Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2009, Side 14

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.2009, Side 14
14 Fréttir / Fimmtudagur 16. júlí 2009 ■ Meistaramót Golfklúbbs Vestmannaeyja: VERÐLAUNAHAFAR á meistaramóti GV. Örlygur Helgi meistari í sjöunda sinn Meistaramóti Golfklúbbs Vest- mannaeyja lauk á sunnudag. Leiknar voru fjórir 18 holu hringir í flestum flokkum en tveir hringir í unglingaflokkunum og þrír hringir í öldungaflokkum. Þátttakendur voru alls 75 talsins en það er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Hið besta veður var alla keppnisdagana, lítill vindur og alveg þurrt. Telpnaflokkur: Að þessu sinni var keppt í telpna- flokki og er það til marks um þá grósku sem er í barna- og unglinga- starfí klúbbsins um þessar mundir. Stelpurnar spiluðu tvo níu holu hringi og úrslit urðu þessi: 1. Magnea Jóhannsdóttir 120 h 2. Ásta B. Júlíusdóttir 128 h 3. Indíana Sveinsdóttir 137 h Unglingaflokkur 14 ára og yngri: I þessum flokki voru 11 keppendur sem léku tvo 18 holu hringi. Urslit urðu þessi: 1. Nökkvi Dan Elliðason 194 h 2. Hallgrímur Þórðarson 196 h 3. Arnar Gauti Grettisson 199 h Öldungallokkur karla, yfir 70 ára: Aðeins tveir keppendur voru í þess- um flokki og röðin þessi: 1. Sveinn Halldórsson 259 h 2. Gísli H. Jónasson 291 h Öldungaflokkur karla 55 til 69 ára: Þetta var næstfjölmennasti flokkur- inn, 15 keppendur, og var keppt bæði með forgjöf og án hennar. Með forgjöf urðu þrír efstu þessir: 1. Gunnar K. Gunnarsson 221 h 2. Haraldur Júlíusson 224 h 3. Bergur M. Sigmundsson 225 h An forgjafar: 1. Haraldur Júlíusson 239 h 2. Magnús Þórarinsson 244 h 3. Bergur M. Sigmundsson 261 h FRÍÐA DÓRA JÓHANNSDÓTTIR, ekkja Gunnlaugs, afhenti Hallgrími stykinn Uthlutað úr Minningar- sjóði Gunnlaugs Við lokaathöfn Meistaramótsins á sunnudag var úthlutað í fyrsta sinn úr Minningarsjóði um Gunnlaug heitinn Axelsson en markmið sjóðsins er að styðja við unglinga- starf GV. Helgi Bragason, for- maður GV, tilkynnti að ákveðið hefði verið að afhenda tvo styrki að þessu sinni. Annars vegar 50 þúsund króna styrk til kylfingsins unga og efnilega, Hallgríms Júlíussonar, og hins vegar styrk til kaupa á tíu peysum með merki klúbbsins handa unglingasveit klúbbsins vegna þátttöku í sveitakveppni. ÞRÍR EFSTU í MEISTARAFLOKKI KARLA Frá vinstri; Rúnar Þór (2.), Örlygur (1.) og Gunnar Geir (3.) Frá vinstri; Hrefna (2.), Katrín (1.) og Þorgerður(3.) Öldungaflokkur kvenna: Aðeins þrír keppendur voru í þessum flokki og röð þeirra þessi: 1. Katrín Magnúsdóttir 309 h 2. Hrefna Sighvatsdóttir 340 h 3. Þorgerður Jóhannsdóttir 406 h Kvennaflokkur: Yfirleitt er keppt f kvennaflokkum eftir forgjöf keppenda, eins og gert er í karlaflokkunum. Þar sem aðeins mættu til keppni þrjár konur úr GV og ein að auki sem lék sem gestur á mótinu, var leikið í einum almenn- um kvennaflokki og úrslit þessi: 1. Sigríður L. Garðarsdóttir 357 h 2. Karin H. Hafsteinsdóttir 392 h 3. Guðmunda Á. Bjarnad. 