Fréttablaðið - 09.05.2013, Page 36
9. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 32
Þegar mannskæð sprengja
springur í London miðri kemur í
ljós að tilræðismaðurinn er fyrr-
verandi liðsmaður stjörnuflotans,
John Harrison að nafni. Ljóst er
að Harrison hefur skipulagt
fleiri árásir og kemur það í hlut
áhafnar innar á stjörnuskipinu
Enter prise að stöðva hann áður
en meiri mannskaði hlýst.
Kvikmyndin Star Trek: Into
Darkness er sú tólfta í Star Trek
myndaröðinni og er í leikstjórn
J.J. Abrams sem leikstýrði einnig
Star Trek frá árinu 2009. Abrams
var einn af höfundum sjónvarps-
þáttanna Felicity sem sýndir voru
á árunum 1998 til 2002. Hann er
einnig höfundur sjónvarpsþátt-
anna Alias, Lost, Fringe og Per-
son of Interest. Meðal kvikmynda
sem hann hefur leikstýrt má
nefna stórmyndina Armageddon
frá árinu 1998 og Mission: Impos-
sible III frá 2006.
Chris Pine og Zachary Quinto
fara með hlutverk félaganna
James T. Kirk og Spocks í mynd-
inni. Með önnur hlutverk fara
Benedict Cumberbatch, Zoe
Saldana, Karl Urban, Simon Pegg
og Alice Eve.
Star Trek: Into Darkness fær
góða dóma víða og samkvæmt gagn-
rýnanda Variety er myndin það vel
gerð og ákaflega ánægjuleg áhorfs
að erfitt sé að finna að henni. Gagn-
rýnandi Hollywood Reporter líkir
myndinni aftur á móti við stóra
vél sem gerir það sem krafist er af
henni en er sneydd persónuleika og
stíl. Into Darkness hlýtur 83 pró-
sent í einkunn á vefsíðunni Rotten-
tomatoes.com og 8,4 í einkunn á
Imdb.com. - sm
Ánægjuleg geimferð
Kvikmyndin Star Trek: Into Darkness verður frumsýnd annað kvöld. Myndin er
sú tólft a í Star Trek myndaröðinni og skartar Chris Pine í hlutverki James T. Kirk.
Stutt- og heimildarmyndahátíðin
Reykjavík Shorts & Docs fer fram
í ellefta sinn dagana 9. til 16. maí
í Bíói Paradís, Kexi Hosteli og í
Slipp Bíói sem er í Hótel Marina.
Verðlaun eru veitt í tveimur
keppnisflokkum; besta heimildar-
mynd nýliða og besta íslenska
stuttmyndin. Átta myndir keppa
í síðarnefnda flokknum og sex
erlendar heimildar myndir
keppa í fyrrnefnda flokknum.
Heimildar myndirnar eiga það
allar sameigin legt að vera fyrsta
eða önnur kvikmynd leikstjórans.
Aðrir sýningarflokkar á hátíð-
inni eru pólskar stuttmyndir,
þýskar stuttmyndir, LGBT stutt-
og heimildarmyndir, náttúra og
útivist og loks íslenskar konur í
kvikmyndagerð.
Stutt- og heimildar-
myndir í Paradís
Bíóhátíðin Reykjavík Short & Docs hefst í dag.
STUTT Í PARADÍS Stutt- og
heimildarmynda hátíðin Reykjavík
Shorts & Docs hefst í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÁRATUGALÖNG SAGA STAR TREK
1966–1969 Þættirnir
hófu göngu
sína á
NBC-sjón-
varpsstöð-
inni þann
8. september 1966 og
skörtuðu leikaranum
William Shatner í hlut-
verki kapteins James
T. Kirk.
1987–1994 The Next Genera-
tion gerist rúmri öld
eft ir að Kirk og félagar
fóru djarfl ega á staði
sem enginn hafði
áður komið á. Patrick
Stewart fór með hlutverk kapteins
Jean-Luc Picard og stýrði nýju skipi;
Enterprise-D.
1993–1999 Deep Space Nine hefst þar
sem söguþræði The Next
Generation lauk. Avery Brooks
fer með hlutverk fl ugsveitar-
foringjans Benjamins Sisko.
1995–2001 Kate Mulgrew
leikur kaptein
Kathryn Janeway,
fyrsta kvenkyns
skipherrann í
sögu Star Trek.
Voyager gerist um svipað leyti
og Deep Space Nine.
2001–2005 Enterprise-
þáttaröðin
gerist á ár-
unum fyrir
upprunalegu
þáttaröðina.
Scott Bakula fer með hlutverk
kapteins Jonathans Archer.
Hrollvekjan Mama í leikstjórn
Andrés Muschietti er á meðal
þeirra kvikmynda sem verða
frumsýndar um helgina. Mynd-
in segir frá systrunum Victoriu
og Lilly, sem hverfa daginn sem
faðir þeirra myrti móður þeirra.
Föðurbróðir stúlknanna og sam-
býliskona hans, sem leikin eru af
Nikolaj Coster-Waldau og Jessicu
Chastain, leita að stúlkunum í
fimm ár þar til þær finnast dag
einn í niðurníddum kofa. Stúlkurn-
ar eru mannfælnar og dýrslegar í
hegðun í fyrstu en Lucas og Anna-
bel eru staðráðin í að taka þær í
fóstur. Fljótlega fara þó dularfullir
og hræðilegir atburðir að gerast.
Nýjasta kvikmynd leikstjór-
ans Harmony Korine, Spring
Breakers, verður frumsýnd í
Laugarásbíói á mánudag. Kor-
ine gerði garðinn frægan árið
1995 með handriti sínu að kvik-
myndinni Kids. Spring Breakers
skartar Selenu Gomez, Vanessu
Hudgens, Ashley Benson og James
Franco í aðalhlutverkum og segir
frá vinkonum sem lenda í vand-
ræðum eftir kynni sín við eitur-
lyfjasala að nafni Alien.
Heimildarmyndirnar How to
Survive a Plague og Mission to
Lars verða frumsýndar í Bíói
Paradís. Fyrrnefnda myndin var
tilnefnd til Óskarsverðlauna og
fjallar um baráttu bandarískra
grasrótarsamtaka við heilbrigðis-
kerfið og lyfjaiðnaðinn þegar
alnæmisfaraldurinn geisaði meðal
samkynhneigðra á níunda áratugn-
um.
Hrollvekjur og
heimildarmyndir
Hrollvekjan Mama og heimildarmyndin Mission to
Lars verða frumsýndar í bíóhúsum um helgina.
HROLL-
VEKJANDI
Hryllings-
myndin
Mama er á
meðal þeirra
kvikmynda
sem frum-
sýndar verða
um hel-
gina. Myndin
skartar
Nikolaj
Coster-Waldau
og Jessicu
Chastain
í aðal-
hlutverkum.
1965 1995 2013
1979 - Star Trek:
The Motion Picture
1982 - Star Trek II:
The Wrath of Khan
1984 - Star Trek III:
The Search for Spock
1986 - Star Trek IV:
The Voyage Home
1989 - Star Trek V:
The Final Frontier
1991 - Star Trek VI:
The Undiscovered Country
1994 - Star Trek
Generations
1996 - Star Trek:
First Contact
1998 - Star Trek:
Insurrection
2002 - Star Trek:
Nemesis
2009 - Star Trek
2013 - Star Trek
Into Darkness
Opið verður frá kl. 10–17 í Bláfjöllum.
Snjóbrettagarðurinn verður opinn allan daginn.
Síðasta opnun vetrarins
í dag, uppstigningardag
skidasvaedi.isUpplýsingasími 530 3000