Fréttir - Eyjafréttir - 10.01.2008, Blaðsíða 15
Fréttir / Fimmtudagur 10. janúar 2008
Halla Andersen - Stefán Lúðvíksson - Erla Halldórsdóttir - Einar Björn Árnason - Ása Ingibergsdóttir:
Horfa björtum augum fram á veg
Viðtal
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir
gudbjorg @ eyjafrettir. is
Fréttir fengu fimm valinkunna
Eyjamenn til þess að segja
lesendum Frétta hvað þeim fannst
standa upp úr á síðasta ári og líta
fram á veginn. Það er óhætt að
segja að ákveðinn bjartsýni ríki hjá
þessu ágæta fólki sem kemur frá
ólíkum sviðum atvinnulífsins.
„Gleður mig ósegjanlega
að á árinu verði byrjað á
Bakkafjöruhöfn, “
segir Halla Júlía Andersen
„Árið 2007 var viðburðaríkt hjá
mér og mínurn," sagði Halla Júlía
Andersen grunnskólakennari þegar
hún var beðin að fara yfir síðasta
ár.
„Grunnskóli Vestmannaeyja varð
til, sem þýddi að ég varð að breyta
um vinnustað eftir 29 ár á sama
staðnum! Ég var afar mikið á móti
þessari aðgerð, bæði faglega og
persónulega, en verð í dag að játa,
að margt tókst vel og vona að
annað lagist. Ég sakna auðvitað
„gömlu“ samstarfsmannanna
minna, en nýi vinnustaðurinn tók
vel á móti mér. Þar vinnur gott fólk
og líður mér afskaplega vel þar.
Yngsta barnið mitt fermdist,
miðlungurinn minn lauk námi og
elsta barnið mitt eignaðist þriðja
bamið sitt, sem jafnframt er fimmta
bamabamið okkar.
1 sumar fórum við svo í ógleym-
anlegt ferðalag með vinum okkar,
Má Jónssyni og Jónu Ólafs. Við
sigldum um Skotland, frábær ferða-
máti.
Þegar Halla er spurð um nýja árið
segir hún að það leggist nokkuð vel
í sig. „Ég hef reyndar heilmiklar
áhyggjur af grunnskólamálunum
ennþá, en vona að okkur beri gæfa
til að þróa þau mál eins og best
verður á kosið. Góður grunnskóli er
eitt af því sem ungt fólk skoðar
þegar það velur sér búsetu.
Eg er ein af þeim sem stríði við
ferðafötlun á háu stigi. Það gleður
mig þess vegna ósegjanlega mikið
að á árinu verði byrjað á Bakka-
fjöruhöfninni.
Það hefur verið vegið að undir-
stöðuatvinnuveginum, en fólkið í
þeim geira er bjartsýnt, spýtir í
lófana og eflist við mótlætið. Það
sýna nýju skipin og framtíðarplön í
uppbyggingu sjávarútvegsfyrir-
tækjanna. Þetta eykur bjartsýni
mína á að Vestmannaeyjar verði
áfram staðurinn minn.“
„Byrjun á breyttu viðhorfi
og hugsunarhœtti, “ segir
Stefán Lúðvíksson
„Öll þessi nýju skip og uppbygging
fiskvinnslufyrirtækjanna, “ sagði
Stefán Lúðvíksson, eigandi Eyja-
blikks þegar hann var beðinn að
nefna það sem stæði upp úr á árinu.
„Byrjun á breyttu viðhorfi og
hugsunarhætti og mikil jákvæðni í
bænum. Mér finnst fólk miklu
bjartsýnna á framtíðina, einstak-
lingar eru að byija að byggja hús
og það er gott miðað við árin á
undan. Það eru nóg verkefni fram-
undan og vantar orðið fólk í vinnu.
Til dæmis er mjög erfitt að fá menn
í jámiðnaði sem má segja að sé
jákvætt vandamál en auðvitað væri
betra ef maður fengi mannskap."
Þegar Stefán var spurður hvemig
hann sæi árið framundan, stóð ekki
á svari.
„Ég held að þetta verði frábært ár.
