Reykjavík - 10.05.2014, Blaðsíða 4
4 10. maí 2014REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Endurræsing
á gleðidögum
Á dögunum las ég bók sem fjall-aði um hreyfingu og líkams-rækt. Þar var sagt frá því að
það er ekki bara nauðsynlegt að endur-
ræsa tölvur, það þarf líka að endur-
ræsa líkamann. Höfundar bókarinnar
sögðu að með því að gera fjórar æfingar
daglega mætti ná þessu markmiði. Við
þurfum að:
1. Rúlla okkur eins og ungabörn,
2. Skríða eins og börn,
3. Rugga okkur á fjórum fótum og
4. krossa hné í olnboga.
Sé þetta gert daglega skilar það ár-
angri, líkaminn endurnærist og endur-
ræsist og rifjar aftur upp hvernig það
var að hreyfa sig þegar við vorum
pínuponsulítil.
Við þurfum að verða eins og börnin
sögðu höfundar líkamsræktarbókar-
innar. Eitthvað svipað er haft eftir Jesú
Matteusarguðspjalli: „Nema þér snúið
við og verðið eins og börn, komist þér
aldrei í himnaríki.“ Kannski átti hann
við að við þyrftum að hreyfa okkur
eins og börn. Kannski var hann að
tala um að endurræsa hjartað og hug-
annn. Slíkar æfingar gætu t.d. byggt á
því hvernig börn nálgast annað fólk
og umhverfið:
1. Þau sýna traust,
2. þau gefa af sér skilyrðislausa ást,
3. þau hafa vonarríka afstöðu til lífs-
ins,
4. þau gefa mikið af því sem er
ókeypis en getur breytt heiminum:
Brosum.
Nú eru gleðidagar í kirkjunni. Það
eru dagarnir fimmtíu frá páskum til
hvítasunnu. Páskadagarnir fimmtíu
einkennast af gleði, umhyggju og bjart-
sýni. Má ekki hugsa sér að nota þennan
tíma til að endurræsa líkamann með
því að hreyfa sig eins og barn og endur-
ræsa hugann og hjartað með því að
nálgast annað fólk og umhverfi okkar
eins og börnin gera? Með því að brosa
og mæta öðrum í umhyggju og hlýju,
með því að sýna ást í verki, að treysta
því að allt fari vel.
Ertu til í að endurræsa?
Ríkisstjórnin hefur þegar lækkað veiðigjöld umtalsvert og hyggst gera betur. Fyrsta verk hennar var að lækka gjöldin á síðasta sumarþingi. Seint í síðasta mánuði var svo lagt fram frumvarp um að lækka þau enn
frekar. Hér er verið að tala um lækkun á gjöldum fyrir nýtingu á sameiginlegri
auðlind þjóðarinnar um meira en 10 milljarða króna.
„Á þessu stigi liggja ekki fyrir aðrar ráðstafanir til að vega upp á móti þessari
lækkun á áformaðri tekjuöflun ríkissjóðs. Að óbreyttu má því gera ráð fyrir
að staða ríkissjóðs muni versna á árunum 2014 og 2015 frá því sem áður var
áætlað,“ segir í umsögn fjármálaráðuneytisins um nýjasta frumvarpið. Ætla
menn að brúa þetta milljarðabil með því að skera niður opinbera þjónustu
við fólkinu í landinu? Eins og gert var eftir síðustu lækkun veiðigjaldanna
auk þess sem gjaldskrár voru hækkaðar umtalsvert.
Allt síðasta kjörtímabil töluðu núverandi stjórnarherrar um hvað sjávarútveg-
urinn ætti bágt og fylgdu þar eftir fjöldamörgum forsíðum Morgunblaðsins
þar sem þjóðargjaldþroti var spáð, yrðu veiðigjöld innheimt og fjöldagjald-
þrotum í sjávarútvegi.
Raunin hefur hins vegar verið sú að greinin í heild sýndi yfir 200 milljarða
króna hreinan hagnað á árunum 2009-2012, samkvæmt skýrslum Hagstof-
unnar. Veiðigjöldin, samkvæmt ríkisreikningi námu 17 milljörðum á þessu
tímabili. En það vekur athygli að árið 2008 kom ekki króna í ríkissjóð af
veiðigjöldum. Menn eru því engu að ljúga þegar þeir segja að veiðigjöld hafi
margfaldast undir vinstri stjórninni.
