Reykjavík - 10.05.2014, Síða 12
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9,
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð!
EX
PO
-
w
w
w
.ex
po
.is
Sími: 535 9000
TOPP SKÍÐAFESTINGAR
Á GÓÐU VERÐI
Láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig VERSLANIR
SJÖ
MEÐ MIKIÐ
VÖRUÚRVAL
myndlistaskol inn. is
Vorsýning Diplómadeilda
Myndlistaskólans í Reykjavík
verður haldin í Safnahúsinu við
Hverfisgötu dagana 14. - 18. maí
Umsóknarfrestur í
Diplómadeildir er 3. júní
Útskriftarsýning
Sjónlistadeildar
Myndlistaskólans í Reykjavík
verður haldin að Hringbraut 121
dagana 14. - 18. maí
Umsóknarfrestur í
Sjónlistadeild er 19. maí
– gerir lífið bjartara
Einfalt og flott
Ármúla 19 · Sími 568 1620 · www.gloey.is · gloey@gloey.is
10. maí 201412 REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
sveitarstjórnarkosningar 2014
Gjaldfrjáls grunnþjónusta við börn
Í síðustu viku birtist hér í Reykjavík vikublaði grein eftir Skúla Helgason, frambjóðanda Samfylkingarinnar
til borgarstjórnar, undir yfirskriftinni
“Eflum innra starf í skólunum”. Þar lofar
Skúli öllu fögru, heitir samvinnu við
kennara og skólastjórnendur um miklu
betra skólastarf í Reykjavík.
Batnandi fólki er best að lifa. En það
getur varla talist trúverðugt að setja fram
fögur fyrirheit um samráð og samstarf
eftir að hafa staðið að harkalegri aðför
að skólastarfi í Reykjavík, sameiningum
skóla, uppsögnum skólastjórnenda og
kjaraskerðingum leikskólakennara.
Úrtöluraddir íhaldsfólks
Í greininni tekur Skúli sér auk þess skil-
greiningarvald á því sem er mögulegt og
því sem er ekki mögulegt. Hann full-
yrðir að það muni enginn geta staðið
við loforð um gjaldfrjálsa leikskóla,
frístundastarf og skólamáltíðir ásamt
öðrum viðfangsefnum á vettvangi
skóla- og frístundar. Skúli þykist hafa
fundið hér óyfirstíganlegan pólítískan
ómöguleika.
Fullyrðingar Skúla eru hluti af kunn-
uglegum úrtöluröddum sem því miður
heyrast allt of oft þegar við í Vinstri
grænum höfum sett fram róttækar
tillögur í þágu samfélagsins. Aðgerðir
til að skapa réttlátt samfélag eru alltaf
úthrópaðar sem ómögulegar eða
óraunsæjar af íhaldsmönnum.
Þannig var það á sínum tíma um
heilsdagsleikskóla fyrir öll börn,
skólamáltíðir í grunnskólum og jafn-
vel hjólastíga og bættar almennings-
samgöngur. Allt þóttu þetta einu sinni
óraunhæf stefnumál eða ómöguleg í
framkvæmd. Úrtöluraddir íhalds-
fólks ómuðu þá eins og núna - þó allir
flokkar hafi á endanum samþykkt mik-
ilvægi þessara verkefna. Enda hljóta
allir að geta verið sammála um að for-
gangsraða þurfi fyrir börn.
Raunhæft og nauðsynlegt
Eina framboðið sem hefur sett fram
útfærða áætlun um framkvæmd helstu
stefnumála sinna, þar með talið verð-
miða og áfangaskiptri áætlun um
framkvæmd er Vinstrihreyfingin grænt
framboð. Við höfum sýnt fram á að
með tilfærslu á 0,9% af tekjum borg-
arinnar getum við innleitt gjaldfrelsi
á fjórum árum. Það er að sjálfsögðu
hægt en til þess þarf kjark og áræðni.
Stefna Vinstri grænna um gjald-
frjálsa grunnþjónustu við börn er ekki
bara raunhæf, heldur nauðsynleg og
ábyrg nálgun til að takast á við sívax-
andi fátækt og ójöfnuð í samfélaginu.
Hættum að sporna gegn nauðsynlegum
framförum og vinnum saman að betri
borg fyrir fólkið í borginni.
Höfundur er
Sóley Tómasdóttir
Oddviti VG í Reykjavík
Almenningssamgöngur fyrir alla?
Ég er mjög hlynnt almennings-samgöngum en samband mitt við strætó hefur gengið mjög
brösugt. Oft og iðulega þegar ég hef
ætlað mér að taka strætó þá hefur
orðið seinkun eða ferðin jafnvel fallið
niður vegna vélarbilunar. Þetta er ekki
nein ófrávíkjanleg regla, en gerist
nægjanlega oft til þess að fjölskyldan
mín hefur oft orð á þessum ógöngum
mínum. Þessi óheppni mín hefur samt
ekki farið mikið í taugarnar á mér, en
það hefur hins vegar farið alveg hrika-
lega í mig hversu snemma strætó hættir
að keyra á kvöldin og sömuleiðis að
akstur hefjist ekki fyrr en undir hádegi
um helgar. Þær eru óteljandi ferðirnar
sem ég hef þurft að keyra og sækja
börnin mín í og úr vinnu, skóla eða
íþróttaæfingum vegna þess að strætó
er hættur eða ekki byrjaður að ganga.
Mér finnst hugsunin með almenn-
ingssamgöngum hér á höfuðborgar-
svæðinu röng. Það virðist sem strætó
eigi að vera fyrirtæki sem ætlað er að
bera sig fjárhagslega að mestu og vera
sem minnst byrði á sjóðum almenn-
ings. Fyrir vikið er strætó vængstíft
fyrirbæri. Það er kannski tilgangurinn
svo að einkabíllinn haldi vinsældum
sínum?
Það er flestum ljóst að góðar al-
menningssamgöngur eru þjóðhagslega
hagkvæmar. Með góðum almenn-
ingssamgöngum meina ég að strætó
sé raunverulegur valmöguleiki við
einkabílinn. Tíðni ferða á að vera það
mikil að notandi þurfi ekki að kunna
tímatöfluna utan að, heldur bara að
vita hvaða strætó hann á taka. Það
þarf að vera hægt að greiða farið án
sérstakrar fyrirhafnar, þ.e.a.s. líka með
peningum eða greiðslukorti fyrir þá
sem nota strætó sjaldan. Auk þess á
að sjálfsögðu að vera frítt fyrir börn og
framhaldsskólanemendur. Í dag mið-
ast þjónusta strætó við þarfir eigenda
í þröngum skilningi, það er eingöngu
rýnt í bókhaldið. Strætó á fyrst og
fremst að vera þjónusta við almenning.
Einnig eru líkur á því að sveitafélögin
komi til með að stórgræða með minni
notkun á einkabílnum, sem skilar sér í
minna sliti á vegum, færri bílastæðum
og minni mengun. Dögun mun berj-
ast fyrir því að almenningssamgöngur
verði samgöngur fyrir almenning sem
virka og hin jákvæðu áhrif á efnahag og
umhverfi verði nýtt öllum til hagsbóta.
Höfundur er
Helga Þórðardóttir,
frambjóðandi Dögunar í 8. sæti
Þessi mynd Jafnréttisstofu sýnir að þótt dregið hafi saman með launum kynjanna á síðustu þremur áratugum, eru
laun kvenna enn ekki nema tveir þriðju af launum karla.