Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 13.09.2007, Blaðsíða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 13.09.2007, Blaðsíða 13
Fréttir / Fimmtudagur 13. september 2007 13 Fjölbreytt dagskrá Visku í vetur: Handritin heim, saga Vest- mannaeyja, eldsmíði og skeptun -Einnig vín með villibráð, bútasaumur og fatahönnun meðal þess sem er í boði Viska- símenntunarstöð stendur fyrir fjölbreyttum og spennandi námskeiðum í vetur eins og undan- farin ár. I boði eru ýmis fag- og rétt- indanámskeið, samskipta- og sjálf- styrkingarnámskeið, tungumála- námskeið, tölvu- og tómstundanám- skeið og ýmis önnur námskeið eins og skartgripagerð, vínsmökkun og fatahönnun. „Vinnuvélanámskeið, kennslu- fræðinámskeið fullorðinna og fag- námskeið fyrir stuðningsfulltrúa og byggingaliða hefjast í september," sagði Valgerður Guðjónsdóttir, for- stöðumaður Visku þegar hún var spurð hvað væri á dagskránni. „Það var óskað sérstaklega eftir námskeiði fyrir stuðningsfulltrúa, þ.e. fólk sem starfar með einstak- lingum með fötlun í leik- og grunnskóla. Námskeiðið gæti verið undirbúningur fyrir frekara stuðn- ingsfulltrúanám eða félagsliðabrú. Grunnnámskeið fyrir byggingaliða er ætlað ófaglærðum sem starfa við húsbyggingar og þeim sem starfa við gatna- og jarðvinnu sem og þeim sem selja vörur ætlaðar til hús- bygginga og mannvirkja. Auk fag- námskeiða verður í boði rétt- indanám eins og 30 tonna skip- stjómarnámskeið. Við erum þegar komin með hóp sem ætlar að taka pungaprófið en þess ber að geta að nýjar reglur frá Siglingastofnun taka gildi 1. janúar 2007. Þá er ekki miðað við 30 tonn heldur 12 metra.“ Viska stendur fyrir námskeiðum sem sérstaklega eru ætluð heil- brigðisstéttum auk sjálfstyrkinga og uppeldisnámskeiða sem eru öllum opin. „Þrjú ný námskeið eru í boði fyrir heilbrigðistéttir. Eitt þeirra er kynning á taugasjúkdómum og annað er um hvernig minnka má á- hættu á verkjum í stoð- og hreyfi- kerfi. A þriðja námskeiðinu er farið mámsi/^s^r yfir samskipti heilbrigðisstarfsfólks við sjúklinga og aðstandendur þegar slys eða áfall ber að höndum. Við emm líka með samskipta- og sjálfstyrkingarnámskeið. Sólrún Gunnarsdóttir verður með nám- skeiðið, uppeldi sem virkar, færni til framtíðar og er ætlað foreldum og forráðamönnum barna til að gera þá færari sem uppalendur. Námskeið fyrir fólk á tímamótum er ætlað fólki sem horfir fram á breytingar í sínu lífi annað hvort vegna starfs- loka, veikinda eða af öðrum orsökum. Farið er yfir opinbera þjónustu, félagslíf, ferðatilboð og margt fleira skemmtilegt. í október- byijun hefst námskeiðið, Skref til sjálfshjálpar í lestri og ritun. Námskeiðið er ætlað fólki með lestrar- og ritunarerfiðleika og ættu allir sem eiga við þetta vandamál að glíma að nota tækifærið og sækja þetta námskeið." Námskeið sem tengjast menningu og útivist hafa verið vinsæl hjá Visku undanfarin ár og í vetur verða námseið sem bera yfirskriftina, Skráðu söguna á Heimaslóð, Hand- ritin heim, Saga Vestmannaeyja, Eldsmíði og skeptun og Svæðisleið- sögn. „Saga Vestmannaeyja er námskeið sem Ragnar Óskarsson og fleiri