Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2010, Qupperneq 10

Fréttir - Eyjafréttir - 30.12.2010, Qupperneq 10
10 Fréttir / Fimmtudagur 30. desember 2010 NÝTT ÚTISVÆÐI við Sundlaug Vestmannaeyja var vígt í lok maímánaðar. Opnunarhátíðinni hafði verið frestað vegna gosöskunnar en hreinsunarstarf sjálfboðaiiða gekk vel. 25 útskriftamemar Það var myndarlegur hópur sem útskrifaðist frá Framhaldsskólanum í lok maí. Sextán stúdentar voru útskrifaðir, átta með sveinspróf í húsasmíði og einn úr 2. stigi vél- stjómamáms. Ný verslun og föndurstofa Þær Sigrún Jónsdóttir og Ingibjörg Bernódusdóttir opnuðu nýja gjafavöruverslun og föndurstofu, Dalrúnu, að Vestmannabraut 24, þar sem apótekið var áður til húsa. Þær sögðust ætla að vera með opna föndurstofu þar sem hægt væri að koma og vinna gegn vægu gjaldi. Tónlist og ljósmyndir Dagar lita og tóna vom að vanda haldnir um hvítasunnuna og komu þar fram, auk heimamanna, stór hluti af fremstu jassleikurum Islands. I tengslum við Daga lita og tóna var Ingi Tómas Bjömsson með ljósmyndasýningu þar sem sögð var í myndum saga þessarar hátíðar í 15 ár. Glæsilegt svæði vígt Nýtt útisvæði við sundlaugina var vígt í lok maí en fresta hafði þurfti opnunarhátíðinni vegna öskufallsins fyrr í mánuðinum. Hópur sjálf- boðaliða sá til þess að svæðið var hreinsað og allt klárt við opnun. Líkast til er þetta svæði eitt hið glæsilegasta á öllu landinu ef ekki það glæsilegasta. Óbreytt ástand Gengið var til bæjarstjórnar- kosninga í Vestmannaeyjum í maí. Úrslit urðu hin sömu og í síðustu kosningum. Sjálfstæðismenn héldu meirihluta sínum, fjómm mönnum í bæjarstjóm en V-listinn hlaut þrjá. Að þessu sinni buðu framsóknar- menn og óháðir einnig fram en höfðu ekki erindi sem erfiði. En úrslitin urðu sem hér segir: Framsókn og óháðir 202 atkv. Sjálfstæðisflokkur 1320 atkv. Vestmannaeyjalisti 862 atkv. Fullir knapar og flugeldar Kvöldið fyrir kjördag var lögreglu tilkynnt að verið væri að skjóta flugeldum af Heimakletti, Molda og Helgafelli. Við athugun kom í ljós að þama vom á ferð stuðningsmenn sjálfstæðismanna, væntanlega til að fagna komandi sigri, en hafði láðst að afla sér leyfis fyrir gjömingnum. Játuðu þeir brot sitt. Og á kjördag þurfti lögregla að hafa afskipti af drakknum knöpum sem vora í útreiðartúr í bænum. Létu þeir sér segjast eftir að lögregla hafði gert þeim grein fyrir því að óheimilt væri að vera áberandi ölvaður á hestbaki og gæti slikt leitt til sekta. Ekki kom fram stuðnings- menn hvaða flokks þama vora á ferð. Viðbót í ferðaþjónustu Ribsafari, nýtt ferðaþjónustu- fyrirtæki í Eyjum, kynnti þjónustu sína. Fyrir því standa nokkrir Eyjamenn sem hyggjast bjóða upp á siglingar við Eyjar á mjög vel útbúnum og hraðskreiðum gúmmí- báti. Júní Foto hættir - Póley flytur Verslunin Póley, sem verið hafði um nokkurt skeið við Heiðarveginn, flutti sig nú í hjarta miðbæjarins, í húsnæði Foto við Bárustíg. Guðmundur Sigfússon, sem rekið hafði ljósmyndaþjónustuna Foto um árabil, ákvað að hætta rekstrinum. Hefðbundinn sjómanna- dagur Sjómannadagshelgin, sem orðin er þriggja daga hátíð, var haldin með hefðbundnum hætti, með kappróðri og öðru sprelli í Friðarhöfn, skemmtun og dansleik ásamt öllu rólegri dagskrárliðum á sunnudag. Allt fór þetta hið besta fram, nema hvað nokkur vonbrigði vora með aðsóknina á tónleika hins stórgóða Óp-hóps. Þá vora þrjár myndlistar- sýningar í bænum þessa helgi. Skipshöfnin verðlaunuð Áhöfn Vestmannaeyjar VE 444 gat verið ánægð með sinn hlut á sjó- mannadaginn. Þá veitti Slysavama- félagið Landsbjörg áhöfninni viðurkenningu fyrir að hafa öðrum fremur sýnt góða öryggisvitund. Hlupu