Fréttablaðið - 03.04.2013, Síða 34

Fréttablaðið - 03.04.2013, Síða 34
3. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 22 visir.is Allt um leiki gærkvöldsins ÚRSLIT DOMINOS-DEILD KARLA SNÆFELL - STJARNAN 91-90 Snæfell: Jón Ólafur Jónsson 29/5 fráköst, Jay Threatt 25/6 fráköst/9 stoðsendingar, Ryan Amaroso 20/15 fráköst, Ólafur Torfason 5, Hafþór Ingi Gunnarsson 5/4 fráköst, Pálmi Freyr Sigur- geirsson 5, Sigurður Á. Þorvaldsson 2 0. Stjarnan: Jarrid Frye 23/9 fráköst/5 stoðsendingar, Justin Shouse 22/5 fráköst/7 stoðsendingar, Brian Mills 18/6 fráköst, Jovan Zdravevski 14/4 fráköst, Marvin Valdimarsson 9, Fannar Freyr Helgason 4. Snæfell leiðir einvígið, 1-0. Vinna þarf þrjá leiki til þess að komast í úrslit. MEISTARADEILD EVRÓPU PSG - BARCELONA 2-2 0-1 Lionel Messi (38.), 1-1 Zlatan Ibrahimovic (63.), 1-2 Xavi, víti (89.), 2-2 Blaise Matuidi (90.+4) Þetta var fyrri leikur liðanna í átta liða úrslitum. BAYERN MÜNCHEN - JUVENTUS 2-0 1-0 David Alaba (1.), 2-0 Thomas Müller (79.). Þetta var fyrri leikur liðanna í átta liða úrslitum. SÆNSKI KÖRFUBOLTINN SUNDSVALL - NORRKÖPING 74-72 Hlynur Bæringsson skoraði 16 stig fyrir Sundsvall og Jakob Örn Sigurðarson 12. Pavel Ermolinskij skoraði 11 stig fyrir Norrköping. Þetta var fyrsti leikur liðanna í undanúrslitum um sænska meistaratitilinn. 1800 POTTURINN STEFNIR Í Fyrsti vinningur stefnir í 120 milljónir og Ofurpotturinn stefnir í 1.680 milljónir. Ekki gleyma að vera með, fáðu þér miða fyrir klukkan fjögur í dag á næsta sölustað eða á lotto.is 120.000.000 +1.680.000.000 ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM! MIÐINN GILDIR 3. APRÍL 2013A. 12 14 17 21 41 48 B. 05 16 23 36 37 38 C. 07 09 13 22 34 38 D. 03 06 19 24 25 31 E. 11 19 21 25 38 42 F. 01 25 35 36 39 46 G. 18 19 20 23 28 46 H. 22 27 29 39 40 42 82310000183296 SUMAROPNUN, SÖLU LÝKUR KL. 16 KÖRFUBOLTI Úrvalslið seinni hluta deildarkeppninnar í Domino‘s-deild kvenna var tilkynnt í gær. Shannon McCullum var valin besti leikmaður- inn og Finnur Freyr Stefánsson besti þjálfarinn. Bæði koma úr KR. Í kvöld hefst svo úrslitakeppnin í deildinni en þangað komust fjögur efstu lið deildarinnar. Keppnin byrjar því strax í undanúrslitum en þrjá sigra þarf til að komast í lokaúrslitin, alveg eins og hjá körlunum. „Shannon kom okkur skemmtilega á óvart enda frábær leikmaður,“ sagði Finnur í samtali við Frétta- blaðið í gær. KR mætir Snæfelli í sinni undanúrslitarimmu. „Hún gerir gott lið betra en það þarf engu að síður samvinnu allra leikmanna bæði innan og utan vallarins til að ná árangri og komast áfram í úrslitin.“ Deildarmeistarar Keflavíkur mæta Val í hinni rimmunni. Liðin mættust fjórum sinnum í deildinni í vetur og vann hvort tvo sigra. „Þarna mætast tvö góð og það lið sem er með sterkari vilja mun vinna þetta einvígi. Ég hef alltaf sagt að vörn vinni titla og tel að til þess að vinna Val þurfum við fyrst og fremst að spila góða vörn,“ sagði Pálína Gunnlaugsdóttir, Keflavík. - esá McCullum og Finnur Freyr best BEST Finnur Freyr og Shannon með verðlaunin sín í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FÓTBOLTI David James, fyrrverandi markvörður Liverpool og enska lands- liðsins, skrifaði í gær undir samning við ÍBV. James mun verða aðstoðar- þjálfari Hermanns Hreiðarssonar ásamt því að spila með liðinu. „Það var Hermann Hreiðarsson sem kom mér til Íslands. Hann hringdi í mig fyrir einum eða tveimur mánuðum. Sagði við mig að ég væri að koma til þess að spila og þjálfa með honum. Ég sagði