Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2011, Blaðsíða 19

Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2011, Blaðsíða 19
Fréttir / Fimmtudagur 26. maí 2011 19 Pepsídeild kvenna: ÍBV -Afturelding 5:0 Frábær byrjun hjá stelpunum - Hafa unnið fyrstu tvo leikina 5:0 og eru á toppi Pepsídeildarinnar FRÁBÆR BYRJUN. ÍBV hefur byrjað tímabilið mjög vel í Pepsídeild kvenna. Hér fagna stelpurnar fimmta og síðasta marki ÍBV í leiknum en það gerði Kristín Erna Sigurlásdóttir, sem er önnur frá hægri. Stelpurnar í ÍBV hafa heldur betur hrist upp í kvennaboltanum með frábærri byrjun sinni í Islandsmótinu. IBV lagði Þór/KA að velli fyrir norðan í fyrsta leik 5:0 og vakti sigurinn mikla at- hygli. Einhverjir vildu meina að norðanstúlkur hefðu vanmetið nýliðana í Pepsídeildinni en stelpurnar sýndu það á þriðju- daginn að sigurinn var engin tilvilijun, með 5:0 sigri á Aftur- eldingu. Leikurinn gegn Aftureldingu fór fram við afar erfíðar aðstæður, svo ekki sé dýpra tekið í árinni. Stífur vindur stóð beint á annað markið sem varð til þess að þegar t.d. taka átti aukaspyrnur, þurfti að halda boltanum því hann einfaldlega fauk af þeim stað þar sem taka átti spym- una. I raun hefði leikurinn ekki átt að fara fram. En aðstæðumar bitn- uðu auðvitað jafnt á báðum liðum en Eyjaliðið byrjaði með vindinn í bakið. Stelpumar vom þrátt fyrir það nokkuð rólegar í sóknarleik sínum en náðu þó að skora þrjú mörk og vom tvö af þeim úr skotum utan vítateigs. Síðari hálfleikur var hins vegar mun betri hjá ÍBV, eins skrítið og það kann að hljóma enda léku stelpumar þá á móti vindinum. En það gerðu þær mjög vel, reyndu að halda boltanum niðri og spila honum skipulega upp völlinn. Þetta gerðu þær sérstaklega vel þegar leið á seinni hálfleikinn sem varð til þess að þær bættu við tveimur mörkum áður en yfir lauk. Reyndar hefðu þær átt að skora fleiri, því þær fengu nokkur dauðafæri til að bæta við mörkum og áttu m.a. skot í stöng. Leikskipulagið gekk upp Miðvörðurinn öflugi, Elísa Viðars- dóttir, hefur staðið vaktina í hjarta varnarinnar, _sem hefur ekki fengið á sig mark í íslandsmótinu. „Eg er mjög sátt við stigin þrjú og það er ekki slæm tölfræði hjá nýliðum að vera með markatöluna 10:0 eftir tvo leiki og fullt hús stiga. En við ætluðum að byrja mótið af krafti og við höfum svo sannarlega gert það.“ Aðstœður voru ekkert að hjálpa til? „Nei alls ekki. Fyrstu mörkin hefðu getað dottið hvom megin sem var eftir því hvort liðið byrjaði með vindinn í bakið. En við vomm svo heppnar að þetta datt okkar megin í fyrri hálfleik. Við höfum oft spilað betur en aðstæður voru auðvitað erfiðar og í heildina er ég sátt við leikinn og stigin þrjú. Jón Óli var búinn að leggja þetta vel upp fyrir okkur og leikskipulagið gekk upp.