Fréttir - Eyjafréttir - 10.01.2008, Side 19
Fréttir / Fimmtudagur 10. janúar 2008
19
|lHvað segja þeir um komandi ár og það sem framundan er:
Segja bjart framundan í fót-
bolta, handbolta og körfunni
-Það er álit spekinganna Viðars Elíassonar, Sigursveins Þórðarsonar, Sigurðar
Bragasonar og Björns Einarssonar
SIGURSVEINN: Höfum reynslu
til að byggja á.
Fréttir tóku púlsinn á boltaíþrótt-
unum, fótbolta, handbolta og körfu-
bolta. IBV tókst ekki að komast upp
í efstu deild í fótbolta, handboltinn
náði því takmarki en hefur gengið
herfdega í vetur og uppsveifla er í
körfunni.
Vilji er allt sem þarf
Aðeins munaði einu stigi á Fjölni
og ÍBV í fyrstu deildinni í fótbolt-
anum síðasta sumar. Á því komst
Fjölnir upp en Eyjamenn sátu eftir
með sárt ennið.
„Ég var svekktur yftr því að við
skyldum ekki komast upp en það
þýðir ekki að hugsa um það. Við
höfum nú reynslu til að byggja á og
þó við höfum misst nokkra leik-
menn frá síðasta ári koma nýir í
staðinn og stefnan verður áfram að
fara upp í efstu deild,“ segir
Sigursveinn Þórðarson, sem er
meðal nýrra manna í knattspyrnu-
ráði.
Hann segist þó ánægður með að í
ár fer meistaraflokkur kvenna aftur
af stað. „Öðnim flokki karla gekk
ekki nægilega vel á síðasta ári. Þeir
stóðu sig ágætlega í bikamum en
ekki nógu vel í deildinni," segir
Viðar Elíasson fyrrum formaður
knattspyrnuráðs.
„Frammistaða meistaraflokks var
undir væntingum en þó hef ég fulla
trú á Iiðinu. Ef menn leggja á sig þá
vinnu sem þarf til að ná árangri á
VIÐAR: Hef fulla trú á liðinu.
liðið að geta farið upp. Þá þarf rétt
hugarfar að vera til staðar og vilji til
að ná settum markmiðum. Það þarf
að hafa fyrir þessu eins og öðru og
menn verða að leggja sig fram. Þeir
eiga alveg að geta þetta strákarnir,"
segir Viðar.
Sterkur liðsandi
Handboltalið ÍBV hóf árið sem leið
af kappi og vann hvern leikinn á
fætur öðrum. Með sigrunum færðust
þeir upp í N1 deildina þar sem þeir
kejiptu seinnihluta ársins.
I N1 deildinni mættu þeir sterkari
liðum en í 2. deild og í lok árs höfðu
þeir tapað 13 leikjum af 14 og nú
voru góð ráð dýr. Ekki dró það
þróttinn úr mannskapnum en þegar
að æfingahléi kom voru þeir
staðráðnir í að þjálfa vel og koma
sterkari en nokkurn tímann fyrr inn í
seinni hluta mótsins.
„Þetta gekk eins og í sögu í fyrra-
vor þegar við spiluðum í 2. deild. Ég
átti mitt besta tímabil, fékk verðlaun
fyrir frammistöðuna, og mér fannst
við f heildina spila vonum framar.
Þegar kemur að N1 deildinni er eins
og botnitin detti úr liðinu með tapi
eftir tapi sama hvað við gerum. Mér
finnst liðsandinn samt sem áður hafa
staðið undarlega sterkur og það er
það sem hefur haldið okkur saman á
verstu tímunum," segir Sigurður
Bragason, fyrirliði meistaraflokks
SIGURÐUR: Við eigum mjög
góða yngri flokka.
ÍBV í handbolta.
„Við eigum mjög góða yngri
flokka og heilu árgangarnir hafa
verið að standa sig vel í fótbolta og
handbolta. Þeir hafa sýnt enn og
aftur að við Vestmannaeyingar
eigum alltaf góða markmenn og ég
vona að með þeim séum við að sjá
fyrstu Islandsmeistara IBV vaxa úr
grasi,“ segir Sigurður.
Sigurður segir stúlknaflokkana
einnig standa sig vel og að 4.
flokkur hafi hreppt íslandsmeist-
aratitilinn á árinu sem leið.
„Þær eru margar landsliðskonurnar
frá ÍBV svo þetta lítur allt saman
reglulega vel út upp á framtíðina þó
við í meistaraflokki séum ekki að
standa okkur nógu vel. Ég verð þó
að segja að nú í byrjun árs leyfi ég
mér að vera bjartsýnni en ég var.
