Fréttablaðið - 21.10.2013, Blaðsíða 2
21. október 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
VIÐSKIPTI Fréttaveitu-appið Nuus
fyrir iPad og snjallsíma sem safnar
fréttum og upplýsingum á einn stað
stóð uppi sem sigurhug myndin í
hugmyndakeppninni Startup Week-
end í ár.
„Nuus hjálpar neytandanum
að nálgast fréttaefni sem hann
hefur áhuga á, með aðgengilegum
og þægilegum
hætti. Þetta er
eins og Spotify
nema bara fyrir
fréttir,“ útskýrir
Ragnar Örn Kor-
máksson, skipu-
leggjandi Start-
up Weekend á
Íslandi, sem fram
fór um helgina.
Hugmyndirnar í ár voru af
ýmsum toga. „Einn aðili hannaði
bollastand fyrir reiðhjól. Þetta er
allt frá öppum yfir í bollastanda.“
Þátttakendurnir, sem voru á
öllum aldri, fengu þjálfun og aðstoð
við uppbyggingu viðskiptahug-
mynda en markmið Startup Week-
end er að stuðla að stofnun nýrra
sprotafyrirtækja á Íslandi.
Startup Weekend er alþjóðlegur
viðburður sem fram fór í Háskólan-
um í Reykjavík en þetta er í þriðja
sinn sem Klak Innovit og Lands-
bankinn standa fyrir slíkri helgi í
Reykjavík.
„Þetta er viðburður sem við
sækjum frá Bandaríkjunum en
áður höfðum við verið með svipaða
viðburði, svokallaðar atvinnu- og
nýsköpunarhelgar víðs vegar um
landið í samvinnu við Landsbank-
ann. Startup Weekend er hins vegar
stærri í sniðum,“ segir Ragnar Örn.
Dómarar keppninnar í ár voru
þau Magrét Ormslev Ásgeirs dóttir
frá Landsbankanum, Stefán Jökull
Stefánsson frá DCG og Hrefna
Briem frá Háskólanum í Reykja-
vík. „Þau athuguðu ýmislegt þegar
þau völdu sigurhugmyndina, eins og
hvort viðskiptamódelið gengi upp,
hvernig tekjuöflunin gæti gengið,
útfærsluna og hversu miklu hópur-
inn afkastaði yfir helgina,“ segir
Ragnar Örn um fyrirkomulagið.
Unnið var í þrettán teymum og
voru þrír til átta manns í hverju
teymi, en alls tóku um 70 manns
þátt í keppninni.
„Fólk fór vart út úr húsi alla
helgina, það var mikill dugnaður
og metnaður í fólkinu. Mikilvægt
er þó að fyrirtækin eða teymin
haldi áfram að vinna með hugmynd-
ir sínar og sæki um að fara frum-
kvöðlakeppnina Gulleggið, sem
fram fer árlega á vorin,“ segir
Ragnar Örn. gunnarleo@frettabladid.is
Fréttaveitan sigraði
í frumkvöðlakeppni
Fréttaveitu-appið Nuus stóð uppi sem sigurvegari í hugmyndakeppninni Startup
Weekend sem fram fór um helgina. „Eins og Spotify nema bara fyrir fréttir,“ segir
skipuleggjandi keppninnar. Segir mikilvægt að vinna áfram með hugmyndirnar.
RAGNAR ÖRN
KORMÁKSSON
Startup Weekend er alþjóðlegur viðburður sem hefur farið sigurför um
heiminn. Á heimsvísu hafa yfir 8.000 fyrirtæki verið stofnuð með þátttöku
yfir 100.000 frumkvöðla í 400 borgum.
Þekktasta hugmyndin hér á landi sem orðið hefur til á Startup Weekend
er líklega vefsíðan Ævispor, aevi.is. Þar getur fólk hlaðið inn skrám, skrifað
skilaboð og fleira, og er efnið sent fyrirfram völdum viðtakendum eftir
andlát.
