Fréttablaðið - 23.04.2013, Blaðsíða 39
| SMÁAUGLÝSINGAR |
tilkynningar
ÞRIÐJUDAGUR 23. apríl 2013 19
ÚTBOÐ
Nýr Landspítali við Hringbraut,
sjúkrahótel og bílastæðahús
Forval nr. 15452 fyrir hönnunarútboð
Undirbúningur 1. áfanga uppbyggingar nýs Landspítala
við Hringbraut hefur nú staðið um þó nokkurt skeið.
Í nóvember 2012 lauk hönnunarhópurinn SPITAL við
forhönnun heildarverkefnisins. SPITAL vann einnig tillögu
að nýju deiliskipulagi fyrir Landspítalareit sem tók gildi 4.
apríl 2013. Nú er komið að forvali fyrir fullnaðarhönnun
heildarverkefnisins, en því hefur verið skipt upp í 4 aðskilin
hönnunarútboð; um 58.500 m2 meðferðarkjarna, um 14.000
m2 rannsóknarhús, um 21.300 m2 bílastæðahús (með
skrifstofuhluta og tæknihluta) og um 4.000 m² sjúkrahótel.
Forval það er hér er auglýst snýr að tveimur einfaldari
verkefnunum, sjúkrahóteli og bílastæðahúsi.
Nýr Landspítali ohf. (NLSH) óskar eftir umsóknum um
þátttökurétt í útboði á fullnaðarhönnun sjúkrahótels og/
eða bílastæðahúss sem verða hluti af nýjum Landspítala
við Hringbraut í Reykjavík. Hér er um að ræða opið forval
auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), en útboðin
verða lokuð öðrum en þeim bjóðendum sem tekið hafa
þátt í forvalinu og uppfyllt allar kröfur þess.
Engin takmörkun er á fjölda bjóðenda. Þannig verður öll-
um umsækjendum sem uppfyllt hafa kröfur forvalsgagna
og þannig staðist forval boðið að taka þátt í lokuðum
aðskildum hönnunarútboðum fyrir sjúkrahótel og/eða
bílastæðahús eftir því sem við á. Ekki er gefin einkunn fyrir
hæfni og reynslu og því mun tilboðsfjárhæð hafa 100%
vægi í hönnunarútboðunum.
Ekki verður greitt fyrir þátttöku í forvali þessu.
Öll gögn í forvali þessu, útboði og í verkinu í heild, skulu
vera á íslensku að undanskildum tæknilegum forskriftum
og samskiptum við nauðsynlega birgja, vottunaraðila
o.fl. sem mega vera á ensku. Þó er heimilt að senda inn
fyrirspurnir á ensku.
Þeir fyrirvarar eru gerðir strax í upphafi að útboð á hönn-
un muni þá aðeins fara fram að verkefninu verði tryggð
fjármögnun á fjárlögum. Niðurstöður forvalsins skulu
gilda í 9 mánuði eftir að þær liggja fyrir. Þátttaka í forvali
gefur umsækjendum kost á því að taka þátt í útboði á
öðru verkefninu eða báðum, en skuldbindur þá ekki til
þess. Forval þetta er án skuldbindingar fyrir verkkaupa,
hvort og hvenær verkefnið verður boðið út og þá í hvaða
áföngum.
Forvalsgögn verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa
www.rikiskaup.is frá og með þriðjudeginum 23. apríl nk.
Umsóknum í forvalið skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni
7c, 105 Reykjavík, eigi síðar en fimmtudaginn 18. júlí fyrir
kl: 10:00 þar sem þær verða opnaðar.
ÚTBOÐ
Nýr Landspítali við Hringbraut,
meðferðarkjarni og rannsóknarhús
Forval nr. 15453 fyrir hönnunarútboð
Undirbúningur 1. áfanga uppbyggingar nýs Landspítala
við Hringbraut hefur nú staðið um þó nokkurt skeið.
Í nóvember 2012 lauk hönnunarhópurinn SPITAL við
forhönnun heildarverkefnisins. SPITAL vann einnig tillögu
að nýju deiliskipulagi fyrir Landspítalareit sem tók gildi 4.
apríl 2013. Nú er komið að forvali fyrir fullnaðarhönnun
heildarverkefnisins, en því hefur verið skipt upp í 4 aðskilin
hönnunarútboð; um 58.500 m2 meðferðarkjarna, um 14.000
m2 rannsóknarhús, um 21.300 m2 bílastæðahús (með skrif-
stofuhluta og tæknihluta) og um 4.000 m² sjúkrahótel.
