Fréttablaðið - 23.04.2013, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 23. apríl 2013 | SKOÐUN | 17
Það eru að koma kosningar og
vafalaust eru enn margir óákveðn-
ir, velta fyrir sér hvort staðið verði
við stóru orðin? Kosningamálin
eru margvísleg og mismikilvæg
eftir því hvar maður er í pólitík og
hvað brennur á manni. Ég verð að
viðurkenna að það eru nokkur mál
sem mér þykja enn frekar óljós og
raunar nauðsynlegt að velta þeim
vandlega fyrir sér og hvaða lausnir
flokkarnir bjóða upp á.
Sem „miðstéttarauli“, eins og
einhver orðaði það svo skemmti-
lega um daginn, á miðjum aldri
og með ung börn þykir mér býsna
mikilvægt að horfa til stöðug-
leika og öryggis hvað fjármálin
varðar og að ég þurfi ekki að fara
nokkrum sinnum í rússibanareið
næstu áratugina með tilheyrandi
svekkelsi og vanlíðan. Ég sem
læknir hef orðið svo tilfinnanlega
var við það, líkt og kollegar mínir,
hvaða áhrif það hefur á líf og líðan
fólks að lifa við slíkt óöryggi. Þrátt
fyrir fögur fyrirheit get ég samt
ekki með góðu móti séð hvaða
flokkur ætlar að tryggja mér slíkt
öryggi, breyturnar eru einfaldlega
of margar til þess að hægt sé að
stjórna þeim með einhverri vissu.
Ég er hins vegar sannur Íslend-
ingur og ekkert á því að gefast
neitt upp, mér þykir það þó óneitan-
lega traustvekjandi þegar mér er
tjáð af fullri hreinskilni hvernig
ástandið er og ég upplýstur nægj-
anlega vel um fyrirætlanir þeirra
sem ætlast til að ég fylgi þeim. Það
þykir mér hafa brugðist ítrekað og
veldur ákveðinni tortryggni í garð
þeirra sem vilja leiða. Nú þykist ég
ekkert vita betur, heldur lýsi ein-
faldlega því hvernig mér líður og
eflaust eru býsna margir sammála
mér. Það er auðvitað augljóst fyrir
okkur öllum sem búum á Íslandi að
það eru erfiðir tímar, það er allt í
lagi, við höfum þolað margt verra.
Ég hef stundum líkt ástandinu við
erfiðan sjúkdóm, þó að það sé erfitt
að glíma við slíkt eru flestir sam-
mála því í dag að það eigi ekki að
pukrast eða fela neitt. Sjúklingnum
farnast oftsinnis betur ef hann veit
hvað hann er að eiga við, þá er ég
líka að meina óvissuna sem felst í
því hvort viðkomandi muni ná bata.
Sá málaflokkur sem ég þekki
best til er orðinn að kosninga-
máli fyrir tilstuðlan margra aðila
og er það vel. Heilbrigðis og vel-
ferðarkerfið hefur verið máttar-
stólpi og stolt íslensks samfélags
að öðrum ólöstuðum og þori ég
að fullyrða að óvíða fyrirfinnst
slíkt kerfi í jafn miklu fámenni
sem hér er. Allt of lengi hefur það
verið talið sjálfsagt að hér sé veitt
fyrsta flokks þjónusta og aldrei
hefur það verið reiknað fylli-
lega til tekna, svo mér sé kunn-
ugt um það, hverju kerfið skilar í
milljarðatugum til samfélagsins
á hverju ári í þeirri þjónustu sem
það veitir. Við getum verið stolt af
því og við munum verja það með
kjafti og klóm! Hins vegar þarf
að taka erfiðar ákvarðanir inn í
framtíðina um þróun þess og getu
sem hafa mun víðtækari áhrif á
okkur en breytingar á stjórnar-
skrá landsins svo dæmi sé tekið
og við erum ekki farin að ræða
þessi mál af alvöru enn þá, því
miður.
