Reykjavík - 10.05.2014, Page 10
10 10. maí 2014REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Stjórnarflokkarnir fengu 95 prósent
af styrkjum sjávarútvegsfyrirtækja
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn fengu um 95 prósent af
öllum styrkjum fyrirtækja í sjávarútvegi til stjórnmálaflokka á árunum
2009-2012. Þetta kemur í ljós þegar farið er yfir uppgjör stjórnmálaflokk-
anna sem send hafa verið til Ríkisendurskoðunar. Uppgjör fyrir kosninga-
árið 2013 eru ekki komin til Ríkisendurskoðunar. Um þrjátíu fyrirtæki
sem styrktu flokkana tvo fá úthlutað um 75 prósentum af öllum kvóta á
Íslandsmiðum og ætla má að séu helstu greiðendur veiðigjalda.
Samkvæmt lögum um fjármál stjórn-
málastarfsemi þurfa flokkar og fram-
bjóðendur að upplýsa um alla styrki
frá lögaðilum. Auk þess má hver og
einn ekki styrkja stjórnmálaflokk
eða stjórnmálamann um meira en
400 þúsund krónur. Þar segir einnig
að telja skuli saman framlög tengdra
aðila.
Þegar litið er yfir framlög lögaðila
til Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar-
flokksins, Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna, má sá að fyrirtæki í
sjávarútvegi hafa styrkt flokkana um
samtals ríflega 40 milljónir króna.
Vinstri græn fengu áberandi
minnst, innan við hálfa milljón króna
á þessum fjórum árum. Næst minnst
fékk Samfylkingin, um tvær milljónir.
Þegar styrkir til núverandi stjórnar-
flokka eru kannaðir blasir hins vegar
við töluvert önnur mynd. Þannig
námu styrkir til Sjálfstæðisflokksins
um 27 milljónum króna á tímabilinu
og styrkir til Framsóknarflokksins um
13 milljónum. Í allt fengu þessir tveir
flokkar því um 95 prósent allra styrkja
sem sjávarútvegsfyrirtæki veittu flokk-
unum fjórum á árunum 2009-2012.
Framsókn
Þegar framlög til Framsóknarflokks-
ins eru könnuð nánar má sjá að helstu
styrktaraðilar flokksins í sjávarútvegi
eru í hópi kvótamestu útgerða landsins.
Nefna má Brim, Ísfélag Vestmanna-
eyja, Vinnslustöðina í Vestmanna-
eyjum, Samherja, Síldarvinnsluna,
Hraðfrystihúsið Gunnvör, Þorbjörn og
Vísi í Grindavík og HB-Granda. Einnig
eru þarna félög líkt og Hvalur hf. en
félagið átti á tímabilinu stóran hlut
í HB-Granda, auk Kaupfélags Skag-
firðinga sem hér er talið með, enda á
kaupfélagið Fisk Seafood að öllu leyti.
Sjálfstæðisflokkur
Sömu fyrirtæki eru áberandi meðal
þeirra sem styrktu Sjálfstæðisflokk-
inn á tímabilinu. Í 27 milljóna króna
upphæðinni sem að ofan var nefnd,
eru reyndar einnig styrkir frá fyrir-
tækjum líkt og Lýsi og sölufyrirtækinu
Icelandic group. Séu þau tekin út fyrir
sviga lækkar heildarupphæð sjávarút-
vesstyrkja til Sjálfstæðisflokksins rétt
niður fyrir 25 milljónir króna á tímabil-
inu, sem er samt sam áður mun hærri
upphæð en hjá nokkrum öðrum flokki.
Algengt er að sjávarútvegsfyrirtækin
hafi látið flokknum í té hæstu upphæð
sem völ er ár, 400 þúsund krónur.
Brim styrkti flokkinn um 1,5 millj-
ónir á tímabilinu, eins og Samherji , HB
Grandi og Gjöfur ehf. Hraðfrystihúsið
Gunnvör lét flokknum í té svipaða upp-
hæð, eins gerði Ísfélag Vestmannaeyja.
Einnig voru mörg fyrirtæki sem létu
flokknum í té um milljón króna á
tímabilinu, líkt og Þorbjörn í Grinda-
vík, Vinnslustöðin í Eyjum, Kaupfélag
Skagfirðinga,
Samfylking og VG
Styrkir til fyrrverandi stjórnarflokk-
anna Samfylkingarinnar og Vinstri
grænna frá sjávarútvegsfyrirtækjunum
eru áberandi minni en til núverandi
stjórnarflokka. Þannig fengu Vinstri
græn einn 400 þúsund króna styrk frá
Brimi árið 2011, 50 þúsund frá Sam-
herja árið á undan, og fimmþúsundkall
frá Vísi í Grindavík kosningaárið 2009.
