Fréttir - Eyjafréttir - 13.03.2008, Page 1
Mynd: Óskar Pétur Friðriksson
Bílaverkstæðið
BrAGGINN sf.
Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð - Sími 481 3235
Réttingar og sprautun - Sími 481 1535
35. árg. I
ll.tbl. I Vestmannaeyjum 13. mars 2008 I Verð kr. 200 I
Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
ÁLSEY VE á miðunum. Sigurður Ólafsson stýrimaður, fyrir miðju, stjórnar sínum mönnum af myndugleik og
Halli Óskar fylgist með.
— Loðnuvertíðinni fer senn að ljúka
: Bjargast fyrir horn
wm -Menn eru að nýta þennan litla kvóta, sem þeir fengu, mjög vel
h og hann fer að langstærstum hluta í hrognatöku
Það blés ekki byrlega þegar loðnuveiðar voru
stöðvaðar 20. febrúar si. en þær voru leyfðar aftur
viku seinna þegar loðna mældist í stórum torfum
rétt fyrir austan Eyjar.
Vertíðin virðist ætla að bjargast fyrir horn því
stór hluti aflans hefur verið nýttur í hrognatöku og
þannig tekist að skapa sem mest verðmæti úr út-
hlutuðum kvóta sem var um helmingi minni í ár
en undanfarin ár. Það bjargar líka miklu að úr
loðnunni fást úrvals hrogn sem fara að lang-
stærstum hluta á Japansmarkað. Vertfðinni er
senn lokið og eru sum skipin nú í sínum síðustu
túrum. Menn lifa þó enn í voninni um vestan-
göngu sem stundum hefur gefið vel.
ísfélagið með helmingi minni
kvóta
Isfélag Vestmannaeyja á eftir um 2.500 tonn af
úthlutuðum loðnukvóta og reiknað er með að skip
félasins ljúki veiðum fyrir helgi. Eyþór Harðar-
son, útgerðarstjóri, sagði að af þeim tæplega 30
þúsund tonnum sem væru komin í hús hefðu hátt
í 20 þúsund tonn farið í hrognavinnslu og hitt til
manneldis. „Þessi vertíð bjargast fyrir horn þó
svo að kvótinn hafi ekki verið svona lítill síðan
1982. ísfélagið mátti veiða 31.500 tonn á ver-
tíðinni á móti 60.000 tonnum í fyrra þannig að
þetta er helmingi lægri úthlutun. Kvótinn er svo
lítill að við gátum ekki sinnt vinnslunni á
Þórshöfn og mun minna var fryst á Japan og
Rússland. Þá var mun minna brætt en í meðalári.
Staðan er samt allt önnur en þegar loðnuveiðar
voru stöðvaðar."
Kaupendur ánægðir
Vinnslustöðin var með 16.000 tonna kvóta á
loðnuverðíðinni og geymdi 13.000 tonn þar til
hrognavinnsla hófst og eiga nú eftir 3000 tonn.
Sigurjón Gísli Jónsson, framleiðslustjóri, sagði að
í frystihúsinu hefðu verið fryst 2400 tonn af loðnu
og svo hefðu menn einbeitt sér að hrognavinnslu.
„Staðan er fín, veðrið gott og við teljum að hægt
verði að klára þetta um og yfir helgi. Ég reikna
með að við verðum búnir að frysta í byrjun næstu
viku,“ sagði Sigurjón Gísli og var því næst
spurður út í gæði vörunnar.
„Þetta eru úrvals hrogn. kaupendur hafa verið að
taka þau út hjá okkur og eru yfir sig ánægðir.
Menn eru að nýta þennan litla kvóta, sem þeir
fengu, mjög vel og hann fer að langstærstum hluta
í hrognatöku á Japansmarkað. Við fögnuðum því
í dag að vera búnir að framleiða yfir 1000 tonn af
hrognum," sagði Sigurjón Gísli þegar spjallað var
við hann í gær, miðvikudag.
Ágætis kropp
Isleifur VE var norðnorðvestur af Garðskaga um
miðjan dag í gær, miðvikudag. Gísli Garðarsson,
skipstjóri, sagði heldur rólegt yfir veiðunum og
loðnan farin að liggja mikið niðri á botni.
„Við erum með lítið, um 400 tonn en það var
ágætis kropp hjá bátunum í gær. Við verðum að
vona að við náum því sem eftir er af kvótanum en
það er meira af hæng en hrygnu í þessu núna,“
sagði Gísli og átti von á að þeir héldu af stað í
land um kvöldið enda eingöngu dagveiði núna.
Tíu skip voru á svipuðum slóðum og Isleifur.
Sparisjóðurinn:
Stofnbréf
byrjuð að
seljast
-Verðið á bréf í
kringum 20 milljónir
Tillaga um að auka stofnfé um allt
að milljarð var samþykkt á stofn-
fjárfundi Sparisjóðs Vestmanna-
eyja í október á síðasta ári. Sjötíu
stofnfjáreigendur áttu forkaups-
rétt að stofnfjáraukningunni en
samkvæmt samþykktum Spari-
sjóðsins takmarkast eignarhlutur
einstaks stofnfjáreiganda við 5%
hámark af heildarstofnfé.
Útboði á 350 milljón króna
aukningu stofnfjár lauk 5. desem-
ber og allir stofnfjáreigendur not-
færðu sér forkaupsrétt til að kaupa
5 milljóna króna stofnfjárhlut
hver um sig. Sú breyting varð
einnig á þessum fundi að nú gæti
stofnfjáreigandi framselt hluta af
sínu stofnfé. Stofnfjáreigendur
þurfa því ekki að eiga jafna hluti
og gæti þeim fjölgað ef núverandi
eigendur framseldu einum eða
fleiri aðilum hluta af sínu stofnfé.
Þór Vilhjálmsson, stjórnarfor-
maður, var spurður í vikunni hvort
einhver stofnfjáreigandi hafi
óskað eftir framsali á sínum stofn-
fjárhlut en stjórn Sparisjóðs
Vestmannaeyja þarf að samþykkja
framsal áður en af því getur orðið.
„Það hafa orðið nokkur framsöl
en það er ekki í stórum stíl.
Nokkrir stofnfjáreigendur hafa
framselt sfna stofnfjáreign til
annarra og það er ekki í neinu til-
felli framsal á sama nafn þannig
að stofnfjáreigendur eru enn 70
talsins. Við vitum ekkert um sölu-
verðmæti þessara stofnfjárhluta
enda kemur það ekki inn á borð
hjá okkur og það sem við þurfum
meðal annars að fylgjast með er
að enginn stofnfjáreigandi ráði
yfir stærri hlut en nemur 5% af
heildarstofnfé auk fleiri þátta.“
sagði Þór.
Fréttum er kunnugt um tvo sem
keypt hafa stofnbréf og er verðið
um 20 milljónir á bréf eftir því
sem næst verður komist. Ekki er
búist við mikilli sölu á meðan
núverandi óvissa nkir á mörk-
uðum.
VIÐ ERUM ÞJÓNUSTUAÐILI
TOYOTA í EYJUM
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMI...!
nelÉhamar
VÉLA- OG BÍLAVERKSTÆÐI
FLATIR 21 / S. 481-1216 / GSM. 864-4616