Fréttablaðið - 04.09.2013, Síða 2

Fréttablaðið - 04.09.2013, Síða 2
4. september 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2 ÍT O N ÍT O N T O N F ÍT O N ÍT O N F ÍT O N F ÍT O N F ÍT O N T O N F ÍT O N F ÍT O N F ÍT O N ÍT O N F ÍT O N F ÍT O N F ÍT O T OO ÍT O TÍ F Í F / S ÍA / S ÍA / S ÍA / S ÍA / S ÍA / S ÍA / S ÍAA / S ÍA / S ÍA / S ÍAÍÍ SSSSS 3 222 I0 4 3 22 F I0 4 3 2 F I0 4 3 2 F I0 4 3 2 4 3 2 F I0 4 3 22 F I0 4 333 F I0 4 3 I0 4 F I0 4 I0 4 I0 4 I0 4 I0 4 I0 4 I0 4 I0 4 0 4 I0 4 0 4 0 4 I0 4 F I000000II 99 5 99 5 9 5 999 5 9 5 9 55 568 8000 | borgarleikhus.is Borg arhol tsskó li, leiklis t 303 og 40 3 4 sýn ingar að eig in val i Áskri ftar- kortið okka r Eru Þjóðverjar svona víðsýnir? „Það er einsýnt að þeir eru þrívíðir.“ Þjóðverjar hafa verið duglegir að styrkja frumlegt verkefni Írisar Ólafsdóttur, sem hefur hannað búnað á myndavélalinsur til að taka þrívíddarljósmyndir. Mögulegt er að styrkja verkefnið í gegnum karolinafund.com DÓMSMÁL Ákæra á hendur tveim- ur mönnum sem er gefið að sök að hafa reynt að kúga fé út úr Nóa Síríusi verður þingfest í Héraðs- dómi Reykjavíkur í dag. Mennirnir tveir eru 24 og 23 ára. Málið kom upp í ársbyrjun í fyrra og hófst með því, að því er segir í ákærunni, að annar mannanna setti umslag inn um lúguna á heim- ili Finns Geirssonar, forstjóra Nóa Síríuss, að morgni 30. janúar. Í umslaginu var bréf sem hinn maðurinn hafði skrifað og tvö súkkulaðistykki framleidd af Nóa Síríusi, eitt Pipp með myntufyll- ingu og annað með karamellu, sem bremsuvökva hafði verið sprautað í. „Bréfið innihélt hótun um að ef Nói Síríus hf. greiddi þeim ekki kr. 10.000.000, færu samskonar súkkulaði stykki, sem innihéldu vökva sem gæti reynst banvænn, í umferð í tugatali, auk annarra framleiðsluvara fyrirtækisins sem sprautuð yrðu með sama vökva,“ segir í ákærunni. Ríkissaksóknari segir í ákær- unni að hótunin hafi falið í sér að yrði ekki orðið við kröfum tvímenn- inganna yrði unnið verulegt tjón á orðspori fyrirtækisins með því að innkalla þyrfti vörur og sala mundi dragast saman. Mennirnir fylgdu hótununum eftir með símtölum til Finns 31. janúar, 2. febrúar og 7. febrúar. Í síðastnefnda símtalinu gáfu þeir fyrirmæli um afhendingu fjárins. Lögregla handtók þá svo í Hamra- hlíð síðar hinn 7. febrúar, eftir að þeir höfðu sótt pakkningu í bíl fyrir utan Hús verlunarinnar, sem þeir töldu að innihéldi milljónirn- ar tíu í seðlum. Annar mannanna hefur hlot- ið dóm fyrir líkamsárás. Í yfirlýsingu frá Nóa Síríusi fyrir tveimur vikum var lítið gert úr fjárkúgunartilrauninni og henni lýst sem viðvanings- legri. - sh Lögregla egndi gildru fyrir súkkulaðikúgara Tveir menn stungu umslagi inn um lúguna hjá forstjóra Nóa Síríuss með bremsu- vökvamenguðu Pipp-súkkulaði og bréflegri kröfu um tíu milljóna greiðslu. Þeir voru handteknir eftir að hafa sótt pakka sem þeir töldu að innihéldi peningana. Komið hefur fram að Sigurður Ingi Þórðarson, sem varð þekktur fyrir tengsl sín við Wikileaks, var grunaður um aðild að málinu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins bar annar hinna ákærðu að Sigurður Ingi hefði átt hugmyndina