Forval það er hér er auglýst snýr að tveimur flóknari
verkefnunum, meðferðarkjarna og rannsóknarhúsi.
Nýr Landspítali ohf. (NLSH) óskar eftir umsóknum um þátt-
tökurétt í útboði á fullnaðarhönnun meðferðarkjarna og/
eða rannsóknarhúss sem verða hluti af nýjum Landspítala
við Hringbraut í Reykjavík. Hér er um að ræða opið forval
auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES), en útboðin
verða lokuð öðrum en þeim bjóðendum sem tekið hafa
þátt í forvalinu og uppfyllt allar kröfur þess.
Engin takmörkun er á fjölda bjóðenda. Þannig verður öll-
um umsækjendum sem uppfyllt hafa kröfur forvalsgagna
og þannig staðist forval boðið að taka þátt í lokuðum
aðskildum hönnunarútboðum fyrir meðferðarkjarna og/
eða rannsóknarhús eftir því sem við á. Ekki er gefin
einkunn fyrir hæfni og reynslu og því mun tilboðsfjárhæð
hafa 100% vægi í hönnunarútboðunum.
Ekki verður greitt fyrir þátttöku í forvali þessu.
Öll gögn í forvali þessu, útboði og í verkinu í heild, skulu
vera á íslensku að undanskildum tæknilegum forskriftum
og samskiptum við nauðsynlega birgja, vottunaraðila o.fl.
sem mega vera á ensku. Þó er heimilt að senda inn fyrir-
spurnir á ensku og starfsferilslýsingar erlendra ráðgjafa
mega einnig vera á ensku.
Þeir fyrirvarar eru gerðir strax í upphafi að útboð á hönn-
un muni þá aðeins fara fram að verkefninu verði tryggð
fjármögnun á fjárlögum. Niðurstöður forvalsins skulu
gilda í 9 mánuði eftir að þær liggja fyrir. Þátttaka í forvali
gefur umsækjendum kost á því að taka þátt í útboði á
öðru verkefninu eða báðum, en skuldbindur þá ekki til
þess. Forval þetta er án skuldbindingar fyrir verkkaupa,
hvort og hvenær verkefnið verður boðið út og þá í hvaða
áföngum.
Forvalsgögn verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa
www.rikiskaup.is frá og með þriðjudeginum 23. apríl nk.
Umsóknum í forvalið skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni
7c, 105 Reykjavík, eigi síðar en fimmtudaginn 18. júlí fyrir
kl: 11:00 þar sem þær verða opnaðar.
Stórhöfða 31 Δ 110 Reykjavík Δ sími 569 3000 Δ stafir@stafir.is
www.stafir.is
Kjörfundur
Stafa
2013
Kjörfundur Stafa lífeyrissjóðs er boðaður 14. maí 2013 kl. 17:00
að Stórhöfða 27, jarðhæð. Þar verða kjörnir fulltrúar launamanna
í stjórn og varastjórn Stafa til tveggja ára.
Framboðsfrestur til aðal- og varastjórnar rennur út 8. maí 2013.
Við viljum sjá konur jafnt sem karla í hópi frambjóðenda!
Framboð skulu send kjörnefnd í tölvupósti, kjornefnd@stafir.is,
eða skriflega á skrifstofu Stafa.
Aðalfundur
Norræna félagsins
í Reykjavík
Aðalfundur Norræna félagsins í Reykjavík verður
haldinn þriðjudaginn 8. maí kl. 17:00 á skrifstofu
Norræna félagsins, Óðinsgötu 7, Reykjavík.
Stjórnin
Aðalfundur
Eflingar-stéttarfélags 2013
Aðalfundur Eflingar - stéttarfélags 2013 verður
haldinn á Grand Hótel þriðjudaginn 30. apríl 2013.
Fundurinn hefst kl. 20.00
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Breyting á reglugerð Sjúkrasjóðs
3. Viðbygging við Sætún 1
4. Önnur mál
Endurskoðaðir reikningar félagsins liggja frammi
á skrifstofunni að Sætúni 1 Reykjavík frá og með
þriðjudeginum 23. apríl nk.
Félagar mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Eflingar-stéttarfélags
Blaðberinn bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...