Fréttablaðið - 23.04.2013, Blaðsíða 10
23. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
FRÉTTASKÝRING
Eru kennaradeilur í Danmörku hlið-
stæðar kjaradeilu íslenskra kennara?
Verkbann sem dönsk sveitarfélög
lögðu á kennara hefur nú staðið í
rúmar þrjár vikur. Nær sjötíu þús-
und kennarar og hundruð þúsunda
grunnskólabarna sitja heima.
Deilan snýst um fyrirkomulag
vinnutíma, þar sem sveitarfélögin
vilja auka kennsluskyldu og veita
skólastjórnendum vald til að skipu-
leggja skiptingu vinnudagsins.
Hér á Íslandi standa yfir við-
ræður milli grunnskólakennara og
sveitarfélaga þar sem meðal ann-
ars er rætt um sömu efnisatriði;
hversu mikill tími fer í kennslu ann-
ars vegar og undirbúning og önnur
verkefni hins vegar. Viðræðurnar
eru í biðstöðu en stjórnvöld eru að
fara yfir málin og verða þær teknar
upp að nýju í haust.
Halldór Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
segir að skoðun sambandsins sé sú
að kennsluskyldu þyrfti að auka.
„Við viljum búa til aðstæður þar
sem bæði kennarar og sveitarfé-
lögin geta hagnast. Kennsluskylda
hvers kennara myndi aukast, en á
móti fengi hann meiri laun.“
Ábati sveitarfélaganna fælist í því
að kennurum mundi fækka nokkuð
og skólarnir þyrftu að greiða færri
yfirvinnutíma.
Ólafur Loftsson, formaður Félags
grunnskólakennara, segir að rætt sé
um mörg þau sömu efnisatriði hér
og í Danmörku. Þó sé framferði
sveitarfélaganna í Danmörku eins-
dæmi þar sem kennurum sé „gert
að kyngja því sem sveitarfélögin
velja“.
Ólafur segir að íslenskir kennar-
ar horfi ekki aðeins til kaups kenn-
ara eða fjölda kennslustunda.
„Þetta snýst mest um vinnuað-
stæður kennara og gæði kennslu.
Sveitarfélögin vilja að við kennum
meira á kostnað undirbúningsvinnu,
en hvernig á það að bæta kennsl-
una?“
Halldór segir að þetta mál mætti
leysa með skipulagsbreytingum þar
sem létt væri á öðrum verkefnum.
Hann er vongóður um að aðilar nái
saman áður en til aðgerða kemur
„þannig að báðir njóti góðs af“.
Ólafur segir kennara reiðubúna
til að skoða fyrirkomulag starfsins
nánar, en grundvöllur samkomulags
sé að menn horfist í augu við stöðu
mála.
„Ef menn átta sig á því að meiri
fjármuni þarf í menntakerfið, þá
mun nást saman, en ef reyna á að
fjármagna breytingar á starfinu
innan frá, þá er ég ekki nógu bjart-
sýnn.“ thorgils@frettabladid.is
Sömu efnisatriði og í
deilunni í Danmörku
Kjaradeilur kennara og sveitarfélaga í Danmörku eiga sér ákveðna hliðstæðu hér
á landi, þar sem rætt er um kennsluskyldu kennara. Formaður Félags grunnskóla-
kennara segir málið snúast um betri kennslu og að það kalli á meiri fjármuni.
HALLDÓR
HALLDÓRSSON
ÓLAFUR
LOFTSSON
MÓTMÆLI Íbúar
Fredriksberg í
Kaupmannahöfn
sjást hér mótmæla
til stuðnings
dönskum kenn-
urum. Verkfallið
hefur nú staðið
yfir í þrjár vikur.
NORDICPHOTOS/AFP
VORBOÐINN LJÚFFENGI
CHICKEN
HEALTHY
STYLE
«91
NISSAN QASHQAI+2 SE 7manna
Nýskr. 06/11, ekinn 34 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.590 þús.
Rnr.151561.
LAND ROVER FREELANDER 2S
Nýskr. 07/08, ekinn 88 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 3.980 þús.
Rnr.190738,
Frábært úrval af notuðum
bílum á frábæru verði
Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
BMW 525Xi (4wd-xDrive)
Nýskr. 03/08, ekinn 76 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
Rnr.270243
NISSAN PATROL LE
Nýskr. 07/08, ekinn 83 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 5.290 þús.
Rnr.151683.
SUBARU FORESTER VISION
Nýskr. 04/11, ekinn 48 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.290 þús.
Rnr.280506.
TOYOTA PRIUS HYBRID EXE
Nýskr. 05/08, ekinn 43 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.890 þús.
Rnr.270225.
VW POLO TRENDLINE
Nýskr. 02/13, ekinn 1 þús. km.
dísil, beinskiptur. Verð kr. 2.990
VERÐ kr. 2.690 þús.
Rnr.190853.
BMW glæsibifreið kr.
5.890 þús.
Gerðu frábær kauphjá Bílalandi BL
Gott úrval
af 4x4 bílum
Tökum notaðan uppí notaðan! Erum í samningsstuði!