Fréttablaðið - 21.10.2013, Blaðsíða 37
Ingibjörg Þórðardóttir, löggiltur fasteignasali.
Þórður S. Ólafsson, löggiltur fasteignasali.
Suðurgata 7, 101 Reykjavík - hibyli.is - hibyli@hibyli.is - Sími: 585 8800
Skaftahlíð - 105 Reykjavík
Glæsileg 146 fm neðri sérhæð ásamt bílskúr í fjórbýlishúsi
innst í botnlanga í grónu og fallegu umhverfi. Samliggjandi
stofur, hol, gestasnyrting, eldhús með góðum borðkrók.
Þrjú svefnherbergi og baðherbergi á svefngangi. Svalir út af
hjónaherbergi. Parket og linoleum dúkur á gólfum. Frábær
staðsetning, stutt í grunnskóla, menntaskóla og alla verslun
og þjónustu. Verð 43,5 millj.
Fremristekkur - 109 Reykjavík
Fallegt og vel skipulagt 313,5 fm tvílyft einbýlishús ásamt
innbyggðum bílskúr. Íbúð er 267,6 og bílskúr 45,9 fm, jafn
stór hæð er undir bílskúr sem ekki er tilgreind í heildar
fermetratölu hússins, sem er því rétt tæpir 360 fm. Á
aðalhæð eru rúmgóð stofa og bókaherbergi, stórt eldhús,
gestasnyrting, baðherbergi og tvö svefnherbergi, svalir
út af hjónaherbergi. Neðri hæð, stofa, eldhúskrókur, þrjú
svefnherbergi og þvottahús. Tvöfaldur bílskúr og jafnstórt
óinnréttað rými þar undir. Verð 62,8 millj.
Eskihlíð - 105 Reykjavík
Glæsileg 4ra herbergja 116,6 fm endaíbúð á 3. hæð við
Eskihlíð í Reykjavík ásamt íbúðarherbergi í kjallara. Íbúðin
skiptist í hol, rúmgóða stofu með útgengt á svalir, þrjú
svefnherbergi með fataskápum, eldhús með góðri innrétt-
ingu, flísalögðu baðherbergi og íbúðarherbergi í kjallara.
Íbúðin hefur verið talsvert endurnýjuð. Nýlegt parket og
náttúrusteinn á gólfum. Fallegt útsýni úr íbúð.
Verð 34,4 millj.
Sumarbústaður við Flúðir
Glæsilegur sumarbústaður (heilsárshús) nærri Flúðum
með 6700 fm lóð.
Bústaðurinn er um 70 fm að stærð með ca. 150 fm sólpalli
í kring. Húsið að innan er forstofa, gangur, baðherbergi, þrjú
svefnherbergi, stofa, eldhús og sólskáli. Baka til er baðhús
með sér inngangi og þar eru einnig tvö geymsluherbergi.
Bústaðurinn er á steyptri plötu og er allur flísalagður. Jatoba
harðviður er í öllum bústaðnum og einnig í sólpalli. Allir út-
veggir eru panelklæddir með jatoba. Glerhús er úr mahoní.
Útsýni er stórkostlegt, sést m.a. til Langjökuls, Skálholts, Iðu,
Flúða og Heklu. Golfvöllur (Ásatúnsvöllur) rétt hjá í um 5
mínútna göngufjarlægð.
Opið hús - Laufásvegur 26 - 101 Reykjavík
Mjög góð 196,3 fm 7 herbergja neðri sérhæð ásamt hluta
í kjallara í þríbýlishúsi á þessum eftirsótta stað í Þingholt-
unum. Íbúðin skiptist þannig. Forstofa, steinskífa. Við holið
er lítil geymsla með glugga. Eldhús, ljós viðarinnrétting,
steinskífa á gólfi. Samliggjandi stofur, parket á gólfi, steinflísar
á innsta hluta setustofu. Í svefnálmu er rúmgott hjóna-
herbergi með góðum innbyggðum fataskápum. Tvö minni
herbergi, nýlegir fataskápar í öðru herberginu. Baðherbergi,
flísalagt í hólf og gólf. Í kjallara fylgja tvö stór íbúðarherbergi.
Parket á báðum herbergjum. Falleg eign á frábærum stað.
Verð 59,9 mill.
Eignin verður sýnd í dag, mánudag milli kl. 17:30 og 18:00.
Bræðraborgarstígur - 101 Reykjavík
Sérlega glæsileg og algjörlega endurnýjuð 179,6 fm íbúð á
2. hæð í lyftuhúsi. Íbúðin var innréttuð fyrir örfáum árum
á afar vandaðan og fallegan hátt. Mjög stórar stofur ásamt
stórri bókastofu, eldhús með svölum út af, svefnherbergi
með fataherb. inn af, baðherbergi flísalagt í hólf og gólf,
t.f. þvottavélum í lokuðu rými. Eikarparket á gólfum. Eign í
sérflokki. Verð 64,9 millj.
Nökkvavogur - 104 Reykjavík
Mjög fallegt og mikið endurnýjað 188,5 fm tvílyft ein-
býlishús ásamt bílskúr. Á efri hæð eru þrjár samliggjandi
stofur, gengið úr setustofu niður í fallegan og gróinn garð
með heitum potti. Eldhús, svefnherbergi og gestasnyrting.
Á neðri hæð eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi, flísalagt
í hólf og gólf, sturtuklefi og baðkar. Þvottahús með góðum
innréttingum. Parket, flísar og teppi á gólfum. Tveir inn-
gangar. Garður og stétt með hitalögn undir að hluta. Frábær
staðsetning á kyrrlátum og rólegum stað. Verð 56,9 millj.
Neðastaleiti - Tvær íbúðir - 103 Reykjavík
Glæsilegt og nýlega endurnýjað 234,3 fm tveggja íbúða
hús, (tvílyft raðhús) með innbyggðum bílskúr. Neðri hæð
er 2ja herbergja íbúð, komið inn í hol, opið þaðan inn í
rúmgóða stofu með sólpalli í suður þar útaf. Svefnherbergi
með fataskápum. Baðherb. flísalagt í hólf og gólf. Eldhús
og þvottahús. Bílskúr. Efri hæð er 3ja herb. íbúð, tvö svefn-
herbergi, stofa og eldhús opið út í eitt, baðherbergi flísalagt
í hólf og gólf, þvottahús. Eignin var tekin í gegn árið 2007,
báðar íbúðir voru innréttaðar að nýju, raflagnir yfirfarnar, og
skipt um gler í stofum á báðum hæðum. Verð 79,9 millj.
OP
IÐ
HÚ
S