að öllu saman en ríkissaksóknari taldi ekki nægar sannanir fyrir hendi til að ákæra hann og felldi málið gagnvart honum niður. Það var raunar fyrir hans tilstilli sem málið rataði í fjölmiðla, eftir að hann birti bréfið frá ríkissaksóknara á Twitter-síðu sinni. Sigurður sat um skeið í gæsluvarðhaldi snemmsumars grunaður um fjársvik. Hann var sagður hafa svikið margar milljónir út úr fyrirtækjum með prókúru bókaforlags upp á vasann. MYNTUPIPP Mennirnir sprautuðu bremsuvökva í tvö Pipp-súkkulaðistykki. SIGURÐUR INGI ÞÓRÐARSON DÓMSMÁL Sexmenningarnar sem eru ákærðir í milljarða umboðssvikamáli tengdu Milestone lýstu sig saklausa við þingfestingu málsins í gær. Á meðal hinna ákærðu eru bræðurnir Karl og Stein- grímur Wernerssynir, sem áttu meirihluta í Mile- stone og sátu í stjórn félagsins, Guðmundur Ólason, sem var forstjóri Milestone, og þrír endurskoðend- ur hjá endurskoðunarskrifstofunni KPMG. Dómari spurði sakborning ana um afstöðu sína til ákærunnar og svöruðu allir því til að þeir væru saklausir. Stein- grímur sagðist vera „algjörlega saklaus“. Málið snýst um greiðslur sem runnu út úr Milestone til Ingunnar Wernersdóttur árin 2006 og 2007. Sak- sóknari telur að Karl, Steingrímur og Guðmundur hafi í sameiningu tekið ákvörðun um að greiða henni 4,8 milljarða á þessu tímabili og losa hana þannig undan eign sinni. Greiðslurnar bárust henni mánaðarlega á löngu tímabili, á grundvelli samkomulags um að hún léti af hendi öll bréf sem hún átti í félaginu. Endur- skoðendurnir þrír eru ákærð fyrir að hafa ekki rækt endurskoðendastörf sín fyrir Milestone í samræmi við góða endurskoðunarvenju. Ákærðu eru talin hafa gerst brotleg við 262. grein almennra hegningarlaga, sem kveður á um að þeir sem gerist sekir um alvarleg brot gegn lögum um bókhald og ársreikninga „til þess að leyna auðgunarbroti sínu eða annarra“ skuli sæti fangelsi allt að sex árum. Aðalmeðferð í málinu fer fram í málinu fyrir hádegi 25. september næstkomandi. - bl Sakborningar í Milestone-máli sérstaks saksóknara lýstu sig saklausa: Sagðist vera „algjörlega saklaus“ VIÐ ÞINGFESTINGUNA Karl Wernersson og Guðmundur Óla- son ásamt verjendum í málinu. MYND/BOÐI LOGASON FORSTJÓRINN FÉKK BRÉF Finni Geirssyni barst torkennilegt bréf í janúarlok í fyrra. Það innihélt meðal annars tvö súkkulaðistykki sem í hafði verið sprautað bremsu- vökva. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Sagði Sigurð Inga hafa átt hugmyndina LÍFEYRISSJÓÐIR Eygló Harðardóttir, ráðherra jafnréttismála, segir að það séu ekki sterk rök fyrir breytingu laga að erfitt sé að fylgja þeim. Lögin séu sett af gildum ástæðum. Þórey S. Þórðardótt- ir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyris- sjóða, sagði í Fréttablaðinu í gær að ný lög um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja og lífeyris- sjóða kynnu að ganga of langt og væru ekki hönn- uð með hagsmuni lífeyr- issjóðanna að leiðarljósi. Samtökin ætluðu á næstu dögum að taka málið upp við stjórnvöld, væntan- lega með það að mark- miði að fá undanþágu frá þeim í ákveðnum tilfell- um. Eygló segir að lífeyrissjóðirn- ir séu fullfærir um að