Fréttablaðið - 03.04.2013, Qupperneq 19
Aðaláherslan hefur því verið á að hvetja alla þá sem eru með vöru, þekkingu eða þjónustu sem er
græn og umhverfisvæn að kynna sig í
þessum mánuði.
„Í ár erum við í samstarfi við 365 miðla
um þessa kynningu og mun FÓLK, sem
er í miðju Fréttablaðsins, til dæmis vera
„grænt“ allan mánuðinn,“ segir Guðrún
Bergmann, annar verkefnisstjóra Græns
apríl. Auk umfjöllunar um verkefnið
í miðlum 365, munu verkefnisstjórar
Græns apríl halda úti Facebook-síðu og
vefsíðu til að færa fólki fréttir af því sem
er grænt og umhverfisvænt.
„Í samstarfi við Reykjavíkurborg verður
einnig sérstakt hreinsunarátak 20. apríl
undir heitinu „Einn svartur ruslapoki“ en
í fyrra tókst slíkt átak sérlega vel og bætti
ásýnd borgarinnar,“ segir Ingibjörg Gréta
Gísladóttir, sem er hinn verkefnisstjóri
Græns Apríl. „Olís, sem er einn af sam-
starfsaðilum Græns apríl, mun gefa öllum
sem vilja poka til að fylla og borgaryfir-
völd munu síðan sjá um að sækja þá.“
BIRTING LOFTSLAGSBREYTINGANNA
Sá dagur sem Sameinuðu þjóðirnar hafa
skilgreint sem Dag Jarðar er 22. apríl.
Meginþemað tengt honum í ár er birting
loftslagsbreytinganna. Grænn apríl mun
standa fyrir viðburði sem tengist þessum
degi í Háskólabíói 21. apríl frá 15-17 þar
sem fjallað verður um það hvar þessi
birting kemur fram hér á landi. „Þar verð-
ur bæði fræðsla og skemmtun því við
blöndum saman stuttum erindum, tónlist
og skemmtiatriðum,“ segir Guðrún.
GRÆNN APRÍL
FER AF STAÐ
ÁTAK GRÆNN APRÍL er umhverfisátak sem hefur vaxið og
þróast undanfarin ár og er nú ýtt úr vör í þriðja sinn. Því
er fyrst og fremst beint að því að auka meðvitund fólks um
hvað það getur gert til að draga úr umhverfisáhrifum.
STEFNAN
Ein besta leiðin til
að binda koltvísýr-
ingsmengun er í
gegnum trjágróður.
Þess vegna ákváð-
um við að hrinda
af stað söfnun-
inni APRÍLSKÓG-
AR 2013. Stefn-
an er að safna
fjár munum fyrir
bændaskóga á
Austurlandi en
jafnframt að safna
fyrir trjáplöntum
til að planta í sér-
stakan Aprílskóg í
Skorradal. Söfnin
verður í gangi allan
aprílmánuð inni á
www.visir.is,“
segir Ingibjörg
Gréta.
UMHVERFIÐ
Þær Ingibjörg Gréta Gísla-
dóttir og Guðrún Bergmann
eru verkefnastjórar fyrir
Grænan apríl.
Sérblaðið Fólk tekur þátt í átakinu Grænn apríl.
Markmiðið er að kynna vöru, þekkingu og þjónustu
sem er græn og umhverfisvæn og styður við sjálf-
bæra framtíð á Íslandi. Lumar þú á grænni þjónustu,
vöru og/eða þekkingu sem allt of fáir vita um? Þá er
Grænn apríl eitthvað fyrir þig.
MYND/PJETUR
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · Hljóðlát
Stórt op > auðvelt að hlaða
Sparneytin amerísk tæki.
<Þvottvélin tekur
heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerísk
gæðavara
Amerísk
gæðavara
Skipholti 29b • S. 551 0770
NÝ SENDING AF
YFIRHÖFNUM!
15% AFSLÁTTUR
AF YFIRHÖFNUM ÞESSA VIKUNA
Ert þú í hópi fjárfesta framtíðarinnar?
Stofnaðu lið í Ávöxtunarleik Keldunnar
Keppnin er opin öllum, 15 ára og eldri, og fer skráning
fram á vefnum visir.is. Hver þátttakandi fær 10 milljónir
Keldukróna til þess að fjárfesta í mismunandi flokkum.
Þeir þátttakendur sem skila bestu ávöxtuninni þegar
keppnin verður gerð upp næsta vor eiga kost á
veglegum verðlaunum. Meðal vinninga er flug fyrir 2
til New York með Icelandair og 200 þúsund kr.
inneign í sjóði VÍB.
Skráðu þig á visir.is
Nú er hægt að stofna lið í Ávöxtunarleiknum
og bjóða vinum á Facebook með í keppnina.
Það lið vinnur sem nær bestu heildarávöxtun
að teknu tilliti til fjölda liðsmanna.
Vinningsliðið fær gjafabréf fyrir allt að 10
manns á Sjávargrillinu.
NÝTT