Fréttir - Eyjafréttir - 01.04.2010, Page 6
6
Fréttir / Fimmtudagur 1. apríl 2010
EIN af myndum Kristins.
Kristinn tók mynd af
gosinu sem fór víða:
Valin mynd
vikunnar á
þýskri
fréttasíðu
Þeir eru margir sem lekið hafa
myndir af gosinu sem hófst á
Fimmvörðuhálsi laugardags-
kvöldið 20. mars sl.
Sjónarhornið hefur á stundum
verið skemmtilegt frá Eyjum séð
og það nýtti Kristinn
Jónatansson sér og átti ein
mynda hans eftir að fara víða.
Komsl m.a. inn á vinsæla frétta-
síðu í Þýskalandi sem valdi hana
mynd vikunnar.
Kristinn segist gera talsvert af
því að taka myndir. „Ég á góða
myndavél, Sony Alfa 350 sem
14,2 pixla með breytilegum lins-
um,“ sagði Kristinn sem strax
fékk áhuga á að mynda gosið.
„Það var ekki hægt fyrr en á
þriðjudaginn vegna skyggnis og
er ég búinn að taka einar 600
myndir. Fyrstu myndimar tók ég
um kvöldið og mynd sem ég tók
um klukkan hálf tíu um kvöldið
fór inn á Facebook og hefur
farið ótrúlega víða.
Fréttasíðan achgut.com/
dadgdx í Þýskatandi útnefndi
hana mynd vikunnar. Ég stefni á
að komast að eldstöðvunum um
páskana og fer labbandi ef ég
kemst ekki á sleða,“ sagði
Kristinn.
Frá
Lögreglu
Vegna misskilnings, sem hefur
gætt vegna fréttar í blaðinu hinn
18. mars sl. um uppljóstrun
fíkniefnamáls, skal eftirfarandi
tekið fram af hálfu lögreglunnar
í Vestmannaeyjum. Konan sem
handtekin var og hafði kannabis
í fórum sínum, tengist ekki máli
þremenninganna sem komu með
200 grömm af amfetamíni til
Vestmannaeyja þann 10. mars sl.
Áætlun Herjólfs klár - Mikill metnaður hjá Eimskip - Stórt verkefni:
Von okkar er að allir geti
verið sáttir við breytingarnar
-Segir rekstrarstjóri - Tíðari og styttri ferðir - Einföldun á miðasölu - Aðlögun
að auknum ferðamannastraumi - Skemmtilegri upplifun um borð
í Fréttum í dag er sumaráætlun
Herjólfs og gjaldskrá auglýst. Sam-
kvæmt henni verða fjórar ferðir
farnar mánudaga, þriðjudaga og
miðvikudaga þar sem fyrsta ferð
verður frá Eyjum klukkan 7 um
morgunin en síðasta ferð frá Land-
eyjahöfn klukkan 21.30. Fimmtu-
daga og föstudaga verða fimm ferðir
og fyrsta ferð einnig 7 og sú síðasta
21.30. Laugardaga og sunnudaga
verða einnig fímm ferðir en þá fær-
ist áætlun skipsins aftar, fyrsta ferð
er klukkan 9 og sú síðasta 22.30.
Fullorðinn greiðir 1.000 krónur
fyrir farið, börn 12 til 15 ára, ör-
yrkjar og eldri borgarar greiða 500
krónur, 1.500 krónur kostar fyrir
bíla undir fímm metrum og 2.000
fyrir stærri bíla. Aætlað er að setja
upp afsláttarkerfi en það, ásamt
ferðaáætlun yfir Þjóðhátíðina verður
auglýst síðar.
GUÐMUNDUR: Það verða jákvæðar breytingar sem farþegar munu
taka eftir strax og svo munum við aðlaga þjónustuna eftir því sem
reynsla kemur á þessa leið.
Færri farþegar - En aukin
flutningsgeta
Auk alls þessa liggur fyrir að færa
verður niður hámarksfjölda farþega
um 136. Hámarksfjöldi farþega í
dag er 500 en fer niður í 364. Þrátt
fyrir það verður flutningsgetan um-
talsvert meiri. Þegar skipið siglir
fjórar ferðir er hægt að flytja 1.456
farþega á einum degi í stað 1.000
áður. Þegar skipið siglir fimm ferðir
er svo farþegafjöldinn kominn upp í
1.820. Éftir því sem næst verður
komist verður hægt að flytja sama
fjölda bifreiða og áður.