stýra. Viðfangsefnið eru valdir þætt- ir úr sögu Vestmannaeyja til dagsins í dag. Námskeiðið er ætlað áhuga- sömum og ekki síst fyrir þá sem eru í ferðaþjónustu. Sömu sögu er að segja um svæðisleiðsögn sem er fyrir fólk sem starfar í ferðaþjónustu og þá sem hafa áhuga og starfa við ferðaþjónustu." Námskeið sem tengjast mat og matargerð hafa einnig verið vel sótt undanfarin ár auk námskeiða sem tengjast kaffi- og vínmenningu. „Usha sem kom hingað í fyrra með námskeið um indverska matar- menningu verður nú með tvö námskeið. Annars vegar verður hún með grunnnámskeið fyrir þá sem ekki hafa komið áður og hins vegar ætlar hún að vera með námskeið þar sem áhersla er lögð á ýmis indversk brauð og grænmetisrétti. Auk þess verður námskeið um matreiðslu í eldhúsum og mötuneytum og námskeið þar sem fólki er kennt að velja rétta vínið með villibráð. Annað námskeið sem tengist vín- menningu er námskeið um freyði- vín og kampavín en eins og fólk veit þá er kampavín freyðivín en það eru ekki öll freyðivín kampavín. Margrét Reynisdóttir verður með námskeið um bætt mataræði og tímastjórnun en með góðu skipulagi við matartilbúning og innkaup er hægt að spara allt að 200 klukku- stundir á ári og nota í annað. Auk þess verða skemmtileg tóm- stundanámskeið eins og nýtt námskeið í skartgripagerð með áherslu á efni úr náttúrunni í kringum okkur. Sigríður Krist- mannsdóttir ætlar að kenna áhuga- sömum að hanna og sauma föt og við verðum líka með bútasaums- námskeið. Þannig að það verður heilmikið í boði í vetur og allar ábendingar vel þegnar um áhuga- verð og spennandi námskeið," sagði Valgerður. NM-grunnskólanema í skák: Sveit Barnaskólans náði silfri Sigursveitin ásamt fararstjóra. Hallgrímur, Kristófer, Sindri og Alexander. Með þeim er Karl Gauti Hjaltason fararstjóri. Með þeim var líka Helgi Ólafsson, skákmeistari. Segir Karl Gauti að hann hafi reynst strákunum vel á mótinu sem var mjög erfitt. Eyjabúð til sölu Eyjabúð sem er ein rótgrónasta verslun bæjarins er auglýst til sölu í Fréttum í dag. Friðfinnur Finnbogason í Eyjabúð vill selja búðina ef hann fær gott tilboð og traustan kaupanda. Verslunin hefur ákveðin sjarma því hún hefur lítið breyst og vörunar afgreiddar yfir búðarborðið eins og þegar Eyjabúð hóf rekstur fyrir rúmri hálfri öld. „Við erum búin að reka ver- slunina í 55 ár á næsta ári og sjálfur hef ég rekið hana í 10 ár á næsta ári, Það er auðvitað mikið mál að selja búðina en það er upphaf og endir á öllu í lífinu. Eg er með þungan lager og í sam- keppni við milljarðafyrirtæki og svo eru ráfandi sölumenn að selja sömu vörur og við í fyrirtækjum alla daga. Eg hef verið mikið einn í versluninni og því lítið komist frá og kannski er þetta upphafið að einhverju nýju hjá mér. Sveit Grunnskóla Vestmannaeyja var aðeins hálfum vinningi frá sigri á Norðurlandamótinu í skák sem lauk á laugardaginn í Örsundsbro í Svíþjóð. Eyjapeyjar tefldu mjög vel í mót- inu og voru í öðru sæti fyrir síðasta keppnisdaginn. Lokaumferðin var svo mjög spennandi en þegar yfir lauk endaði Grunnskóli Vestmanna- eyja með 13,5 vinninga en heima- menn frá