Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2010, Page 1
Bílaverkstæði - Flötum 20
Viðgerðir
og smurstöð
-Sími 481 3235
Réttingar
og sprautun
- Sími 481 1535
37. áfg. I 52. tbl. I Vestmannaeyjum 30. desember 2010 I Verð kr. 300 I Sími 481-1300 I www.eyjafrettir.is
Þórunn Sveinsdóttir kemur til hafnar í Eyjum á aðfangadag jóla. Þórunn er á ailan hátt hið glæsilegasta skip og er Sigurjón, útgerðarmaður,
mjög ánægður með alla vinnu af hendi við Karstens Skibsværft í Danmörku og segir samstarfið við þá hafí verið til fyrirmyndar.
Ný Þórunn Sveinsdóttir VE 401 kom til heimahafnar á aðfangadag:
Fagnað í skugga óvissu
-Ætlar ekki að láta Jón Bjarnason stoppa sig - Boðar skattheimtu á sjávarpláss
Það var mikil hátíðarstund í Vest-
mannaeyjum þegar nýtt skip,
Þórunn Sveinsdóttir VE 401, kom til
heimahafnar í Eyjum í fyrsta sinn á
aðfangadag. Mikill mannfjöldi var á
bryggjunni og lét fólk ekki á sig fá
slydduhnðina sem gekk yfir þennan
dag. Um leið og hið glæsilega skip
sigldi inn á Víkina var skotið upp
flugeldum til að fagna góðri viðbót í
flota Eyjamanna.
Sigurjón Oskarsson, útgerðar-
maður, segir að vissulega séu þetta
ánægjuleg tímamót í sögu útgerð-
arinnar en tilfmningamar séu þó
blendnar. Vísar hann þar ekki síst til
þess pólitíska tómarúms sem sjávar-
útvegurinn má búa við í dag. „Um
leið og fólk er að óska manni til
hamingju með nýtt skip er maður
spurður að því hvemig dæmið eigi
að geta gengið upp. Og það verður
að segjast eins og er að það er
enginn grundvöllur fyrir þessu eins
og staðan er í dag,“ sagði Sigurjón
án þess að á honum væri að heyra
eitthvert uppgjafahljóð.
„Síðan við ákváðum að endumýja
hefur olían hækkað mikið, veiði-
leyfisgjald fjórfaldast og svo á að
fara að láta okkur borga fyrir veiði-
heimildir sem við höfum þegar
greitt fyrir nýtingarréttinn á. Það er
bein viðbótarskattheimta og það
ekki bara á okkur heldur lfka á sjó-
menn og útgerðarstaði eins og
Vestmannaeyjar. Þetta er sá vem-
leiki sem við útgerðarmenn verðum
að búa við en maður setur sér mark-
mið en það er svo spuming hvort
maður nær þeim eða ekki.“
Þama er Sigurjón að tala um
hugmyndir sjávarútvegsráðherra um
að auka við kvóta í bolfiski sem
síðan yrði boðinn upp. Þessi hug-
mynd er nú á borðum ríhisstjómar-
innar sem virðist samkvæmt fréttum
tvístígandi en gert er ráð fyrir að
salan gæti gefið ríkissjóði 2,8 millj-
arða í tekjur. „Auðvitað ætlar maður
ekki að láta Jón Bjamason stoppa
sig en það er ekki auðvelt að vinna
við þau skilyrði að vita ekki hvað
morgundagurinn ber í skauti sér. Nú
er við völd ríkisstjórn sem vill
kvótakerfið feigt og öll umræðan
snýst um að allur gróði af sjávar-
útvegi fari beint í vasa útgerðar-
manna.
Við emm búin að taka þátt í kvóta-
kerfinu frá upphafi og höfum kostað
miklu til að taka þátt í þeirri
hagræðingu og tiltekt sem orðin er í
greininni, hagræðingu sem er að
skila sér til þjóðarinnar allrar. Eg er
ekki á móti skattlagningu á atvinnu-
greinar en það á ekki að leggja meiri
kvaðir á sjávarútveg en aðrar
greinar. Það kippir ekki aðeins
grundvelli undan sjávarútvegi í
heild heldur er umframskattlagning
á sjávarpláss og íbúa þeirra."
Jólabónus hjá VSV:
Landfólk
fékk 200
þúsund
Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. í
Vestmannaeyjum ákvað að starfs-
menn í landvinnslu fyrirtækisins
fengju greiddan 200.000 króna
kaupauka nú fyrir jólin, þ.e. þeir
sem hafa verið í fullu starfi allt
árið. Aðrir fá greitt í samræmi við
starfshlutfall.
Þetta kemur fram í frétt frá félag-
inu og segir að með þessum
jólabónus fylgi hátíðarkveðja og
innilegt þakklæti í garð starfsfólks
fyrir vel unnin störf á árinu sem er
að líða.
Alls eru nú um 280 stöðugildi til
lands og sjávar hjá Vinnslu-
stöðinni og fjölgaði um 50 árið
2010. Eitt skip bættist í flota
félagsins á árinu.
„Samdráttur veiða úr helstu
nytjastofnum Islendinga hefur að
sjálfsögðu sett mark sitt á afkomu
og kjör Vinnslustöðvarinnar og
starfsmanna félagsins á undan-
fömum áram, líkt og í sjávar-
útveginum yfirleitt. Nú þegar
hillir undir að þorskstofninn
styrkist og aflaheimildir verði
auknar á nýjan leik er að sjálf-
sögðu sanngjarnt að þeir, sem
tóku á sig skerðinguna, njóti
þess,“ segir Sigurgeir B.
Kristgeirsson, framkvæmdastjóri.
Sú þriðja
Sigurjón Óskarsson, útgerðar-
maður, var á aðfangadag að koma
með þriðja skipið með nafni
ömmu sinnar, Þórunnar
Sveinsdóttur. Hið fyrsta kom árið
1971 sem reyndist mikið afla- og
happaskip og það sama átti við
um skip númer tvö sem nú heitir
Suðurey og er í eigu ísfélagsins.
Þórunn Sveinsdóttir er í eigu
útgerðarfélagsins Óss ehf. sem að
margra mati er ein best rekna
útgerð á landinu. Félagið var
stofnað 1969 af Siguijóni,
Matthíasi bróður hans og Óskar
Matthíassyni, föður þeirra sem
oftast var kenndur við bát sinn
Leó. Var Óskar annálaður afla-
maður og lagði grunninn að
útgerð sem enn blómstrar. Seinna
keypti Sigurjón systkini sín út og
síðan hefur útgerðin verið í eigu
fjölskyldu hans og nú er fjórða
VÉLA- OG BÍLAVERKSTÆÐ!
VIÐ ERUM ÞJÓNUSTUAÐILI
OYOTA í EYJUM
SMURSTÖÐOG ALHLIÐA BILAVIÐGEÐIR VIÐ ERUM A MOTI STRAUMI..J
FLATIR 21 / S.481-1216 GSM. 864-4616