Það er í rauninni ekki hægt annað og
ég vona að við náum að landa fleiri
stigum en við höfum verið að gera.
Nú er bara að standa saman og sýna
hvað í okkur býr,“ segir Sigurður.
Gott ár í körfunni
Árið hjá körfuboltanum gekk
vonum framar en hann hefur verið í
mikilli framsókn undanfarin tvö ár í
Eyjum.
Tveir flokkar fóru úr D riðli upp í
A riðil og aðrir flokkar fikrast upp.
Þá hefur aðsókn aukist á æfingar og
fjölgað í stjóminni sem styður við
BJÖRN: Strákarnir hafa bætt sig
mikið.
bakið á þjálfara og iðkendum.
„Ég er mjög ánægður með árang-
urinn, bæði á síðasta ári og síðan ég
byrjaði. Strákarnir hafa bætt sig
mikið og við höfum nú sterkari leik-
mannahóp í meistaraflokki en við
höfum haft lengi. Þar að auki er ég
með toppmenn með mér í stjórn sem
hafa aldeilis hjálpað við að safna
styrkjum og standa í ýmsum hlut-
um,“ segir Björn Einarsson þjálfari.
„Það eru ekki eingöngu liðin sem
heild sem eru að standa sig vel því
fjórir leikmenn úr yngri flokkum
hafa verið valdir í landsliðið. Strák-
arnir eiga góðan möguleika á að
enda í lokahópi landsliðsins og ég
bíð spenntur eftir að sjá hvernig það
fer,“ segir Bjöm.
Björn er bjartsýnn á að meist-
araflokkur komist upp um deild á
þessu ári og segist jafnframt binda
vonir við að einn af yngri
flokkunum endi í topp þremur.
„Það verður nóg að gera í ár, fjöl-
liðamót um næstum hverja helgi og
æfingar þess á milli. Nú er bara að
halda áfram að bæta sig og verða
betri og betri og svo er aldrei að vita
nema Islandsmeistaratitillinn rati til
Eyja á næstu tveimur árum. Við
verðum bara að vera bjartsýn og
jákvæð og þá kemur þetta allt
saman," segir Björn mjög ánægður
með árangur körfuboltastrákanna.
íþróttir
Futsal:
ÍBV hafði
betur gegn
KFS
KFS tók á móti ÍBV í íslandsmót-
inu í Futsal í vikunni. Liðin höfðu
mæst áður og lauk leiknum með
stórsigri ÍBV 11:4. KFS lék hins
vegar mun betur núna þrátt fyrir
tap 6:4.
Futsal fótbolti er talsvert
frábrugðinn þeim fótbolta sem
áður var leikinn innanhúss en
leikið er á handboltavelli, með
handboltamörk. Fimm eru inni á í
einu og tekur markvörðurinn mun
minni þátt en áður.
Leikurinn var ágætis skemmtun
en ÍBV komst í 3:0 strax í upphaft
leiks. En staðan í hálfleik var 4:1.
KFS lék svo betur í síðari hálfleik,
skoraði þrjú mörk en ÍBV tvö og
lokatölur því 4:6 ÍBV í vil.
Rakel í 25
manna hóp
Rakel Hlynsdóttir komst f 25
stúlkna landsliðshóp 16 ára lands-
liðs stúlkna um helgina. Þær
Katarina og Vigdís stóðu sig vel á
æfingum um helgina, þær eru
reynslunni ríkari og framtíðin er
þeirra.
Þrjár í 16 ára
landsliðshóp
Þrjár ungar Eyjastelpur hafa verið
valdar til þátttöku í framtíðar-
landsliðshópi 16 ára handbolta-
landsliðs. Þetta eru þær Katarina
Hlynsdóttir Rakel Hlynsdóttir og
Vigdís Svavarsdóttir.
Framundan
Laugardaginn 12. janúar
Kl. 12.00 IBV-Laugdælir í
körfunni.
Ekki viðraði til golfleiks á gamlaársdag og var því Flugeldamótinu frestað fram á laugardaginn fyrir þrettánda. Þá var hið besta veður og þrjátíu manns sem mættu til leiks og
spiluðu níu holur með forgjöf. Sigurvegari varð útgerðarmaðurinn Jóhannes Sigurðsson, í öðru sæti netamaðurinn Þórður Hallgrímsson og í því þriðja Sæmundur Ingvarsson olíu-
fursti. Allir fengu þeir flugeldatertur í verðlaun. Þetta var fyrsta golfmótið á afmælisári en Golfklúbbur Vestmannaeyja fagnar 70 ára afmæli á árinu og verður þess minnst á
margvíslegan hátt, bæði í mótahaldi sem og öðru.