Fréttablaðið - 23.04.2013, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 23.04.2013, Blaðsíða 39
| SMÁAUGLÝSINGAR | tilkynningar ÞRIÐJUDAGUR 23. apríl 2013 19 ÚTBOÐ Nýr Landspítali við Hringbraut, sjúkrahótel og bílastæðahús Forval nr. 15452 fyrir hönnunarútboð Undirbúningur 1. áfanga uppbyggingar nýs Landspítala við Hringbraut hefur nú staðið um þó nokkurt skeið. Í nóvember 2012 lauk hönnunarhópurinn SPITAL við forhönnun heildarverkefnisins. SPITAL vann einnig tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Landspítalareit sem tók gildi 4. apríl 2013. Nú er komið að forvali fyrir fullnaðarhönnun heildarverkefnisins, en því hefur verið skipt upp í 4 aðskilin hönnunarútboð; um 58.500 m2 meðferðarkjarna, um 14.000 m2 rannsóknarhús, um 21.300 m2 bílastæðahús (með skrifstofuhluta og tæknihluta) og um 4.000 m² sjúkrahótel. Forval það er hér er auglýst snýr að tveimur einfaldari verkefnunum, sjúkrahóteli og bílastæðahúsi. Nýr Landspítali ohf. (NLSH) óskar eftir umsóknum um þátttökurétt í útboði á fullnaðarhönnun sjúkrahótels og/ eða bílastæðahúss sem verða hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut í Reykjavík. Hér er um að ræða opið forval auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), en útboðin verða lokuð öðrum en þeim bjóðendum sem tekið hafa þátt í forvalinu og uppfyllt allar kröfur þess. Engin takmörkun er á fjölda bjóðenda. Þannig verður öll- um umsækjendum sem uppfyllt hafa kröfur forvalsgagna og þannig staðist forval boðið að taka þátt í lokuðum aðskildum hönnunarútboðum fyrir sjúkrahótel og/eða bílastæðahús eftir því sem við á. Ekki er gefin einkunn fyrir hæfni og reynslu og því mun tilboðsfjárhæð hafa 100% vægi í hönnunarútboðunum. Ekki verður greitt fyrir þátttöku í forvali þessu. Öll gögn í forvali þessu, útboði og í verkinu í heild, skulu vera á íslensku að undanskildum tæknilegum forskriftum og samskiptum við nauðsynlega birgja, vottunaraðila o.fl. sem mega vera á ensku. Þó er heimilt að senda inn fyrirspurnir á ensku. Þeir fyrirvarar eru gerðir strax í upphafi að útboð á hönn- un muni þá aðeins fara fram að verkefninu verði tryggð fjármögnun á fjárlögum. Niðurstöður forvalsins skulu gilda í 9 mánuði eftir að þær liggja fyrir. Þátttaka í forvali gefur umsækjendum kost á því að taka þátt í útboði á öðru verkefninu eða báðum, en skuldbindur þá ekki til þess. Forval þetta er án skuldbindingar fyrir verkkaupa, hvort og hvenær verkefnið verður boðið út og þá í hvaða áföngum. Forvalsgögn verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is frá og með þriðjudeginum 23. apríl nk. Umsóknum í forvalið skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík, eigi síðar en fimmtudaginn 18. júlí fyrir kl: 10:00 þar sem þær verða opnaðar. ÚTBOÐ Nýr Landspítali við Hringbraut, meðferðarkjarni og rannsóknarhús Forval nr. 15453 fyrir hönnunarútboð Undirbúningur 1. áfanga uppbyggingar nýs Landspítala við Hringbraut hefur nú staðið um þó nokkurt skeið. Í nóvember 2012 lauk hönnunarhópurinn SPITAL við forhönnun heildarverkefnisins. SPITAL vann einnig tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Landspítalareit sem tók gildi 4. apríl 2013. Nú er komið að forvali fyrir fullnaðarhönnun heildarverkefnisins, en því hefur verið skipt upp í 4 aðskilin hönnunarútboð; um 58.500 m2 meðferðarkjarna, um 14.000 m2 