Ég held það verði nóg að gera og
nú er einu ári styttra í að við fáum
höfn í Bakkafjöru. Þegar hún
verður tilbúin hættir maður að vera
sjóveikur í þrjá tíma og verður bara
EINAR BJÖRN með tvíburana Dag og Sunnu: Mér flnnst fólk almennt bjartsýnt og tel að
bættar samgöngur gætu breytt miklu bæði fyrir okkur Eyjaskeggja og þá sem eru að
koma að heimsækja okkur.
sjóveikur í hálftíma. Það er nú bara
lúxus.
Ég vona að ÍBV komist upp og
geti farið að keppa við alvöru lið
eins og Fylki, það væri gaman.
Eyjablikk er að stækka við sig,
flytur í norðurendann að Flötum 27
á árinu og það em stór verkefni
framundan. Jafnvel era líkur á því
að við getum farið að byggja á
íbúðimar á Hilmisgötunni á árinu.
Þetta verður gott ár,“ sagði Stefán.
„Lesendahópurinn í Eyjum
er að stækka, “ segir Erla
Halldórsdóttir
„Það sem mér finnst jákætt er hvað
viðskiptin við Eymundsson hafa
gengið vel og hvað við eigum
marga góða og trausta viðskiptavini
í Eyjum," sagði Erla Halldórsdóttir,
verslunarstjóri Eymundsson, þegar
hún var spurð hvað stæði upp úr á
síðasta ári.
„Það hefur verið stöðug aukning
síðan við byrjuðum þannig að
lesendahópurinn í Eyjum er að
stækka, sérstaklega eftir að bækur
fóra að koma út í kiljuformi. Ég er
með frábært starfslið og það skiptir
meginmáli. Konukvöldið, sem við
stóðum fyrir, heppnaðist frábærlega
vel. Það komu 150 konur og ég hef
fengið mjög góð viðbrögð og
margar þeirra era afar þakklátar."
Erla segist hafa notað sumarfríið
sitt til að mála Blátind með
Tryggva Sigurðssyni, sambýlis-
manni sínum, en hann hafði umsjón
með endurbótum á skipinu. „Það
var mjög gaman þegar báturinn var
klár enda er þetta flottur bátur. Þá
finnst mér mjög mikilvægt að
hugsa til þess að strákamir mínir
plumma sig vel í lífinu. Það er
aðalatriðið að þeim gengur rosalega
vel.“
Erla er ekki í vafa um að árið sem
er framundan verður gott ár. „Ég
set markið hátt og vil gera enn
betur með verslun Eymundsson.
Draumurinn er að koma þar upp
alvöra kaffihomi og hugmyndin er
að vera með uppákomu, bæði með
Símanum og Éymundsson í sumar.
Ef maður er jákvæður þá er allt
jákvætt í kringum mann. Ég held
að atvinnumálin í Eyjum séu í góðu
horfí og að allir fái vinnu sem vilja.
Lífíð brosir við mér og mér fínnst
að ættu allir að geta haft það gott.“
„Eigum að geta tekið á
móti fleira fólki en í dag, “
segir Einar Björn Árnason
Ef ég fer yfir síðasta ár þá er
útskriftin sl. vor toppurinn," segir
Einar Bjöm Ámason, matreiðslu-
maður þegar hann er spurður um
eftirminnilegustu atburði ársins en
hann lét sig ekki muna um að
útskrifast frá Hótel- og matvæla-
skólanum í Kópavogi með stæl.
„Ég var mikið á ferðinni þegar ég
var í skólanum og kom heim nánast
í hverri viku og kynntist sam-
göngumálunum nokkuð vel. Ég
hefði viljað sjá nýtt og öflugra skip
strax, því það er helsta málið hjá
okkur að bæta samgöngumar. Ég er
samt ánægður með að það á að
ráðast í höfn í Bakkafjöra þó ég
hefði viljað sjá jarðgöng."
Einar Bjöm segir vikuferð til
Tenerife hafa verið frábæra þar sem
samankomnir vora 80 til 90 manns
frá Eyjum. „Heimferðin er eftir-
minnileg þar sem flugið var hræði-
legt og ég var í því að hughreysta
Daða Páls og Magga Steindórs því
þeir vora svo skelkaðir.
Svo varð Drífa frænka amma á
árinu þegar Hrafnhildur dóttir
hennar eignaðist bam. Hrafnhildur
vinnufélagi minn varð líka amma á
árinu þó hún beri það nú ekki með
sér. Svo náði ég loks að draga
félaga minn hann Grím í ræktina en
það hefur tekið mig fjögur ár að fá
hann með mér,“ segir Einar Bjöm
og kann sannarlega að tína til
merkilega atburði frá liðnu ár.