En það er fleira sem vekur athygli í þessu sambandi. Sjávarútvegsfyrirtækin
eru meðal allra helstu bakhjarla núverandi stjórnarflokka. Þegar styrkir til
þeirra frá sjávarútvegsfyrirtækjum eru teknir saman, má sjá að þeir hafa
fengið á milli 90 og 95 prósent af öllum styrkjum sjávarútvegsfyrirtækja til
stjórnmálastarfsemi. Þetta eru fyrirtæki sem fá úthlutað 75 prósentum af
kvótanum við Ísland, næstum öll stærstu og öflugustu fyrirtækin. Fyrirtæki
sem hafa skilað eigendum sínum hundruðum milljóna og milljörðum í
vasann undanfarin ár.
Fólki finnst talan kannski ekki há, 40 milljónir króna handa stjórnarflokk-
unum. En þegar 40 milljónir verða að 10 þúsund milljónum á innan við
tveimur árum, er varla annað hægt en að spyrja sig hvort þetta hafi ekki
verið arðbær fjárfesting.
Ingimar Karl Helgason
Leiðari
Fjárfesting
sem borgar sig
Reykjavík vikublað
17. Tbl. 5. áRganguR 2014
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466,
netfang: amundi@fotspor.is. framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang:
as@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími
578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is, Veffang: fotspor.is, Ritstjóri: Ingimar Karl Helgason, sími:
659-3442 netfang: ingimarkarlhelgason@gmail.com, Blaðamaður: Atli Þór Fanndal. Netfang: atli@
thorfanndal.com. Menningarblaðamaður: Hildur Björgvinsdóttir. Netfang: hildurbjorgvins@gmail.com.
Matarblaðamaður: Svavar Halldórsson. Sími. 869-4940. Netfang. svavar@islenskurmatur.is,
Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 50.000 eintök. dreifing:
Fríblaðinu er dreiFt í 50.000 e intökum
í allar íbúðir í reykjavík.
UMHVERFISVOTTUÐ PRENTUN
Sjálfstæðið
Greint hefur verið frá því að breskir
fjárfestar vilji leggja rafmagnssæ-
streng hingað til lands. Málið mun
vera komið vel af stað. En hins vegar
er ekki að sjá að nein umræða hafi
farið fram hér á landi um skynsemi
þess að virkja út um allt til orkusölu
úr landi. Þess utan má spyrja hvort
eitthvað hafi verið rætt um hvort
það sé gáfulegt að erlendir aðilar
yrðu algerlega ráðandi um slíka
framkvæmd.
Ekki í bíó
Sambíóin ráku tvær stúlkur úr vinnu
fyrir að nýta málfrelsið og ræða
kynjamisrétti á vinnustað sínum.
Þetta er auðvitað hneyksli. Enda
þótt Sambíóin hafi nú boðið þeim
vinnu að nýju hlýtur fólk að spyrja
sig hvort svo hefði verið gert, hefði
ekki verið fyrir nokkra fjölmiðlaum-
fjöllun og yfirlýsinga þúsunda um
að sniðganga Sambíóin. Annars
hlýtur að vekja athygli að það tók
Sambíóin heila viku að bregðast
við og kallaði brottreksturinn þá
„mistök“.
Óraunhæft
Embætti ríkis-
skattstjóra segir
að óraunhæft sé
að fólk geti sótt
um „leiðréttingu“
h ú s n æ ð i s l á n a
15. maí. Það er á
fimmtudaginn.
Málið hefur ekki
verð afgreitt sem lög frá Alþingi.
Þetta er þó það sem boðað var,
en fólk er víst farið að taka yfir-
lýsingum forsætisráðherrans með
nokkrum fyrirvörum. En það að
mörgu að huga í þessu máli, og
alþingismenn hljóta að hugsa um.
Málið er eiginlega óraunhæft enda
þótt athugasemdir ríkisskattstjórans
séu tæknilegs eðlis. Fjöldamargir
hafa bent á marga alvarlega galla
á þeirri hugmynd að greiða niður
skuldir sumar. Í fyrsta lagi veitti rík-
issjóði ekki af því að grynnkað væri
á skuldum hans, í öðru lagi stendur
til að greiða niður skuldir margra
sem ekki þurfa á því að halda. Í
þriðja lagi eru fjölmargir sem sem
verða útundan hjá ríkisstjórninni,
þrátt fyrir að vera með verðtryggð
lán, fyrir utan auðvitað alla aðra
sem lentu í sama „forsendubresti“
og fá ekki neitt, til dæmis fólk á
leigumarkaði, fyrir utan alla þá
sem fengu aðstoð í skuldavanda í
tíð síðustu ríkisstjórnar.
