Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2011, Blaðsíða 9
Frcttir / Fimmtudagur 26. maí 2011
9
0-
■tir til að taka þátt í afmælistónleikunum.
10 ára starf:
eila öld
þar sem fyrri hluti tónleikanna fór fram.
framlagi. Það á ekki síst við um
Guðmund sem á miklar þakkir skil-
ið fyrir hans ötula starf sem kór-
stjóri, organisti og skólastjóri
Tónlistarskólans í 40 ár.
Það er ekkert sjálfgefið að eiga
öflugan kór og tónlistarskóla og
alls ekki mann með þá menntun og
reynslu í tónlist sem Guðmundur
hefur. En við Eyjamenn höfum
orðið þeirra gæfu aðnjótandi að
þetta hefur verið til staðar sem á
sinn þátt í öflugu tónlistarlífi
Eyjanna.
Að lokum em það einsöngvar-
amir, Það var mikið happ fyrir tón-
listarlífið þegar Unnur Sólveig kom
til liðs við Tónlistarskólann sem
söngkennari. Hún er ekki bara
frábær klassísk söngkona, hún
getur líka rennt sér í léttari tónlist
og er skemmtilegur blúsari. Og mér
er spum; eigum við íslendingar
betri tenór í dag en Gissur Pál? Eg
held bara ekki eftir að hafa hlustað
á hann þetta kvöld í Landakirkju.
Og öll saman fengu þau mig til að
gleyma því að veðurspáin var ekki
beint kræsileg. Er hægt að fara
fram á meira?
Omar Garðarsson.
Gæðakór sem tekst á við krefjandi
kórverk og fallegan söng
-Séra Kristján Björnsson er ánægður með kórinn sem hann segir standa fyrir
ákveðinni stefnu í söng og menningarstarfsemi kirkjunnar
STÓÐU SIG VEL. Gissur Páll, Guðmundur, Unnur Sólveig og Védís náðu ásamt kórnum að heilla gesti og gera tónleikana eftirminnilega.
BLÓMAKVEÐJUR Guðmundur tók á móti blómum frá Stefáni
Sigurjónssyni, Lúðrasveit Vestmannaeyja og Mörtu Jónsdóttur, for-
manni Kórs Landakirkju.
Kór Landakirkju er 100 ára um
þessar mundir og stóð fyrir hátíð-
artónleikum síðasta fimmtudag.
Hann gegnir stóru hlutverki við
kirkjuna og hefur í reynd áhrif á
allt samfélagið í Eyjum.
„Prestar og sóknamefnd óska
kómum til hamingju með þessi
tímamót og allt það mikla starf
sem unnið er í kómum til eflingar
kirkjustarfs og helgihalds. Það
hefur ekki síst reynt á það á
erfiðum stundum og einnig á
gleðilegum hátíðarstundum í lífi
Eyjamanna," sagði sóknarprest-
urinn Kristján Bjömsson þegar
Fréttir leituðu til hans og spurðu út
í sönghefðina og hlutverk kórsins.
Sönghefðin aðeins eldri
en Kór Landakirkju
„Kór Landakirkju hefur í 100 ár
staðið fyrir ákveðinni stefnu í söng
og menningarstarfsemi kirkjunnar
og söng við helgihaldið. Það hefur
einkennst af þjálfun í rödduðum
söng í blönduðum kór. Þessi
kirkjukórahefð er ekki mikið eldri
en sjálfur Kór Landakirkju og
hann stendur sem myndarlegur
fulltrúi þessarar hefðar í landinu,
raddaður söngur í sálmasöng og
messusvörun.
Messusvörin sem eru notuð í dag
eru yngri en tónlistarhefðin. Það
tónlag sem notað er hjá okkur
flesta sunnudaga er samið af
Sigfúsi Einarssyni tónskáldi, og
hátíðartónið er samið af sr. Bjarna
Þorsteinssyni á Siglufirði en það er
mjög falleg tónlist. Þessi tónlist
mótaðist að mestu á fyrstu áratug-
um 20. aldar og hátíðartónun á
jólum, eins og við þekkjum hana,
er yngra en Kór Landakirkju,“
sagði Kristján og er því næst
spurður hvaðan þessi hefð sé
uppmnnin.
Frá Danmörku kemur mikið af
sálmalögum á seinni hluta 19.
aldar, sem endast enn. Þau hafa
verið útsett fyrir blandaða kóra.
Danska tónskáldið C.E.F. Weyse
samdi mikið af fallegum sálma-
söng sem barst til íslands og
breiddist út um aldamótin og í
byrjun 20. aldar. Með því varð
mikil endumýjun í kirkjulegri tón-
list á íslandi. Þessi tónlist er mjög
merkileg og hefur orðið til þess að
víða um land voru stofnaðir kórar
á fyrstu áratugum síðustu aldar.
Þeir byggðu starfið á þessum
sönghefðum og byggðu upp nýja
starfshætti sem skipulögð kór-
félög. Þeir æfðu reglulega útsetn-
ingar á messusöngnum og sálma-
söng og lögðu mjög víða um
landið grunn að söngmenntun og
söngþjálfun ótrúlega margra.
Félögin voru líka stofnuð í þeim
frjálsa félagaanda sem ríkti á
síðustu áratugum 19. aldar eftir að
félagafrelsi var innleitt í landinu,
en á þessum árum er líka stofnað
til starfsemi sóknamefnda, presta-
félaga og svo síðar annarra kristi-
legra félaga, sem enn starfa."
