Fréttablaðið - 03.04.2013, Side 8
3. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
BRASILÍA Brasilískur læknir er
grunaður um að hafa valdið dauða
að minnsta kosti 300 sjúklinga.
Læknirinn er sakaður um að hafa
rekið „dauðagengi“ starfsmanna
sem hafi myrt sjúklinga sem ekki
höfðu keypt sjúkratryggingar til
að koma að sjúklingum sem höfðu
slíkar tryggingar.
Virginia Helena Soares de
Souza, 56 ára læknir á gjörgæslu-
deild spítala í borginni Curitiba,
hefur þegar verið ákærð fyrir
morð á sjö sjúklingum. Hún og
samstarfsmenn hennar hafa frá
upphafi haldið fram sakleysi sínu.
Lögregluyfirvöld ætla að rann-
saka andlát 1.800 sjúklinga á spít-
alanum til að kanna hvort de Souza
hafi átt þar hlut að máli.
Komi í ljós að hún hafi átt hlut að
máli við andlát 300 sjúklinga sem
nú verða rannsökuð yrði hún einn
stórvirkasti fjöldamorðingi sög-
unnar. Breski læknirinn Harold
Shipman hefur vermt efsta sætið á
þeim lista, en talið er að hann hafi
myrt yfir 250 sjúklinga.
De Souza og samstarfsmenn
hennar eru grunaðir um að hafa
gefið sjúklingum vöðvaslakandi
lyf sem dró þá til dauða. Í ein-
hverjum tilvikum leikur grunur
á að slökkt hafi verið á öndunar-
vélum sem héldu sjúklingum á lífi.
Brasilískir fjölmiðlar hafa spil-
að símtal de Sousa, sem er meðal
annars notað sem sönnunargagn,
þar sem hún segir: „Mig klæjar í
puttana að rýma gjörgæsluna. Það
er því miður þannig að okkar verk-
efni er að vera milliliðir á stökk-
brettinu yfir í næsta líf.“
Rannsókn málsins hefur staðið
yfir mánuðum saman en de Souza
og sjö samstarfsmenn hennar voru
handteknir í febrúar. Þeim var
sleppt úr haldi í lok mars en lög-
reglan hefur nú hug á að fara fram
á gæsluvarðhald yfir de Souza að
nýju á þeim grundvelli að hún hafi
verið forsprakki glæpagengis.
brjann@frettabladid.is
Læknir sagður hafa
rekið „dauðagengi“
Brasilískur læknir er grunaður um að hafa myrt að minnsta kosti 300 sjúklinga.
Læknirinn og samstarfsmenn neita sök. Einn stórvirkasti morðingi sögunnar.
Dr. Mario Lobato, sem stýrir rannsókn málsins, vitnaði til sjúklinga í
sjónvarpsviðtali nýverið:
■ „Einn sjúklinganna var með meðvitund. Hann fékk lyf í æð en var ekki í
öndunarvél. Hann hafði beðið fjölskyldumeðlim um að koma með lesgler-
augun sín svo hann gæti lesið á meðan hann dvaldist á gjörgæslunni.“
■ „Annar sjúklingur bað hjúkrunarfræðing um vatnsglas. Hjúkrunarfræð-
ingurinn er vitni í málinu. Hún sagðist aldrei munu gleyma því að hún hafi
ekki náð að koma með vatnið til sjúklingsins því hann lést í millitíðinni.“
Bað um lesgleraugu rétt fyrir andlátið
SLEPPT De Souza sat í gæsluvarðhaldi í rúman mánuð en var sleppt 20. mars. Lög-
regla vill nú fá heimild til að halda henni í gæsluvarðhaldi á ný. NORDICPHOTOS/AFP
Ársfundur
2013
08:15 Morgunverður í boði Veðurstofunnar
08:50 Ávarp ráðherra
Svandís Svavarsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra
09:00 Veðurstofan: Brú yfir Heljargjá
Árni Snorrason forstjóri Veðurstofu Íslands
Veðurstofan er sívakandi yfir náttúruöflunum og leitast er við með rannsóknum að
skilja eðli þeirra enn betur. Árni mun kynna það sem helst stóð upp úr á síðasta ári
í starfi stofnunarinnar, hvernig til tókst með reksturinn og horfur á næsta ári.
