Fréttablaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 6
20. desember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hvað ætla fl estir að borða á að- fangadag samkvæmt könnun MMR? 2. Hver er höfundur barnabókarinnar Stína stórasæng? 3. Hvaða titil ber lokalag Áramóta- skaupsins í ár? SVÖR: 1. Hamborgarhrygg.2. Lani Yamamoto. 3. Springum út. VEISTU SVARIÐ? D Y N A M O R E Y K J A V ÍK HLUSTAÐ EFTIR JÓN ÓTTAR ÓLAFSSON „Nýr höfundur hefur stigið fram í sviðs- ljósið með sérlega raunsæja og kraftmikla glæpasögu.“ IÞK, Bokmenntir.is D Y N A M O R E Y K J A V ÍK Útgáfuréttur seldur til Noregs og Frakklands „RÍGHELDUR“ „Hlustað er spennandi, rígheldur og fléttan gengur smekklega upp.“ ÞÞ, FRÉTTATÍMINN, 22. NÓV. „eftirhruns- tryllir af bestu s ort ... lesandinn nöt raði síðustu hundrað síðurnar.“ HALLGRÍMUR HE LGASON PI PA PI PA RR \\ TB W A W TB SÍ A 1 33 62 5 Upplýsingasími 530 3000 Vertu klár þegar við opnum Bláfjöll og Skálafell. Glæsileg jólagjöf á frábæru verði. Vetrarkort fyrir fullorðna á tilboðsverði til áramóta, 24.000 kr. Þú færð vetrarkort í Hinu húsinu, Pósthússtræti 3–5. Opið alla virka daga kl. 9–13 og 13:30–17. Gjafakort fást í Mohawks, Kringlunni til áramóta. Vetrarkort á skíðasvæðin ÖRYGGISMÁL Tollverðir stöðvuðu í gær tvær aðskildar póstsending- ar sem innihéldu leysibenda sem voru aflmeiri en áður eru dæmi um að reynt hafi verið að koma inn í landið, eða 10.000 millivött (mW). Önnur sendingin kom til landsins frá Singapúr en hin frá Kína. Fréttablaðið sagði frá því í gær að tollverðir hafa á þessu ári gert upptæka allmarga leysi benda sem eru margfalt aflmeiri en almenn notkun réttlætir. Þeir sem reyna að koma slíkum tækjum inn til landsins eru oft unglingar. Í báðum þessum tilfellum eru inn- flytjendurnir hins vegar karlmenn fæddir 1990, eða 23 ára gamlir. Gunnar Sæmundsson aðstoðar- yfirtollvörður segir að tollverðir hafi einnig stöðvað innflutning á leikfangabyssum með leysimiðum, að undanförnu. „Einnig nokkurt magn af lyklakippuhringjum, en geislinn frá þeim var með styrk- leika yfir 5 mW, að því er sagði á merkingum,“ segir Gunnar. Hann bætir við að þegar innflytjanda þeirra, sem var verslunareigandi, var bent á hvers kyns var, sagði eigandinn að um mistök væri að ræða og bað um að sendingunni yrði fargað. Fyrir aðeins hálfum mánuði var stöðvuð sending sem innihélt fjóra leysibenda með styrk langt umfram það sem leyfilegt er. Send- ingin kom frá Kína samkvæmt pöntun héðan. Átti hún, að því er sagði í leyfisumsókn, að innihalda einn leysibendi, innan við 5 mW að styrk. Tollverðir fengu starfsmann frá Geislavörnum ríkisins til að mæla styrk bendanna, og reyndist hann í öllum tilfellum vera fjórfalt til sexfalt meiri en gefið var upp í umsókn. Fréttablaðið hafði samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og fékk þær upplýsingar að ekki væru þekkt dæmi um að lagt hefði verið hald á leysibenda með þeim mikla styrk sem hér um ræðir. Hins vegar hafa verið gerðir upp- tækir leysibendar í málum þar sem geisla hefur verið beint að flugvélum í aðflugi. Slík atvik hafa verið tilefni lagasetningar, til dæmis í Bandaríkjunum, þar sem hörð viðurlög eru við slíku athæfi. svavar@frettabladid.is Stoppa lyklakippur og leikföng hjá tollinum Tollverðir hafa stöðvað þrjár póstsendingar á hálfum mánuði sem innihéldu stór- hættulega leysibenda. Í gær voru gerðir upptækir tveir sem eru 10.000 falt aflmeiri en almenn notkun