Fréttir - Eyjafréttir - 04.12.2008, Page 16
(FRÉTTIRl f sun investmenCs S.L
FASTEIGNASALA Á SPÁNI LINDA RÓS
Frétta- og auglýsingasími: 481-1300 / Fax 481-1293 (0034) 646 930 757 lindarosg@hotmail.com www.suninvestmentsl.com
plús f/W ‘M’
™ H SumflRFERÐ,B
MÍM
?/SÚhsssMM Lr&lllk£JIj2J£LlJJ
ÆJ-tj
"Húsasmíði er mitt fag
og þjónustu mína veiti.
Hríngdu í mig strax í dag
og húsinu þínu ég breyti."
Snkkarnn
| SigurðurOddur | húsasmiður I
I sími: 899-2576 | eyjar1@hotmail.com |
Á LAUGARDAGINN opnar Björgvin Kúnarsson Volcano Café í Drífanda. Þar ætlar hann að reka kaffihús
og skemmtistað. Sjá bls. 2.
Bakkaflug rætt í bæjarstjórn:
Slæmt að flug liggi
niðri yfir vetrartímann
-Flugleiðin hefur verið markaðsett sem ein af samgöngu-
æðum Vestmannaeyja og talin sjálfbær, segir Páll Scheving
Á síðasta fundi bæjarstjórnar var
rætt um stöðuna sem upp er komin á
flugleiðinni Vestmannaeyjar - Bakki
eftir að Flugfélag Vestmannaeyja
tilkynnti að það ætlaði ekki að sinna
flugi á flugleiðinni frá og með 13.
nóvembertil I. apríl 2009. Ástæðan
er mikil fækkun farþega hjá félaginu
eftir að ríkisstyrkt flug hófst á flug-
leiðinni Vestmannaeyjar-Reykjavík
árið 2006 en frá þeim tíma hefur
farþegum á flugleiðinni Vestmanna-
eyjar-Bakki fækkað um 25%.
Kristín Jóhannsdóttir, bæjarfulltrúi
V lista, hóf umræðuna og lýsti yfir
áhyggjutn vegna stöðunnar sem upp
er komin í samgöngumálum Vest-
mannaeyinga. „Flugfélag Vest-
mannaeyja hefur lagt mikla peninga
í markaðsetningu á þessari leið og
ég hef áhyggjur af stöðunni þar sem
margir ferðamenn hafa nýtt þessa
samgönguleið. Ég er hrædd um að
það geti valdið misskilningi þegar
flugáætlun er breytt á þann veg að
flug til og frá Bakka er ekki í boði á
veturna heldur bundið við sumar-
tímann. Því miður sé ég ekki neina
lausn á þessu en þetta er áhyggju-
efni þar sem samgöngur skipta
okkar verulegu máli, “ sagði Kristín.
Páll Scheving, bæjarfulltrúi V list-
ans, sagði rétt að málið hefði verið
rætt á síðasta fundi bæjarstjórnar.
„Það er slæmt fyrir samfélagið að
þessi flugleið liggi niðri yfir
vetrartímann en hún hefur verið
markaðsett sem ein af samgöngu-
æðum Vestmannaeyja. Þessi leið
hefur hingað til verið talin sjálfbær
og ég held að það sé erfitt að sækja
ríkisstyrk á þessa leið. Vestmanna-
eyingar væru þá með þrjár
rfkisstyrktar samgönguleiðir. Það
hefur margt breyst síðan þessi fiug-
leið var opnuð t.d. strangari reglu-
gerðir og kostnaðarsamara rekstrar-
umhverfi en á móti hefur farþegum
fjölgað og fargjöld hafa líka
hækkað," sagði Páll þegar hann var
spurður út í málið.
Fréttir hafa fyrir því heimildir að
aðilar séu að velta þvf fyrir sér að
fylla upp í það skarð sem Flugfélag
Vestmannaeyja skilur eftir sig. Telja
þeir að hægt sé að reka fiugið með
hagnaði þó vissulega hafi farþegum
fækkað. Horfa þeir líka til næsta
sumars og benda á að bætt þjónusta
þýði meiri eftirspurn.
Margir eru líka reiðir ákvörðun FV,
ekki síst þeir sem lögðu félaginu lið
í að ná aftur sjúkrafiuginu. Það tókst
fyrr á þessu ári og var það af hálfu
félagsins talin forsenda þess að hægt
væri að halda uppi flugi á Bakka allt
árið.
Námskeið í Landakirkju:
Kvíði og væntingar í nánd jóla
Nú þegar jólin nálgast koma kvíði
og depurð slundum í veg fyrir
væntingar og góða jólagleði hjá
fólki. Það á ekki síður við núna
þegar efahagsmál þjóðarinnar hafa
verið í miklu uppnámi og margir
hafa orðið fyrir fjárhagslegum
hremmingum eða þekkja einhvern
sem hefur orðið fyrir skakkaföllum.
í dag, fimmtudaginn 4. desember,
gefst bæjarbúum kostur á að sækja
stult námskeið í Safnaðarheimili
Landakirkju undir yfirskriftinni
kvíði og væntingar í nánd jóla.
Landakirkja stendur fyrir nám-
skeiðinu í samstarfi við ýmsa aðila
en kirkjan hefur áður boðið nám-
skeið sem tengist sorg og kvíða í
nánd jóla.
Sr. Kristján Björnsson flytur er-
indi og að því loknu verða umræð-
ur. Kristján segir að búist sé við
því að fieiri Islendingar muni leita
eftir aðstoð Hjálparstofnunar kirkj-
unnar en undanfarin ár enda glími
margir við atvinnumissi og breytta
íjárhagslega afkomu. „Ovissan er
líka mikil hjá mörgum. Við vitum
að margir hafa hnút í maganunt og
ástæðurnar geta verið margvíslegar.
Staðan er ekki eins slæm hérna og
á höfuðborgarsvæðinu en margir
hafa miklar áhyggjur af ættingjum
og vinum. Við förum yfir væntingar
sem tengjast jólum og raunhæfar
áætlanir um það hvernig við viljum
uppfylla venjur og hefðir og
hvernig við getum það. Inn í þetta
spilar svo missir á liðnum árum
þegar einhvern vantar í sætið sitt
sem tengist þessum hefðum.“
Hann leggur áherslu á að horft sé
til hins eilífa þegar hverfulleikinn
verður svona áberandi í samfélag-
inu.
Kristján segir að þegar afkoma
fólks skerðist sé nauðsynlegt að
setjasl niður og fara yfir málin og
reyna að finna út hvaða úrræði eru
fyrir hendi. Ég hvet fólk til að sýna
hófsemi og stilla innkaupum í hóf
og leggja áherslu á samvistir með
fjölskyldu og vinunt. Mesta gjöf
sem við getum gefið er kær-
leikurinn. í honum er hin stóra jóla-
gleði fólgin,“ sagði Kristján og
býður alla velkomna á námskeiðið
sem hefst kl. 18.00 og stendur í
klukkutíma.
VIKUTILBOÐ
4. -10. des
MS smámdl 0,51
verð nú kr 68,-
verð áður kr 84,-
Diet pepsi 21
verð nú kr 98,-
verð áður kr 208,-
Fizzy Jóla sleikjó 4.h.
verð nú kr 488,-
verð áður kr 598,-
Ora Maiscorn v,d.
verð nú kr 198/“
verð áður kr 238,-
Kjarnafæðis lambakót. í raspi
verð nú kr/kg 1848,-
veri óður kr/kg 2242,-
Búrf. hangialcgg
verð nú kr 318,-
verð áður kr 420,-