Fréttir - Eyjafréttir - 06.03.2008, Blaðsíða 13
Fréttir / Fimmtudagur 6. mars 2008
13
Notalegt að fara í nudd
-og slaka aðeins á -segir Erla Gísladóttir nuddari
VIÐTÖL
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir
gudbjorg @ eyjafrettir. is
I síðustu Fréttum var sagt frá því
hvað hreyfíng og léttar líkamsæf-
ingar skipta miklu máli fyrir þá
sem glíma við bakverki og ýmis
vandamál í stoðkerfí líkamans. Þeir
eiga kost á að fara í bakskóla og
stunda vatnsleikfimi undir umsjón
sjúkraþjálfara og margir fá mikla
bót og komast til heilsu á ný.
Margir glíma við vöðvabólgu sem
virðist fylgifískur kyrrsetuvinnu
auk þess sem stress og álag hefur
mikil áhrif og veldur óþægindum í
herðum og hálsi. Nudd er eitt besta
ráðið við vöðvabólgu og hefur
hjálpað mörgum enda er nudd alda-
gömul lækningaaðferð.
Fyrir fólk á öllum aldri
Erla Gísladóttir útskrifaðist frá
Nuddskóla íslands 1999 og rekur
Nuddstofu Erlu við Faxastíg. Hún
hefur nóg að gera því til hennar
leitar fólk sem þjáist af vöðva-
bólgu en henni fylgja ýmis óþæg-
indi eins og höfuðverkur og vöðva-
verkir.
„Það kemur alls konar fólk til mín
og þetta er fólk á öllum aldri,“
segir Erla þegar hún er spurð hverj-
ir leiti helst til hennar. „I 99,9 %
tilfella kemur fólk til mín vegna
þess að það er með vöðvabólgu og
viðskiptavinir biðja miklu sjaldnar
um slökunamudd. Það er nánast
alltaf axlir, háls og mjóbak sem er
að þjaka fólk. í rauninni er nuddið
það eina sem dugar gagnvart
vöðvabólgu og alls kyns vöðva-
teygjur. Svo er bara rosalega
ERLA: Ég fæ til mín fólk sem er jafnvel hætt að sofa fyrir verkjum og það er auðvitað hræðilega erfitt.
Bestu meðmælin sem ég fæ er þegar þetta sama fólk kemur og segir að sér líði betur eftir fyrsta skiptið og
svo kemur það brosandi og er farið að sofa alla nóttina.
notalegt að fara í nudd og slaka
aðeins á,“ segir Erla og bætir því
við að í rauninni sé slökun helm-
ingurinn af nuddinu.
Erla segir að fólk fái ekki endi-
lega vöðvabólgu vegna þess að það
vinni svo mikið heldur sé mikill
hraði og álag í nútímasamfélagi.
„Eg hef fengið fólk lil mfn sem
fínnur ekki hvað það er stressað og
telur sig vera afslappað og í góðu
jafnvægi. Maður fattar þetta ekki
sjálfur og verður oft samdauna
ástandinu. Tölvuvinna fer oft rosa-
lega illa með fólk og þeir sem
vinna við tölvur ættu að standa
reglulega upp og teygja úr sér. Það
er ágætt að labba inn á kaffistofu,
fá sér vatnsglas eða bara standa upp
og hreyfa sig aðeins. Fólk virðist
stífna upp við tölvuna þó það sé
með góð borð og ágætis vinnu-
aðstöðu. Þess vegna skiptir svo
miklu máli að hreyfa sig reglulega
og vera ekki alltaf í sömu
stellingunni því það er ávfsun á
vöðvabólgu."
Aldagamalt hjálpar-
meðal
Erla bendir á nudd sé aldagamalt
og að samkvæmt austurlandaspeki
skipti slökun og teygjur verulegu
máli. „Eg fæ til mín fólk sem er
jafnvel hætt að sofa fyrir verkjum
og það er auðvitað hræðilega erfítt.
Bestu meðmælin sem ég fæ er
þegar þetta sama fólk kemur og
segir að sér líði betur eftir fyrsta
skiptið og svo kemur það brosandi
og er farið að sofa alla nóttina. Það
eru auðvitað mikil meðmæli með
nuddi og sýnir að það skiptir
verulegu máli. Ég held líka að
snerting skipti miklu máli í þessu
sambandi, sérstaklega í þessum
hraða og stressi sem fylgir nú-
tímalífi. Við þurfum að vera dugleg
að faðma börnin okkar þvf snert-
ingu fylgir hlýja og notalegheit."
