Fréttablaðið - 03.04.2013, Blaðsíða 24
3. APRÍL 2013 MIÐVIKUDAGUR6
ERNA
INDRIÐADÓTTIR,
upplýsingafulltrúi
Alcoa Fjarðaáls
„Það sem ég sá einna
fyrst í hans störfum
fyrir SAMÁL var að
hann hefur mikla for-
ystuhæfileika, enda
hélt hann afar vel utan
um starfsemi samtakanna. Ég sá fyrir mér
að hann væri framtíðarmaður í SA þannig
að það kom mér ekki óvart að hann var
valinn í þetta starf.“
Varðandi aðra kosti Þorsteins segir Erna að
það sé þægilegt og skemmtilegt að vinna
með honum. „Hann er klár, yfirvegaður og
málefnalegur, strangheiðarlegur og góður
drengur. Ég á hreinlega erfitt með að finna
nokkurn löst eða galla á honum. Ef ég ætti
að lýsa Þorsteini í einu orði er það frábær!“
VILHJÁLMUR
EGILSSON,
rektor Háskólans á
Bifröst
„Ég hafði svo sem ekk-
ert um hans ráðningu
að segja en líst vel á
hann. Ég hef unnið
nokkuð með Þorsteini
í gegnum tíðina og hef
ekkert nema gott um hann að segja. Hann
er yfirvegaður, skynsamur og vel meinandi
og hann á eflaust eftir að reynast sam-
tökunum vel.“
RANNVEIG RIST,
forstjóri Rio Tinto
Alcan í Straumsvík
„Vilhjálmur er þægi-
legur í samskiptum
og gefur sér tíma til
að setja sig vel inn í
hlutina. Og vinnur svo
í málunum af rökfestu
og sanngirni.“
ATVINNULÍFIÐ
Þorgils Jónsson
thorgils@frettabladid.is
Nýr forystumaður kom inn fram á sjónar sviðið
í atvinnulífinu þegar Þorsteinn Víglunds son
tók við starfi framkvæmdastjóra Samtaka
atvinnu lífsins (SA) um miðjan síðasta mánuð.
Hann tók við af Vilhjálmi Egils syni, sem var
ráðinn rektor Háskólans á Bifröst.
Þorsteinn hefur lengi verið í fararbroddi
í viðskiptum en hóf starfsferilinn sem
viðskipta blaðamaður á Morgunblaðinu árið
1995, eftir að hafa lokið námi í stjórnmála-
fræði við Háskóla Íslands. Hann færði sig svo
um set til Kaupþings þar sem hann stýrði fyrst
greiningar deild bankans og varð svo forstöðu-
maður hjá eignastýringarsviði í Lúxem borg.
Árið 2002 settist Þorsteinn í forstjórastól
BM Vallár, en Víglundur Þorsteinsson, faðir
hans, var um árabil stjórnarformaður og aðal-
eigandi fyrirtækisins. Þar var Þorsteinn til
ársins 2010 þegar hann gerðist framkvæmda-
stjóri SAMÁLs, Samtaka álframleiðenda á Ís-
landi.
Þorsteinn hefur einnig stundað stjórnunar-
nám, bæði við HÍ og á Spáni, og var vara-
formaður Samtaka iðnaðarins, eins aðildar-
félags SA, frá 2007 til 2010.
Hann býr í Garðabæ með eiginkonu sinni
og þremur dætrum þeirra.
Í samtali við Markaðinn segir Þorsteinn
að fyrstu dagarnir í nýju starfi hafi verið
skemmtilegir.
„Mér líst vel á þetta. Þetta hafa verið anna-
samir dagar þar sem að mörgu er að hyggja
þar sem hæst ber að sjálfsögðu undirbúning
fyrir komandi kjarasamninga. Það er afar
mikilvægt að þar náist að semja um skynsam-
legar launabreytingar sem innstæða er fyrir
á komandi árum, ólíkt því sem hefur við-
gengist lengi. Það er mikilvægur þáttur í að
auka hagvöxt og berjast gegn verðbólgu hér
á landi.“
Komandi samninga ber hæst
Þorsteinn Víglundsson, nýr framkvæmdastjóri SA, segir það mikilvægan þátt í aukningu hagvaxtar og baráttu við verð-
bólgu að skynsemin ráði ríkjum við gerð kjarasamninga. Segir að fyrstu dagarnir í starfi hafi verið skemmtilegir.
Samtök atvinnulífsins (SA) eru heildar-
samtök íslenskra atvinnurekenda. Innan
vébanda SA eru sjö aðildarfélög; Lands-
samband íslenskra útvegsmanna, Samtök
iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu,
Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Sam-
tök fiskvinnslustöðva og Samtök fjármála-
fyrirtækja. Undir þau falla um 2.000 fyrirtæki
af öllum stærðum og hjá þeim starfa um
55.000 starfsmenn.
YFIRSAMTÖK 2.000 FYRIRTÆKJA
ÞORSTEINN VÍGLUNDSSON Um miðjan síðasta mánuð urðu mannaskipti í stóli framkvæmdastjóra hjá Samtökum
atvinnulífsins þegar Þorsteinn Víglundsson tók við af Vilhjálmi Egilssyni. MYND/SA
ford.is
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Ford Transit Custom 2,2TDCi dísil, 100 hö, beinskiptur 6 gíra. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 6,7 l/100 km. Losun koltvísýrings CO2 178 g/km.
Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu.
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
VIÐ FRUMSÝNUM NÝJAN FORD
TRANSIT CUSTOM
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Aukin þjónusta Bíldshöfða 6: Varahlutaverslun og verkstæðismóttaka er einnig opin laugardaga kl. 12-16
Komdu í kaffi og spjall. Í sameiningu finnum
við hagstæða fyrirtækjalausn fyrir þig.
VERÐ ÁN VSK FRÁ
VERÐ MEÐ VSK FRÁ
CUSTOM
3.577.689 KR.
4.490.000 KR.
FORD TRANSIT
Ford Transit Custom
Sendibíll ársins 2013BACKBONE OF BUSINESS