Guðmundur Pedersen, rekstrar-
stjóri Herjólfs hjá Eimskip, segir að
félagið leggi mikinn metnað í
verkefnið. „Eimskip mun, í samráði
við heimamenn, vinna að markaðs-
setningu á Herjólfi og Eyjum í gegn-
um auglýsingar, kynningar og aðrar
uppákomur," sagði Guðmundur.
„Markaðs- og kynningardeild
félagsins hefur, ásamt forstjóra
þegar átt fund með Elliða Vignis-
syni, bæjarstjóra og Kristínu Jó-
hannsdóttur, ferðamálafulltrúa um
undirbúninginn og næstu skref og
mun hittast reglulega næstu 90 daga
fram að fyrstu ferð 1. júlí.
Innanlandssvið Eimskips hefur lagt
mikla vinnu í verkefnið síðustu
mánuði í samvinnu við Vegagerðina
og samgönguráðherra og hans ráðu-
neyti. Má með sanni segja að allir
hafi sett sinn metnað í verkefnið."
Guðmundur sagði að nemar við
Háskóla Reykjavíkur séu að vinna
markaðsverkefni fyrir Eimskip
varðandi þjónustuna unt borð og
aðra þætti er lúta að verkefninu og
er niðurstaðna að vænta fljótlega.
„Verkefnið er stórt og von okkar er
að allir geti verið sáttir við þessar
breytingar sem í hnotskum eru tíðari
og styttri ferðir, einföldun á
miðasölu, aðlögun að auknum
ferðamannastraumi til Eyja og
skemmtilegri upplifun um borð.“
Eiga Eyjamenn eftir að jinna fyrír
miklum breytingum varðandi bók-
anir í Herjólf þegar skipið hefur
siglingar íLandeyjahöfn?
„Það verða jákvæðar breytingar
sem farþegar munu taka eftir strax
og svo munum við aðlaga þjón-
ustuna eftir því sem reynsla kemur á
þessa leið. Það má helst nefna að
skráning og kaup á miðum með
Herjólfi verður mun auðveldari, því
nú þarf ekki lengur að halda utan
um nöfn og kennitölur þeirra sem
eru unt borð þar sem minni öryggis-
kröfur eru gerðar til styttri siglinga
milli hafna.
Ekki þarf að panta miða og sjálf-
salar verða settir upp á afgreiðslu-
stöðunum þremur, í Reykjavík,
Landeyjum og í Eyjum. Einnig
verður hægt að kaupa miða í
afgreiðslustöðum sem verða opnir
lengur en áður þar sem siglingar
dagsins kalla á lengri opnunartfma
frá morgni til kvölds. Þar sem tíðni
ferða hefur verið aukin úr 14 ferðum
í 32 ferðir yftr sumartímann þá er
óþarfi að hafa pöntunarkerfi. Einnig
verður hægt að kaupa miða á net-
inu.“
Sami fjöldi bíla en engar
kojur
Nú liggur fyrir að breyta þarf
hámarksfjölda skipsins, hvernig
verður það útfœrt? Verða rými í
skipinu sem nú eru í notkun, lokuð?
Verður boðið upp á kojur á siglinga-
leiðinni íLandeyjahöfh?
„Stóra breytingin verður sú að far-
þegar munu finna fyrir þeirri
breytingu að siglingartíminn verður
aðeins brot af því sem hann var og
því meira eins og skemmtisigling
þar sem alltaf sér til lands í stað
langrar sjóferðar. Þess vegna liggur
fyrir að klefum í skipinu verður
lokað og þá í leiðinni því svæði sem
FARÞEGAR SLAPPA AF Stóra breytingin með Landeyjahöfn verður sú að farþegar munu finna fyrir
þeirri breytingu að siglingartíminn verður aðeins brot af því sem hann var og því meira eins og
skemmtisigling þar sem alltaf sér til lands í stað langrar sjóferðar.
þeir eru á. Enda er ekki talin þörf
fyrir svenfpláss á svo stuttri leið.
Það verður því ekki boðið uppá
kojur en í staðinn verða settir upp
góðir stólar í sjónvarpssalinn sem
hægt verður að halla aftur og láta
fara vel um sig. Þessi ákvörðun
verður skoðuð síðar enda ekki
komin nein reynsla á þessa tilhög-
un.“
Hvað með fjölda bíla, verður t.d.
lyftanlega bílaþilfarið í notkun á
nýrri siglingaleið?