430 h 3. flokkur karla: I 3. flokki keppa þeir sem eru með forgjöf yfir 18 en aðeins fjórir kepp- endur voru í þessum flokki og röð þriggja efstu þessi: 1. Viðar Elíasson 368 h 2. Tryggvi K. Ólafsson 374 h 3. Óðinn Kristjánsson 378 h 2. flokkur karla: í 2. flokki keppa þeir sem eru með forgjöf frá 11 til 17 og voru tíu kepp- endur í þessum flokki. Efstu þrír menn höfðu nokkra yfirburði yfir aðra í flokknum: 1. Pálmi Harðarson 322 h 2. Jón Ingason 330 h 3. Amsteinn I Jóhannesson 336 h 1. flokkur karla: I 1. flokki keppa þeir sem eru með forgjöf milli 5 og 10. Þetta var fjöl- mennasti flokkurinn, alls 17 kepp- endur og þrír efstu þessir: 1. Vignir Stefánsson 309 h 2. Bjarki Ómarsson 316 h 3. Þorgils Orri Jónsson 323 h Meistaraflokkur karla: í meistaraflokki keppa þeir sem eru með forgjöf undir fjómm og voru alls tíu keppendur sem þar léku. Ævinlega er hvað mestur spenningur að fylgjast með keppni í meistara- flokki en efstu fjórir urðu þessir: 1. Örlygur H. Grímsson 287 h 2. Rúnar Þór Karlsson 292 h 3. Gunnar G. Gústafsson 295 h 4. Karl Haraldsson 297 h Töluverðar sviptingar voru í meistaraflokknum. Örlygur Helgi hafði forystu alla dagana en hinir þrír vom skammt undan og forskot Órlygs var aðeins eitt högg fyrir síðasta keppnisdaginn. Síðasta hringinn spilaði Örlygur hins vegar af mun meira öryggi en keppinaut- amir og uppskar eftir því. Þetta er í sjöunda sinn sem Örlygur hampar titlinum. Oftast allra varð Sveinn Ársælsson Vestmannaeyjameistari, 14 sinnum en Haraldur Júlíusson lék þann leik átta sinnum og er nú byr- jaður að sanka að sér slíkum titlum í öldungaflokki. Júlíus Hallgrímsson hefur unnið titilinn sex sinnum og er því í fjórða sæti á eftir Örlygi. Kristínar Einarsdóttur minnst Á laugardag fór fram útför Kristínar Einarsdóttur en hún var ámm saman einn af dyggustu félögum GV, ásamt eiginmanni sínum, Martéini Guðjónssyni, sem lést árið 2005. Áformað var að á laugardag yrði leikin síðasta umferð í Meistara- mótinu en vegna útfararinnar var ákveðið að leika lokaumferðina á sunnudag og hafa erfisdrykkju um Stínu á laugardag í Golfskálanum þar sem margir mættu. Voru allir mjög ásáttir um þessa breytingu, ekki síst þar sem á laugardag var stífur vindur sem hefði gert keppendum mun erfiðara fyrir að leika golf. Á sunnudag var aftur á móti hið besta veður og eins og einn keppenda orðaði það: „Það var eins gott að hún Stína tók í taumana." í lokahófi Meistaramótsins minntist Helgi Bragason þeirra hjóna Kristínar og Marteins með nokkrum orðum. Þar rifjaði hann upp að á 70 ára afmæli golfklúbbsins í fyrra færði Kristín klúbbnum háa fjárhæð að gjöf. Helgi upplýsti að stjóm klúbbsins hefði ákveðið að því fé yrði varið til að koma upp veglegri brú yfir tjömina á 16. braut og myndi sú brú hljóta nafnið Marteinsbrúin til minningar um þau hjónin.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.