Reykjavík - 10.05.2014, Blaðsíða 8
8 10. maí 2014REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Fjárhagslega hagstætt
að halda Eurovision á Íslandi
Áhugi Hauks Johnson á Eurovision kviknaði þegar hann var 7 ára, árið sem
Sigríður Beinteinsdóttir og Grétar Örvarsson fluttu lagið Eitt lag enn. Það
kvöld bar hann út blaðið með bróður sínum, enginn var á ferli en gríðarleg
fagnaðarlæti heyrðust innan úr húsum þegar Ísland fékk stig, „Þarna áttaði
ég mig á því að þetta væri eitthvað stórfenglegt. Næstu ár tók ég svo upp
keppnirnar og horfði á þær nær daglega eftir skóla.“ Haukur verður við
keppnina í Kaupmannahöfn í kvöld, en hann hefur ýmsa snertifleti við
þetta merkilega menningarfyrirbæri sem Eurovision sannarlega er.
Úrslit í Evrópsku söngvakeppninni,
Eurovision, ráðast í Kaupmannahöfn
í kvöld. Keppnin er með elsta sjón-
varpsefni í heimi, var fyrst haldin 1956
en Íslendingar þreyttu frumraun sína
1986 með Gleðibankanum ódauð-
lega. Fjölbreytni laganna er mikil og
hefur í gegnum tíðina mátt heyra allt
frá ljúfum írskum melódíum yfir í
þungarokk finnsku hljómsveitarinnar
Lordi sem vann keppnina árið 2006.
Í kvöld eru það drengirnir í Pollapönki
ásamt bakraddasöngvurunum Snæ-
birni Ragnarssyni og Óttari Proppé
sem koma fram fyrir Íslandshönd
og flytja lagið Enga fordóma eða No
Predjudice í þýðingu tónlistarmannsins
John Grant.
Eurovision vinir frá
Panama og Nýja-Sjálandi
Haukur segir að það hafi ekki komið sér
á óvart að framlag Íslands hafi komist í
úrslitakeppnina í kvöld, það eigi fullt
erindi þangað auk þess sem íslensku
þátttakendurnir beri virðingu fyrir
keppninni og það skipti máli. Sjálfur
átti Haukur, lagið Amor í undankeppni
sjónvarpsins og vonast til að taka þátt
aftur síðar. Í fimmta sinn á sjö árum
mun Haukur verða staddur á úrslita-
keppninni í kvöld en hann á marga
Eurovision-vini sem hittast aðeins við
þetta tilefni. Þeir koma ekki aðeins frá
Evrópu heldur einnig frá Venesúela,
Panama og Nýja-Sjálandi.
Áhorfendur á annað
hundrað milljónir
Árið 2011 skrifaði Haukur BA ritgerð
sína í hagfræði og bar hún titilinn
Væri þjóðhagslega hagkvæmt að halda
Eurovision á Íslandi? Kostnaðarábata-
greining. Í ritgerðinni tók hann mið af
keppninni í Noregi 2010 sem hafi verið
langt frá því sú ódýrasta og telur hann
að Íslendingar gætu sloppið með tölu-
vert lægri upphæð. Mestur kostnaður
væri tengdur tækja –og sviðsbúnaði
en þar á eftir kæmi launakostnaður.
Styrkur frá Sambandi evrópskra sjón-
varpsstöðva auk miðasölu kæmi á móti
og metur Haukur það svo að tekjur
RÚV af verkefninu myndu duga fyrir
meira en helmingi kostnaðarins. Þá
ætti eftir að taka inn í reikninginn af-
leiddan þjóðhagslegan ávinning af t.d.
komu ferðamanna og blaðamanna sem
og landkynningu sem erfitt sé að mæla
í krónum. „Ég studdist þá við það að
opinberir aðilar töldu fullsannað að
átakið Inspired by Iceland hafi „borgað
sig“ en það kostaði 700 milljónir og er
talið hafa náð athygli um 6,5 milljón
manns. Á sama tíma eru áhorfendur
Eurovision vel á annað hundrað millj-
óna og því áætlaði ég að verkefni myndi
skila allavega jafnmiklum árangri og
Inspired by Iceland.“ Frá árinu 2010
hefur verið lögð áhersla á að minnka
umfang keppninnar og voru „aðeins“
seldir 10.000 miðar á keppnina í kvöld
sem er það minnsta í mörg ár. Miðað
við þessar forsendur var þjóðhagslegur
ávinningur af því að halda Eurovision
á Íslandi um 200 milljónir, sem er ekki
svo mikið, en ég held hins vegar að ef
Inspired by Iceland var 700 milljóna
virði þá hljóti Eurovision að vera virði
nokkurra milljarða hið minnsta. Hann
segir það aðeins tímaspursmál hvenær
Ísland vinni keppnina, það þurfi bara
að gefa Evrópu rétta lagið og þá sé þetta
komið. Önnur lönd, líkt og Ísrael eigi
minni möguleika því það hafi margar
þjóðir pólitískt á móti sér.
