Fréttablaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 2
20. desember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Ólafur, er þetta algjör steypa? Já, steypa er algjör steypa.“ Sjálfstæðismenn í Reykjavík vilja steypa götur með mikinn umferðarþunga. Ólafur Bjarnason, samgöngustjóri borgarinnar, segir betra að nota malbik. VIÐSKIPTI Starfsmenn Arion banka fá 125 þúsund króna bónusgreiðslu fyrir jólin, auk 30 þúsund króna gjafakorts sem gildir í öllum versl- unum. Starfsmenn annarra við- skiptabanka fá ekki slíka bónus- greiðslu. „Stjórn bankans ákvað í tilefni af þeirri viðurkenningu sem Arion banki fékk nýlega, þegar fagtíma- ritið The Banker, sem er gefið út af The Financial Times, valdi Arion banka sem banka ársins á Íslandi 2013, að þakka starfsfólki með þessum hætti fyrir vel unnin störf á þessu ári sem og á undanförnum árum,“ segir Har- aldur Guðni Eiðs- son, forstöðumaður samskiptasviðs bankans. Starfsmenn bankans fá að auki körfu með ýmsu matarkyns og til heimilisins. Ekki fékkst gefið upp hver jóla- gjöf starfsmanna annarra banka er þetta árið. Hjá Landsbankanum, Íslandsbanka og MP Banka fengust þau svör að jólagjafir starfsmanna frá bönkunum væru innpakkaðar og margir starfsmenn opnuðu þær ekki fyrr en á aðfangadag. Svipuð svör fengust einnig við fyrirspurn Fréttablaðsins um bónus- greiðslur frá öðrum bönkum en Arion Banka. „Við greiðum bara umsamda des- emberuppbót,“ segir Sigrún Eyjólfs- dóttir, aðstoðarmaður forstjóra MP Banka. brjann@frettabladid.is Aðeins starfsmenn Arion fá jólabónus Starfsmenn Arion banka fá 125 þúsund króna jólabónus til viðbótar við 30 þúsund króna jólagjöf. Þökkum starfsfólki fyrir vel unnin störf eftir að bankinn var valinn banki ársins á Íslandi. Starfsmenn annarra viðskiptabanka fá ekki bónus þetta árið. JÓLAGJAFIR Viðskiptabankarnir gefa starfsmönnum sínum jólagjafir, en aðeins Arion Banki borgar sérstakan jólabónus. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HARALDUR GUÐNI EIÐSSON ■ Samherji greiddi starfsmönnum sínum 378 þúsund króna jólabónus í fyrra, en ekki verður gefið upp hvort, og þá hversu háan bónus starfsmenn fá þetta árið. „Samherji gerir vel við starfsmenn sína,“ er það eina sem Margrét Ólafsdóttir, aðstoðarmaður forstjóra Samherja, vill segja um málið. Hún upplýsti þó að starfsmenn fái kjöt og fisk í jólagjöf. ■ Hjá HB Granda fást þau svör að starfsmenn fái gjafabréf í jólagjöf, en ekki sé greiddur jólabónus. Fyrirtækið greiddi ekki heldur jólabónus í fyrra. Upphæð gjafabréfsins fæst ekki gefin upp. ■ Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um jólabónus hjá Síldarvinnslunni segir Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri fyrirtækisins. ■ Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, segist ekki vilja tjá sig um jólabónus hjá fyrirtækinu við Fréttablaðið. Samherji gefur ekki upp jólabónusinn KJARAMÁL Desemberuppbót til atvinnulausra verður að öllum líkindum greidd í dag og á mánu- dag. Þetta kemur fram í upplýs- ingum frá Gissuri Péturssyni, forstjóra Vinnumálastofnunar. Gissur hafði áður sagt í sam- tali við Fréttablaðið að reynt yrði að greiða uppbótina fyrir jólin. Óskipt desemberuppbót til atvinnulausra nemur um 52 þús- und krónum en minnst um þrett- án þúsund krónum, allt eftir því hversu lengi viðkomandi hefur verið án atvinnu. Kostnaður ríkissjóðs vegna þessa nemur um það bil 450 milljónum króna en samkomulag um greiðsluna náðist á Alþingi fyrr í vikunni. - fb Jólauppbót til atvinnulausra: Uppbótin í dag eða á mánudag LÖGREGLUMÁL Rannsókn lög- reglu á netárás á vef Vodafone og þjófnaði á gögnum frá fyrir- tækinu er enn á frumstigi og alls óvíst hvaða árangur hún mun bera, segir Friðrik Smári Björg- vinsson, yfirlögregluþjónn rann- sóknardeildar lögreglu höfuð- borgarsvæðisins. Hann segir að til standi að óska eftir samstarfi við lögregluyfir- völd í Tyrklandi, en fyrstu fréttir bentu til þess að árásin hafi verið gerð frá Tyrklandi. Áður þurfi þó að rannsaka málið betur. Árásin var gerð í lok nóvember. Meðal þeirra gagna sem hakk- arinn komst yfir voru SMS sem send voru af vef fyrirtækisins, auk notendanafna og lykilorða viðskiptavina inn á vefinn. - bj Rannsaka árás á Vodafone: Biðja um hjálp frá Tyrklandi SKIPULAGSMÁL Iðnaðarmenn