Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2011, Blaðsíða 10
10
Fréttir / Fimmtudagur 26. maí 2011
Sighvatur Bjarnason - Umhverfis jörðina á 80 dögum til styrktar Umhyggju:
Heimurinn getur verið
býsna geðveikur
-Afraksturinn einhverjar milljónir - Byggja á sumarhús fyrir langveik börn
SIGHVATUR BJARNASON kom víða við á ferðum sínum. Á myndinni hér að ofan er hann í borginni La Paz í Bólivíu með unga sölustúlku sér við hlið en hún var að reyna selja
honum kókalauf.
Þeir voru margir sem fylgdust
spenntir með heimsreisu Eyja-
mannsins Sighvats Bjarnasonar en
ferðina kallaði hann Umhverfis
jörðina á 80 dögum. Markmiðið
var sem sagt að komast umhverfis
jörðina á 80 dögum og um leið
safna fé til styrktar Umhyggju,
félags til sluðnings langveikra
barna. Sighvatur sendi einnig inn
myndbönd á vefinn Vísi.is þar sem
hægt var að fylgjast með ferðinni
og enn er hægt að skoða mynd-
böndin, sem eru mörg hver ansi
skemmtileg. Sighvatur svaraði
nokkrum spurningum blaðamanns
Frétta um ferðina og því sem henni
tengist.
Langaði að stíga út fyrir
rammann
Hvernig kviknaði hugmyndin að
fara í heimsreisu?
„Það hafði blundað í mér í nokk-
urn tíma að stíga hressilega út fyrir
rammann og takast á hendur verk-
efni sem væri verulega eftirminni-
legt, svona „once in a lifetime“
áskorun. I vetur sköpuðust kjörað-
stæður, þ.e. ég hafði loksins tíma
aflögu en að auki er ég orðinn
nægilega gamall og reyndur til að
standa í slíku á skynsaman hátt.
I desembermánuði sat ég í fbúð
minni í þungum þönkum og glápti
á bókahilluna mína. Þar lá lítið
kver sem ég hafði keypt nokkrum
misserum fyrr, skáldsagan Um-
hverfis Jörðina á 80 dögum, eftir
Jules Veme. Við það sló saman
nokkrum tannhjólum og ákvörð-
unin tók sig sjálf.“
Ákvaðst þú að fara í ferðina áður
en þú ákvaðst að láta gott af þér
leiða með því að safna áheitum?
„Það gerðist svo til á sama tíma. f
sunnudagsmogganum 21. maí sl.
voru myndir af ungum manni, sem
ég hafði fylgst með úr fjarlægð og
var hvatinn að áheitasöfnuninni.
Það vill svo til að foreldrar hans
eru á leið í sérstaka söfnun, og ætla
með vinafólki sínu að hlaupa um-
hverfis landið í sumar."
Vildi vera sjálfbær í
ferðinni
Sighvatur segir að það hafi þurft
talsverðan undirbúning fyrir ferð-
ina. Huga þurfti að mörgum
hlutum.
„Já, það er að merkilega mörgu að
hyggja og ég varði talsverðum tíma
í undirbúning. Flóknast er að velja
leið sem er sæmilega örugg og
býður upp á nógu skilvirkan ferða-
máta. Það var ljóst í upphafi að það
yrði ekki raunhæft að sækja um
fyrirfram vegabréfsáritanir, nema
að mjög takmörkuðu leyti.
Því varð að velja leið sem liggur
um ríki sem bjóða upp á svokallað
„on arrival" áritun, en upplýsingar
og áreiðanleiki um það liggur ekki
alltaf ljóst fyrir. Á endanum varð
til leið sem ég var viss um að
myndi 80% ganga upp, en í raun
má segja að skipulagningin hafi
haldið áfram á hverjum degi fer-
ðalagsins.
Að auki velti ég mikið fyrir mér
hvaða búnað skyldi taka með. Eg
hef tröllatrú á því að vera eins sjálf-
bær og hægt er og treysta ekki á að
geta keypt mismunandi hluti á
hinum ýmsu stöðum. Að auki tel
ég mjög mikilvægt að ferðast eins
létt og hægt er. Á endanum varð til
13 kílóa pakki af búnaði sem
reyndist mér frábærlega vel og ég
myndi engu breyta f dag.
Eg fékk nokkrar sprautur og
uppáskrift fyrir sýkla-, meltingar-
og malaríulyfjum en að auki lagði
ég mikla áherslu á að undirbúa
iðrin vel með góðum meltingar-
hvötum sem ég tók allan tímann
og reyndust afar vel.
Svo þarf að huga að ótal litlum
hlutum; bólusetningarskírteini,
ferðagögn, afrit af vegabréfi og svo
framvegis. Svo þarf auðvitað að
geyma þetta á mismunandi stöðum
í farangri og á líkama, ef einu setti
er stolið."
Hefði ekki viljað sleppa
myndböndunum
Eins og áður hefur komið fram,
sendi Sighvatur inn myndbönd á
Vísi.is alla ferðina þar sem les-
endur gátu fylgst með ferðalaginu
frá fyrstu hendi. Hann segir að það
hafi verið talsverður hausverkur til
að byrja með að vinna mynd-
böndin. „I upphafi hafði ég enga
þekkingu eða reynslu í mynd-
bandagerð og gerði í raun mitt
fyrsta myndband, fyrsta kvöldið.
Eg var með Heavy Duty Dell
fartölvu og klippiforrit en til starf-
ans notaði ég eina Canon videovél
og eina minni GoPro, vatnsþétta
vél sem hægt var að fela utan á sér.
Vélamar setti ég á stöng og gat
þannig tekið myndir af sjálfum
mér, líkt og myndatökumaður væri
með í ferð.
Eg komst fljótlega að því sem
fagmenn höfðu sagt mér, þ.e. að ná
góðu myndefni kostar fyrirhöfn.
Handritið var ekkert, nema bara
það sem varð á vegi mínum hverju
sinni. En það getur verið merkilega
þreytandi að mynda í sífellu dag
eftir dag.“
Sighvatur segist ekki hafa lent í
erfiðleikum með að koma efninu
frá sér, þrátt fyrir að ferðast í
nokkrum af frumstæðustu löndum
heims. „Myndböndin sendi ég frá
mér í gegnum tölvupóst, og var
með þrjár mismunandi gáttir til
taks. Það kemur að mörgu leyti á
óvart hversu netið er aðgengilegt
víða um heim en hraði, aðgengi og
stöðugleiki er ekki alltaf fyrsta
flokks og það reyndist tímafrekt að
finna net, fá aðgang og senda um
40Mb skrár, tvær til þrjár í viku.
Það gekk mjög vel að koma þessu
heim og saman, en það voru margar
andvökunætur að klippa saman
myndbönd, sjá til þess að allar
rafhlöður væru hlaðnar og koma
myndböndum á rétta aðila hér
heima. En ég hefði alls ekki viljað
sleppa þessum þætti, sem var í raun
stórskemmtilegur og gaf mér
mikið.
Það er einnig ýmislegt sem gerist
þegar maður er kominn með
myndavél á loft. f óteljandi skipti
var ég spurður hvort ég væri blaða-
eða fréttamaður. Oft gat það komið
sér vel og veitti manni ákveðna
fyrirgreiðslu. Stundum kallaði það
á vandræðagang og jafnvel hörð
viðbrögð en í grunninn hafa flestir
gaman að því að brosa framan í
linsu.“
Yemen eftirminnilegast
Nú ferðaðist þú heimshorna á
milli í orðsins fyllstu merkingu.
Hvað er eftirminnilegast úr ferð-
inni?