Fréttablaðið - 23.04.2013, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 23.04.2013, Blaðsíða 16
23. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Umræðan um að nýta eignir erlendra aðila til hagsbóta fyrir Íslendinga með húsnæðis- lán er nokkuð sérstæð. Gefin hafa verið ýmis loðin fyrirheit en mörgum spurning- um er ósvarað. Um þetta er eftirfarandi að segja. Í fyrsta lagi er ekki á vísan að róa. Óvíst er að hægt verði að ná samningum um upp- gjör þrotabúa gömlu bankanna, snjóhengj- una og afnám gjaldeyrishafta sem skila ríkissjóði (eða Seðlabanka) umtalsverðum fjármunum, í krónum. Það er þó alls ekki útilokað. Fordæmin eru m.a. Avens-samn- ingurinn svokallaði frá árinu 2010. Hér væri þó um mun flóknari samninga að ræða og hærri upphæðir. Sóknarfæri ríkissjóðs í slíkum samningum byggja á þeirri sorglegu staðreynd að útlendingum er almennt enn meira í nöp við krónuna en Íslendingum. Því geta allir haft hag af samningum. Það þarf samninga. Fyrirheit um eigna- upptöku, afturvirka skattlagningu og því um líkt eru merkingarlaus af þeirri einföldu ástæðu að auðvelt væri að verjast slíku með aðstoð dómsstóla. Það myndi engu skila nema margra ára töf. Skiptir þá engu þótt e.t.v. sé hægt að magna upp andúð á and- litslausum útlendingum meðal almennings, m.a. líkja þeim við hræfugla. Í öðru lagi er ekki sjálfgefið hvernig á að verja slíku fé, þegar og ef það skilar sér. Þar skipta sömu sjónarmið máli og þegar fjallað er um aðrar tekjur ríkissjóðs. Hægt er að verja þeim til að bæta heilbrigðiskerf- ið, menntakerfið, vegakerfið o.s.frv., lækka skatta eða lækka skuldir hins opinbera. Svo er auðvitað hægt að lækka skuldir tiltekinna þjóðfélagshópa eins og ýmsir leggja nú til. Eignalítið fólk varð verst úti Of snemmt er að ákveða slíkt nú, ekk- ert frekar en það er tímabært að ráðstafa hugsanlegum olíuauð Íslendinga. Þó verður að benda á að flöt lækkun húsnæðisskulda er mjög ómarkviss og ósanngjörn nýting opinberra fjármuna. Hún rennur eðli máls skv. að stærstum hluta til hátekjufólks á höfuðborgarsvæðinu. Þar eru skuldirn- ar mestar. Þar er hins vegar ekki vand- inn mestur. Standi pólitískur vilji til þess að nota almannafé til að taka enn frekar á vanda skuldsettra heimila sem urðu illa úti í sviptingum undanfarinna ára væri mun markvissara og eðlilegra að gera það með aðgerðum sem styddu þrengri hóp, sérstak- lega eignalítið lág- og meðaltekjufólk sem keypti sitt fyrsta húsnæði á árunum 2004 til 2008. Sá hópur varð verst úti vegna hús- næðisbólunnar. Nýting skógarfugla SKULDAMÁL Gylfi Magnússon dósent í viðskipta- fræði og fyrrver- andi efnahags- og viðskiptaráðherra ➜ Flöt lækkun húsnæðisskulda er mjög ómarkviss og ósanngjörn nýting opinberra fjármuna. Á samkomulagi ríkisins og Reykjavíkurborgar um Reykjavíkurflugvöll, sem var undirritað fyrir helgi, eru ýmsir jákvæðir fletir. Með því að fækka flug- brautum um eina (sem var nánast ekkert notuð) græðir borgin dýrmætt byggingarland á eftirsóttasta stað. Sömuleiðis verður bætt úr herfilegu aðstöðuleysi á flugvellinum með nýrri flugstöð. Svo lengi sem miðstöð innanlandsflugsins er í Vatnsmýrinni, þarf aðstaða farþeganna að vera í lagi. Hins vegar blasir við að sambúð flugvallarins og borgar- innar verður æ erfiðari. Til að liðka fyrir samkomulaginu um byggingarlandið féllust borgaryfirvöld í Reykjavík á mjög svo umdeilanlegar kröfur ríkisvaldsins, annars vegar um að saga niður elzta skóginn í Öskjuhlíð og hins vegar um að reisa skelfilega ljót og fyrirferðar- mikil lendingarljós á útivistarsvæðinu við Skerjafjörð. Fulltrúar meirihlutans og Vinstri grænna í umhverfis- og skipulagsráði féllust á þetta á fundi fyrr í mánuðinum, en vildu þó „árétta að umhverfis flugvöllinn eru mikilvæg útivistarsvæði sem brýnt er að vernda“. Hvernig getur það talizt vernd útivistar- svæðis að fella