09:30 Rannsóknainnviðir Veðurstofu Íslands – efling innviða í jarðvísindum
Kristín S. Vogfjörð rannsóknastjóri
Veðurstofan rekur fjölþætt mælanet til vöktunar og rannsókna á náttúru Íslands
og hefur á undanförnum árum fjárfest fyrir nær 600 milljónir króna í innviðum.
Kristín mun kynna uppbyggingu jarðvísindalegra innviða Veðurstofunnar. Sú
uppbygging stendur á grunni eftirlitskerfa stofnunarinnar með eldgosa- og jarð-
skjálftavá og byggist á fjárfestingu innlendra og erlendra rannsóknasjóða og
hagsmunaaðila í mælitækjum og gagnaþjónustu til uppbyggingar Evrópunets
rannsóknainnviða í jarðvísindum.
09:50 Snjór og samgöngur á norðurslóðum
Harpa Grímsdóttir útibússtjóri Snjóflóðaseturs Veðurstofunnar á Ísafirði
SNAPS (Snow, Ice and Avalanche Applications) er samnorrænt verkefni um sam-
göngur á norðurslóðum og vandamál sem skapast vegna snævar. Veðurstofan stýrir
verkefninu. Vestfirðir eru tilraunasvæðið á Íslandi. Vegirnir sem unnið er með eru
Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu og Steingrímsfjarðarheiði vegna skafrennings.
Harpa kynnir markmið verkefnisins og helstu afurðir hingað til.
10:10 ICEWIND: Rannsóknir á vindauðlindinni
Guðrún Nína Petersen sérfræðingur í veðurfræðirannsóknum
Þó að vindur hafir verið nýttur frá rafvæðingu til að knýja litlar vindrafstöðvar þá
hefur vindorka í raun verið lítið nýtt til raforkuframleiðslu á Íslandi. Skriður komst
ekki á rannsóknir á íslensku vindauðlindinni fyrr en eftir aldamótin. Guðrún Nína
mun kynna samnorrænt rannsóknarverkefni þar sem þekkingu á sviði vindorku á
köldum svæðum er miðlað og kannaðir þeir þættir sem hafa takmarkandi áhrif á
vindorkunýtingu á Norðurlöndunum.
10:30 Lokaorð
10:45 Fundarslit
Fundarstjóri: Ingvar Kristinsson
Dagskrá
Staður: Veðurstofa Íslands,
Bústaðavegi 7
Tími: Fimmtudagur 4. apríl
kl. 08:15–10:45
Tími gefst fyrir spurningar
milli erinda og í lok
fundarins
Ársfundurinn er opinn
öllum, en óskað er eftir
skráningu í síma 522 6000
(móttaka) eða í tölvupósti
vidburdir@vedur.is
Veðurstofa Íslands –
rannsóknastofnunin
www.vedur.is vedur@vedur.is
BL Sævarhöfða 2 110 Reykjavík 525 8000
Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 – Bílasala
Akureyrar / Akureyri / 461 2533 – Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070
DACIA DUSTER – 4x4
Dísil, beinskiptur. Verð 4.090 þús. kr. Eyðsla:
5,1 l/100 km*
SKYNSAMLEG
KAUP
Hrikalega gott ver
ð
ELDSNEYTI
MINNA
SHIFT_
NISSAN QASHQAI – 4x4
Dísil, beinskiptur. Verð 5.090 þús. kr. Eyðsla:
4,6 l/100 km*
VINSÆLASTI
SPORTJEPPINN
Samkv. Umferðars
tofu 2012
SUBARU XV – 4x4
Bensín, sjálfskiptur. Verð 5.590 þús. kr. Eyðsla:
6,6 l/100 km*
SPARNEYTINN
SUBARU
Ný vél, aukinn ben
sínsparnaður
N BÍLARÝIR SPARNEYTNIR
Eyðsla:
3,4 l/100 km*
RENAULT CLIO Expression ECO
1,5 dísil, beinskiptur. Verð 2.890 þús. kr.
/
S
ÍA
/
N
M
5
7
2
6
3
*
M
ið
a
ð
v
ið
b
la
n
d
a
ð
a
n
a
ks
tu
r
/
S
ÍA
/
N
M
5
7
2
6
3
*
M
ið
a
ð
v
ið
b
la
n
d
a
ð
a
n
a
ks
t
E
N
N
E
M
M
GLÆSILEGUR
AUKABÚNAÐUR
M.a. íslenskur leið
sögubúnaður