um naktir Eitt og annað gerðist um sjómanna- dagshelgina sem að mati lögreglu var ekki við hæfi. Til að mynda stóð lögreglan, á aðfaranótt laugardags, tvo unga menn að því að kveikja í bensíni á Strandveginum. Og aðfaranótt sunnudags voru fjórir ungir menn staðnir að því að hlaupa um kviknaktir við Ráðhúsið. Þótt hlýtt hafi verið í veðri mun þó ástæðan fyrir þessu klæðleysi ekki hafa verið hátt hitastig, heldur afleiðingar af svonefndum „drykkjuleik". Lögreglan mun hafa gert þeim grein fyrir alvarleika hvoru tveggja; að hlaupa um naktir sem og drykkjuleika. Róðrarkærur Kappróðrarkeppnin á sjómanna- daginn dró nokkurn dilk á eftir sér. Verðandimenn, sem lutu í lægra haldi fyrir Jötni, undu því illa og ýjaði formaður Verðandi að því að úrslitin yrðu kærð. Formaður Jötuns svaraði og urðu af þessu blaðaskrif í Fréttum. Flestir áttuðu sig þó á því að ekki fylgdi mikil alvara þessu karpi sem var á léttum nótum. Strákaleg og afslöppuð Eyjakonan Sif Ágústsdóttir gerði það gott í tískuheiminum í útlönd- um, sem fyrirsæta, þótt hún segðist sjálf ekki eltast við tískustrauma. Hún prýddi m.a. forsíðu dönsku útgáfunnar af tískuritinu Elle og þakkað velgengni sína m.a. því að hún hefði strákalegan og mjög af- slappaðan stfl. Fór til Guðs Þau Margrét Lilja og Páll Marvin á Náttúrugripasafninu tóku á móti litlum og máttförnum selkóp, sem böm höfðu fundið, og hafði greini- lega orðið viðskila við móður sína. Margrét Lilja reyndi að koma ofan í hann næringu sem tókst og sofnaði kópurinn síðan. „En þegar ég hugaði að honum hálftíma síðar, var hann farinn til Guðs. Það var auð- vitað sorglegt og tár féllu en honum líður örugglega vel núna,“ sagði Margrét Lilja. Bækur í Drífanda Bókaverslunin Eymundsson flutti úr Kiwanishúsinu í Drífanda, í mun stærra húsnæði. Um leið var aukið við umfangið og opnað kaffihús í hluta húsnæðisins. Stofnfé niður í 10% Sparisjóður Vestmannaeyja tapaði verulegu fé í bankahraninu eins og aðrar fjármálastofnanir. Ákveðið var að fresta aðalfundi, sem halda hefði átt fyrir 1. maí, en á fundi sem haldinn var með stofnfjáreigendum í júní var lögð fram tillaga um endur- fjármögnun og hækkun stofnfjár, sem þýddi að núverandi eigendur héldu eftir 10% af heildarstofnfé. Að þessu loknu átti Seðlabankinn 55% í Sparisjóðnum, eigendur skuldabréfa um 20%, nýir stofn- fjáreigendur 15% og núverandi stofnfjáreigendur 10%. Ekki vora allir á eitt sáttir með þetta en fátt annað að gera í stöðunni. Málin yrðu síðan til lykta leidd á aðalfundi sem yrði haldinn fyrir árslok. Eins og vítamínsprauta Á sama tíma og atvinnuleysi var í hámarki á suðvesturhorni landsins, var allt vitlaust að gera í fiski í Vestmannaeyjum. Bæði var unnið í humri og bolfíski en mest var þó að gera í makrílvinnslu bæði hjá Vinnslustöð og Isfélagi. Maknllinn kom eins og vítamínsprauta inn í atvinnulífið íjúní. Þrír útskriftarnemar I júní útskrifuðust þrír ungir Eyjamenn hjá Keili, miðstöð vís- inda, fræða og atvinnulífs á Reykja- nesi. Það voru þeir Leó Sveinsson af háskólabrú, Hjörleifur H. Steinarsson sem flugumferðarstjóri og Guðjón K. Ólafsson sem IAK einkaþjálfari. Ósátt við uppsagnir Megn óánægja var hjá starfsfólki Herjólfs þegar vænn hluti áhafnar- innar fékk uppsagnarbréf. Ákveðið var að fækka í áhöfn þegar siglingar hæfust í Landeyjahöfn og kom þessi niðurskurður harðast niður á þem- unum en þeim var fækkað úr fimm í eina. Auk þess var einum háseta sagt upp. Guðmundur Pedersen, hjá Eimskip, sagði að þetta hefði ekki átt að koma neinum á óvart, alltaf hefði verið gengið út frá fækkun í áhöfn eftir að hætt yrði að sigla í Þorlákshöfn. Stútar og stautar Fyrir svo