Fréttir - Eyjafréttir - 13.03.2008, Page 11
Fréttir / Fimmtudagur 13. mars 2008
11
Stolin hugmynd fró Eyjamönncim?
Fjarðabyggð vill hluta af Hafró
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkti í síð-
ustu viku ályktun þar sem skorað er á sjávar-
útvegsráðherra að beita sér fyrir
mótvægisaðgerðum í sveitarfélaginu, til að
mæta áhrifum af kvótaniðurskurði og
aflabresti í loðnu. Meðal þess sem
bæjarstjómin leggur til er að uppsjávarsvið Hafrannsóknastofnunar verði
flutt til Neskaupstaðar.
Þetta er ekki ólíkt tillögum bæjarstjórnar Vestmannaeyja sem lengi hefur
viljað fá hluta af starfseminni til Eyja og hefur bent á að hún eigi hvergi
betur heima en hér.
Fjölskyldciröð:
Skerpt á reykingabanni
Frá 1. febrúar 2008 hefur verið skerpt á
banni við reykingum á Hraunbúðum, bæði
innanhúss og á lóð heimilisins. Með þessu
er verið að fylgja eftir reglugerð heil-
brigðisráðherra um takmarkanir á tóbaks-
reykingum frá 12. apríl 2007.
Fjölskylduráð fagnar framtaki Hraunbúða
og beinir því jafnframt til annarra stofnana
í bænum að fylgja eftir umræddri
reglugerð. Sérstaklega á þetta við um staði
sem ætlaðir eru bömum og unglingum.
Spurning vikunnar:
Ætlar Hú í
ferðalag
um
páskana?
Sigurgeir Jónsson skrifar um disk Guðlaugar Ólafsdóttur, Gentle Rain:
Er bæði opin og einlæg
ÞESSI diskur, Gentle Rain, er því eins konar vorboði, og það hinn
gleðilegasti vorboði, segir Sigurgeir.
Fyrir síðustu jól ætlaði söngkonan
Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir að gefa
út sinn fyrsta geisladisk. Hans
hafði verið beðið með nokkurri
eftirvæntingu þar sem þetta var eins
konar lokahnykkur á tónlistamámi
hennar við Konunglega listahá-
skólann í Haag í Hollandi.
Vegna mistaka í vinnslu var allt
upplag disksins gallað og því varð
ekkert af útgáfunni fyrir jól. Mér
liggur við að segja, sem betur fer,
því að þessi diskur hefði ekki átt
skilið að týnast í jóladiskaflóðinu.
Nú er diskurinn kominn, rétt í sama
mund og fyrstu farfuglamir em að
fara að undirbúa komu sína til
íslands. Þessi diskur, Gentle Rain,
er þvf eins konar vorboði, og það
hinn gleðilegasti vorboði.
Þarna er jazztónlist á ferðinni,
ellefu lög sem Guðlaug og fleiri
henni tengdir hafa útsett. Mörg
þessara laga eru gamlir kunningjar,
hér í ögn nýstárlegum og forvitni-
legum búningi. Það var líka gaman
að sjá þá Lennon og McCartney
þarna, sem og Joni Mitchell, sem
alltaf hefur verið í uppáhaldi hjá
mér. Það uppáhald hefur ekki
minnkað eftir þessa nýjustu útgáfu
á Both Sides Now.
Einhvem tíma var ég spurður álits
á plötu sem Eyjamaður nokkur gaf
út. Ég svaraði þvf til að þar væri
að finna bæði góða hluti og ekki
eins góða. Góðu hlutirnir væru
þeir að þama kæmu úrvals hljóð-
færaleikarar við sögu og þeirra
hlutur væri hnökralaus. Veika hlið
plötunnar væri hins vegar söng-
urinn. Ef ég man rétt, fékk ég
heldur bágt í hattinn fyrir þessa
umsögn. Fyrri hluti þessarar lýs-
ingar á einnig við um diskinn
hennar Guðlaugar. Þama er frábært
lið músíkanta á ferð og hvergi feil-
nóta slegin. Og söngkonan sjálf er
af sama kalíber. Hún hefur greini-
lega ekki slegið slöku við í náminu
í Hollandi, öðlast þroska og öryggi
auk alls hins.