rannsóknarhús, um 21.300 m2 bílastæðahús (með skrif- stofuhluta og tæknihluta) og um 4.000 m² sjúkrahótel. Forval það er hér er auglýst snýr að tveimur flóknari verkefnunum, meðferðarkjarna og rannsóknarhúsi. Nýr Landspítali ohf. (NLSH) óskar eftir umsóknum um þátt- tökurétt í útboði á fullnaðarhönnun meðferðarkjarna og/ eða rannsóknarhúss sem verða hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut í Reykjavík. Hér er um að ræða opið forval auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), en útboðin verða lokuð öðrum en þeim bjóðendum sem tekið hafa þátt í forvalinu og uppfyllt allar kröfur þess. Engin takmörkun er á fjölda bjóðenda. Þannig verður öll- um umsækjendum sem uppfyllt hafa kröfur forvalsgagna og þannig staðist forval boðið að taka þátt í lokuðum aðskildum hönnunarútboðum fyrir meðferðarkjarna og/ eða rannsóknarhús eftir því sem við á. Ekki er gefin einkunn fyrir hæfni og reynslu og því mun tilboðsfjárhæð hafa 100% vægi í hönnunarútboðunum. Ekki verður greitt fyrir þátttöku í forvali þessu. Öll gögn í forvali þessu, útboði og í verkinu í heild, skulu vera á íslensku að undanskildum tæknilegum forskriftum og samskiptum við nauðsynlega birgja, vottunaraðila o.fl. sem mega vera á ensku. Þó er heimilt að senda inn fyrir- spurnir á ensku og starfsferilslýsingar erlendra ráðgjafa mega einnig vera á ensku. Þeir fyrirvarar eru gerðir strax í upphafi að útboð á hönn- un muni þá aðeins fara fram að verkefninu verði tryggð fjármögnun á fjárlögum. Niðurstöður forvalsins skulu gilda í 9 mánuði eftir að þær liggja fyrir. Þátttaka í forvali gefur umsækjendum kost á því að taka þátt í útboði á öðru verkefninu eða báðum, en skuldbindur þá ekki til þess. Forval þetta er án skuldbindingar fyrir verkkaupa, hvort og hvenær verkefnið verður boðið út og þá í hvaða áföngum. Forvalsgögn verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is frá og með þriðjudeginum 23. apríl nk. Umsóknum í forvalið skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík, eigi síðar en fimmtudaginn 18. júlí fyrir kl: 11:00 þar sem þær verða opnaðar. Stórhöfða 31 Δ 110 Reykjavík Δ sími 569 3000 Δ stafir@stafir.is www.stafir.is Kjörfundur Stafa 2013 Kjörfundur Stafa lífeyrissjóðs er boðaður 14. maí 2013 kl. 17:00 að Stórhöfða 27, jarðhæð. Þar verða kjörnir fulltrúar launamanna í stjórn og varastjórn Stafa til tveggja ára. Framboðsfrestur til aðal- og varastjórnar rennur út 8. maí 2013. Við viljum sjá konur jafnt sem karla í hópi frambjóðenda! Framboð skulu send kjörnefnd í tölvupósti, kjornefnd@stafir.is, eða skriflega á skrifstofu Stafa. Aðalfundur Norræna félagsins í Reykjavík Aðalfundur Norræna félagsins í Reykjavík verður haldinn þriðjudaginn 8. maí kl. 17:00 á skrifstofu Norræna félagsins, Óðinsgötu 7, Reykjavík. Stjórnin Aðalfundur Eflingar-stéttarfélags 2013 Aðalfundur Eflingar - stéttarfélags 2013 verður haldinn á Grand Hótel þriðjudaginn 30. apríl 2013. Fundurinn hefst kl. 20.00 Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Breyting á reglugerð Sjúkrasjóðs 3. Viðbygging við Sætún 1 4. Önnur mál Endurskoðaðir reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofunni að Sætúni 1 Reykjavík frá og með þriðjudeginum 23. apríl nk. Félagar mætið vel og stundvíslega. Stjórn Eflingar-stéttarfélags Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.