Örsundsbro 14. I síðustu umferð unnu strákamir sannkallaðan stórsigur á annarri sænskri sveit frá Málarhöjdens 3,5:0,5. Áður höfðu þeir gert jafn- tefli gegn nýkrýndum Norðurlanda- meisturum frá Örsundsbro, 2:2 og því ljóst að ekki munar miklu á sveitunum tveimur. Sveit Eyja- manna skipa þeir Nökkvi Sverris- son, Alexander Gautason, Sindri Freyr Guðjónsson, Hallgrímur Júlíusson og varamaður var Kristó- fer Gautason. Strákamir voru í góðum höndum á meðan mótinu stóð en Eyjamaðurinn Helgi Ólafs- son, stórmeistari, var liðsstjóri Eyja- sveitarinnar. Silfurverðlaun á Norðurlandamót- inu em hins vegar stórglæsilegur árangur hjá þessum efnilegu skák- mönnum og ljóst að framtíðin er þeirra ef vel er haldið á spilunum. Lokastaðan í mótinu varð þessi: Svíþjóð Örsundsbro 14 v. íslandGV 13,5 v. Noregur Korsvoll 10,5 v. Danmörk Jetsmark 9 v. Svíþjóð Málarhöjdens 7 v. Finnland Mánttá 6 v. Mjög gaman „Það var mjög gaman að taka þátt í þessu móti og við emm ánægðir þó svo að það væm vonbrigði að vinna ekki því það munaði svo litlu. Þetta var svolítið erfitt mót en skemmti- legt. Svíþjóð var með sterkt lið enda unnu þeir mótið,“ sagði Sindri Guðjónsson þegar hann var spurður út í mótið. „Jú, það er líka spennandi að ferð- ast í tengslum við skákina og að kynnast nýjum krökkum. Strákar eru í miklum meirihluta en það kepptu líka þrjár stelpur." Eruð þið ekki stressaðir ímótum? „Maður er alltaf smá stressaður en það er allt í lagi. Við æfum fjómm sinnum í viku og svo em líka mót hjá okkur. Þetta er skemmtilegt og að sjálfsögðu verð ég áfram í skák- inni.“ Margar lóðaumsóknir: Samtals húsnæði upp a 11 þ. fm Mikið hefur verið sótt um lóðir undir byggingar í sumar. Hér er samantekt Sigurðar Smára Benó- nýssonar, skipulags og bygg- ingafulltrúa bæjarins, um þær lóðir sem umhverfis- og skipu- lagsráð hefur úthlutað á þessu ári. I sviga er svo byggingarmagn í fermetrum. • Baldurshagi, íbúðar-og þjón- ustuhúsnæði (3092 fm.). •FES atvinnuhúsnæði (420 fm.). • Eiði - Vinnslustöð, atvinnuhús- næði (3000 fm. 1 áfangi). •Hilmisgata 2-10, íbúðarhúsnæði (1180 fm.). •Vestmannabraut 29-31, atvinnu- og þjónustuhúsnæði (770 fm.). •Bessahraun ÍA-B, 3A-B, 5 og 7, íbúðarh. (ca. 1200 fm.). •Litlagerði 21, 23, 25 og 27, íbúðarh. (ca. 1200 fm.). •Miðstræti 7 íbúðarh. (170 fm.). •Miðstræti 20 atvinnu- og þjón- ustuhúsnæði (416 fm.). •VSV bræðsla, tankar (ca. 2000 fm.) •Birkihlíð 15, íbúðarh. (ca. 200 fm.). •Dverghamar 29, íbúðarh. (ca. 220 fm.). Samtals 11.400 fm. Að auki eru aðrar minni stækk- anir í framkvæmd t.d við Barna- skóla og viðbyggingar við íbúð- arhúsnæði. Margir veitinga- staðir Þeir eru margir veitingastaðimir í Eyjum. Það kemur fram í síðustu furndargerð bæjarráðs þar sem sótt er um veitingaleyfi fyrir nokkra einkasali. Fyrst var það umsókn frá Alþýðuhúsinu um rekstrarleyfi til sölu gistingar og/eða veitinga. Bæjarráð samþykkti erindið svo fremi sem aðrir sem um málið fjalla geri það einnig. Sömu afgreiðslu fengu umsókn- ir frá Kiwanisklúbbi Vestmanna- eyja og Oddfellowhúsinu Vest- mannaeyjum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.