Guðlaug Dröfn var einn vetur
nemandi minn í Barnaskólanum
þegar við vorum bæði nokkuð
yngri að ámm, mig minnir að hún
hafi verið átta eða níu ára. Ég
minnist þess ekki að hún hafi
skemmt okkur með sönglist á þeim
tíma, nema með hinum þegar lagið
var tekið í bekknum. En ég man
hvað hún var afskaplega opin og
einlæg. Þegar ég hlustaði á diskinn
hennar, fannst mér að það hefði
ekkert breyst. Og það gladdi mig
hvað mest.
Sigurgeir Jónsson
Minning:
Þorsteinn Þorsteinsson - Doddi í olíunni
Langri og erfiðri baráttu vinar míns,
Dodda í olíunni, Iauk með sigri
dauðans. Doddi þráði þá hvíld.
Þrátt fyrir skemmtilegheit þar sem
Doddi blés oft í seglin voru að-
stæður hans afar erfiðar mörg síð-
ustu árin.
Ég vil þakka þessum góða vini
skemmtilega samferð í lífinu sem
verður mér ógleymanleg og ég held
aftur af mér við ritun þessara
kveðjuorða og hristist af hlátri yfir
minningunum um aldraðan vin.
Kynni okkar voru afar skemmtileg,
báðir ófeimnir að láta allt vaða og
ekki var það allt mjög kristilegt.
Doddi gat verið mjög óheflaður í
orðfæri og hafði mjög sterkar skoð-
anir á mönnum og málefnum þar
sem menn voru annað hvort hafnir
til skýjanna eða hann sendi þá til
andskotans, hann gat verið afar
beittur.
Doddi bjó í fjölda mörg ár við
erfiðan sjúkdóm, hann gekk lengi
við staf, örlítið hokinn, haltur og tók
stutt skref þar sem hann dró aðeins
fætuma. Doddi var flottur kall sem
setti mark sitt á umhverfið, gott ef
hann var ekki svolítið líkur Ronald
Reagan þegar hann rölti Vestur-
veginn, nema hvað hann var miklu
frægari en hann í Eyjum. Hann tók í
nefið og fannst gott að fá sér brjóst-
birtu, aðeins í tappa, það linaði
þjáningamar um stund.
Doddi gat verið kostulegur á
köflum, stríðinn og skemmtilegur.
Hann hafði einu sinni beðið mig um
skötu í soðið og ég sagði honum að
sækja skötuna niður í vinnu. Þegar
ég kom þangað sagði starfsmaður
mér að gamall kall hefði komið og
stolið allri skötunni. Þá birtist Doddi
og peyinn sagðk „Þarna kemur
skötuþjófurinn.” Ég held ég hafi
aldrei kallað hann annað en skötu-
þjófinn eftir þetta í okkar samtölum
og fjölmargar kveðjur sem Elías
bróðir flutti mér af sjúkrahúsinu
voru alltaf eins. „Skötuþjófurinn
biður að heilsa".
Doddi hafði þennan húmor fyrir
sjálfum sér og ég sleppti ekki tæki-
færi að heimsækja hann á sjúkra-
húsið þegar ég kom til Eyja og
heilsa upp á vininn og þá sem þar
dvöldu. Þá var allt látið vaða og ekki
stóð á kallinum, brúkaði kjaft og
grobbaði um sjálfan sig. Doddi var
mikill sjálfstæðismaður og nánast
leit niður á aðra stjómmálaflokka.
Einu sinni þegar ég kom í heim-
sókn var verið að gefa Dodda blóð
og ég segi strax. „Þeir segja að þú
fáir blóð úr Stalín."
