Fréttablaðið - 09.05.2013, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 09.05.2013, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 9. maí 2013 | FRÉTTIR | 11 ➜ Opinberi geirinn 1. Sameining stofnana ■ Fjöldi og smæð stofnana dregur úr sérhæfingu og gæðum veittrar þjónustu ■ Ráðast má strax í fjögur sameiningarverkefni sem skila miklum ávinningi. Löggæslu- stofnunum verði fækkað úr 17 í 1, heilbrigðis- stofnunum úr 16 í 7, framhaldsskólum úr 33 í 8 og sýslumönnum úr 26 í 1. 2. Efling sveitarstjórnarstigsins ■ Stærri sveitarfélög hafa minni burði til að veita íbúum sínum þjónustu og eru dýrari í rekstri ■ Fækka mætti sveitarfélögum úr 74 í 12 án þess að breyta núverandi landshlutaskiptingu. Slík sameining myndi bæta rekstur sveitar- stjórnarstigsins um 7% á ári 3. Heildstæð innkaupastefna 4. Skilvirkari þjónustusamningar 5. Aukið rafrænt þjónustuframboð 6. Betri heilbrigðisþjónusta ■ Fjárveitingar til ólíkra landsvæða þarf að veita út frá þörf íbúa fyrir heilbrigðisþjónustu en ekki innviðum sem eru fyrir ■ Festa þarf heilsugæsluna í sessi sem fyrsta áfangastað sjúklinga 7. Skilvirkara menntakerfi ■ Íslenska menntakerfið er dýrt en skilar ekki sama árangri og menntakerfi nágranna- landanna ■ Tækifæri til framleiðniaukningar mest á grunnskólastigi. Stækkun kennsluhlutfalls og fækkun námsára skilar mestum ávinningi. 8. Aukin atvinnuþátttaka öryrkja ➜ Innlendi þjónustugeirinn 1. Stjórnvöld og atvinnulíf starfi saman að eflingu samkeppnisumhverfis ■ Á Íslandi ríkir umtalsverð samþjöppun og algengt er að fá fyrirtæki standi undir stórum hluta markaðarins. Samt eru íslensk fyrirtæki smá. Finna þarf rétt jafnvægi milli samkeppni og stærðarhagkvæmni. 2. Stjórnvöld framkvæmi samkeppnismat við reglusetningar ■ Ríki og sveitarfélögum verði gert skylt að notast við samkeppnismat að alþjóðlegri fyrir- mynd við reglusetningu 3. Stuðlað verði að aukinni samkeppni á búvöru markaði ■ Lækka ætti almenna tolla um 50% og afnema tolla á svína- og alifuglakjöti að fullu auk tolla á vörum sem keppa ekki við innlenda framleiðslu. 4. Ráðist verði í átak til að einfalda regluverk ■ Regluverk getur haft mikil áhrif á efnahags- lega frammistöðu í gegnum beinan kostnað og framleiðnitap. Því er afar brýnt að regluverk sé nægjanlega skilvirkt til að jákvæðir þættir þess vegi þyngra en þeir neikvæðu 5. Neysluskattar verði jafnaðir og einfaldaðir ■ Miklar undanþágur frá virðisaukaskatti draga úr skilvirkni og innheimtum skatti skatt- kerfisins ■ Gera má kerfið hagkvæmt og gagnsætt með afnámi tolla og vörugjalda og einu lægra virðis- aukaskattsþrepi án kostnaðar fyrir ríkissjóð 6. Áskorunum vegna skuldsetningar atvinnu- lífsins verði mætt með skilvirkum hætti ➜ Auðlindageirinn 1. Samræmd stjórnun auðlinda ■ Núverandi fyrirkomulag auðlindastjórnunar er flókið og án hlutverkaskiptingar við ferlisins. Einfaldara fyrirkomulag er betra og skal stuðla að því að auðlindir séu nýttar til verðmæta- sköpunar á sjálfbæran og hagkvæman hátt 2. Straumlínulagað leyfisveitingaferli 3. Arðbærari orkuframleiðsla ■ Arður ríkisins af Landsvirkjun er neikvæður ef ábyrgð á skuldum er tekin með í reikninginn ■ Hið opinbera getur aukið virði eigna sinna í Landsvirkjun með eigendastefnu sem dregur úr pólitískum þrýstingi ■ Frelsi í fjármögnun myndi auka virði Lands- virkjunar enn frekar með því að gera félaginu kleift að vaxa á hagkvæmum hraða 4. Tækifæri í raforkusölu um sæstreng 5. Sjálfbær uppbygging ferðamannastaða ■ Án stjórnunar á flæði ferðamanna skemmast vinsælustu ferðamannastaðirnir vegna álags ■ Aðgangsgjöld draga úr átroðningi og skapa tekjur fyrir uppbyggingu ferðamannastaða 6. Langtímasamningar í fiskveiðum ■ Arðsemi og framleiðni í sjávarútvegi er með því besta sem þekkist. Sátt um kerfið skortir hins vegar og þar með pólitískan stöðugleika. ■ Langtímasamningar um nýtingarrétt gett tryggt hagkvæmni og sátt 7. Skilvirkt stuðningskerfi landbúnaðar ■ Niðurgreiðslur þurfa að færast frá sér- tækum búgreiðslustuðningi í átt að almennari jarðræktarstuðningi. ➜ Alþjóðageirinn 1. Aukið menntunarstig með styttingu grunn- og framhaldsskólanáms ■ Íslenskum nemendum verði gert kleift að út- skrifast á sama aldri og nemendur í nágranna- löndunum. Með því að stytta grunn- og framhalds skóla um eitt ár hvorn mætti minnka brottfall um 60%, fjölga háskólanemum og auka hlutfall starfandi. 2. Hvatar til að fjölga tækni- og raungreina- menntuðum ■ Hlutfall sem útskrifast úr raungreinum og verkfræði lægst hér af Norðurlanda ríkjunum ■ Auka þarf áhuga ungmenna á tækni- og raungreinum, auka hlutfall kennslustunda í raungreinum og efla færni kennara. 3. Skattaívilnanir og forgangsafgreiðsla fyrir erlenda sérfræðinga ■ Samkeppnishæfni Íslands um vinnuafl á alþjóðlegum vinnumarkaði er ábótavant 4. Opinbert fjármagn til rannsóknarstarfs verði nýtt með skilvirkari hætti ■ Hátt hlutfall fjárfestinga í rannsóknum og þróun skilar sér ekki sem skyldi í nýsköpunar- og atvinnutækifærum. ■ Einfalda þarf úthlutunarkerfi opinerra rann- sókna- og þróunarstyrkja sem leiðir til aukinnar skilvirkni og gagnsæi 5. Öflug fjárfestingaeining einkaaðila og hins opinbera á sprota- og vaxtastigi 6. Byggðir verði upp skattalegir hvart til fjár- festinga í nýsköpun 7. Regluverk fyrir erlenda fjárfestingu verði bætt HELSTU TILLÖGUR VERKEFNISSTJÓRNAR SAMRÁÐSVETTVANGSINS NÝSKÖPUN EYKUR VERÐMÆTI Arion banki styður við nýsköpun í atvinnulífinu Fjölmörg fyrirtæki í viðskiptum við Arion banka hafa nýsköpun að leiðarljósi í sinni viðskiptaþróun og eru að ná eftirtektar- verðum árangri. Við bjóðum þér á námskeið Mörg framsæknustu fyrirtæki heims nota Business Model Canvas við að þróa starfsemi sína og efla nýsköpun. Við bjóðum þér á námskeið um Business Model Canvas í höfuðstöðvum Arion banka 30. maí nk. kl. 9–10.30. Skráning og nánari upplýsingar á arionbanki.is.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.