Mótbyr
Borgarráð ákvað að falla frá því að
kynna hverfaskipulagið sem lengi
hefur verið í undirbúningi með þátt-
töku allra flokka. Það gerðist eftir
fjölmiðlastorm með dyggri þátttöku
sjálfstæðismanna þar sem fullyrt
var að taka ætti heilaga bílskúra í
Vesturbænum eignarnámi. Víst er
að ekkert í þá veru hefur staðið til,
en það er forvitnilegt að fylgjast með
því hvernig markvissir útúrsnún-
ingar geta orðið til þess að góðar
hugmyndir séu settar til hliðar.
Í fréttumUmmæli með erindi:
„Vandi ríkisstjórnarinnar er mik-ill nú í upphafi þings. Sá vandi er
tvíþættur. Annars vegar er sá innan-
búðarvandi sem þjóðin hefur fylgst
með í vaxandi undrun síðustu vikur
og mánuði. Vandi sem á rætur í
píramídakerfi gömlu flokkanna, og
einkennist af brjóstumkennanlegu eig-
inhagsmunapoti og valdabrölti. Í slíku
kerfi fer lítið fyrir
bræðralagi og
systurþeli. Þar gildir
réttur hins sterkari
og þar er grunnt á
hefnigirnina ef ein-
hverjum finnst við sér stjakað.“
Kristín Halldórsdóttir, þingkona
Kvennalistans, á Alþingi 1985.
Höfundur er
Árni Svanur Daníelsson,
vefprestur og bloggar
á www.vefprestur.is.
Vill hrósið
Þingmaðurinn Brynjar Níelsson setur
fram áhugaverða sýn á bloggsíðu
sinni. Eins og venjulega skammast
hann út í „vinstri menn“ fyrir að vinna
að endurreisn eftir hrun í boði hans
eigin flokks, og neitar því að rík-
isstjórnin núna sé verklítil. Hann
þakkar henni meðal annars fyrir
að samningar hafi náðst við þorra
launafólks. Þetta er undarlegt afrek í
ljósi þess að allt landið
logar í verkföllum og
kjaradeilum, lög hafa
verið sett á lögmætar
aðgerðir og árið ekki
einu sinni hálfnað.
En Brynjar vill
greinilega hrós
fyrir þetta.
Lýðræðið
Þeim brá nokkuð
Pírötum í Kópa-
vogi þegar þrír
óþekktir menn
röðuðu sér í efstu
sætin á lista flokks-
ins í netkosningu um sæti á lista fyrir
bæjarstjórnarkosningarnar. Kenn-
ingar eru uppi um að „smalað“ hafi
verið fyrir prófkjörið, en 25 greiddu
þar atkvæði um 11 frambjóðendur.
Íslenska leiðin
Það vekur furðu hjá mörgum að
tonnatak virðist vera í ráðherra-
stólnum í innanríkisráðuneytinu.
Bæði í Kastljósi og DV hefur verið
bent á ýmsar mótsagnir í máli ráð-
herra í lekamálinu, bæði í fjölmiðlum
og á Alþingi. Einnig hefur verið bent á
að pólitískir aðstoðarmenn hafa orðið
margsaga í málinu. Víst er að fólk í
öðrum löndum hafa sagt sig frá ráð-
herrastólum af minna tilefni en lög-
reglurannsókn. Inn-
anríkisráðherrann
talaði um „ljótan
pólitískan leik“
á Alþingi. Sumir
spyrja hvort ráð-
herrann hafi
verið að horfa
inn á við.
Gleðibankinn
Aldrei þessu
vant virðast Ís-
lendingar ekki
hafa ákveðið
fyrirfram að
nú vinnum við Eurovision. Það var
því ánægjulegt en jafnframt óvænt
að heyra orðið „Iceland“ lesið upp
á þriðjudagskvöldið, síðast í röð-
inni, þegar tilkynnt var um hvaða
lög kæmust á lokakvöldið í kvöld.
En þrátt fyrir að væntingarnar hafi
verið jarðtengdar hingað til er aldrei
að vita hvað gerist í kvöld. Líklega er
ekki úr vegi að setja á sig bjartsýn-
issólgleraugun og fara strax reikna
hagræn áhrif þess að halda Eurovision
á Íslandi.
héðan og þaðan …
Leita að Reykvíkingi
Jón Gnarr borgarstjóri hefur hafið leit að Reykvíkingi ársins. Óskað er
ábendinga um manneskju sem verið
hefur öðrum til fyrirmyndar, segir í til-
kynningu frá borginni. Þetta er í fjórða
sinn sem þetta er gert, en í tilkynn-
ingu borgararinnar segir að þessi fyrir-
myndarmanneskja gæti til dæmis verið
einhver sem heldur borginni hreinni, t.
d. með því að tína upp rusl, eða einhver
sem haft hefur jákvæð áhrif á nærum-
hverfi með ólaunuðu framlagi eða gert
Reykjavíkurborg gott á undanförnum
árum með öðrum hætti.