Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2009, Qupperneq 1

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2009, Qupperneq 1
Bélaverkstæðíð Bragginn s f. Flötum 20 Viðgerðir og smurstöð - Sími 481 3235 Réttingar og sprautun - Sími 481 1535 36. árg. I 28. tbl. I Vestmannaeyjum 16. júlí 2009 I Verð kr. 250 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is VEÐRIÐ hefur Ieikið við Eyjamenn síðustu daga og vikur og viðrað vel til heyskapar. Hér eru Gunnar og Kristín í Lukku á fullu í slættinum og hafa þau fengið Svövu, sem stendur hér á milli þeirra og krakkahóp til aðstoðar. Sjávarútvegsráðherra fer að mestu að tillögum Hafró: Afli þriggja skipa í tonnum Heildaraflamark í þorski fiskveiði- árið 2008 til 2009 er 150.000 tonn eins og ráðgjöf Hafrannsókna- stofnunar gerir ráð fyrir, niður- skurður er 12.500 tonn. Karfi verður 50.000 tonn eins og á síðasta fískveiðiári en heildarýsukvóti er minnkaður um 30 þúsund tonn, verður 63.000 tonn en var 93.000 tonn á síðasta ári. Ufsi var 65.000 tonn, verður 50.000 tonn á næsta fiskveiðiári og grálúða verður 12.000 í stað 15.000 tonna. Stein- bítskvóti verður 12.000 í stað 13.000 tonna og skötuselur 2500 tonn í stað 3000. Aðrar tegundir breytast ekki. Samkvæmt upplýsingum frá Hafdísi Snorradóttur hjá Utvegs- bændafélagi Vestamannaeyja var heildarþorskkvóti í Vestmannaeyj- um 8.010 tonn á síðasta fiskveiðiári. Niðurskurður á þorskveiðiheim- ildum á næsta fiskveiðiári er um 640 tonn og ef gert er ráð fyrir 330 krón- um á hvert kíló, eru það afla- verðmæti fyrir 211.462.838 krónur. Ysa var 12.452 tonn á síðasta fisk- veiðiári, skerðing verður 3.984 tonn og ef gert er ráð fyrir að kílóverð sé 215 krónur eru það aflaverðmæti fyrir 856.733.926 krónur. Ufsi var 8.883 tonn, skerðing er 2043 tonn og ef gert er ráð fyrir að kílóverð sé 135 krónur þá er aflaverðmæti 275.831.495 krónur. Steinbítur var 377 tonn og skerðist um 26 tonn, og ef kfióverð er 200 krónur eru það aflaverðmæti fyrir 5.278.588 krónur, skötuselur var 799 tonn, skerðing 120 tonn og ef kílóverð er 420 krónur er það aflaverðmæti fyrir 50.367.429 krónur. Grálúða var 487 tonn en skerðist um 97 tonn og ef kflóverð 450 krónur þýðir það skerðingu í aflaverðmæti fyrir 43.907.670. Skerðing á aflaheimildum Vest- mannaeyjum hefur því veruleg áhrif á rekstur útgerðarfyrirtækja og Vestmannaeyja sem heildar því heildarlækkun aflaverðmæta er 1.443.581.947 krónur. í tonnum er skerðingin í Eyjum, 6.909 tonn, sem næst afli þriggja skipa, og munar um minna. Stéttarfélögsj ómanna sameinast í ályktun: Kvóta- niður- skurði mótmælt -Sjávarútvegur gegnir lykilhlutverki í endur- reisn hagkerfisins A mánudaginn kom sameiginleg ályktun frá Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja, Sjómannafélag- inu Jötni, Útvegsbændafélaginu Heimaey og Skipstjóra og stýri- mannafélaginu Verðanda þar sem kvótaniðurskurði er mótmælt. Hvetja stjómir félaganna sjávar- útvegsráðherra, Jón Bjamason, til að endurskoða ákvörðun um leyfi- legan hámarksafla fiskveiðiárið 2009 til 2010. Miðað við kvótaúthlutanir síð- ustu ára teljum við að niður- skurður á ýsu sé of mikill. Fólk og fyrirtæki í sjávarútvegi geta á engan hátt búið við svo mikla sveiflu á milli ára og viljum við þvf skora á hæstvirtan sjávarút- vegsráðherra að endurskoða ákvörðun sína. Með því verður hægt að bregðast við breytingum á þann hátt að ekki fari illa í rekstri sjávarútvegsfyrirtækjanna og afkomu sjómanna sem byggja á þessari fisktegund. Einnig er farið í of mikla skerðingu á ufsa, þar sem nær ómögulegt er að mæla þann stofn, sem er flökku- stofn eins og allir sjómenn vita. Nú sem aldrei fyrr er óviðunandi að skorið sé niður um tugi pró- senta þegar svo mikil óvissa er í stofnmati, þó emm við sammála um að ganga ekki of nærri fiski- stofnum þjóðarinnar. Sjávarútvegurinn gegnir lykil- hlutverki í endurreisn hagkerfisins og er það mikið atriði að menn nái að nýta auðlindina sem best og hagkvæmast með sjálfbærni í huga. Varast skal hugmyndir sem lúta að algerri fiskfriðun og áróðri tengdri slflcri stefnu. Við höfum ekki efni á því. Onæði í Birkihlíðinni íbúar við Birkihlíð urðu fyrir ónæði á sunnudagskvöld. Rúða var brotin t einu húsi, gluggi spenntur upp í öðru, og barið á giugga í því þriðja. Húsin standa hlið við hlið og þrátt fyrir að gluggi hafi verið spenntur upp í einu húsanna var engu stolið þaðan. Tryggvi Kr. Ólafsson, lögreglu- fulltrúi, sagði engar vísbend- ingar um innbrotafaraldur, enda var engu stolið frá fbúum hús- anna. Hann hvetur hins vegar fólk sem er á leið út úr bænum að ganga vel frá húsum sínum og biðja nágranna að vakta húsin. Ekki síst þegar fjöldi fólks er í bænum eins og um þjóðhátíð. Við flytjum allt ... ... og ekkert er of stórt! Eimskip-Flytjandi er með um 80 afgreiðslustaði um land allt. Hvað getum við flutt fyrir þig? Hafðu samband og fáðu tilboð. Friðarhöfn 900 Vestmannaeyjar Sími 481 3500 Fax 481 3501 www.flytjandi.is E EIMSKIP Œ&fgm VIÐ LÁTUM BÍLINN GANGA... ...SVO ÞÚ ÞURFIR ÞESS EKKI amar VÉLA- OG BlLAVERKSTÆÐI . SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / <&) ÞJÓNUSTUAÐILITOYOTA í EYJUM FLATIR 21 / S.481-1216 / GSM. 864-4616

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.