Um 8.000 fyrirtæki stofnuð eftir viðburð
UNNIÐ AF KAPPI Þátttakendur vinna að hugmyndum sínum alla helgina og fara
varla út úr húsi. MYND/DILJÁ VALSDÓTTIR
LÖGREGLUMÁL „Þetta er tilfinnan-
legt tjón fyrir okkur. Það var stol-
ið frá okkur reiðtygjum fyrir um
þrjár milljónir króna. Á einu bretti
hvarf 30 ára útgerð,“ segir Gunnar
Maríusson, hestamaður í Keflavík.
Brotist var inn í hesthús Gunnars,
sem stendur við Mánagrund, á
fimmtudag og stolið þremur hnökk-
um og 20 beislum, þar af þremur
mjög dýrum.
Hann segir að þau séu sjö í fjöl-
skyldunni og öll í hestamennsku.
Dætur hans hafi verið að keppa
á mótum og þau því átt góðan
keppnis búnað.
Fyrir tveimur árum var brotist
inn hjá Gunnari og þá var þremur
dýrum hnökkum stolið.
Gunnar segir þjófarnir hafi
spennt upp hurð og látið greipar
sópa um reiðtygin. Þeir hafi vitað
nákvæmlega hvað þeir ætluðu að
taka því ekki hafi verið hreyft við
neinu öðru eða rótað til. Þeir sem
geta gefið upplýsingar um málið
eru beðnir að hafa samband við lög-
regluna í síma 420-1800 - jme
Sjö manna fjölskylda missti öll reiðtygi sín í innbroti Í Keflavík:
Rándýrum reiðtygjum stolið
FRÁ MÁNAGRUND Reiðtygjum að
verðmæti þriggja milljóna króna var
rænt í innbroti í hesthús á Mánagrund í
Reykjanesbæ. MYND/VÍKURFRÉTTIR
HEILBRIGÐISMÁL Enginn
næringar fræðingur eða
næringar ráðgjafi er starfandi á
Heilsugæslu höfuðborgarsvæð-
isins. Ingibjörg Gunnarsdóttir,
prófessor í næringarfræði við
Háskóla Íslands, segir það slæmt
á þessum fyrsta viðkomustað
fólks í heilbrigðisþjónustunni.
„Þegar til dæmis er grunur
um að barn sé með fæðuofnæmi
eða óþol hefur verið staðfest af
ofnæmislæknum, þarf að skoða
mataræði barnsins með það í
huga hvaða fæðutegundir geti
komið í staðinn fyrir þá fæðu
sem taka þarf út,“ segir Ingi-
björg. - hrs
Enginn næringarráðgjafi:
Mikilvægt
vegna ofnæmis
SJÁVARÚTVEGUR Sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra hefur
úthlutað 6.824 þorskígildistonnum
í byggðakvóta fyrir núverandi fisk-
veiðiár.
Byggðakvóta er úthlutað til 47
byggðarlaga í 32 sveitarfélögum.
Hámarksúthlutun til byggðarlags
er 300 tonn og fengu sex byggðar-
lög slíka úthlutun; Flateyri, Grund-
arfjörður, Garður, Skagaströnd,
og Vopnafjörður. Snæfellsbær fær
mest sveitarfélaga eða 735 tonn.
Byggðakvóti er gefinn út til að
vega á móti samdrætti á kvóta
og vinnslu og samdrætti í rækju-
og skelvinnslu sem hefur orðið í
sveitar félögum. - skó
Byggðakvóta úthlutað:
32 sveitarfélög
fá úthlutun
Þorvaldur, stendur þú upp
fyrir uppstigningardegi?
„Já, það geri ég. Ég stend alltaf upp
fyrir uppstigningardegi.“
Þorvaldur Víðisson biskupsritari vill ekki að
uppstigningardagur verði afnuminn sem
almennur frídagur.
NOREGUR Carl I. Hagen, fyrr-
verandi formaður Framfara-
flokksins í Noregi, segir
stjórnmálamenn með innflytj-
endabakgrunn taka harðar á mál-
efnum hælisleitenda en nú er gert.
