Fréttablaðið - 03.04.2013, Blaðsíða 30
3. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 18
ÓVENJULEGIR SKRIFSTOFUMENN K ristján Ingimarsson og félagar voru við æfingar á leikritinu Blam! í gær en leikritið verður
frumsýnt á Íslandi í kvöld. Íslandssýningarnar marka upphaf á Evrópureisu hópsins, sem meðal annars mun sýna Blam! á hinni
virtu Edinborgarhátíð sem haldin er í ágúst ár hvert. Þar fyrir utan liggur leiðin til Noregs, London, um alla Danmörku og víðar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Við bjóðum
góða þjónustu
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Skannaðu
kóðann til að
sækja Appið.
Millifærðu með
hraðfærslum í Appinu
Veldu hraðfærslur
á upphafsskjámynd
og smelltu á þekktan
viðtakanda
einn ..ENNEM
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
11
4
2
„Mig langaði að búa til sýningu
sem léti áhorfendum líða eins
og krökkum þegar þeir koma út
úr bíói, hafandi séð bestu mynd
sem þeir hafa séð um ævina. Ég
man þegar ég upplifði svona sýn-
ingar, maður kom út og leið eins
og bíómyndin væri enn í gangi.
Mig langaði til þess að fanga
þessa tilfinningu,“ segir Kristján
Ingimarsson, sem er mættur til
Íslands með verðlaunasýninguna
Blam!.
Óhefðbundið leikhús
Kristján hefur verið búsettur í
Danmörku meira og minna hátt í
20 ár. Þar hefur hann sett á svið
fjölda sýninga þar sem hann bland-
ar saman látbragðsleik, gaman-
leik, fimleikum, trúðleik, dansi og
leiklist þannig að úr verður óhefð-
bundið leikhús.
Blam! gefur áhorfendur sýn inn í
óvenjulegan heim venjulegra skrif-
stofumanna: „Sýningin fjallar um
fjóra skrifstofumenn, þrjá meðal-
gosa og svo yfirmann þeirra. Sýn-
ingin fjallar líka um fyrir bærið
blam, sem snýst um það að leika
senur úr uppáhaldsbíómyndum.
Þeir sem eru blammarar eiga
oft sína uppáhaldshetjur eða stíl-
brigði. Og þannig er því farið með
skrifstofumennina mína, sá sem
ég leik hefur Antonio Banderas
að sinni fyrirmynd, annar er
svo meira fyrir Jackie Chan
og kungfu-myndir og sá þriðji
er nördinn sem fílar vísinda-
skáldskap.
Það sem þeir gera á skrif-
stofunni er að þeir taka upp atriði
úr bíómyndum og nota til þess
skrifstofuna. Þeir eru líka um
leið alltaf að gera grín að yfir-
manninum sínum. En svo kemur í
ljós að hann er líklega langmesti
blammarinn af þeim öllum, þegar
hann fer að taka þátt í leiknum
með þeim þá fyrst færist fjör í
leikinn.“
Kristján, sem er hugmynda-
smiður sýningarinnar og leik-
stjóri, segir innblástur sýningar-
innar liggja víða og bakgrunnur
leikaranna endurspegli það, þeir
séu menntaðir í dansi, leik og sirk-
uslistum. Sjálfur hefur hann sótt
sér menntun í nokkrum leiklistar-
skólum en segist eiga afar erfitt
með að skilgreina sjálfan sig.
„Sviðslistamaður nær því
kannski helst. Ég hef sinnt til-
raunaleikhúsi alveg síðan ég lauk
námi, ég lærði í þremur leiklistar-
skólum og hef nýtt mér það sem
mér finnst passa fyrir mig.“
Sköpunin drifkraftur
Kristján, sem er fæddur og upp-
alinn á Akureyri, segist ekki hafa
ætlað sér að verða leikari, hvað þá
í Danmörku. „Það var dönsk kona
sem fann mig og ég fylgdi henni til
Danmerkur. Og rétt áður en ég fór
út ákvað ég að verða leikari, það
var aldrei á dagskrá. Ég byrjaði
í líffræði á sínum tíma, hætti því
og fór að smíða hjá pabba áður en
ég fór út. En ég hef alltaf verið í
einhverju brasi, setti upp útvarps-
stöð á framhaldsskólaárunum og
var alltaf eitthvað að framkvæma.
Enda felst drifkraftur minn í því
að skapa, ég fæ svo miklu meira
út úr því en að leika í hefðbundnu
leikriti,“ segir Kristján að lokum.
Leikritið Blam verður sýnt í
Borgarleikhúsinu 3.-7.apríl og í
Hofi á Akureyri 10.-11. apríl.
sigridur@frettabladid.is
Verðlaunaleikritið Blam! sýnt á Íslandi
Sýning Kristjáns Ingimarssonar, Blam!, verður frumsýnd á Íslandi í kvöld. Hún vakti mikla athygli þegar hún var sýnd í Kaupmannahöfn
í fyrra, hlaut lofsamlega dóma og var valin sýning ársins af dómnefnd hinna virtu Reumert-verðlauna í Danmörku.
MENNING