já. Þetta var í rauninni ekki flóknara en það,“ sagði brosmildur James við íþróttadeild í gær. „Ég ætlast til þess að okkur muni ganga vel. Mér líkar við hugmynda- fræði Hermanns sem þjálfara. Við erum ekki sammála um allt, sem er líka jákvætt. “ - hbg James orðinn leikmaður ÍBV HANDBOLTI Strákarnir okkar eiga erfiðan leik fyrir höndum í dag er þeir sækja Slóvena heim í undan- keppni EM 2014. Leikur liðanna fer fram í Maribor og er búist við mikilli stemningu. Þarna mætast tvö sterkustu lið riðilsins. Ísland er í efsta sæti með fjögur stig en Slóveníu í öðru sæti með þrjú. Tvö efstu liðin í riðlinum komast á EM sem fram fer í Danmörku. „Þetta er sterkasti heimavöllur Slóvena ásamt vellinum í Celje. Við gerum ráð fyrir að það verði allt vitlaust þarna,“ sagði Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari við Fréttablaðið í gær. Hann var þá staddur í rútu á leið til Maribor rúmum sólarhring fyrir leik. Er hann sáttur við að vera á ferðinni svo skömmu fyrir leik? „Við náðum æfingu í Grosswall- stadt fyrir þetta ferðalag, sem var gott. Það var fínt að hittast úti og æfa í Þýskalandi áður en farið var. Svona var planið og við gerum gott úr þessu. Við verðum klárir í leikinn,“ sagði þjálfarinn diplómatískur. Leikurinn gegn Slóvenum verð- ur allt annað en auðveldur. Ekki bara er Ísland að mæta á erfiðan útivöll heldur tefla Slóvenar fram einu sterkasta liði heims sem er á mikilli uppleið. Liðið varð í fjórða sæti á HM og á framtíðina fyrir sér. Slóvenska liðið lagði það íslenska 34-32 er liðin mættust á EM í Serbíu á síðasta ári. „Þetta er okkar helsti and- stæðingur okkar í riðlinum. Við eigum þá síðan heima á sunnu- daginn og við verðum að ná góðum úrslitum úr þessum leikj- um. Það er ekkert nýtt undir sól- inni þar. Við stefnum á tvo sigra. Svo verður að koma í ljós hvern- ig það gengur,“ sagði Aron en að minnsta kosti tvö stig úr þess- um leikjum myndu setja Ísland í góða stöðu í riðlinum. Fjögur stig myndu nánast skjóta liðinu til Danmerkur. Það hafa verið vandræði með línumannastöðuna hjá landsliðinu. Þeir Róbert Gunnarsson, Kári Kristján Kristjánsson og Vignir Svavarsson voru allir meiddir er hópurinn var valinn. Kári Krist- ján er þó byrjaður að æfa á nýjan leik þannig að nýliðarnir Jón Þor- björn Jóhannsson og Atli Ævar Ingólfsson þurfa ekki að axla alla ábyrgðina í þessum leikjum. „Kári hefur verið með á öllum æfingum og litið vel út. Það er mjög ánægjulegt. Hann er klár í slaginn og verður með okkur í þessum leik,“ sagði Aron en Kári hefur verið frá síðustu vikur eftir að góðkynja æxli var fjarlægt úr baki hans. Aron segir að það þurfi að stöðva einn leikmann hjá Slóven- um. „Slóvenar byggja sinn leik upp á leikstjórnandanum Uros Zorm- an. Liðið nýtir hans styrkleika og það þurfum við að stoppa. Liðið er vel spilandi. Leikmenn með góðan leikskilning. Við verðum að vera þéttir fyrir og grimmir að refsa er við fáum tækifæri til. Þetta er erfiður útivöllur og við verðum að halda ró okkar og vera þolin móðir. Aginn þarf að vera í lagi hjá okkur allan leikinn.“ henry@frettabladid.is Kári Kristján spilar í Maribor Línumaðurinn Kári Kristján Kristjánsson fór í aðgerð vegna góðkynja æxlis í baki fyrir rúmum mánuði. Hann er búinn að jafna sig og mun spila leikinn mikilvæga gegn Slóvenum í undankeppni EM í dag. KÁRI SNÝR AFTUR Það er mikill styrkur fyrir íslenska liðið að hafa Kára með í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SPORT

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.