Fréttablaðið - 03.04.2013, Page 38

Fréttablaðið - 03.04.2013, Page 38
3. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 26 Sex erlendir blaðamenn frá mörgum af virtustu þungarokkstímaritum heims verða gestir á hljóm- sveitakeppninni Wacken Metal Battle sem verður haldin í Eldborg í Hörpu á laugardagskvöld. Blaðamennirnir koma frá tímaritunum Metal Hammer, Terrorizer, Brave Words, Loud Magazine, Devilution og Scream Magazine. Einnig mæta á svæðið fulltrúar útgáfufyrirtækisins Season of Mist og norsku tónlistarhátíðarinnar Inferno. Þessir aðilar verða í dómnefnd keppninnar ásamt hópi íslenskra tónlistarsérfræðinga. Sérstakir gestir þetta kvöld verða rokkararnir í Skálmöld og verður þetta í fyrsta sinn sem þeir spila í Eldborg. Sigursveitin frá því í fyrra, Gone Postal, stígur einnig á svið, ásamt hinni efnilegu Trust the Lies. Hljómsveitirnar sem taka þátt í keppninni í ár eru In the Company of Men, Moldun, Abacination, Azoic, Ophidian I og Blood Feud. Sigurvegarinn kemur fram á tónlistarhátíðinni Wacken Open Air í Norður-Þýskalandi. Þetta verður í fimmta sinn sem undankeppnin er haldin á Íslandi. Hljómsveitin sem vinnur lokakeppnina í Þýska- landi fær útgáfusamning við Nuclear Blast Records, hljóðfæri og græjur. Nánari upplýsingar um keppn- ina í Eldborg má finna á metal-battle.com og á facebook.com/wackenmetalbattleiceland. Fulltrúi Metal Hammer dæmir Sex erlendir blaðamenn mæta á Wacken-hljómsveitakeppnina í Eldborg. GONE POSTAL Rokkararnir í Gone Postal spila á Wacken- kvöldinu á laugardaginn. Tónlistarmaðurinn Úlfur Hansson mun hefja meistaranám í raf tónlist við Mills College í Kaliforníu í haust. Tónlistardeild skólans þykir sérlega framsækin og hlýtur Úlfur styrk fyrir skólagjöldunum gegn því að kenna nemendum á grunnstigi að búa til raftónlistar- hljóðfæri, en 26 strengja raf strokin harpa Úlfs hlaut Nýsköpunar- verðlaunin í ár. Úlfur og sambýliskona hans, Rebekka Rafnsdóttir, flytjast búferlum í ágúst ásamt frumburði sínum; lítilli dóttur sem fæddist þann 27. mars. „Við erum orðin mjög spennt, þetta verður algjört ævintýri. San Francisco er ein af uppáhaldsborgunum mínum í Bandaríkjunum; andrúmsloftið er svo afslappað þar og fólkið opið og skemmtilegt,“ segir hann. Mills College er gamall og virt- ur skóli og á meðal þeirra tónlistar- manna sem hafa lokið þaðan námi eru tónskáldin Leon Kirchner og Darius Milhaud, listakonan Laurie Anderson, Phil Lesh úr hljómsveitinni Grateful Dead, tilrauna tónskáldið Steve Reich og tónlistarkonan Joanna Newsom. „Það hafa margir flottir lista- menn verið viðloðandi þessa stofn- un í gegnum tíðina. Hljómsveitin Deerhoof spratt meðal annars upp úr umhverfinu í kringum Mills og svo er Fred Frith yfir tónlistar- deildinni og verður prófessorinn minn.“ Úlfur er menntaður í klassískri tónlist við Listaháskóla Íslands. Í mars kom út fyrsta sólóplata hans á heimsvísu og ber hún nafnið White Mountain. Platan hefur hlotið mikla athygli og hafa blaðamenn tíma- ritsins Spin Magazine og tónlistar- vefsíðunnar Pitchfork.com farið fögrum orðum um hana. Hann segir raftónlistar áhugann hafa fylgt sér frá barnsaldri. „Ég hef haft áhuga á raftónlist frá því að ég var lítill og bakgrunnur minn liggur í klassískri tónlist með áherslu á raftónlist.“ Spurður út í framtíðaráformin segir Úlfur þau óráðin en telur líklegt að fjölskyld- an dvelji áfram í Bandaríkjunum bjóðist það. „Annars gætum við alveg eins endað í annarri heims- álfu. Hver veit.“ sara@frettabladid.is Nemur við virtan tónlistarháskóla Úlfur Hansson mun hefj a meistaranám við hinn virta skóla Mills College í ágúst. Hann fær afslátt af skólagjöldunum gegn því að kenna yngri nemendum. SPENNTUR Úlfur Hansson flytur til Bandaríkjanna ásamt fjölskyldu sinni í haust. Þar mun hann leggja stund á meistaranám í raftónlist við Mills College. MYND/IONA SJÖFN HUNTINGDON-WILLIAMS Mills College er lista- og tækni- háskóli í San Francisco. Skólinn var stofnaður árið 1852 og var þá stúlknaskóli, sá eini vestur af Rocky-fjallgarðinum. Árið 2011 var Mills í fimmta sæti U.S. News & World Report-listans yfir bestu háskóla í vestanverðum Banda- ríkjunum. Tónlistardeild skólans þykir að auki ein sú framsæknasta í heimi. Fyrrverandi stúlknaskóli „Gamla húsnæðið var orðið of lítið; spilastaflarnir náðu orðið upp í rjáfur og flæddu út á gólf. Við ákváðum því að stækka við okkur og skapa nýja ævintýra- veröld á nýjum stað,“ segir Svan- hildur Eva Stefánsdóttir, sem á og rekur verslunina Spilavini ásamt Lindu Rós Ragnarsdóttur. Verslunin, sem þær stöllur settu á fót árið 2007 og hefur verið til húsa við Langholtsveg, er flutt í nýtt og stærra húsnæði við Suð- urlandsbraut 48 og nýttu Svan- hildur Eva og Linda Rós páska- fríið í smíðavinnu og flutninga. „Við eyddum öllum páskunum í að hanna og smíða. Fjölskyldurnar tóku þátt í þessu með okkur, þar á meðal börnin okkar sem fóru í málningargallana og máluðu hill- ur,“ segir Svanhildur Eva og bætir við að viðskiptavinir hafi einnig komið og lagt hönd á plóg: „Við fundum fyrir miklum stuðningi frá viðskiptavinunum og sumir komu og aðstoðuðu okkur við að pakka og taka upp úr kössum.“ Að sögn Svanhildar Evu var mikið lagt upp úr því að endur- nýta innréttingarnar úr gamla húsnæðinu og skapa sannkallaða ævintýra veröld fyrir yngstu við- skiptavinina. Þær nutu liðsinnis Lindu Mjallar Stefánsdóttur og Daníels Sigmundssonar við það vandasama verk. „Fólk má vera í búðinni hjá okkur í margar klukku- stundir og fá kennslu eða spila spil. Það á að vera fjör að koma til okkar,“ segir hún að lokum. Form- leg opnun nýrrar verslunar verður á morgun klukkan 17 og verður þá efnt til spilakvölds og skemmtunar fyrir alla aldurshópa. - sm Viðskiptavinirnir hjálpuðu til við fl utninginn Svanhildur Eva Stefánsdóttir og Linda Rós Ragnarsdóttir hafa fl utt verslunina Spilavini í stærra húsnæði. STÆRRI ÆVINTÝRAVERÖLD Svan hildur Eva Stefánsdóttir og Linda Rós Ragnars- dóttir hafa flutt verslunina Spilavini í nýtt og stærra húsnæði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Ég er að lesa Fimmtíu dekkri skugga eftir E.L. James. Hún er ansi krassandi.“ Heba Finnsdóttir, einn af eigendum Bryggjunnar á Akureyri. BÓKIN D YN A M O R EY K JA V ÍK Fimm gamlingjar komast að því að það er miklu betri aðbúnaður í fangelsum en á elliheimilum og grípa til sinna ráða. En leiðin á bak við rimlana reynist þyrnum stráð ... SPENNANDI KÓSÍKRIMMI! „Hrikalega skemmtileg!“ RADIO P4 BLEKI NGE Samtök um sorg og sorgarviðbrögð NÝ DÖGUN www.nydogun. is www.sorg. is sorg@sorg. is Halldór Reynisson formaður Nýrrar dögunar ræðir um þau bjargráð sem hjálpa fólki að takast á við sorg og áföll, á samveru Nýrrar dögunar fimmtudagskvöldið 4. apríl n.k. Aðgangur er ókeypis og opinn öllum. Erindið hefst kl. 20:30 í safnaðarheimili Háteigskirkju. Kl. 19:00 - 20:00 er opið hús á sama stað þar sem fólk getur komið og spjallað yfir kaffibolla. Allir velkomnir. hvað hjálpar?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.