Þegar Erla er spurð hvort fólk
komi reglulega í nudd segist hún
vera með viðskiptavini sem komi
alltaf einu sinni í viku. „Þetta fólk
velur að fara í nudd frekar en að
eyða í eitthvað annað. Við höfum
alltaf val og áherslurnar eru auð-
vitað misjafnar. Nudd getur verið
lífstíll og í sjálfu sér fyrirbyggjandi
og slökunin sem fylgir er afskap-
lega góð og mikilvæg öllum sem
vilja láta sér líða vel. Það getur því
styrkt fólk andlega og líkamlega,"
sagði Erla.
Með öndunaræfingum komum við
lífsorkunni af stað
-segir Hafdís Kristjánsdóttir jógaleiðbeinandi
Hafdís: Það er tvennt ólíkt að slaka á við kertaljós eða yfir sjónvarpi. í slökun ert þú að hlaða batteríin og
kemur svífandi út. Slökunin er punkturinn yfír i-ið.
Hafdís Kristjánsdóttir, leiðbeinandi
hefur ekki aðeins leiðbeint fólki í
gegnum ýmsar styrktar- og þolæf-
ingar í líkamsrækt heldur leggur
hún áherslu á að fólk læri að hlusta
á líkamann og styðst þá við jóga-
fræðin. Hafdís hefur verið með
jóganámskeið í vetur og nú hafa
sextíu manns lokið byrjendanám-
skeiði. Eitt framhaldsnámskeið er í
gangi núna þar sem ákveðinn kjami
hittist tvisvar í viku og stundar
jógaæfingar. Auk þess er Hafdís
með Body balance í hádeginu á
föstudögum sem byggist á
svipuðum grunni.
Að hlusta á líkamann
„Mestu máli skiptir er að maður
lærir að hlusta á líkamann í jóga.
Við lítum inn á við, hlustum á lík-
amann og gerum ekki meira en það
sem hann ræður við,“ segir Hafdís
þegar hún er spurð hvað sé svona
sérstakt við jóga. „Maður á aldrei
að fara yfir sársaukamörkin og það
er mikilvægt að hver og einn þekki
sín takmörk. Tónlistin sem við
notum er róleg og nemendum
mínum gefst kostur á að koma 15
mínútum fyrir tímann þannig að
það má segja að þeir séu komnir í
ró og lentir þegar tíminn byrjar."
Hafdís segir að hægt sé að ná
góðu jafnvægi með því að stunda
jóga reglulega þó dagsformið sé
misjafnt. „Sama æfing virkar mjög
misjafnlega eftir tímum. Maður fer
að stúdera líkamann og með æfing-
um erum við að virkja sogæðakerfi,
styrkleika og meltingarstarfsemi.
Jóga byggir á fimm þúsund ára
gömlum fræðum og er talið hafa
lækningamátt. Öndunaræfingar eru
lykill að jóganu auk þess sem það
byggist mikið upp á teygjum og
styrkleikaæfingum. Með öndunar-
æfingum fáum við lífsorkuna af
stað og í jógafræðunum er sagt að
við fæðumst ekki með ákveðinn
árafjölda heldur með visst marga
andardrætti. Við þurfum þess vegna
að dýpka andardráttinn því þá
lengjum við líf okkar. I nútíma-
þjóðfélagi er mikið stress og erill
og því fylgir stuttur andardráttur og
staðreynd að sjúkdómar koma í
kjölfarið. Áhrif jóga skila sér inn í
daglega lífið því fólk verður miklu
meðvitaðra um sitt líkamlega og
andlega ástand.“
Líkamsrækt nauðsynleg
Hafdís segist sjálf vera mikill
orkubolti og hún hafi aldrei getað
ímyndað séð hvað jógaæfingarnar
geri henni gott. „Líkamsrækt er
nauðsynleg fyrir líkama og sál en
jóga leggur upp úr því að þú lítir
inn á við og ræktir sjálfan þig. Þess
vegna má segja að það sé mikil
sjálfsstyrking í jóga sem geri okkur
að sterkari og jákvæðari einstak-
lingum. Teygjur skipta miklu máli
því við erum að lengja vöðva og
verðum ekki eins stirðbusaleg. Þú
verður ekki stirður við það að vera
gamall en gamall við það að vera
stirður. Vellíðan fylgir teygjum og
það skiptir miklu að láta andar-
dráttinn vinna með sér. Síðan er
slökun í lokin og hún er alveg í
fimmtán mínútur og gefur okkur
ofsalega mikið. Það er svo sjaldan
sem fólk leyfir sér að slaka á.
Það er tvennt ólíkt að slaka á við
kertaljós eða yfir sjónvarpi. í
slökun ert þú að hlaða batteríin og
kemur svífandi út. Slökunin er
punkturinn yfir i-ið.“