uppfylla þessi skilyrði laganna. „Ég held að landssamtökin eigi að einbeita sér að því að vinna að því áfram, ásamt því að horfa til annarra þátta þar sem þau geta haft áhrif til að auka jafnrétti í íslensku samfélagi,“ segir Eygló og bætir við að lífeyrissjóðirnir hafi stað- ið sig ágætlega í því að uppfylla ákvæði laganna um kynjahlutföll í stjórnum. - hh, bl Ráðherra jafnréttismála gagnrýnir afstöðu lífeyrissjóða til laga um kynjakvóta: Ekki sterk rök að erfitt sé að fylgja lögum Ekki stendur til að Landssamtök lífeyrissjóða beiti sér fyrir breytingum á lagaákvæðinu um kynjahlutföll í stjórnum, að því er segir í tilkynningu sem birtist á vef samtakanna í gær. Þar segir að ákvæðið hafi náð mark- miði sínu um að jafna kynjahlutföll stjórnarmanna lífeyrissjóða þótt sumir sjóðir hafi ekki náð að uppfylla skilyrðið. Ætla ekki að beita sér fyrir breytingum EYGLÓ HARÐARDÓTTIR ÁKÆRA Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur konu sem handtekin var á Laugavegi í júlí. Þetta kom fram á á mbl. is í gær. Konan er ákærð fyrir brot gegn valdstjórninni, en á hún meðal annars að hafa hrækt á lögreglumanninn sem handtók hana í kjölfarið. Ákæran hefur enn ekki verið birt. Atvikið náðist á myndband sem vakti mikla athygli. Lög- reglumaðurinn sem handtók konuna var fyrir helgi ákærður fyrir líkamsárás og brot í opin- beru starfi. - hrs Brot gegn valdstjórninni: Ákærð fyrir að hrækja á löggu MANNRÉTTINDI Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Allout boðuðu til mótmæla á heimsvísu í gær og því skipulögðu Samtökin ´78 mótmæli á Íslandi fyrir utan rússneska sendiráðið síðdegis í gær. Mótmælin voru haldin til þess að þrýsta á G20-ríkin, sem koma saman í Sankti Péturs- borg í vikunni, að krefja Pútín um að afnema löggjöf gegn samkyn- hneigðum í Rússlandi og stöðva ofsóknir gegn þeim. Meðal þeirra sem tóku þátt voru Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, og eiginkona hennar Jónína Leósdóttir en með þeim var Sigríður Ingi- björg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Á fjórða tug landa efndu til sams konar mótmæla í gær, allt frá Tromsø í Noregi til La Paz í Bólivíu. -nej Mótmæli fóru fram fyrir utan rússneska sendiráðið í gær: Ofsóknir Pútíns verði stöðvaðar ÞRÝSTINGUR Yfir hundrað manns komu saman í gær til þess að mótmæla löggjöf gegn samkynhneigðum í Rússlandi og þrýsta á að G20-ríkin gripu til aðgerða. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN REYKJAVÍK Framkvæmdir við Hofs- vallagötu hafa kostað Reykjavíkur- borg tæpar 18 milljónir króna. Kostnaðaráætlun hljómaði upp á 14,5 milljónir en tilboðin sem borg- in fékk voru öll yfir þeirri tölu. Það sem fellur undir þennan kostnað er meðal annars þrjár milljónir sem fór í flögg og fugla- hús. Hönnun á verkinu kostaði 680 þúsund. Gróðurkassar kostuðu rúmar tvær milljónir en þeir hafa nú verið skemmdir. Bjarni Brynjólfs son, upplýsingafulltrúi borgarinnar, segir það ótrúlegt að þegar borgin geri eitthvað til að fegra umhverfið sé það skemmt. - hrs Breytingar á Hofsvallagötu: Kostnaður upp á 18 milljónir SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.