“ En tveir stórsigrar í upphafi móts. Eru önnur lið að vanmeta IBV? Það er erfitt að segja. Við emm að spila glimrandi fínan bolta. Vanmat eða ekki vanmat, það skiptir okkur engu máli svo lengi sem við emm að taka þessa leiki,“ sagði Elísa að lokum. Pepsídeild kvenna IBV 2 2 0 0 10:0 6 Stjaman 2 2 0 0 7:0 6 Valur 2 1 1 0 2:1 4 KR 2 1 1 0 2:1 4 Þór/KA 2 1 0 1 2:6 3 Breiðablik 2 0 1 1 2:3 1 Fylkir 2 0 1 1 1:4 1 Þróttur 2 0 1 1 1:5 1 Afturelding 2 0 1 1 0:5 1 Grindavík 2 0 0 2 1:3 0 Knattspyrna, Pepsídeildin: Keflavík 0 - ÍBV 2 Meiðsli að stríða Eyjamönnum - Frábær sigur gegn Keflavík á útivelli - Hefndu ófara síðustu tveggja ára Eyjamenn gerðu góða ferð til Keflavíkur á sunnudaginn þegar þeir lögðu heimamenn að velli 2:0. Mörk ÍBV gerðu þeir Tryggvi Guðmundsson og Andri Olafsson, Tryggvi eftir rétt tæplega mínútu og Andri um það bil níu mínútum síðar. Eyjamenn léku mjög vel í leiknum, gáfu fá færi á sér og sóknarleikurinn er á uppleið. Segja má hins vegar að sigurinn sé dýra verði keyptur því markaskor- aramir tveir þurftu báðir að fara meiddir af leikvelli. Tryggvi fékk þungt höfuðhögg eftir að hann vann skallaeinvígi gegn varnarmanni Keflvíkinga og við það kinnbeins- brotnaði hann. Tryggvi átti að fara í aðgerð vegna meiðslanna í dag, fimmtudag en hann hefur látið hafa eftir sér að hann ætli sér að spila næstkomandi sunnudag gegn Vík- ingum. Líklegra er hins vegar að hann verði einhveijar vikur frá og spili jafnvel ekki aftur fyrr en í lok júní, eftir landsleikjahlé fslands- mótsins vegna Evrópumóts U-21 árs liðsins. Andri þurfti sömuleiðis að fara af leikvelli, tognaður aftan í læri sem em hvimleið meiðsli. Auk þeirra var Jordan Connerton meiddur en gamalt kviðslit tók sig upp í síðustu viku og þá var enski miðjumaðurinn Bryan Hughes í fríi í Englandi. Síðast en ekki síst er Albert Sævarsson, markvörður liðsins, meiddur og verður hugsanlega frá í einhverjar vikur. Eyjamenn hafa hins vegar endurheimt þá Ian Jeffs og Finn Ólafsson. Jeffs tognaði aftan í læri í Ieiknum gegn Fylki en Finnur hafði ekkert leikið í sumar þegar kom að leiknum gegn Kefla- vík. Heimir Hallgrímsson tefldi djarft gegn Keflavík og uppskar eftir því. Hann setti Andra Ólafsson í fram- línuna með Tryggva en þeir, ásamt Guðmundi Þórarinssyni, voru vam- armönnum Keflvíkinga afar erfiðir. Þá munaði mikið um að fá Finn aftur á miðjuna en hann átti mjög góðan leik, eins og reyndar liðið í heild sinni. ÍBV átti að spila í gær gegn Kjal- nesingum í 32ja liða úrslitum Valitorbikarsins en leikurinn átti að fara fram á heimavelli Kjalnesinga, gervigrasvelli Framara í Safa- mýrinni. Úrslit leiksins vom ekki kunn þegar blaðið fór í prentun. Næsti leikur ÍBV í íslandsmótinu er hins vegar næstkomandi sunnudag þegar Eyjamenn taka á móti ný- liðum Víkings. Sigur í deild en úr leik í Valitor bikarkeppninni KFS lék gegn Ægi á Týsvellinum um helgina í 3. deild íslands- mótsins. Leikurinn