Fréttablaðið - 03.04.2013, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 03.04.2013, Blaðsíða 2
3. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Guðmundur, ertu ekki að tefla djarft með því að tengja þessa tvo hluti saman? „Jú, ég er kannski að tefla á tvær hættur.“ Guðmundur G. Þórarinsson er fyrrverandi forseti Skáksambands Íslands. Guðmundur telur hina þekktu Lewis-taflmenn úr rost- ungsbeini eiga uppruna sinn á Íslandi og telur nýlegan fund rostungshausa á Snæfells- nesi renna stoðum undir kenninguna. Vilhjálmur Óli Valsson, fyrrverandi sigmaður hjá Landhelgisgæslunni, lést síðastliðið laugardagskvöld 41 árs að aldri á Landspítalanum. Hann hafði barist við krabbamein í rúmt ár og vakti þjóðarathygli í tengslum við söfnun Krabbameinsfélags Íslands, Mottumars. Vilhjálmur Óli náði að safna 1,7 milljónum króna fyrir andlát sitt. Í viðtali við Fréttablaðið fimm dögum fyrir andlát sitt sagði Vilhjálmur Óli: „Það er gott að skilja eitthvað svona eftir sig, og geta haldið áfram mínu starfi við að hjálpa fólki. Vonandi verður það mitt síðasta verk að bjarga lífi. Að hjálpa aðeins til.“ Vilhjálmur Óli Valsson látinn SVÍÞJÓÐ Nærri tveir af hverjum þremur sænskum ökumönnum telja sjálfa sig betri en meðal- ökumenn samkvæmt könnun sem hjólbarðakeðjan Vianor hefur látið gera og vitnað er til á vef Félags íslenskra bifreiða- eigenda. Af þeim sem taka afstöðu og aka bílum segjast rúm 3 prósent vera varasamir ökumenn og rúm 33 prósent segjast undir meðal- lagi. Þá segjast 53 prósent vera yfir meðallagi og 10 prósent segjast frábærir ökumenn. - bj Ofmeta eigin ökuleikni: Um 63% segjast yfir meðallagi SÝRLAND, AP Mat hefur verið rænt í að minnsta kosti 20 árásum sem gerðar hafa verið á flutningabíla og vöruhús Matvælaaðstoðar Sam- einuðu þjóðanna í Sýrlandi frá því að hjálparstarf hófst í landinu í desember 2011. Talsmaður Matvælaaðstoðarinn- ar sagði í gær að enginn hefði slas- ast í árásunum. Hann vildi ekki upplýsa hvar árásirnar hefðu átt sér stað, eða hverjir væru grunaðir um að standa að baki þeim. Um 2,5 milljónir manna þurfa á aðstoð að halda í Sýrlandi. - bj Erfitt hjálparstarf í Sýrlandi: Matvælaaðstoð ítrekað rænd VILHJÁLMUR ÓLI Lést á laugardag eftir baráttu við krabbamein í rúmt ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA DÓMSMÁL Slitastjórn Kaupþings hefur stefnt Krist- jáni Arasyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra einka- bankaþjónustu hjá bankanum, til að greiða tveggja milljarða skuld vegna hlutabréfakaupa í bankanum. Guðni Ásþór Haraldsson, lögmaður slitastjórnar- innar, staðfestir að málið hafi verið höfðað og að það snúist um 1,7 milljarða lán sem Kristján fékk frá Kaupþingi til að kaupa hlutabréf í bankanum misserin fyrir hrun, líkt og margir aðrir starfsmenn bankans. Kristján tók lánin í eigin nafni en færði hins vegar skuldina yfir í einkahlutafélag- ið 7 hægri ehf. í febrúar 2008. Það félag var tekið til gjald- þrotaskipta í desember 2010 og stóð skuldin við Kaupþing þá í rúmum tveimur milljörðum króna. Engar eignir fundust í