Margir hápunktar í sögu
kórsins
Kristján sagði að sönghefðin sem
tekin var upp með rödduðum söng
hafi haft afgerandi áhrif á tónlist-
arlíf íslendinga með gríðarlega
öflugu starfi. „í mörgum tilfellum
verða til kórar sem em ekki
tengdir kirkjunni en syngja eftir
rödduðum útsetningum, til dæmis
varð til Vestmannakór hér í Vest-
mannaeyjum. Það verður hálfgerð
bylting í menningarlífi og menn-
ingarstarfsemi og í dag em nokkur
þúsund íslendingar að syngja í
kirkjukómm. Það hefur skipt
miklu máli að kirkjusönghefðin
hefur verið í stöðugri mótun og í
henni eru ýmsir þekktir straumar
þótt fólk vilji almennt að messað
verði í öllum kirkjum landsins
með svipuðu formi. Víða um land
í minni sóknum eru ekki reglu-
legar æfingar. Þar em sömu
hefðimar en ekki sömu gæði á
söng eins og þar sem kór æfir
allan ársins hring og fer jafnvel út
í að flytja flókin kórverk sem eru
krefjandi og hafa á fyrri öldum
verið samin fyrir hátíðarkóra við
stærstu kirkjur í Evrópu á 18. og
19. öld. Kórar hafa flutt messu-
hluta eftir stóm tónskáldin í
Evrópu. Þá eru stærri hátíðarkórar
að flytja heilar tónlistarmessur sem
eru samdar fyrir miklu stærri kóra
og atvinnusöngvara.
Kór Landakirkju hefur verið í
þeim gæðaflokki í gegnum tíðina
að geta tekist á við krefjandi og
falleg tónverk. Margir hápunktar
em í sögu Kórs Landakirkju, eins
og að syngja með Sinfóníuhljóm-
sveitinni og á tónleikum bæði hér
í Eyjum og annars staðar með
þekktum tónlistarmönnum og
söngvurum. Afmælisár kristni-
tökunnar árið 2000 var mikið sam-
starf milli kóra í prófastsdæminu.
Þá söng okkar fólk með öðmm á
Suðumesjunum og eins voru hátt á
annað hundrað manns á kórloftinu
í Landakirkju af sama tilefni,"
sagði Kristján. Víkur hann síðan
aðeins að þeim tfma áður en
raddaður söngur var tekinn upp í
kirkjum landsins og víðast í öðrum
löndum.
Gefa fólki færi á að þjálfa
sig í öguðum söng
„Það má segja að ekki hafi verið
þörf fyrir svona skipulagt kórstarf
í kirkjum á öldum áður þar sem
sálmasöngur var leiddur af for-
söngvara í hverri kirkju. For-
söngvarahlutverkið í helgihaldi
kirkjunnar á rætur sínar aftur í
helgihald Hebreanna frá því mörg
hundruð ámm fyrir Krist og er
næstelsta embættið á eftir prests-
embættinu. Allt frá miðöldum var
yfirleitt sungin einhver útfærsla á
gregorsku tónlagi og það eigum
við íslendingar t.d. í Grallaranum
frá 1594 sem Guðbrandur Þor-
láksson gaf út. Þessi sígildi
messusöngur hefur verið í endur-
nýjun á seinni hluta 20. aldar og er
notaður í mörgum kirkjum í dag,“
sagði Kristján. Þegar hann var
spurður frekar út í þetta sagði hann
Landakirkju vera eina af frekar
fáum stórum sóknarkirkjum sem
heldur í tónlag Sigfúsar í útsetn-
ingum Róberts A. Ottóssonar og
Jóns Stefánssonar. En einkenni
okkar er líka ensk lög og útsetn-
ingar í ákveðnum messuliðum.
„Kirkjusöngshefðin er mjög rík
hér í Vestmannaeyjum og ég held
að það sé mjög mikilvægt fyrir
menninguna að viðhalda flutningi í
rödduðum söng og finna spenn-
andi blöndu af kórverkum, rödd-
uðum kirkjusöng og einrödduðum
almennum safnarsöng. Allir sem
syngja geta tekið undir einradd-
aðan söng en ég tel víst að það sé
lítið spennandi fyrir kórinn ef
hann tekst ekki á við raddaðar
útsetningar sálmasöngs og mikil-
fengleg kórverk. Það er þýðingar-
mikið að áfram verði skilningur á
því í samfélaginu að viðhalda
þessari hefð og gefa fólki færi á að
þjálfa sig upp í agaðan söng, læra
að syngja eftir nótum og hljóta
tilsögn hjá vel menntuðum kór-
stjóra, fá reglulega raddþjálfun og
ómælda gleði í því að ná árangri
með krefjandi verkefnum. Það má
alveg velta því fyrir sér, þegar
kórinn heldur upp á 100 ára
afmæli sitt og organistinn, Guð-
mundur H. Guðjónsson, til fjörutíu
ára, er að ljúka störfum, fyrir
hvaða tónlistarhefð þau hafa
staðið, kórinn okkar og vel mennt-
aður organisti. Ekkert af þessu
hefur verið sjálfsagt mál og ekkert
kemur af sjálfu sér en við skulum
vona að Guði verði áfram sungið
kröftugt lof með dýrðarsöngvum
og þeim mestu tónlistargæðum
sem metnaðarfullt samfélag hefur
fram að færa.“
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir.