Fréttablaðið - 23.04.2013, Síða 37
BÍLAR 5Þriðjudagur 23. apríl 2013
Audi RS4
er einn
alskemmti-
legasti,
fallegasti,
öflugasti og
geðveikasti
bíll sem
undirritaður
hefur ekið.
Það eru varla til þær torfærur sem trukkurinn Unimog frá Merce-
des Benz kemst ekki yfir og þó nokkuð margir þeirra eru til hér
á landi. Alla bíla þarf þó að uppfæra og aðlaga nýjum mengunar-
reglum og stutt er í gildistöku EURO 6 mengunarstaðalsins. Því
hefur Benz þurft að endurhanna Unimog-flota sinn en að auki hafa
bílarnir fengið nýtt nafnakerfi. U stendur fyrir Unimog en næsti
tölustafur stendur fyrir stærð bílsins og þeir tveir síðustu fyrir
vélarafl. Því er U216 af frekar nettri gerð og með 160 hestafla vél
en U530 er mun stærri bíll með 300 hestafla vél.
Tvær nýjar dísilvélar
Talsverðar útlitsbreytingar hafa einnig orðið á bílnum og hefur
hann fengið að miklu leyti nýjan framenda. Allar gerðir Unimog
uppfylla nú EURO 6 mengunarstaðalinn sem tekur gildi í septem-
ber á næsta ári. Tvær nýjar vélar er nú að finna í Unimog, 5,1 lítra
dísilvél með forþjöppu sem finna má í gerðunum U216, U218, U318
og U423. Einnig er komin 7,7 lítra dísilvél með forþjöppu sem finna
má í gerðunum U427, U430, U527 og U530. Gírkassinn í þessum
bílum hefur átta gíra áfram og sex aftur á bak og hann er „hálf“-
Mercedes Benz uppfærir Unimog
Mercedes Benz Unimog
4,2 BENSÍNVÉL, 450 HESTÖFL
FJÓRHJÓLADRIF
Eyðsla 10,7 l./100 km í bl.
akstri
Mengun 249 g/km CO2
Hröðun 4,7 sek.
Hámarkshraði 280 km/klst
Verð Ekki uppgefið, en 78.000
Evrur í Þýskalandi
Umboð Hekla
● Ótrúlegt afl
● frábærir aksturseiginleikar
● mikið pláss
● Hátt verð
AUDI RS4
efnisnotkun alveg í toppklassa.
Eitt af því sem fikta má í þar
er takki fyrir akstursstillingar.
Þeirra sportlegust er
Dynamic-stillingin og þá
breytist villidýrið í mannætu
og bíllinn skiptir sér seinna
upp og hangir svo í gírunum
að hámarkssnúningi er náð
í flestum gírum. Þá er líka
gaman. Audi RS4 er einn
alskemmtilegasti, fallegasti,
öflugasti og geðveikasti bíll sem
undirritaður hefur ekið. Það
hlýtur að vera draumur einn að
eiga slíkan bíl og eigendur hans
taka örugglega lengri leiðina
hvert sem farið er. Audi RS4 er
ekki bíll sem selst á hverjum
degi hérlendis í þessu árferði, en
vonandi hefur einhver svo góðan
smekk. Í Þýskalandi kostar
gripurinn 78.000 evrur, sem
myndi útleggjast á rétt um 12
milljónir króna, en þá á eftir að
leggja slatta af vörugjöldum og
hæsta söluskatt í Evrópu ofan á
það, svo hætt er við að hann kosti
nýjan eiganda um 20 milljónir
króna eða ríflega það.
Reykjavík Motor Center, Kleppsvegi 152, er
sannkallað himnaríki mótorhjólafólks. „ Í
glæsilegum 300 fermetra sýningarsalnum er
hægt að skoða mikið úrval nýrra og notaðra
hjóla. Í versluninni erum við með fatnað,
hjálma og allt sem snýr að öryggi hjólafólks.
Í varahlutaversluninni fást varahlutir í
allar gerðir hjóla og á verkstæðinu sinnum
við allri almennri viðgerð mótorhjóla.
Fullkomnasta hjólbarðaverkstæði fyrir
bifhjól á landinu er einnig að finna hjá
okkur,“ segir Eyþór Örlygsson, einn eigenda
RMC.
BMW-umboð á Íslandi
RMC selur og þjónustar BMW-hjól á Íslandi.
„Við byrjuðum að flytja inn þau hjól í fyrsta
skipti á Íslandi og móttökurnar hafa verið
mjög góðar. BMW er með flotta línu af
hjólum. Allt frá litlum scooterum upp í stór
ferðahjól og allt þar á milli. Einnig erum
við með umboð fyrir Aprilia, Moto Gussi,
Harley Davidson og Piaggio-vespur.
Vara- og aukahlutaverslun
Helstu merkin sem RMC þjónustar eru
BMW, Aprilia, Motogussi, Harley Davidson
og Piaggio. „Við reynum að eiga sem mest
af varahlutum í þessi hjól. Þá skiptir
engu hvort fólk kýs original varahluti eða
svokallaða aftermarket sem eru ódýrari
en oft í sambærilegum gæðum.“ Þó að
sérhæfingin hjá RMC sé í þessum fimm
mótorhjólategundum fást þar varahlutir í
allar gerðir hjóla með skömmum fyrirvara.
Vandaður fatnaður
Í verslun RMC fást margar gerðir hjálma
auk vandaðs fatnaðar. „Hvort sem fólk leitar
að leður- eða goretex-fatnaði þá finnst hann
hér. Við erum eingöngu með viðurkenndan
fatnað sem við treystum, en margar vörur
uppfylla ekki kröfur um lágmarksöryggi og
ber að varast.“ Allur fatnaður RMC státar
af því að vera með CE-merktar hlífar og
uppfylla ströngustu kröfur.
Glæsilegur sýningasalur
Í glæsilegum sýningarsal RMC má skoða ný
og notuð hjól af ýmsum stærðum og gerðum.
„Við erum með sérstök reynsluaksturshjól
frá BMW sem fólk getur komið og prófað en
það er frekar óalgengt að umboð bjóði upp á
reynsluakstur á sínum hjólum.“
Piaggio-vespur
RMC státar af umboði fyrir hinar þekktu og
vönduðu Piaggio-vespur sem framleiddar
hafa verið í um 60 ár. „Í okkar huga eru
þetta ekki leikföng heldur eyðslugrönn og
ódýr farartæki.“ Vespurnar eru raunhæfur
möguleiki sem aðalfarartæki eða farartæki
númer tvö fyrir heimili og einstaklinga
sem vilja minnka rekstrarkostnað.
„Rekstarkostnaður á mánuði fyrir 50cc
vespu miðað við 20 kílómetra akstur á dag er
um 7.200 krónur. Það er svipað og strætókort
kostar, en frelsið er mun meira á vespu. Inni
í þessari tölu er bensínkostnaður, öll gjöld
og tryggingar.“ Gæði Piaggio-vespanna
eru mjög mikil í samanburði við margt
sem í boði er. „Það er himinn og haf á milli
Piaggio og margra annarra framleiðenda
hvað gæði snertir. Þetta þekkjum við eftir
að hafa leigt þær út hjá Lunda-vespum.
Við byrjuðum með aðra tegund í leigu
sem nú eru allar úr sér gengnar en
Piaggio-vespurnar eru enn í fullu fjöri.“
Splunkuný heimasíða
Í dag verður opnuð ný heimasíða
fyrir tækisins, www.rmc.is. „Þar verður
söluvefur fyrir notuð hjól og almennar
upplýsingar um þær vörur og þjónustu
sem við bjóðum. Í framtíðinni stefnum
við svo að því að vera með vefverslun.“
Opnunartími Reykjavík Motor Center er
frá 12 til 18 á virkum dögum og frá 12 til
16 á laugardögum. Á verkstæðinu er opið
milli 9 og 17 alla virka daga. „Ég hvet
alla áhugasama til að líta við hjá okkur
á Kleppsveg 152. Við erum við Holtaveg,
beint á móti Holtagörðum, hinum megin
við Sæbrautina.“
ÖLL ÞJÓNUSTA Á EINUM STAÐ
HJÁ REYKJAVÍK MOTOR CENTER
Reykjavík Motor Center er draumastaður mótorhjólafólks með 300 fermetra sýningarsal, véla- og
dekkjaverkstæði auk verslunar sem selur vara- og aukahluti og vandaðan mótorhjólafatnað.
Hjá RMC er rekin verslun með fatnað fyrir mótor-
hjólafólk, vara- og aukahlutaþjónusta, fullbúið við-
gerðarverkstæði og fullkomnasta hjólbarðaverk-
stæði landsins. Þá eru ný og notuð hjól til sölu í
glæsilegum 300 fermetra sýningarsal. MYND/GVA
„Rekstararkostnaður 50cc vespu í mánuð miðað við 20 kílómetra akstur á dag er um 7.200 krónur. Það
er svipað og strætókort kostar,“ segir Eyþór Örlygsson