Menning og saga
sameinar þjóðirnar
Árið 2005 skrifaði Íris Davíðsdóttir
stjórnmálafræðingur ritgerðina Á
hverju byggjast ríkjabandalög: kosn-
ingahegðun einstakra ríkja í Söngva-
keppni Evrópskra sjónvarpsstöðva. Hún
segist hafa komist að þeirri niðurstöðu
að ástæða þess að grannþjóðir kjósi
hver aðra sé helst sú að þær eigi sér
svipaða menningu og sögu, þó pólitík
geti líka haft einhver áhrif. Keppnin
sé einskonar micro útgáfa af alþjóða-
samskiptum og það að það sé keppt í
söng milli þjóða líkt og í íþróttum sé
sérstakt út af fyrir sig og geti ýft upp
ákveðna þjóðernishyggju. Viðburðir af
slíkri stærðargráðu, hvort sem um er
um að ræða íþróttir eða tónlist séu oft
notaðir til að vekja athygli á ákveðnum
málefnum og verði því til að mynda
áhugavert að fylgjast með stigagjöfinni
á milli Rússlands og Úkraínu í kvöld í
ljósi frétta þaðan undanfarið.
„Þá segir maður já“
Snæbjörn Ragnarsson, einn þeirra
sem stíga á svið í Kaupmannahöfn
í kvöld segir að mikil gleði og kátína
ríki innan hópsins sem sé stórkost-
lega dínamískur og aðal undirbún-
ingurinn fyrir úrslitin hafi helst falist
í að viðhalda gleðinni sem hafi verið
auðvelt.
Markmiðið hafi verið fyrst og fremst
að komast í úrslitin en hann sé
persónulega tilbúinn í að rústa keppn-
inni. Aðspurður hvort hann eigi sér
uppáhalds lag í keppninni segist hann
ekki hafa heyrt þau öll, „ Ég er enn að
díla við þá staðreynd að mér finnst
ungverska lagið skemmtilegt. Það er
sjokkerandi.“ Snæbjörn sem er einn
meðlima þungarokkshljómsveitar-
innar Skálmöld hefur að eigin sögn
ekki verið í hópi mestu áhugamanna
um söngvakeppnina; „ Ég var bara
beðinn um að vera með í þessu. Og
þegar maður fær spurninguna „Ertu
til í að syngja bakraddir með Óttarri
Proppé?“ þá segir maður já. Það er
þannig.“ En hver ætli sé helsti munur-
inn á að spila með Skálmöld og að
taka þátt í Söngvakeppni Evrópskra
snjónvarpsstöðva? „Einu sinni var ég
landsliðsmaður í frjálsum íþróttum.
Að keppa í Eurovision er eiginlega
líkara þeim kúltúr. En það er margt
svipað í kringum þetta, eldheitir að-
dáendur og múgsefjun. Það hentar þó
betur að svitna með Skálmöld. Þessi
samfestingur er heldur skjólgóður
fyrir heitfengan mann.“
menningin
Hildur
Björgvinsdóttir
Ekki missa af ...
…Fjölmenningar-
degi Reykjavíkur-
borgar. Skrúðganga
fer frá Hallgríms-
kirkju í dag kl.13, gengið verður niður
Skólavörðustíg og endað í Ráðhúsinu
þar sem verður markaður með hand-
verki og mat frá hinum ýmsu löndum.
Skemmtidagskrá verður í Tjarnarbíói
milli kl.13:30 og 17.
…Meistarahendur.
Í dag kl.16 opnar yf-
irlitssýning á verkum
Ásmundar Sveinssonar
í Ásmundarsafni. Á
sýningunni verða verk sem spanna
feril Ásmundar í heild, meðal annars
sveinsstykki hans, útskorinn stóll frá
námsárum hans 1915-1919 hjá Rík-
harði Jónssyni og höggmyndir sem
hann gerði sem nemandi við sænsku
ríkisakademíuna.
…James McVinnie
sem leikur í Mengi,
Óðinsgötu 2, miðviku-
daginn 14.maí kl.21.
James McVinnie leikur bæði á orgel
og hljómborð og hefur leikið með
listamönnunum Nico Muhly, Graham
Ross og Richard Reed Parry (Arcade
Fire). Miðaverð 2.000kr.
…Tónleikum útskriftarnema.
Þessa dagana halda nemendendur
við tónlistardeild Listaháskóla Ís-
lands útskriftartónleika sína víða
um bæinn. Hafa nemendurnir ýmist
lagt stund á tónsmíðar, á ákveðið
hljóðfæri eða í söng og býðst gestum
að hlýða á afraksturinn. Ókeypis
er inn á flesta tónleikana og nánari
upplýsingar má finna á heimasíðu
listaháskólans, lhi.is.
íris Davíðsdóttir rannsakaði ríkja-
bandalög í kosningunni.
Haukur Johnson reiknaði út hagræn
áhrif þess að halda keppnina hér.
Þegar maður er spurður hvort maður vilji syngja bakraddir með Óttari Proppé
þá segir maður já, segir Snæbjörn Ragnarsson úr Skálmöld.
Pollapönkarar á sviðinu. Mynd: Sander Hesterman (EBU).
Það var mikið fagnað þegar ísland komst áfram. Mynd: Andres Putting (EBU).
Eurovision fararnir stíga á sviðið í kvöld.