Fréttablaðið - 23.04.2013, Side 35
BÍLAR 3Þriðjudagur 26. mars 2013
FRÉTTABLAÐIÐ
Í fyrra voru fimmtíu ár síðan Bernhard hóf innflutning á
Honda-mótorhjólum og því óhætt að segja að innanhúss sé
að finna mikla þekkingu á merkinu. „Við erum með afar
breiða línu af Honda-mótorhjólum. Allt frá fimmtíu kúbika
torfæruhjólum fyrir sex ára krakka og upp úr,“ segir Hlyn-
ur Pálmason, sölustjóri bifhjóla hjá Bernhard. Hann segir
mótorhjólamenningu Íslendinga hafa tekið stórstígum fram-
förum á síðustu árum. „Þetta hefur breyst úr því að vera
helgaráhugamál hjá þröngum hópi í að hjól eru notuð sem al-
hliða ferðatæki í vinnu, leik og ferðamennsku.“
Hlynur segir vinsælustu hjólin í dag vera ferðahjól. „Við finn-
um fyrir aukinni eftirspurn eftir hjólum sem eru bæði fyrir
malbik og malarvegi og sem komast út fyrir hefðbundna
vegi,“ útskýrir hann og bendir á að Bernhard bjóði upp á
breiða línu í ferðahjólum enda algengt að pör stundi hjóla-
ferðamennsku saman og
jafnvel heilu fjölskyld-
urnar líka.
Hjól við allra
hæfi
Hlynur segir
helstu kosti
Honda-bif-
hjólanna vera gæði og gott verð. „Honda er einn stærsti véla-
framleiðandi í heimi og gæðin eru því í góðu lagi. Þá leggjum
við hjá Bernhard mikinn metnað í að bjóða gott verð og mikið
úrval af hjólum,“ upplýsir Hlynur. Hann segir öryggið einn-
ig í fyrirrúmi enda leggi Honda mikið upp úr öryggisbúnaði
á mótorhjólin sín. „Þeir voru til dæmis fyrstir til að hanna
loftpúða á mótorhjól. Þá eru flestar gerðirnar sem í boði eru
fáanlegar með ABS-hemlakerfi,“ segir Hlynur og bætir við
að Bernhard sé með hjól við allra hæfi. „Hvort sem um er að
ræða byrjendur eða lengra komna, þá eigum við rétta hjólið.“
Starfsmenn Bernhard búa yfir mikilli reynslu og aðstoða
fólk eftir bestu getu. „Þegar fólk er að kaupa sér hjól reynum
við að greina áhugasvið þess og þarfir. Það er misjafnt eftir
hverju fólk er að leita og við reynum að benda því í rétta átt
hvað varðar stærð og afl.“
Verðið á mótorhjólunum frá Honda þykir gott. „Ný fullvaxin
götuhjól er hægt að fá hjá okkur frá 1.099.000 krónum. Svo
erum við líka með eldri módel, svokölluð eftirársmótorhjól, á
tilboðsverði og því hægt að gera góð kaup.“
Vespur í stað bíla
Fólk er í meiri mæli farið að nota vespur til að komast á milli
staða að sögn Hlyns. „Bæði er þetta skemmtilegur lífsstíll
en auk þess er þetta afskaplega praktískur ferðamáti,“ segir
hann og nefnir sem dæmi að hægt sé að kaupa hjól sem eyði
ekki nema 2,1 lítra á hundraði. „Við erum að selja 125 kú-
bika vespur og fólk er margt hvert farið að kaupa slík hjól í
staðinn fyrir aukabíl á heimilið,“ segir Hlynur en þeir sem
kaupa slík hjól eru iðulega fólk sem komið er yfir tvítugt.
„Fjölskyldufólk nýtir vespuna oft í staðinn fyrir bíl númer
tvö og sparar þannig heilmikið í rekstrarkostnað.“
Bernhard býður
upp á vesputilboð um þessar mundir sem hljóðar upp á 569
þúsund krónur. „Þetta hjól, Honda PCX 125, er búið skemmti-
legri og umhverfisvænni tækni sem kallast stopp/start tækni
líkt og í tvinnbílum. Þegar þú stoppar hjólið á ljósum drep-
ur það á vélinni eftir þrjár sekúndur og ræsir sig sjálfkrafa
þegar þú gefur í til að fara af stað.“
Aukahlutir, fjármögnun og viðgerðir
Bernhard býður upp á mikið úrval aukahluta á hjólin sín. Þá
hefur fyrirtækið yfir að ráða fullkomnu bifhjólaverkstæði í
Vatnagörðunum.
Fjármögnun á bifhjólum á ekki að vera vandamál að sögn
Hlyns. „Við aðstoðum fólk við það en í dag er hægt að fá til-
tölulega háa fjármögnun á hjól,“ útskýrir hann. Þá séu
tryggingar á hjól einnig orðnar sanngjarnari í dag
en áður.
Inntur eftir vinsældum mótorhjóla svarar
Hlynur að gríðarleg aukning hafi orðið
í mótorhjólasölu fyrir hrun. „Árið 2007
vorum við að selja hátt í fimm hundruð
hjól á ári. Eftir hrun dró mikið úr söl-
unni en við bindum vonir við að þetta
sé að breytast og okkur finnst sem
áhuginn sé að glæðast á ný.“
Bernhard ehf. frumsýnir 2013 ár-
gerðirnar af Honda-hjólum á sýning-
unni „allt á hjólum“ í Fífunni 4.-5. maí
næstkomandi.
HONDA MÓTORHJÓL – GÆÐI OG GOTT VERÐ
Bernhard í Vatnagörðum 24-26 hefur flutt inn Honda-mótorhjól í hálfa öld. Honda er þekkt fyrir gæði
og góða endingu. Mótorhjólamenning Íslendinga hefur þroskast mikið undanfarin ár.
Hlynur Pálma-
son, sölustjóri
bifhjóla, við
Honda CB1100
mótorhjól.
MYND/GVA
Honda PCX
125 Vespa
VT750C2B
Integra Scooter
Crosstourer Adventure
Götuhjól af gerðinni Honda NC700S.
KYNNING