Doddi brást illur við og sagði:
„Haltu kjafti, ég fæ blóð úr Davíð
Oddssyni og hunskastu út, hjúkk-
unni líst það vel á mig að hún gæti
misst lystina á mér, bara með því að
því að sjá framan í þig“.
Hann þóttist oft hafa gert þeim gott
hjúkkunum. I síðustu heimsókn
Kollu dóttur hans og Sverris var sá
gamli mjög veikur. Kolla bauð upp á
smá koníak til að linna þjáningamar,
sem hann þáði án þess að opna
augun. Kolla spurði hvort Sverrir
mætti fá sér smá tappa líka en sá
gamli harðneitaði því. Hann var að
stríða tengdasyni sínum, það síðasta
sem hann gerði í lífinu.
Doddi kvaddi með stæl, átti síðasta
orðið.
Asmundur Friðriksson
Vinur.
firnór Helgason:
Magnþrúngið hljóðrit úr Landakirkju
Ymsir hafa komið að máli við mig og óskað eftir því að ég rifji eitthvað upp
úr gömlum eyjapistlum, en ég er með fasta pistla í þættinum Vítt og Breitt um kl. 13:45 á
rás 1 á fimmtudögum.
Fimmtudaginn 13. þessa mánaðar, í dag, birti ég uphaf Eyjapistils frá 22. mars 1973 með
tilkynningum og afmæliskveðjum. Þá er vikið að hraunflóðinu sem brast á þá um kvöldið
og fluttar frásagnir þeirra Áma Gunnarssonar sem útarpað var daginn eftir og Páls
Zophoníassonar, fyrrum bæjartæknifræðings, frá árinu 1983.
Áð lokum verður flutt magnþmngið hljóðrit úr Landakirkju að kvöldi 22. mars þar sem
sunginn var sálmurinn, Á hendur fel þú honum. Glöggt heyrast andvörp manna ef grannt er
eftir hlustað.
Eyjapistlamir, sem Arnþór og Gísli Helgasynir önnuðust frá 7. febrúar 1973 til 25. mars
1974 urðu alls 260. Einungis eru til um 60 þættir og þar af nokkrir úr einkasöfnum.
páskana.
Fríðbjörn
Valtýsson
Það er þá bara
innanbæjar, úl í
Höfða eða inn á
Eiði. Annars ætla
ég að njóta þess
að vera heima í
Eyjum.
Sigurjón
Þorkelsson
Nei, ég verð
heima, ég verð í
vinnu.
Anna Ólafsdóttir
Ég ætla að vera
heima um
páskana. Hitta
skemmtilegt fólk
og hafa það
notalegt heima.
Ehrar Páll
Sævarsson
Ég verð heima ef
ég verð ekki á sjó.
Ég er á Huginn
VE en reikna
frekar með að ég
verði í landi um
Auglýst eftir
félagsráðgjafa
f 24 stundum í gær er auglýst
eftir félagsráðgjafa af fjölskyldu-
og fræðslusviði Vestmanna-
eyjabæjar.
Um er að ræða fulla stöðu.
Fyrir á skrifstofu sviðsins eru
félagsráðgjafar, sálfræðingar,
þroskaþjálfar, fræðslufulltrúi og
leikskólafulltrúi.
Starfið felur í sér fjölbreytt
verkefni þar sem stefnan er að
samþætta þjónustu félags-,
fræðslu-, íþrótta- og æskulýðs-
mála. Leitað er fyrst og fremst
eftir menntuðum einstaklingi í
félagsráðgjöf. Að öðrum kosti er
leitað eftir einstaklingi með men-
ntun á hliðstæðu sviði og með
reynslu af störfum innan
félagsþjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Jón
Pétursson framkvæmdastjóri
fjölskyldu- og fræðslusviðs á
jonp@vestmannaeyjar.is eða í
síma 488 2000.
Umsóknir og meðfylgjandi
upplýsingar skulu berast
Fjölskyldu- og fræðslusviði
Vestmannaeyjabæjar, Ráðhúsinu,
900 Vestmannaeyjum í pósti eða
tölvupósti fyrir 1. apríl 2008.