Á vef norska ríkisútvarpsins
er haft eftir Hagen að þeir vilji
binda enda á straum fólks sem
komi til þess að nýta sér kerfið.
Mazyar Keshvari er talsmaður
flokksins í innflytjendamálum og
Himanshu Gulati er ráðuneytis-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu. - ibs
Hagen um eigin flokk:
Vænta má
harðari stefnu
SPURNING DAGSINS
SAMGÖNGUR Lítil fjögurra sæta kennsluflugvél frá Flugakademíu
Keilis nauðlenti á Biskupstungnabraut milli Geysis og Gullfoss rétt
fyrir hádegi í gær. Tveir voru um borð í vélinni, nemandi í atvinnu-
flugi með einkaflugmannsréttindi og farþegi. Þá sakaði ekki.
„Flugmaðurinn þurfti að nauðlenda eftir að vélin missti vélarþrýst-
ing,“ segir Ragnar Guðmundsson, starfsmaður Rannsóknarnefndar
samgönguslysa og stjórnandi rannsóknarinnar. Hann segir að flugvél-
in sé óskemmd fyrir utan eitt ljós sem brotnaði þegar annar vængendi
rakst í stiku á veginum. Ragnar segir ekkert vitað um orsök vélar-
bilunarinnar. Starfsmenn Rannsóknarnefndarinnar unnu í gærkvöldi
við að koma vélinni til Reykjavíkur. - hg
Ekkert vitað um orsök vélarbilunar í kennsluflugvél Keilis:
Nauðlenti á Biskupstungnabraut
NAUÐLENTI Vélin er af gerðinni Diamond DA-40 og er fjögurra sæta einshreyfils
flugvél. MYND/ÞORBJÖRN ÞÓRÐARSON.
HEILBRIGÐISMÁL Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis-
ráðherra hefur tilkynnt Reykjavíkurborg að bygg-
ingu tæplega 90 hjúkrunarrýma fyrir aldraða við
Sléttuveg í Reykjavík hafi verið slegið á frest.
Dagur B. Eggertsson, formaður
borgarráðs, harmar þessa ákvörðun
og segir þörf á byggingu hjúkrunar-
rýma fyrir 250 manns á höfuðborg-
arsvæðinu á næstu tveimur árum.
„Þetta þýðir að mjög mikilvæg
uppbygging í þágu aldraðra hér við
Sléttuveg í samvinnu Hrafnistu og
borgarinnar er í uppnámi. Þar með
eru auðvitað þeir 88 einstaklingar
á hverjum tíma sem þurfa hjúkr-
unarrými í uppnámi og þeirra aðstandendur,“ segir
Dagur.
Hann segir þetta einnig slæmar fréttir fyrir Land-
spítalann því eitt af vandamálum hans sé að geta ekki
útskrifað aldraða einstaklinga sem þurfi á hjúkrun-
arheimilum að halda. Talið er að byggja þurfi hjúkr-
unarheimili fyrir 250 einstaklinga á höfuðborgar-
svæðinu á næstu tveimur árum. Nú þegar eru 116
einstaklingar á biðlista eftir slíku heimili og þar af
84 í Reykjavík.
„Það er í raun erfiðara að komast á þennan biðlista
en áður því við erum farin að sinna veiku fólki meira
heima í gegnum heimahjúkrun og heimaþjónustu. En
það sem er einnig athyglisvert við þennan biðlista er
að það er mjög hátt hlutfall Reykvíkinga á honum.
Því teljum við mjög brýnt að hjúkrunarheimili rísi
hér í Reykjavík,“ segir formaður borgarráðs. - hmp
Byggingu tæplega 90 hjúkrunarrýma fyrir aldraða í Reykjavík slegið á frest:
Mikilvægt verkefni í uppnámi
DAGUR B.
EGGERTSSON
HRAFNISTA
Talið er að
byggja þurfi
hjúkrunar-
heimili fyrir
250 manns
á höfuð-
borgarsvæð-
inu á næstu
tveimur árum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR