Fréttablaðið - 23.04.2013, Blaðsíða 2
23. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2
„Ég þarf að reyna að hanga ekki of
mikið í tölvunni, svo aðrir komist að.
Ég set mér því mörk þó að helst vildi
ég kíkja sem mest yfir daginn,“ segir
Hrefna Hjálmarsdóttir, íbúi í Hlíð.
Hrefna notar tölvuna hjá dagvistun-
inni mikið og er því hæstánægð með
framtakið.
Spurð í hvaða tilgangi hún noti
vefinn helst liggur ekki á svörum.
„Ég sakna barnanna og get fylgst
nánar með þeim og skoðað af þeim
myndir. Það er mér ómetanlegt. Svo
get ég gúgglað það sem mig langar
til að skoða. Það geta verið myndir
af landslagi eða stöðum sem ég hef
heimsótt. Svo er ég mikill fréttafíkill og á það til að velta fyrir mér málfræði.“
Hrefna segir að henni finnist þetta gullið tækifæri fyrir eldri borgara
á staðnum til þess að forðast einangrun og opna heiminn. Hún segist
einnig vera þakklát þeim sem áttu frumkvæði að hugmyndinni. „Þetta er
svo gefandi. Að skoða fjarlæga staði kemur næstum alveg í staðinn fyrir
að ferðast sjálf,“ segir hún kímin. Hún tekur þó fram að sér finnist lítið til
Facebook koma. „Mér finnst svo mikið um óþarfa uppfærslur af leiðindum
þar.“
Leggur upp í langferð með Google
Á FACEBOOK
Tæknin gerir
fólki kleift að
halda sam-
bandi við
ættingja og
vini.
Helgi, er síðasti séns að sjá ekki
skóginn fyrir trjánum?
„Nei, það er síðasti séns að sjá trén
fyrir skóginum.“
Grisja á hæstu trén í Öskjuhlíð með tilliti til
flugumferðar. Helgi Gíslason, framkvæmda-
stjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, boðar
baráttu gegn grisjuninni.
TIL MARGRA HLUTA NYTSAMLEGT
Hér rýnir íbúi í úrslit enska boltans
með dyggri aðstoð starfsmanns.
BANDARÍKIN, AP Ekkert hefur enn
komið fram sem bendlar bræðurna
Tamerlan og Dzhokhar Tsarn-
aev, sem taldir eru bera ábyrgð á
sprengjuárásinni í Boston, við ísl-
ömsk öfgasamtök. Ekkert er vitað
um tilgang árásarinnar.
Foreldrar bræðranna segja heim-
sókn eldri bróðurins, Tamerlans, til
rússnesku borgarinnar Makatsjkala
í fyrra ekkert hafa tengst öfgahóp-
um í Tsjetsjeníu.
„Hann var bara hér hjá mér í
Makatsjkala,“ sagði Anzor Tsarn-
aev, faðir þeirra. „Hann svaf fram
til þrjú á daginn, og ég spurði hann
þá: „Komstu hingað til að sofa?““
Tsarnaev segir son sinn þó
hafa komið með sér í tvær ferðir
til Tsjetsjeníu þar sem þeir hittu
frændfólk sitt.
FBI yfirheyrði Tamerlan við
heimkomuna. Ekkert benti til
tengsla við hryðjuverkastarfsemi.
Tamerlan lést eftir skotbardaga
við lögreglu aðfaranótt föstudags
og Dzhokhar fannst á föstudags-
kvöld eftir gríðarmikla leit. Hann
er mikið særður og hefur enn ekki
getað tjáð sig um málið. - þj
Foreldrar grunaðra sprengjumanna í Boston segja Rússlandsför saklausa:
Engin hryðjuverkatengsl fundist
GRUNAÐIR UM ÓDÆÐI Engin bein
tengsl hafa enn fundist milli bræðranna
Tamerlans og Dzhokhars Tsarnaev og
tsjetsjenskra öfgasamtaka.
SPURNING DAGSINS
AKUREYRI Öldrunarheimili Akur-
eyrar (ÖA) hafa keypt þráð-
laust net og spjaldtölvur fyrir
vistmenn. Nýjungin mælist vel
fyrir jafnt hjá vistmönnum sem
starfsfólki.
„Þetta er einn angi af velferð-
artækni sem ekki hefur verið
nýttur áður. Tækni til að gera
öldruðum lífið bærilegra,“ segir
Halldór S. Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri ÖA. Hann segir
að mikil ánægja ríki á meðal
íbúa með framtakið.
„Við viljum efla samskipti við
umheiminn og hjálpa fólki við
að halda sambandi við ástvini.
Svo er þetta líka svo gefandi á
hug og hönd,“ segir Halldór.
Dagvistunin í Hlíð býður auk
spjaldtölvanna upp á leikja-
tölvuna Wii. Friðný Sigurðar-
dóttir, þjónustustjóri í Hlíð,
segir það einkar skemmtilega
viðbót. „Hlátrasköllin óma hér
um allt hús frá því að tölvurnar
komu. Hér er fólk að spila golf
og dansa eða jafnvel ferðast
um fjarlæga staði. Svo sam-
einar þetta starfsfólkið og íbúa.
Upphafið lofar því mjög góðu,“
segir Friðný og bætir við að oft
sé þessi hópur vanmetinn hvað
tæknina varðar.