„Fólks- og bílaflutningar verða
óbreyttir og lyftanlegt þilfar verður
áfram í notkun, en vagnaflutningum
verður beint í ferðir þar sem reiknað
er með færri farþegum. Þetta verður
til bóta, bæði fyrir farþega og flut-
ningsaðila. En auðvitað munum við
skoða þetta nánar þegar reynsla
kemur á þessar ferðir," sagði Guð-
mundur og bætti við að skipt verði
um olíu í skipinu.
„Áætlað er að olíunotkun muni
minnka verulega en af öryggis-
ástæðum verður notuð hreinni og
dýrari olía á skipið. Fækkun verður
í áhöfn Herjólfs þannig að grunn-
mönnun verður nú 9 manns í stað 14
manna.“
Nú segir í auglýsingu að afsláttar-
kjör verði auglýst síðar. Hvaða
hugmyndir eru uppi um þau?
Verður núverandi einingakerfi tekið
út og annað afsláttarkerfi sett upp?
„Verðlagning og afláttarkjör í ferð-
ir Herjólfs eru alfarið í höndum
Vegagerðarinnar í nánu samstarfi
við bæjaryfirvöld í Vestmanna-
eyjum. Heimamenn í Eyjum eru
stórnotendur og geta því keypt
einingarkort með afslætti," sagði
Guðmundur að endingu.
Frétt frá Höllinni - Rokk sagan - „Bcst of" að taka á sig mynd
Andrea, Páll Rósinkrans, Eyþór Ingi og Snorri mæta
Nokkrir helstu rokk- og eðalsöngv-
arar landsins sameinast í tónveislu í
Höllinni 4. júní. Þar verður mikið
um dýrðir og háa tóna þetta föstu-
dagskvöldið en þá ætla nokkrir
helstu rokk- og eðalsöngvarar
landsins að koma saman í Höllinni
Vestmannaeyjum og fara í gegnum
alla „hittarana“ frá sjöunda, áttunda
og níunda áratugnum.
Sjaldan eða ajdrei hafa jafn marg-
ar stjörnur komið saman í Höllinni
á einu sviði og má búast við
stórkostlegri dagskrá.
Á efnisskránni eru m.a. Deep
Purple, Journey, Led Zeppelin,
Eagles,
Whitesnake,
ásamt öllum
hinum
risunum.
Búast má við
gæsahúð og
blóðnösum
fyrir lengra
komna.
Skipan
hljómsveitar
og söngvara er klár. Söngvarar eru
Páll Rósinkranz, Eyþór Ingi, Snorri
Idol og Andrea Gylfadóttir.
Sveitina skipa Birgir Nielsen
trommur, sem er líka tónlistarstjóri,
Sigurgeir Sigmundsson á gítar og
stálgftar, Þórir Ólafsson á ham-
mond og píanó, Grétar Búlgretský
gítar, Jakop bassi úr SSSÓL og
Egó. Þetta er landslið rokkara og
tónlistarmanna sem munu keyra
þetta program áfram og aldrei að
vita nema fleiri bætist í hópinn.
Miðasala á þennan einstaka
viðburð hefst þann 4. maí á
Volcano Café.
Höllin Vestmannaeyjum
Frekar rólegt hjá lögreglti í síðustu viku:
Vinnuslys og ölvað ósjálfbjarga fólk
Það var frekar rólegt hjá lögreglu í
vikunni sem leið og engin alvarleg
mál komu upp. Að vanda fór vinna
lögreglu um helgina í að aðstoða
fólk vegna ölvunarástands. Það var
þó minna en undanfamar helgar.
Að morgni föstudags var lögreglu
tilkynnt um vinnuslys í fiskvinnslu-
fyrirtækinu Pétursey. Þar hafði
starfsmaður slasast þegar lyftara-
gaffall losnaði af og lenti á fæti
starfsmannsins. Var í fyrstu óttast
að um fótbrot væri að ræða en svo
reyndist ekki vera heldur hafði
fóturinn marist illa.
Tveir ökumenn vom stöðvaðir
fyrir of hraðan akstur, hafði annar
mælst á 86 km/klst. á Eiðisvegi en
hinn á 70 km/klst. á Hamarvegi.
Þá var einn ökumaður sektaður
fyrir að tala í farsíma án handfrjáls
búnaðar.