búinu. Slitastjórnin hefur frá því fljótlega eftir hrun reynt að innheimta frá fyrr- verandi starfsmönnum þær skuldir sem stofnuðust þegar bankinn lán- aði þeim fyrir hlutabréfakaupum. Nokkrir dómar hafa fallið á þá leið að rétt hafi verið af slita- stjórninni að láta rifta þeirri ákvörðun stjórnar Kaupþings skömmu fyrir hrun að fella niður persónulegar ábyrgðir starfs- manna á þessum lánum. Þeir hafa því verið dæmdir til að greiða skuldirnar, sem í sumum tilfellum hlaupa á milljörðum. Upphaflega var talið að þeir starfsmenn sem hefðu fært skuldir sínar í eignarhaldsfélög nógu snemma til að ekki væri hægt að rifta gerningnum, til dæmis Kristján og forstjórinn Hreiðar Már Sigurðsson, væru utan seilingar slitastjórnarinnar. Ekki væri hægt að sækja að þeim persónulega vegna skuldanna. Á þetta ætlar slitastjórnin nú að láta reyna í tilviki Kristjáns. Megin- röksemdin er sú að færsla skuldar- innar í einkahlutafélagið hafi verið ólögmæt og hún liggi því enn hjá honum sjálfum. Kristján hefur sagt að hann hafi fengið samþykki fyrir henni frá Hreiðari og fjármálastjóranum Guðnýju Örnu Sveinsdóttur, en slitastjórnin telur að þau hafi alls ekki haft umboð til að veita slíkt samþykki og því hafi skuldin í raun aldrei færst af honum persónulega með lögformlegum hætti. Til vara er honum stefnt til að greiða þrotabúi Kaup- þings féð í skaðabætur, enda hafi hann bakað bankanum tjón með því að láta færa skuldina í heimildarleysi. Aðalmeðferð í málinu fer fram 8. maí. stigur@frettabladid.is Kristjáni stefnt til að greiða tvo milljarða Slitastjórn Kaupþings reynir enn að innheimta tveggja milljarða skuld Kristjáns Arasonar vegna hlutabréfakaupa í bankanum. Hann færði skuldina í hlutafélagið 7 hægri ehf. í febrúar 2008 en slitastjórnin telur hafa verið ólöglega að því staðið. KEMPA Kristján er fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta og þjálfaði meistaraflokk FH þangað til í fyrravor. HREIÐAR MÁR SIGURÐSSON Allir átta dómarar við Héraðsdóm Reykjaness lýstu sig vanhæfa til að dæma í máli Kristjáns. Þorgeir Ingi Njálsson, dómstjóri Héraðsdóms Reykjaness, var fyrstur til að lýsa sig vanhæfan í málinu. Hann er giftur Kristjönu Aradóttur, systur Kristjáns. Í kjölfarið lýstu hinir sjö dómararnir sig einnig vanhæfa vegna tengsla sinna við Þorgeir. Þórður S. Gunnarsson var þá sóttur í Héraðsdóm Reykjavíkur og settur dómari í málinu. Heill héraðsdómur vanhæfur SAMGÖNGUR Vegagerðin hefur ákveðið að semja við verktaka um lagningu umdeilds Álftanesvegar um Gálgahraun eftir að úrskurðar- nefnd umhverfis- og auðlindamála vísaði frá kæru nokkurra íbúa við hraunið. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær. Þar sagði frá því að verkið hefði fyrst verið boðið út fyrir fimm árum en þá verið slegið af vegna hrunsins. Síðastliðið sumar fór Vegagerðin aftur af stað með útboð, með þeim rökum að umferðaröryggi kallaði á nýjan veg út á Álftanes. Síðan hafa tvö óskyld kærumál frestað fram- kvæmdum; meðal annars frá íbúum í hverfinu sem næst liggur hraun- inu, en þeir töldu að framkvæmda- leyfi væri fallið úr gildi. Íbúarnir stóðu ásamt samtökunum Hrauna- vinum jafnframt fyrir undirskrifta- söfnun og mótmælafundum í haust og bentu á að vernda þyrfti hraunið. