Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2008, Blaðsíða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2008, Blaðsíða 13
Ffgttir / Þriðjudagur 30, desember 2008 13 FÉLAGAR í Lúðrasveit Vestmannaeyja léku nokkur lög við athöfnina. Veitt úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðsins í 20. sinn: Lúðrasveitin, Rán, Ægir, Líkn, Tryggvi og Bókasafnið fengu styrki Árleg úthlutun úr Styrktar- og menningarsjóði Sparisjóðs Vest- mannaeyja, sem stofnaður var til minningar um Þorstein Þ. Víglunds- son fyrrverandi sparisjóðsstjóra, fór fram að venju á Þorláksmessu, þann 23. desember 2008. Þetta er í tutt- ugasta og fyrsta skiptið sem úthlut- að er úr sjóðnum, en fyrsta úthlut- unin var á Þorláksmessu árið 1988. Að þessu sinni hlutu Lúðrasveit Vestmannaeyja, Fimleikafélagið Rán, íþróttafélagið Ægir, Kvenfé- lagið Líkn, Tryggvi Sigurðsson og Bókasafn Vestmannaeyja viður- kenningar og styrki. Lúðrasveitin I forsendum um Lúðrasveitina segir að fyrsta lúðrasveitin í Eyjum var stofnuð 1904. „Lúðrasveit Vest- mannaeyja, sem starfar í dag, var stofnuð fyrir tilstuðlan Oddgeirs Kristjánssonar, tónskálds, þann 22. mars árið 1939 og verður því 70 ára á næsta ári. Mikið og öflugt starf hefur alla tíð einkennt sveitina. Víða eiga lúðrasveitir undir högg að sækja og er nú svo komið að sveitin er ein fjögurra lúðrasveita á landinu sem halda úti starfsemi allt árið. Fyrir utan hefðbundna spila- mennsku réðst Lúðrasveitin ásamt Hljómsveitinni Tríkot, Lúðrasveit verkalýðsins, ásamt nokkrum ein- söngvurum, í að halda stórtónleika í apríl sl. Um það bil 60 manns komu að þessum tónleikum og fóru við- tökumar fram úr björtustu vonum. Ætlunin er að endurtaka leikinn næsta vor auk þess sem veglegir afmælistónleikar verða næsta haust. Mikil fjölgun hefur orðið í sveit- inni á árinu og em nú um 25 manns virkir félagar, hafa ekki verið fleiri um margra ára skeið og vonandi heldur sú þróun áfram. Er það mest að þakka starfi Tónlistaskólans og öflugu starfi Skólalúðrasveitar Vestmannaeyja undanfarin ár.“ Fimleikafélagið Rán Um Rán segir: „Fimleikafélagið Rán var stofnað 29. nóvember 1988 og varð 20 ára í nóvember sl. Fyrstu árin vom iðkendur um 60 en em nú um 170. Fimleikafélagið hefur ávallt verið heppið með iðkendur sem hafa skilað félaginu mörgum Islandsmeistaratitlum og ótal fleiri verðlaunum á mótum í gegnum árin. Þá hefur félagið einnig verið mjög lánsamt með þjálfara og m.a. hefur Svanfríður Jóhannsdóttir yfirþjálfari verið hjá félaginu í 18 ár. Mikil vinna fer í fjáröflun til að halda starfi félagsins gangandi þó félagið eigi marga góða styrktarað- ila að. I fimleikum þarf mikið af dýmm áhöldum og hefur félagið varið um 3,5 milljónum króna til áhaldakaupa á þessu ári. Hjá Fimleikafélaginu Rán er boðið upp á fimleika fyrir böm á aldrinum tveggja til átján ára. Yngstu börnin em í fimleikaskóla en einnig eru almennir-, áhalda- og hópfimleikar." íþróttafélagið Ægir Um Ægi segir: „Eftir að hugmyndin að stofnun Ægis, íþróttafélags fatl- aðra, vaknaði varð ekki aftur snúið, kennarar og foreldrar tóku höndum saman við undirbúninginn. Félagið var stofnað 12. desember 1988 og varð því 20 ára fyrr í þessum mánuði. Það var ógleymanlegur dagur þegar félagið hélt upp á afmælið með pompi og prakt. Margt hefur gerst síðan og félagið hefur vaxið og dafnað. Eftir að ný stjóm tók við félaginu haustið 2006 hefur verið unnið hörðum höndum við að gera félagið enn virkara. Metnaðurinn hefur verið að auka æfingamar, fá fleiri einstaklinga dl starfa í félaginu og hafa gaman af öllu saman. Stjómin hefur einnig kynnt fjölbreyttari íþróttagreinar innan félagsins, t.d. golf, fótbolta og frjálsar yfir sumartímann. f dag æfa 15 manns hjá félaginu. Haldið er úti fimm æfingum á viku í boccia bæði fyrir eldri og yngri hópa. í október sl. var farið á fyrsta ein- staklingsmót í boccia í lengri tíma og stóð félagið uppi með einn félag- ann sem íslandsmeistara og annan í öðm sæti og sá þriðji komst upp um deild. Þetta er að sjálfsögðu frábær árangur og er félagið stolt af keppn- isfólki sínu sem og öðrum iðk- endum sem standa sig frábærlega. Starf félagsins væri ómögulegt án þess óeigingjarna sjálfboðastarfs sem