varð ævin- týralegur því KFS komst yfir strax á 15. mínútu en Ægismenn gerðu sér lítið fyrir og svöruðu með þremur mörkum á næstu 20 mínútum leiksins. Eyjamenn náðu að laga stöðun fyrir leikhlé og staðan því 2:3 í hálfleik. Leikmenn KFS bættu svo við þremur mörkum í síðari hálfleik áður en Ægismenn náðu að svara og lokatölur 5:4. KFS mætti svo Hamri í 32ja liða úrslitum Valitor bikarkeppninnar á þriðjudaginn en leikurinn fór fram í Hveragerði. Hamarsmenn höfðu betur, 2:0 og er KFS því úr leik þetta árið. íþróttir Landsbankamótið í sundi: Góður árangur Eyjakrakka Á dögunum tóku 28 krakkar úr Sundfélagi ÍBV þátt í Lands- bankamóti ÍRB í Reykjanesbæ. Krakkarnir stóðu sig vonum fram- ar, bættu tíma sína talsvert og voru sjálfum sér og félagi sfnu til sóma, sem er ekki síður mikilvægt atriði. Á heimasíðu félagsins segir að Kristjana Dögg Baldurs- dóttir, 14 ára, hafi náð bestum árangri en hún gerði sér lítið fyrir og sigraði í 50 m og 100 m skirið- sundi og náði auk þess brons- verðlaunum í 50 m flugsundi, 50 m og 100 m baksundi. Sannar- lega glæsilegur árangur hjá þess- ari efnilegu sunddrottningu. Auk hennar fékk Elfa Karlsdóttir, 9 ára, gullverðlaun í 50 m flugsundi og Eva Aðalsteinsdóttir náði svo AMÍ lágmörkum í 200 m bak- sundi. Fjáröflun 4. flokks frestað 4. flokkur karla í knattspyrnu ætlaði að ganga í hús og safna raftækjum síðastliðinn þriðjudag. Því þurfti að fresta vegna ösku- falls, þeir munu ganga í hús um leið og aðstæður leyfa. Við minn- um á söfnunarkassana í Eyja- tölvum og Eymundsson. Nýtt lið í Eyjum FC Krabbi sótti um aðstöðu til æfinga og keppni í knattspyrnu til fjölskyldu- og tómstundaráðs en félagið er nýtt í Eyjum. Ráðið óskar Eyjamönnum til hamingju með nýtt félag en bendir um leið á að þau félög sem ekki em aðilar að ÍBV-héraðssambandi greiði fyrir þann kostnað sem til fellur vegna notkunar á aðstöðu Vest- mannaeyjabæjar. FC Krabba er bent á að hafa samband við ÍBV- íþróttafélag. Framundan Fimmtudagur 26. maí Kl. 16:00 Keflavík-ÍBV 4. flokkur kvenna, A-lið. Kl. 17:30 ÍBV-Grindavík 2. flokkur karla. Kl. 17:30 ÍBV-Þróttur 2. flokkur kvenna. Föstudagur 27. maí Kl. 18:00 Breiðablik-ÍBV 4. flokkur kvenna, B-Iið. Laugardagur 28. maí Kl. 14:00 IBV-KF/Tindastóll 3. flokkur karla. Kl. 14:00 Valur-ÍBV 4. flokkur karla, A- og B-lið. Sunnudagur 29. maí Kl. 16:00 ÍBV-Víkingur Pepsídeild karla. Kl. 13:00 KFS-KV 3. deild karla. Kl. 16:00 ÍBV-Keflavík 3. flokkur kvenna. Mánudagur 30. maí Kl. 17:00 ÍBV-Fylkir 3. flokkur kvenna. Kl. 17:30 Fram-ÍBV 2. flokkur karla. Þriðjudagur 31. maí Kl. 16:00 Grindavfk-ÍBV 5. flokkur kvenna, A- og B-lið. Miðvikudagur 1. júní Kl. 18:00 Breiðablik-ÍBV Pepsídeild kvenna. Kl. 16:30 ÍBV-Víkingur 4. flokkur kvenna, A-lið. Kl. 18:00 ÍBV-Fram 3. flokkur karla.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.