í Fjalla- byggð hafa sent bæjarstjórn Fjalla- byggðar undirskriftalista þar sem þeir skora á að fyrirhugaðri við- byggingu við grunnskóla Fjalla- byggðar verði frestað. Ástæðan er sú að að iðnaðarmenn eru uppteknir við framkvæmdir á Hótel Rauðku á Siglufirði. Bæði byggingarleyfi og deiliskipulag fyrir skólareitinn var kært en úrskurðanefnd hafnaði ógildingu. Í kjölfarið var málið tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar og bæjarstjóra falið að bjóða verkið út hið fyrsta. Bæjarfulltrúinn Sólrún Júlíusdótt- ir lagði fram tillögu þess efnis að framkvæmdum yrði frestað en sú tillaga var felld. Sólrún hefur áhyggjur af þenslu- áhrifum framkvæmdanna, sérstak- lega þegar einkaaðilar eru tilbúnir til framkvæmda. „Það eru ekki öll sveitarfélög sem eru svo heppin að hafa einkaaðila sem tilbúinn er að fjárfesta fyrir einn og hálfan milljarð á svæð- inu,“ segir Sólrún og vísar þar til athafnamannsins Róberts Guðfinns- sonar sem hefur fjárfest umtalsvert á svæðinu. Sigurður Valur Ásbjarnarson er bæjarstjóri Fjallabyggðar. Hann segir sveitarfélagið eingöngu vera að uppfylla lögbundnar skyldur sínar. „Það hefur verið markmið þessarar bæjarstjórnar frá kosning- um að sameina skólabyggingar úr tveimur í eina, bæði á Ólafsfirði og Siglufirði. Með þessari framkvæmd náum við þeim markmiðum,“ segir Sigurður. elimar@frettabladid.is Bæjarstjórn Fjallabyggðar hyggst reisa skólabyggingu þrátt fyrir kærur, áskorun og tillögu um frestun: Iðnaðarmenn óttast ofþenslu á Siglufirði SIGURÐUR VALUR ÁSBJARNARSON Bæjarstjórinn segir framkvæmdirnar við skólann ekki vera stórar í samanburði við aðrar framkvæmdir í Fjallabyggð. MYND/REYNIR SVEINSSON STJÓRNMÁL Gunnar Birgisson mun ekki gefa kost á sér til áframhald- andi setu í bæjarstjórn Kópavogs- bæjar fyrir Sjálfstæðisflokkinn og hyggst snúa sér að verkfræði- störfum. Gunnar segir að eftir 24 ár í pólitík þá sé nú komið nóg. „Ég er búinn að gera mitt fyrir þetta samfélag. Það þýðir ekkert að telja klukkutíma enda er pólitík áhugamál, það verður ekkert gert nema það komi frá hjartanu,“ segir Gunnar. Hann bætir við að það sé hans von að þeir sem taki við verði óhræddir við að taka ákvarðanir enda sé betra að veifa röngu tré en öngu. „Það er enginn fullkom- inn en fólk þarf að þora að taka ákvarðanir, bæði vinsælar og óvin- sælar.“ Ármann Kr. Ólafsson staðfesti í samtali við Fréttablaðið að hann muni gefa kost á sér í fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi sem fer fram 8. febrúar næstkomandi en frestur til að skila inn framboði rann út í gær. -eh Gunnar Birgisson hættur í stjórnmálum en Ármann Kr. stefnir á fyrsta sæti: Komið gott eftir 24 ár í pólitík GUNN- AR INGI BIRGISSON Bæjarstjór- inn fyrrver- andi ætlar einbeita sér að verk- fræðistofu sinni og segist hafa nóg fyrir stafni. ÍÞRÓTTASTYRKIR Fjórir aðilar fengu úthlutað í gær úr Afrekskvennasjóði Íslandsbanka og ÍSÍ en markmið og tilgangur sjóðsins er að styðja við bakið á afrekskonum í íþróttum og gera þeim betur kleift að stunda sína íþrótt og ná árangri. Strandblakskonurnar Berglind Gígja Jónsdóttir og Elísabet Einarsdóttir úr HK fengu 500 þúsund krónur vegna verkefna á árinu 2014. Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni fékk 500 þús- und krónur vegna þátttöku í úrtökumóti fyrir Evrópumótaröð kvenna í golfi. Erna Friðriksdóttir úr Skíðafélaginu í Stafdal fékk 500 þúsund vegna undirbúnings og keppni á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Sochi. Skíðasamband Íslands fékk síðan eina milljón í styrk vegna undirbún- ings og þátttöku landsliðskvenna á Vetrarólympíuleikunum í Sochi í febrúar næstkomandi. - óój Níunda úthlutun úr Afrekskvennasjóði Íslandsbanka og ÍSÍ: Afrekskonur fengu styrk í gær 67 SÓTTU UM Auglýst var eftir umsóknum í sjóðinn í nóvember og bárust alls 67 umsóknir frá afrekskonum og afrekskvennahópum á öllum aldri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Það er enginn fullkominn en fólk þarf að þora að taka ákvarðanir, bæði vinsælar og óvinsælar. Gunnar Ingi Birgisson SPURNING DAGSINS Jólaþorpið í Hafnarfirði er opið allar aðventuhelgar kl. 12-17 19. og 20. desember kl. 16-21 Þorláksmessu kl. 16-21 Dagskrá, myndir o.fl. á Facebook
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.