Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2011, Blaðsíða 1

Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2011, Blaðsíða 1
 Viðgerðir og smurstöð (Í( ^ -Sími 481 3235 BRAGGINN Réttingar og sprautun Bílaverkstæði - Flötum 20 - Sími 481 1535 38. árg. I 21. tbl. I Vestmannaeyjum 26. maí 2011 I Verð kr. 300 I Sími 481-1300 I www.eyjafrettir.is Nítján nemendur útskrifuðust frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum við hátíðlega athöfn á laugardag. Dagmar Ósk Héðinsdóttir útskrifaðist af Starfsbraut, Logi Garðar Fells Ingólfsson útskrifaðist sem húsamiður, og þrír nemendur, Georg Skæringsson, Halldór Jón Sævarsson og Sigurður Einar Gíslason útskrifuðust sem vélstjórar með B- stig. Fjórtán nýstúdentar útskrifuðust einnig frá skólanum en þeir eru: Bjartey Ingibergsdóttir, Björgvin Hallgrímsson, Elín Sólborg Eyjólfsdóttir, Erna Dögg Hjaltadóttir, Fanney Finnbogadóttir, Jóhanna Rut Óskarsdóttir, Magnús Örn Möller, Ólafur Björgvin Jóhannesson, Sigrún Bryndís Gylfadóttir, Svava Kristín Grétarsdóttir, Tinna Ósk Þórsdóttir, Þorsteinn Ingi, Arnarson, Þórdís Gyða Magnúsdóttir og William Thomas Möller. Hér eru nemdendur ásamt Ólafi H.. Sigurjónssyni skólameistarara. Binni í VSV og servíettuhagfræðin „Ríkisstjórnin leyfir sér að kasta fram frumvörpum til laga um að umtuma skipulagi fiskveiða án þess að meta á neinn hátt afleiðingamar. Ég sagði við Samfylkingarþing- mennina að fyrst stjómarliðar sæju ekki ástæðu til að reikna út á svo mikið sem servíettuhom til hvers stefna þeirra leiddi tæki ég af þeim ómakið. Við blasir mynd sem er hreint ekki fögur. Ég hefi fengið ótrúleg við- brögð víðs vegar að af landinu og skynja vel hve mörgum ofbýður þessi dæmalausa ríkisvæðing sjáv- arútvegsins og pólitískt kvóta- skömmtunarkerfi sem Jón Bjama- son, Róbert Marshall, Ólína & Co. vilja koma hér á í nafni réttlætis“ segir Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri, Binni íVinnslu- stöðinni, eftir fund Samfylkingar- innar í Eyjum í síðustu viku. Þjóðin hlýddi á snarpa orðasennu þeirra Róberts Marshall í ljósvakafréttum eftir fundinn og í Silfri Egils síðast- liðinn sunnudag urðu útreikningar Binna á Samfylkingarfundinum tilefni enn frekari umræðna um afleiðingar kvótafrumvarpa stjóm- valda. „Samfylkingin virðist tala mngum tveim í þessu máli, því málflutn- ingur Sigríðar Ingibjargar Inga- dóttur, alþingismanns, á þessum fræga fundi hér var þess eðlis að ég tók heils hugar undir allt sem hún sagði um að sjávarútvegur yrði ekki rekinn án eðlilegrar arðsemi og hún var sammála mér um að auðlinda- gjald yrði einungis lagt á útgerð en ekki fiskvinnslu. Síðast en ekki síst sagði hún að án stöndugs atvinnulífs yrði ekkert velferðarkerfi til, því öflugt atvinnulíf væri vitaskuld undirstaðan," segir Binni. „Oddný Harðardóttir alþingis- maður lagði það til mála á fundinum að stjómarliðið vildi að ríkið hirti 10-12 milljarða króna í tekjur á ári af auðlindagjaldi. Það dugði mér til að reikna út á servíettuna mína heildarmyndina sem stjómarliðar sjálfir víkja sér undan að sýna þjóðinni. Ég miðaði við að skuldir sjávarútvegsins væru 450 milljarðar láóna, sem er nokku minna en ætla mætti samkvæmt opinberum tölum, að skuldimar bæm 6% vexti og að framlegð í greininni (EBITDA) væri 60 milljarðar króna, sem er í sam- ræmi við rekstraryfirlit sjávarút- vegsins árin 2008 og 2009 sam- kvæmt Hagstofu Islands. Niðurstaðan er sú að það tæki sjáv- arútveginn 25 ár að óbreyttu að greiða skuldir sínar miðað við af- komuna 2009 en um 150 ár miðað við afkomuna 2008! Viðbótarauð- lindaskattur upp á 10 milljarða króna myndi þýða að atvinnugreinin gæti greitt skuldir sínar á 56 ámm miðað við afkomuna 2009 og vel að merkja þá er hvorki reiknað með neinum nýfjárfestingum né arð- greiðslum. Sé miðað við afkomuna 2008 gæti sjávarútvegurinn aldrei borgað skuldimar. Rétt er að taka fram að afkoma sjávarútvegsfyrirtækja árið 2009 gefur réttari mynd af stöðunni en 2008 vegna þess að gengi ís- lenskrar krónu féll á árinu 2008. Þegar þetta liggur fyrir er auðvelt að skilja að ríkisstjómin vilji skjóta fyrst en spyrja svo. Ég þurfti svo sem ekki að láta segja mér að afleiðingar áforma hennar yrðu alvarlegar fyrir sjávarútvegsfyrir- tækin og sjálft þjóðarbúið en þegar að er gáð er myndin hrikalegri en mig hafði órað fyrir. Þess vegna kjósa stjómarliðar að boða fagn- aðarerindi sitt og steinþegja um afleiðingamar. Þeir vilja láta satt kyrrt liggja af því það hentar í póli- tískum loddaraleik." r ÍIMSKIPI VIÐ ERUM DAGLEGA A FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND VIÐ ERUM ÞJÓNUSTUAÐILI TO /OTA í EYJUM SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMI...! FLATIR 21 S. 481 1216 GSM.864-4616

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.