einn elzta og grózkumesta skóginn í borginni? Á sama fundi bókuðu tveir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, þau Gísli Marteinn Baldursson og Hildur Sverrisdóttir, meðal annars að flugmálayfirvöld hefðu verið treg til að viðurkenna að flugvöll- urinn í Vatnsmýri uppfyllti ekki tilmæli Alþjóðaflugmálastofnun- arinnar um öryggismál. „En kröfur þeirra um fellingu elsta hluta skógarins í Öskjuhlíðinni sem nú vakna upp á ný og umfangsmikil lendingarljós á Ægisíðunni færa Reykvíkingum heim sanninn um að flugvöllurinn er of frekur í umhverfi sínu í miðborg Reykja- víkur. Borgaryfirvöld ættu að hafna slíkum kröfum, rétt eins og þau höfnuðu stórum ljósamöstrum í Hljómskálagarðinum þegar flugvallaryfirvöld reyndu að fá þau í gegn.“ Þetta er mikilvægt atriði í umræðum um það hvort flugvöllur- inn eigi að fara eða vera. Finnst borgarbúum upp til hópa í lagi að ganga á náttúruna og möguleika þeirra til útivistar í þágu innan- landsflugsins? Helgi Gíslason, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykja- víkur, andmælti fellingu skógarins í Öskjuhlíð harðlega í frétt í vefútgáfu Fréttablaðsins í gær. Hann bendir á að það sé ekki nauðsynlegt að fella trén. Málið snúist fremur um að takmarka geti þurft fjölda farþega og þyngd farms í flugvélum sem taka á loft í átt að Öskjuhlíðinni. Það komi hins vegar niður á hag- kvæmni. Full ástæða er til að spyrja hvers vegna fara eigi þá leið að spilla útivistarsvæðum borgarbúa, fremur en að setja slíkar takmarkanir og hlífa skóginum. Það er sömuleiðis tilefni til að setja spurningarmerki við að fulltrúar flokksins sem kennir sig við umhverfisvernd, Vinstri grænna, hafi séð ástæðu til þess að standa að þessum samþykktum, bæði hjá ríki og borg. Er þetta umhverfisverndarpólitík? Eða er kannski í lagi að saga niður stærstu trén í Öskjuhlíðinni af því að þau eru af útlendum tegundum? Eru hagsmunir innanlandsflugsins númer eitt og útivistar og náttúru númer tvö í Reykjavík? Frekur flugvöllur Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is VIÐ VILJUM VITA MÖGULEG INNGANGA ÍSLANDS Í EVRÓPUSAMBANDIÐ SNÝST UM HAGSMUNI ALMENNINGS – UM LÍFSKJÖR – UM FRAMTÍÐ. KLÁRUM VIÐRÆÐURNAR OG SJÁUM SAMNINGINN. JAISLAND.IS Fundið fé á lokasprettinum Síðustu vikur og dagar fyrir kosningar hafa löngum verið viðburðaríkir þar sem meðal annars virðast finnast fjármunir í margvísleg þjóðþrifa- verkefni og önnur staðbundnari, auk þess sem langvinn verkefni klárast rétt í tæka tíð. Að undan- förnu hefur ríkisstjórnin, svo fátt eitt sé nefnt, gengið frá samningi um uppbyggingu á Bakka við Húsavík, opnun fjármála ríkisins, ókeypis tann- lækningar fyrir börn (en ekki öll börn í einu), nýtt fangelsi, nýja flugstöð og framlag til endurbóta á björgunarskipum. Gömlu trikkin Ögmundur Jónasson innanríkisráð- herra á heiðurinn af síðustu þremur málunum, en hann hefur boðað til blaðamannafundar í Vestmanna- eyjum í dag. Ekki þarf mikið hug- myndaflug til að gefa sér að þar verði lofað einu eða öðru um bættar sam- göngur milli lands og Eyja. Ef rétt er munað er núverandi Herjólfur einmitt afsprengi sömu tilhneiging- ar, en annar VG-liði, Steingrímur J. Sigfússon, undirritaði kaupsamn- ing um hann korteri fyrir kosningar árið 1991. Elstu trikkin í bókinni þreytast seint. Útgerðin og afkoman Kristján Loftsson, stjórnarformaður stórútgerðarinnar HB-Granda, sagði í ræðu að þeim „óskapnaði“ sem veiðigjöldin væru þyrfti að henda fyrir róða þar sem þau væru íþyngjandi fyrir útgerðirnar. Í gær var svo tilkynnt að 1,7 milljarður króna yrði greiddur hluthöfum HB-Granda í arð fyrir síðasta ár. Félagið greiddi fyrir sama tíma rúmar 900 milljónir í veiðigjöld, en hljómurinn vegna meintrar skattpíningar á útgerðina hlýtur að vera æði holur í ljósi slíkra upphæða. thorgils@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.