að
til séu sameiginlegir
sjóðir um hlutina.
Þegar kemur að þjónustugjöldum þá
finnst mér mikilvægt að þau lendi ekki
á þeim sem hafa minnstar tekjur. Sér-
staklega á það við um þjónustu sem
íbúar verða að nýta sér,“ segir Hall-
dór Auðar Svansson, oddviti Pírata í
Reykjavík fyrir borgarstjórnarkson-
ingarnar í vor. Hann er í ítarlegu
viðtali hér í blaðinu, en rætt verður
við oddvita allra framboða fram að
kosningum. Sjá bls.6.
Spyrja um fimleikahús
Sjálfstæðismenn í íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur hafa, í kjölfar umfjöllunar
Reykjavíkur vikublaðs, óskað eftir
upplýsingum um samningsmark-
mið Reykjavíkurborgar og öll tiltæk
gögn um viðræður borgarinnar við
Seltjarnarnes, vegna uppbyggingar
á fimleikhúsi á nesinu. Fram kom
í blaðinu fyrir að viðræður hefðu
verið um þátttöku Reykjavíkur í
smíði fimleikahúss fyrir Gróttu, en
hundruð reykvískra barna stunda
þar fimleika.
Fjórir efstu á lista Framsóknarflokksins, áður en Óskar Bergsson hætti. Frá
vinstri: Guðlaugur Gylfi Sverrisson, Guðrún Bryndís, Óskar og Valgerður
Sveinsdóttir.
Gjaldtaka við Dettifoss er gagnrýnd.
Kiðlingur í Húsdýragarðinum
Huðnan Bogga bar þessari myndar-legu huðnu í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum á dögunum. Guðlaug
Esther Hlöðversdóttir, fimm ára,
heldur hér á kiðlingnum í fanginu.
Pabbinn er hafurinn Unnar sem kom
í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn frá
Háafelli á Hvítársíðu í haust.