réttlætir. Lyklakippur og leikföng einnig gerð upptæk. VOPN EÐA LEIKFANG Þessi leysibendir er tvítugfalt sterkari en sá sem getur kveikt í, brennt húð manna eða blindað. MYND/TOLLSTJÓRI Þorgeir Sigurðsson, fagstjóri hjá Geislavörnum, sagði í viðtali við Frétta- blaðið í gær að sérstakt leyfi fyrir sterkari bendum en 1 mW fái venjulega aðeins fagfólk til sértækra nota, enda getur leysir sem er aflmeiri en það valdið sjónskaða á augnabliki. Slík tæki eru stórhættuleg, enda þarf aðeins endurkastið af geisla af styrk yfir 500 mW til að valda augnskaða, auk hættu á bruna á húð og íkveikjuhættu. Leysibendarnir sem voru teknir í gær eru 20 sinnum aflmeiri. Endurkastið eitt getur blindað mann SKÓLAMÁL Bæjarráð Stykkis- hólms skorar á menntamálaráð- herra að „standa vörð um sjálf- stæði Háskólans á Bifröst og Landbúnaðarháskóla Íslands“. Bæjarráðið leggst eindregið gegn sameiningu háskóla á lands- byggðinni við háskóla á höfuð- borgarsvæðinu. Það auki „mið- stýringu háskólanáms hér á landi“. Háskólarnir á Vesturlandi hafi verið einn helsti vaxtar- broddur í uppbyggingu á Vestur- landi. - gar Áskorun frá Stykkishólmi: Háskólar verði ekki miðstýrðir FÓLK Þeir Gunnar Þór Nilsen og Friðrik Elís Ásmundsson björg- uðu í gær rúmenskri fjölskyldu úr brennandi íbúð í Árósum. Gunnar sá út um glugga á íbúð sinni hvar eldur hafði kviknað í gardínum í íbúð hinum megin við götuna. Eldur logaði út um glugga eins herbergis og hafði einn íbúi farið út um hann og sviðnað töluvert. Sá sagði Íslendingunum að fleiri væru í íbúðinni. Gunnar og Frið- rik fóru þá þar inn og mættu konu með lítið barn í örmunum. Þeir hlúðu að fólkinu og aðstoðuðu aðra íbúa við að komast út. Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins þegar slökkviliðið mætti skömmu síðar. Rúmenska fjöl- skyldan var flutt á sjúkrahús. Öll kvörtuðu þau undan særindum í lungum og Gunnar segir einn manninn hafa sviðnað töluvert. Í desember 2008 bjargaði Gunnar lífi ungs drengs sem slasaðist mjög illa í árekstri í Danmörku. Meðal annars los- aði Gunnar tvær tennur úr koki drengsins sem ollu því að hann var næstum kafnaður. - grv Íslendingur sem bjargaði lífi drengs í Danmörku 2008 sýnir enn snarræði: Hjálpaði Rúmenum úr eldsvoða PÓSTUR Póst- og fjarskiptastofn- un (PFS) hefur samþykkt beiðni Íslandspósts um að loka póstaf- greiðslum á Suðureyri og Þing- eyri. Báðar voru þær reknar í sam- starfi við bankaútibú. Póstbíll mun sinna þjónustunni frá 1. maí. Slíkt tíðkast víða í dreifbýli og minni bæjum. Daníel Jakobsson, bæjarstjóri Ísafjarðar, minnir á að fyrir ári hafi Pósturinn lokað afgreiðslustað á Flateyri og þá séu til dæmis 50 kílómetrar frá Þingeyri að næsta þéttbýli. „Þetta er glatað fyrir þá sem þurfa að koma pökkum frá sér og hafa kannski bara klukkutíma glugga til þess á dag.“ Daníel segist hafa viljað að Póst- urinn ræddi við sveitarfélagið áður en ákvörðun var tekin. „Það voru mjög fáar afgreiðslur á þessum stöðum þannig að þetta er einfaldlega aðhald í rekstri,“ segir Brynjar Smári Rúnarsson, markaðs- stjóri Póstsins. - þj Póst- og fjarskiptastofnun heilmilar Íslandspósti að hætta afgreiðslu: Leggja niður útibú fyrir vestan FRÉTTABLAÐIÐ 16. DESEMBER 2008 Gunnar Þór Nilsen aðstoðaði ungan dreng, sem slasaðist í bílslysi í desember 2008, og bjargaði lífi hans. Á SUÐUREYRI Íslandspóstur hefur fengið heimild til að leggja niður afgreiðslu á Suðureyri og Þingeyri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.