Það er vissulega hægt að fá
magasár af áhyggjum og senni-
lega er streita og vanlíðan einn
allra stærsti áhættuþátturinn,
en það á sömuleiðis við um flesta
aðra sjúkdóma. Ástæðan er mjög
einföld og felst í því að ónæmis-
kerfið okkar er veiklað þegar
við erum undir miklu álagi. Það
mætti líkja þessu við þjóðar búið
og segja sem svo að það verði að
ríkja ákveðið jafnvægi til þess að
það geti blómstrað. En hvernig
það skuli nákvæmlega gert held
ég að enginn viti, líklega höfum
við komist einna næst því ein-
mitt á Íslandi og á Norðurlöndun-
um að skapa samfélag sem aðrir
geta öfundað okkur af og ætli
grunnurinn að því hafi ekki verið
ákveðni, kjarkur og þor. Nú þarf
kænsku, útsjónarsemi, hreinskilni
og heiðar leika til að koma okkur í
varanlegt skjól og ætli það sé ekki
einmitt blandan sem ég er að leita
að í þessum kosningum.
Magasár, kosningaskjálfti
og vanlíðan…
HEILSA
Teitur
Guðmundsson
læknir
…það eru erfiðir
tímar, það er allt í lagi,
við höfum þolað margt verra.
Mér er minnis-
stætt hvað Eva
Joly sagði þegar
hún kom hingað
til lands stjórn-
völdum til ráð-
gjafar um rann-
sókn á þeim
þáttum banka-
hrunsins sem
gætu varðað við
lög.
Það var á þá
leið að þegar
liði á yrði margt gert til að tor-
velda rannsókn mála; gera rann-
sakendur tortryggilega, aðferðir
þeirra og framgangsmáta, jafn-
vel þá sem persónur.
Það er mikið inngrip í líf
manna þegar gjörðir þeirra eru
settar undir rannsókn lögreglu,
viðskipti þeirra og bankafærslur
skoðaðar, símar jafnvel hleraðir
og tölvupóstur haldlagður.
Einmitt þess vegna hef ég
viljað setja strangar reglur um
hvenær heimilt er að beita rann-
sóknaraðferðum sem ganga
svo nærri friðhelgi manna.
Hef ég þar viljað ganga lengra
til verndar friðhelgi einstak-
lingsins en flestir forverar mínir
og meirihluti Alþingi hefur fall-
ist á. En þegar rökstuddur grun-
ur er á stórfelldum brotum sem
valdið hafa einstaklingum,
hópum eða jafnvel samfélaginu
öllu miklum skaða − eins og
óneitanlega gerðist með sviksam-
legum aðgerðum í fjármálakerfi
okkar − þá geta rannsóknahags-
munir réttlætt inngrip, alltaf þó
með skýrri skírskotun til laga og
reglna og samkvæmt dómsúr-
skurði.
Rannsóknum lögreglu á
framangreindum forsendum
hefur nokkuð verið andmælt og
hafa slík andmæli farið vaxandi
eftir því sem liðið hefur á þetta
ár. En ekki virðast þeir sem nú
andmæla hafa haft áhyggjur af
rannsóknar- og eftirlitstörfum
lögreglu í tímans rás, reglum
sem áður voru mjög óskýrar og
rannsóknir gátu jafnvel beinst að
stjórnmálasamtökum eða gras-
rótarhópum. Og ekki virðast
áhyggjurnar heldur beinast
að þeim sem grunaðir eru um
verslun með fíkniefni svo dæmi
séu tekin.
Nei, það eru hvítflibbamenn
sem áhyggjur beinast einvörð-
ungu að. Og eftir því sem líður
á rannsókn hugsanlegra hvít-
flibbabrota þeim mun háværari
verða andmælendur. Gott ef ekki
er farið að gæta tilhneigingar til
að grafa undan trúverðugleika
embættis Sérstaks saksóknara og
jafnvel persónum sem þar starfa.
Kannski þarf þetta ekki að
koma neinum á óvart. Ekki þeim
sem hlustuðu á Evu Joly á sínum
tíma. Því það var nákvæmlega
þetta sem hún sagði að myndi
gerast.
Eva Joly sagði það
RANNSÓKNIR
Ögmundur
Jónasson
innanríkisráðherra
➜ Og eftir því sem líður
á rannsókn hugsanlegra
hvítfl ibbabrota þeim mun
háværari verða andmæl-
endur. Gott ef ekki er farið
að gæta tilhneigingar til að
grafa undan trúverðugleika
embættis Sérstaks saksókn-
ara og jafnvel persónum
sem þar starfa.
FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU
JÖFN TÆKIFÆRI KYNJANNA„
– ÞESS VEGNA KÝS ÉG VG“
ODDUR SIGURJÓNSSON
AÐSTOÐARVERKEFNASTJÓRI
Á FRÍSTUNDAHEIMILI