Samfylkingin fékk samtals styrk frá 7
sjávarútvegsfyrirtækjum á tímabilinu,
alls um tvær milljónir króna. Í engu
tilviki var um að ræða hámarksupp-
hæð styrkja.
Tengdir aðilar
Athygli vekur að fyrirtæki sem tengjast
mjög innbyrðis hafa styrkt núverandi
stjórnarflokka dyggilega.
Nefna má tengsl Samherja og Síldar-
vinnslunnar, en á tímabilinu eignaðist
Samherji ráðandi hlut í síðarnefnda
fyrirtækinu. Síldarvinnslunni tengist
svo aftur sjávarútvegsfyrirtækið Gjögur
sem á þar stóran hlut. Þessi þrjú félög
styrktu Sjálfstæðisflokkin um samtals
eina milljón króna árið 2012.
Þá hefur Hvalur hf. verið stór hlut-
hafi í Vogun, sem hefur átt 40 prósenta
hlut í HB Granda. Bæði Hvalur og HB
Grandi styrktu Sjálfstæðisflokkinn
um 6-800 þúsund krónur samanlagt
á hverju þessara fjögurra ára.
Sterk tengsl eru milli félaganna
Brims, KG Fiskverkunar og Vinnslu-
stöðvarinnar í Vestmannaeyjum.
Bræðurnir Guðmundur Kristjáns-
son, gjarnan kenndur við Brim, og
Hjálmar Þór Kristjánsson, eru hér að
baki. Hjálmar á KG fiskverkun. Saman
eiga þeir Brim og hátt í fimmtungs-
hlut í Vinnslustöðinni í gegnum félagið
Stillu. Séu framlög þessara félaga tekin
saman, má sjá að Brim og Vinnslu-
stöðin styrktu Sjálfstæðsflokkinn um
600 þúsund bæði árin 2012 og 2011,
um samtals 800 þúsund árið 2010 og fé-
lögin þrjú, KG, Brim og Vinnslustöðin
um samtals 800 þúsund krónur árið
2009.
Þessi fyrirtæki virðast þó ekki falla
undir ákvæði laganna um tengda að-
ila. Að minnsta kosti hefur ekki frést
af athugasemdum vegna samanlagðra
styrkja frá þeim.
Veiðigjöld
Mikil umræða hefur verið um veiði-
gjöld undanfarin ár, en harðar deilur
voru uppi allt síðasta kjörtímabil. Bæði
var almennt veiðigjald hækkað og svo
var lagt á sérstakt veiðigjald sem er
tengt við afkomu greinarinnar í heild.
Í allt námu veiðigjöld 17 milljörðum
króna á þessu árabili, 2009-12 sam-
kvæmt ríkisreikningi. Árið 2008 kom
ekki króna í veiðigjöld, samkvæmt
ríkisreikningi þess árs. Í skýrslum
Hagstofunnar kemur fram að hreinn
hagnaður af veiðum og vinnslu nam
yfir 200 milljörðum króna á árunum
2009-12.
Þegar borin eru saman yfirlit Ríkis-
endurskoðunar og yfirlit Fiskistofu yfir
þau fyrirtæki sem fá úthlutað mestum
kvóta kvóta, má sjá að handhafar
þriggja fjórðu af fiskveiðiheimildum
á Íslandsmiðum hafa styrkt núverandi
stjórnarflokka.
Fram hefur komið að veiðigjöld voru
lækkuð í sumar og að til stendur að
lækka þau enn frekar með frumvarpi
sem nú liggur fyrir Alþingi.
fréttaskýring
Ingimar Karl
Helgason
Forystumenn stjórnarflokkanna undirrita stjórnarsáttmálann. Framsókn og Sjálfstæðisflokkur fengu yfir 90 prósent
allra styrkja frá sjávarútvegsfyrirtækjum á síðasta kjörtímabili. Mynd: Pressphotos.biz.
Hreinn hagnaður veiða og vinnslu nam yfir 200 milljörðum króna árin 2009-12.
Veiðigjöld á sama tíma námu 17 milljörðum króna.
Lunginn af allra stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins styrkti veitti stjórn-
arflokkunum fé. Þessi félög fá samanlagt úthlutað um 75 prósentum af
kvótanum við ísland.