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur nú vísað kæru íbúanna frá og telur þá ekki eiga lögvarða hagsmuni þar sem lóðum þeirra var úthlutað eftir að fyrir lágu upplýsingar um lagningu vegarins. Fréttastofa Stöðvar 2 fékk þær upplýsingar frá Vegagerðinni í gær að ákveðið hefði verið að hefja við- ræður við ÍAV, sem átti næstlægsta tilboðið í verkið, upp á nærri 800 milljónir króna. Fulltrúar íbúanna sem kærðu íhuga næstu skref, sagði jafnframt í fréttinni. - shá Kæru vegna Álftanesvegar, umdeilds vegar yfir Gálgahraun, vísað frá: Umdeildur vegur verður lagður ÁLFTANES Nýtt vegarstæði hefur verið mjög umdeilt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HAFRANNSÓKNIR Hafrannsókna- stofnun og BioPol Sjávarlíftækni- setur á Skagaströnd standa nú að tilraunum til að merkja grásleppu til að sannreyna aldur þeirra og að afla upplýsinga um gönguhegðun. Þar er að öllu leyti treyst á samstarf við sjómenn. Segja má að ekki sé til viður- kennd aðferð til að aldursgreina hrognkelsi sem þó er lykilatriði þegar kemur að mati á stofnstærð og mikilvægur þáttur í skilningi á líffræði tegundarinnar. Árið 2012 voru 464 hrognkelsi sprautuð með efni sem litar beinvef þeirra, meðal annars kvarnir þeirra. Þegar og ef eitthvað af þessum fiskum veiðast aftur verður hægt að sannreyna eig- inlegan vöxt kvarna fiskanna út frá litarefninu og þannig ákvarða aldur. Hafró og BioPol hafa í samein- ingu fjárfest í 100 rafeindamerkjum sem verða sett á hrognkelsi. Merki sem endurheimtast munu geta veitt upplýsingar um staðsetningu ein- stakra fiska og því varpað ljósi á gönguhegðun tegundarinnar. - shá Hafró og Biopol ehf., skrá gönguhegðun hrognkelsa með rafeindamerkjum: Aldursgreina fisk með litarefni GRÁSLEPPUVERTÍÐ Aðallega eru hrogn tegundarinnar eftirsótt. FRÉTTABLAÐIÐ/JSE SAMGÖNGUR Mikill meirihluti íslenska þjóðvegakerfisins, eða 85 prósent, fellur undir alþjóðlegu skilgreininguna fyrir umferðar- litla vegi, þar sem meðalumferð yfir árið er undir 500 bílum á dag. Á vef Vegagerðarinnar er því velt upp hvort þessi staða Íslands sé sérstök miðað við aðrar þjóðir. Fjölfarnasti vegakaflinn er Nes- braut sem nær yfir Vesturlands- veg, Miklubraut, Hringbraut, Eiðs- granda og Suðurströnd, en þar fara um 75.000 bílar um dag hvern. - þj Tölur Vegagerðarinnar: Meirihluti vega- kerfis fáfarinn SPURNING DAGSINS FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU Þér er boðið á opin stjórnmálafund í Norðausturkjördæmi í dag Akureyri, Brekkugötu 7a kl. 12 Húsavík, Kirkjubæ við Baldursbrekku kl. 20 með Steingrími J. Sigfússyni og Álfheiði Ingadóttur. Egilsstaðir, Hótel Héraði kl. 12. Reyðarfirði, Fjarðarhótel kl. 20 með Katrínu Jakobsdóttur og Bjarkey Gunnarsdóttur. Rjúkandi kaffi og líflegar umræður. OPNIR STJÓRNMÁLAFUNDIR Í NORÐAUSTURKJÖRDÆMI Í DAG ALLIR VELKOMNIR KATRÍN bjarkeyálfheiðurSTEINGRÍMUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.