„Ég lít nýja árið jákvæðum
augum. Ég vil þakka útgerðar-
mönnum því þeir eiga stóran þátt í
uppbyggingunni hér. Ég vil leggja
mitt af mörkum en mér stóð til
ÁSA: Velvilji bæjarbúa í
garð Sjúkrahússins sýndi
sig mjög vel með mjög
rausnarlegum gjöfum sem
bæta þjónustu við okkur
hér. Ég tel það mjög mikil-
vægt að Sjúkrahúsið sé vel
tækjum búið til að auðvelda
veikum einstaklingum að fá
þjónustu í heimabyggð.
boða að vinna uppi á landi en helst
af öllu vil ég vera í Eyjum því mér
líður vel héma. Mér fínnst fólk
almennt bjartsýnt og tel að bættar
samgöngur gætu breytt miklu bæði
fyrir okkur Éyjaskeggja og þá sem
eru að koma að heimsækja okkur.
Við eigum að geta tekið á móti
fleira fólki en í dag. Eyjan bara
býður upp á það en við verðum líka
að átta okkur á því að við verðum
að vera tilbúin til að taka á móti
fólki, sem heimsækir okkur, með
góðri þjónustu. Það vantar mikið af
ungu fólki í bæinn en mér finnst
samt að margir séu að snúa aftur,“
sagði Einar Björn, glaður og hress.
„Hef góða tilfinningu fyrir
nýju ári,“ segir Ása Ingi-
bergsdóttir
Ása Ingibergsdóttir, viðskipta-
fræðingur hjá Deloitte hf í Vest-
mannaeyjum, er ánægð með árið
sem nú er nýliðið. „Arsins 2007
minnist ég á jákvæðan hátt. Mér
finnst almennt mun meiri bjartsýni
hjá fólki og það tilbúið að horfa
jákvætt á framtíð Vestmannaeyja.
Tilkoma nýrra skipa á árinu var
mjög jákvæð þar sem útgerðar-
menn sýna að þeir hafa trú á
Vestmannaeyjum til framtíðar.
Velvilji bæjarbúa í garð Sjúkra-
hússins sýndi sig mjög vel með
mjög rausnarlegum gjöfum sem
bæta þjónustu við okkur hér. Ég tel
það mjög mikilvægt að Sjúkrahúsið
sé vel tækjum búið til að auðvelda
veikum einstaklingum að fá þjón-
ustu í heimabyggð. Mér fannst líka
ánægjulegt að heyra að okkur hefur
ekki fækkað eins mikið í Eyjum
eins og undanfarin ár. Gaman væri
ef við gætum snúið þróuninni við á
nýju ári og fjölgað íbúum Vest-
mannaeyja. Fasteignaverð hefur
hækkað töluvert á árinu sem er
mjög gott.
Það sem snýr að mér persónulega
er að upp úr stemdur sumarfrí
Qölskyldunnar til Marmaris í
Tyrklandi sem var frábært í alla
staði, en við fóram með tengda-
foreldrum mínum, foreldrum og
systur," sagði Ása og þegar hún er
spurð hvaða tilfinningu hún hafi
fyrir nýja árinu stóð ekki á svari.
„Ég hef góða tilfinningu fyrir nýju
ári og vona að það færi okkur
Vestmannaeyingum gleði og ham-
ingju,“ sagði Ása og vonandi
gengur það eftir.
HALLA: Grunnskóli Vest-
mannaeyja varð til, sem
þýddi að ég varð að breyta
um vinnustað eftir 29 ár á
sama staðnum! Ég var afar
mikið á móti þessari
aðgerð, bæði faglega og
persónulega, en verð í dag
að játa, að margt tókst vel
og vona að annað Iagist.
STEFÁN: Öll þessi nýju
skip og uppbygging
fiskvinnslufyrirtækjanna “
sagði Stefán Lúðvíksson,
eigandi Eyjablikks þegar
hann var beðinn að nefna
það sem stæði upp úr á
árinu.
ERLA: Ef maður er
jákvæður þá er allt jákvætt
í kringum mann. Ég held að
atvinnumálin í Eyjum séu í
góðu horfi og að allir fái
vinnu sem vilja. Lííið brosir
við mér og mér fínnst að
ættu allir að geta haft það
gott.