sem áratug var fátítt að menn væru teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Nú era þeir ámóta margir á ári hverju og þeir sem era teknir fyrir ölvunarakstur. Þeir sem teknir eru undir áhrifum áfengis hafa verið kallaðir „stútar“ en hinir sem eru teknir dópaðir nefnast „stautar“. Um miðjan júní hafði lögreglan í Vestmannaeyjum tekið sjö stauta og ívið fleiri stúta á árinu. Hefðbundinn 17. júní Þjóðhátíðardagurinn 17. júní var hátíðlegur haldinn í mildu veðri og þátttaka með betra móti enda fjöl- margir gestkomandi í bænum. Hátíðahöld vora með hefðbundnu sniði, skrúðganga, hátíðarræða og Fjallkona, sem Thelma Sigurðar- dóttir sá um að túlka, auk skemmti- atriða. Nýr pizzustaður Þótt Björgvin Þór Rúnarsson væri hættur rekstri Volcano Open, var hann þó ekki sestur í helgan stein. Hann opnaði í júní nýjan pizzustað við hliðina á Volcano Café á Strandveginum, stað sem hlaut nafnið Volcano Eldbakan. Eins og nafnið gefur til kynna var þar boðið upp á eldbakaðar flatbökur. Ellefu nýir vélaverðir Ellefu nemendur luku í júní vélavarðanámskeiði sem veitir vél- stjómarréttindi á skip undir 24 m að lengd. Þetta nám var samstarfs- verkefni Framhaldsskólans og Visku og hafði Gísli Eiríksson umsjón með því. Sumarstúlka nr. 24 Elín Sólborg Eyjólfsdóttir var valin Sumarstúlka Vestmannaeyja 2010 í samnefndri keppni sem nú var haldin í 24. skipti. Þrettán stúlkur tóku þátt í keppninni að þessu sinni. Aðrar sem hlutu viðurkenningar vora Sveinbjörg Ósk Hauksdóttir, Sportstúlkan, Helga Sigríður Hartmannsdóttir, sem var valin Ljósmyndafyrirsætan, Agnes Guðjónsdóttir, Bjartasta brosið og Sigurbjörg Jóna Vilhjálmsdóttir sem var valin Vinsælasta stúlkan. Hækkun um 10.4% Fram kom að fasteignamat eigna í Vestmannaeyjum, sem Fasteignamat ríkisins ákvarðar, hafði hækkað um 10,4% meðan það hafði lækkað um 6,8% á öllu landinu. Formaður bæjarráðs í Vestmannaeyjum sagði þetta einkar ánægjulega þróun sem sýndi að Vestmannaeyjar voru í sókn. Greiddu arð í evrum Árið 2008 var ákveðið á aðalfundi Vinnslustöðvarinnar að breyta reikningsskilum félagsins úr ísl- enskum krónum í evrar. Það sýndi sig að sú ákvörðun var til góðs, sérstaklega gagnvart eigin fé. Af þeim sökunt var ákveðið á aðalfundi VSV að greiða hluthöfum 18% arð í evram. Á aðalfundinum kom fram að rekstrarhagnaður ársins 2009 var um 900 milljónir kr. Hálfáttræð með sýningu Ólöf Dóra Waage lét ekki árin 75 aftra sér frá að halda málverka- sýningu í Eyjabúð síðustu helgina í júní. Hún var ánægð með aðsóknina auk þess sem hún seldi sex af mynd- unum. Fullur, dópaður og réttinda- laus Síðustu helgina í júní hugðist lögreglan stöðva ökumann sem þótti aka grunsamlega. hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum og varð lögregl- an því að aka í veg fyrir hann sem endaði með árekstri. I ljós kom að ökumaðurinn var aðeins 16 ára og því ekki með bflpróf. Þá var hann og granaður um að vera bæði undir áhrifum áfengis og fíkniefna og því tæplega hægt að brjóta öllu meira af sér í einu og sama tilviki. Hann var sóttur af foreldrum sínum sem væntanlega hafa þurft að punga út vænni fúlgu fyrir þetta helgarævin- týri sonarins. Seinni hluti Annáls ársins 2010 verður birtur í nœsta tölublaði Frétta. Sumarstúlkukeppnin var haldin í 24. skiptið á árinu og hér má sjá þær stúlkur sem fengju verðlaun. Frá vinstri: Helga Sigríður Hartmannsdóttir, Ljósmyndafyrirsæta keppninnar, Sveinbjörg Ósk Hauksdóttir, Sportstúlkan, Elín Sólborg Eyjólfsdóttir, Sumarstúlkan, Ágnes Guðjónsdótti, Bjartasta brosið og Sigurbjörg Jóna Vilhjálmsdóttir, Vinsælasta stúlkan.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.