„Ég heyrði á tal tveggja
kvenna hér um daginn. Þá var
önnur þeirra að kenna hinni
á Google. Þar gæti hún fengið
upplýsingar um sjúkdóminn
sinn og fleira. Svo þú sérð að
þetta nýtist þeim á svo margan
hátt.“
Þegar hafa tvö heimili af
fimm verið netvædd og til
stendur að hin fylgi í kjölfarið á
komandi vikum. maria@frettabladid.is
Eldri borgarar í takt
við tímann með Wii
Öldrunarheimili Akureyrar fengu á dögunum þráðlaust net og tölvur. Að sögn
framkvæmdastjóra er þetta gert til að hindra mögulega einangrun eldri borgara.
„Ég þarf að reyna að hanga ekki of mikið í tölvunni,“ segir ánægður íbúi.
FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU
Ertu ekki viss um hvað þú ætlar að kjósa?
Viltu fá svör við ákveðnum spurningum?
Hringdu í Vg númerið 863 7038 og tilgreindu
það málefni sem brennur á þér.
Við finnum rétta frambjóðandann til þess að
hafa samband við þig og svara spurningum þínum.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
HVAÐ
VILTU VITA?
Maðurinn sem lést í kajak-
slysi í Herdísarvík í fyrradag
hét Jón Þór Traustason, til
heimilis að
Fýlshólum
2 í Reykja-
vík. Jón Þór
var 52 ára,
fæddur 13.
maí 1960, og
lætur eftir
sig eigin-
konu og þrjú
uppkomin
börn.
Lést í
kajakslysi
JÓN ÞÓR
TRAUSTASON
FJÖLMIÐLAR Bilun í prentsmiðju
olli því að lesendur Fréttablaðs-
ins fengu skert blað í hendur í
gær; átta síður vantaði í aðalblað-
ið og aðrar átta í fasteignablaðið
sem fylgdi. Enn fremur seinkaði
dreifingu víða vegna bilunar-
innar.
Tveir dómar um listviðburði
sem féllu fyrir vikið út úr blaðinu
eru endurbirtir í dag á síðum 26
og 27. Þá er vakin athygli á að
blaðið má lesa í heild sinni á visir.
is.
Beðist er velvirðingar á óþæg-
indum sem þessi bilun olli.
Bilun í prentsmiðju:
Sextán síður
vantaði í blaðið
KÚBA Tæplega 40% fanga í Guantanamo-fangabúðum Bandaríkjanna á
Kúbu eru nú í hungurverkfalli til að mótmæla aðstæðum sínum í búðunum
og því að þeir séu geymdir þar um óákveðinn tíma.
Alls eru 166 fangar nú í búðunum og 64 þeirra neita sér um mat. Þar
af eru sextán þeirra mataðir gegn eigin vilja. Skiptar skoðanir eru um
líðan fanganna, þar sem lögmenn fanga hafa haldið því fram að sumir
þeirra séu við dauðans dyr en talsmenn bandaríska hersins neita að svo
sé. - þj
Alls 64 af 166 föngum neita sér um mat:
Hungurverkfall í Guantanamo
MÓTMÆLI Í NEW YORK Íbúar í New York hafa síðustu daga mótmælt Guant-
anamo-fangabúðunum en margir fanganna í búðunum hafa verið þar í áraraðir án
þess að þeim hafi verið birt ákæra. NORDICPHOTOS/AFP
MENNINGARMÁL Eikarbátnum Húna II verður í maí
siglt umhverfis landið til að minnast þess að hálf öld
er síðan báturinn var smíðaður á Akureyri.
Aðstandendur Húna hafa leitað til bæjaryfir-
valda á áætluðum fjórtán viðkomustöðum og falast
eftir styrkjum til siglingarinnar, meðal annars með
því að fá felld niður hafnargjöld. „Báturinn gegnir
mikilvægu hlutverki í tengslum við sögu bátasmíða
og fiskveiða en einnig í tengslum við strandmenn-
ingu, ferðamennsku og nú síðast fræðslu ungmenna
um sjávarnytjar,“ segja Hollvinir Húna II í bréfi til
sveitarfélaganna.
Lagt verður upp frá Akureyri 11. maí og siglt
austur og suður fyrir land áður en Húni kemur
aftur til heimahafnar 23. maí. Á Húsavík slæst
Knörrinn, sem var smíðaður í skipasmíðastöð KEA
árið 1963 eins og Húni, með í förina. Almenningi
verður boðið að skoða bátana.
Húni II var gerður út til fiskveiða í 30 ár áður en
hann var tekinn af skipaskrá 1994. Var þá ætlunin
að koma bátnum fyrir kattarnef á áramótabrennu
en hann var þó settur aftur á skipaskrá 1995 og
gerður út sem hvalaskoðunarbátur í nokkur ár frá
Skagaströnd og Hafnarfirði.
Húni II er gerður út frá Akureyri. Báturinn er
notaður undir samkvæmi og til skemmtisiglinga.
- gar
Hollvinir eikarbáts sem smíðaður var á Akureyri minnast hálfrar aldar sögu:
Sigla afmælishring um Ísland
STJÓRNMÁL Undirskriftasöfnun
hefur verið sett af stað þar sem
hvatt er til þess að aðildarviðræð-
ur Íslands við Evrópusambandið
verði leiddar til lykta og svo kosið
um samningsniðurstöðuna.
Yfirskrift undirskriftasöfnun-
arinnar er „Klárum dæmið“ en
það er Illugi Jökulsson, fjölmiðla-
maður og stjórnlagaráðsfulltrúi,
sem er skráður fyrir henni. Í
tilkynningu segir að þeir sem
skrifa undir vilji að þjóðin ráði
ferðinni, ekki þingmenn. - mþl
Undirskriftum safnað:
ESB-viðræður
verði kláraðar
HÚNI II Hálfrar aldar sögu fiskveiða, hvalaskoðana og
skemmtisiglinga verður fagnað með hringferð um Ísland.