foreldrar, vinir og velunnarar inna af hendi. Með þesari styrk- veitingu vill Sparisjóðurinn styrkja öflugt starf félagsins." Kvenfélagið Líkn Líkn verður 100 ára í febrúar nk. og um það segir: „Kvenfélagið Lflcn var stofnað 14. febrúar 1909 og verður því aldargamalt í febrúar nk. Einn aðalhvatamaður að stofnun félagsins var héraðslæknirinn Hall- dór Gunnlaugsson og gaf hann félaginu nafn, vel viðeigandi sam- kvæmt dlgangi þess. Á árunum fyrir stofnun félagsins herjuðu mikil veikindi og fátækt á Eyjabúa. Héraðslæknirinn fékk nokkrar konur með sér í lið til að fara á heimili til hjálpar og upp úr því var kvenfélagið stofnað. Þannig var til- gangur félagsins í upphafi að líkna og hlynna að bágstöddum í Vest- mannaeyjum, svo og til að veita aðra þá aðstoð sem félagið sæi sér fært hverju sinni. Stofnendur voru 23 konur. í dag starfa í félaginu 124 konur. Þó félagið hafi látið sér fátt óviðkom- andi, sem til heilla horfir fyrir byggðarlagið, hefur rauði þráðurinn í starfi félagsins ætíð verið líknar- og mannúðarmál fyrst og fremst. Félagskonur hafa ávallt verið virkar í félaginu og unnið óeigin- gjamt starf, en starfsemin byggir á sjálfboðastarfi. Starfsemin gengur mikið út að sækja styrki til fyrir- tækja og bæjarbúa sem hafa stutt dyggilega við félagið alla tíð. Helstu fjáraflanir félagsins eru vorsöfnun, jólakortasala, basar, samúðarkort, karnival, kleinu- bakstur, og merkjasala svo eitthvað sé nefnt. Hápunkturinn er þó árleg fjáröflun félagsins með kaffi og kökusölu í tengslum við 1. desember sem setur svip sinn á upphaf aðventunar. Þær eru ótaldar gjafimar og styrkimir sem félagið hefur í gegnum tíðina fært ýmsum aðilum, en drýgstur hefur þó verið hlutur Heilbrigðis- stofnunarinnar í Vestmannaeyjum. Það má því segja að Kvenfélagið Líkn hafi frá upphafi verið gefandi félagsskapur í tvennum skilningi.“ Bókasafnið Um Bókasafnið segir: „Forstöðu- maður Bókasafns Vestmannaeyja hefur í samstarfi við atvinnuráðgjafa fatlaðra í Vestmannaeyjum verið að þróa tilraunaverkefni til að efla sóknarfæri fatlaðra til atvinnuþátt- töku. Um er að ræða hvort tveggja þátttöku á almennum markaði sem og að auka möguleika til að nýta nýja hæfingarstöð á Búhamri. Hugmyndafræðin er að taka saman handbók fyrir þá sem hyggjast ráða einstaklinga með skerta starfsorku til vinnu með það að markmiði að auðvelda atvinnurekendum að sjá kosti þess að nýta vinnuframlag allra þeirra sem vilja og geta unnið. Markmiðið er að setja fram ólík og vandlega skilgreind verkefni sem unnin yrðu í samstarfi við Bóka- safnið. Ráðnir yrðu 2 til 3 einstak- lingar í um 1,5 stöðugildi. Starfsmönnum og verkferlum verður fylgt nákvæmlega eftir, skref fyrir skref. Áfangar verða sýnilegir á framvindunni. Skilgreind verða lok verkefnis eða verkferlis sem jafnframt getur orðið upphaf nýrrar framvindu." Tryggvi Sigurðsson Um Tryggva segir að hann hafi byrj- að á smíði líkana árið 1987. „Hefur hann fullsmíðað vel á fjórða tug líkana. Hann hefur alltaf haft mest dálæti á bátum smíðuðum í Vest- mannaeyjum og eru lfkön af þeim bátum orðin mörg. Hann er búinn að gera líkön af öllum stærstu bátum sem hafa verið smíðaðir hér í Eyjum. Þar má nefna Helga Helga- son VE 343, en hann var stærsti trébátur sem smíðaður hefur verið á íslandi fyrr og síðar. Einnig eru líkön af Helga VE 333 og Glófaxa VE 300 ásamt mörgum fleiri. Tryggvi hefur þannig haldið á lofti minningu um þessa glæsilegu báta sem hannaðir og smíðaðir voru hér í Eyjum. Líkanasmíði Tryggva er löngu orðin þekkt og þykir hand- bragð hans vera með því besta sem sést hefur í líkanasmíðum. Skipslíkön Tryggva eru staðsett víða um land en þó nokkur eru í einkaeigu, m.a. er líkan af Sigurði VE 15 í eigu ísfélagsins og Þórður Rafn útgerðarmaður á nokkur. Tryggvi er enn að smíða fyrir Þórð Rafn, sem hefur látið hafa eftir sér að líkön þessi séu alger listaverk. Tíminn að baki smíði eins líkans er mikill og að mörgum smáatriðum þarf að huga því allt verður að vera alveg eins og fyrirmyndirnar en í mjög svo smækkaðri mynd. Sparisjóðurinn vill veita Tryggva viðurkenningu fyrir störf hans að smíði skipslíkana og varðveita með því söguna.“

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.