Fréttablaðið - 20.12.2013, Qupperneq 12
20. desember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
Ný vefverslun
á michelsen.is
Laugavegi 15 - 101 Reykjavík
Sími 511 1900 - www.michelsen.is
ASA HÁLSMEN
9.700 kr.
ASA LOKKAR
9.700 kr.
ASA HRINGUR
9.900 kr.
ROSENDAHL
24.900 kr.
ARMANI
60.800 kr.
ARNE JACOBSEN
64.900 kr.
CASIO
13.600 kr.
Glæsilegar
jólagjafir
EFNAHAGSMÁL Kreppan er búin,
hvort sem litið er til hagvaxtar
eða framleiðslustigs. Þetta kemur
fram í nýrri grein sem Gylfi Zoëga,
hagfræðiprófessor og liðsmaður
í peningastefnunefnd Seðlabank-
ans, ritar í efnahagsritið Vísbend-
ingu. Hann veltir upp spurningunni
af hverju ekki hafi birt meira yfir
þjóðarsálinni, þrátt fyrir góðan
árangur sem hér hafi náðst í hag-
stjórn síðustu árin.
„Stjórnmálamenn og álitsgjafar
halda flestir áfram að mála skratt-
ann á vegginn þó að hagtölur segi
að kreppan sé búin,“ segir í grein
Gylfa. Hann bendir á að halla-
rekstur ríkissjóðs hafi minnk-
að, hagvöxtur verið í nokkur ár,
atvinna aukist og skuldir lækkað.
Þannig hafi verg landsframleiðsla
aukist hér samfellt allt frá miðju ári
2010 og sé nú að ná því stigi sem hún
hafi verið á í hápunkti síðustu upp-
sveiflu. „Til dæmis er hún tæplega
sjö prósentum meiri en hún var á
þriðja ársfjórðungi árið 2005.“
Einn þátt, sem gerir að skynjun
þjóðarinnar á gangi efnahagsmála
er ekki í takt við hagvöxt, segir
Gylfi til dæmis vera að þjóðartekjur
hafi ekki vaxið að sama skapi. Leita
þurfi aftur til 2003 til þess að finna
jafnlitlar vergar þjóðartekjur.
„Ástæðan er sú að viðskiptakjör
eru nú afar slæm og hafa ekki verið
jafnslök í áratugi.“ Þannig myndi
viðsnúningur á útflutningsmörkuð-
um, svo sem í Suður-Evrópu bæta
lífskjör hér á landi í framtíðinni.
Aukinheldur fari hluti þjóðar-
tekna í afborganir af erlendum
lánum um leið og samanburður-
inn við uppsveifluárin 2006 til 2008
geri fólki erfitt fyrir að meta þann
árangur sem náðst hafi.
„Ástæðan
er sú að lífs-
kjör þessi árin
voru betri en
hagkerfi okkar
getur staðið
undir og byggð-
ust að miklu
leyti á erlendum
lántökum sem
fjármögnuðu
viðskiptahallann,“ segir Gylfi. Eðli-
legri samanburður væri við árin
2002 og 2003. Um leið hafi skattar
líka verið hækkaðir á einstaklinga.
„Á þennan hátt er kannski unnt
að skýra af hverju kreppulokum
er ekki fagnað meira en raun ber
vitni. Það skýrir einnig hvers vegna
erlendir greiningaraðilar, Alþjóða-
gjaldeyrissjóðurinn og fleiri, líta
hagþróunina hér bjartari augum
en margir landsmenn.“ Gylfi líkir
þjóðinni við fjölskyldu sem þurfi
að standa skil á lánum og hafi orðið
fyrir kauplækkun, þótt ekki skorti
atvinnu.
Um leið segir Gylfi lífskjarabata
geta látið bíða eftir sér vegna fyr-
irsjáanlegra þungra afborgana af
erlendum lánum 2015 til 2018. Við
þessar aðstæður ættu stjórnvöld að
leggja áherslu á að efla innlendan
sparnað. „Þeir sem leggja áherslu
á aukna einkaneyslu við núverandi
aðstæður lifa í hugarheimi lokaðs
hagkerfis, en ekki í opnu og litlu
hagkerfi þar sem stór hluti aukinn-
ar einkaneyslu fer í innflutning og
eykur þjóðarútgjöld meira en þjóð-
arframleiðslu.“ Mikilvægast segir
Gylfi þó að búa til umhverfi sem
hjálpi nýjum fyrirtækjum að vaxa,
dafna og auka framleiðni og tekjur
til langs tíma.
olikr@frettabladid.is
GYLFI ZOËGA
Kreppan búin
en stemning
er samt slæm
Hagvöxtur hefur aukist frá miðju ári 2010. Er svip-
aður og á hápunkti síðustu efnahagsuppsveiflu. Rýrar
þjóðartekjur og slæm viðskiptakjör skerða lífskjör.
JÓLAVERSLUN Þjóðarsálin virðist ekki nema efnahagsbatann sem endurpeglast í
tölum um hagvöxt og framleiðslu, segir Gylfi Zoëga hagfræðiprófessor í nýrri grein
sem hann skrifar í Vísbendingu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
MENNTAMÁL Nær eitt hundrað nem-
endur úr Reykjanesbæ eru á meðal
þeirra 10 prósenta nemenda á land-
inu sem hlutu hæstu einkunnir á
samræmdum prófum í haust.
Í tilefni af þessum árangri bauð
bæjarstjórinn í Reykjanesbæ, Árni
Sigfússon, til móttöku í Víkinga-
heimum þar sem nemendum voru
veitt viðurkenningarskjöl.
„Þegar nemandi brýtur af sér í
skólastarfinu, er gjarnan kallað á
foreldra og þeim gerð grein fyrir
vandanum og óskað samstarfs um
að leysa vandann. En þegar nem-
andi skilar frábærum árangri þá,
því miður, köllum við ekki alltaf
foreldra til sérstaklega eða nefn-
um það við nemendur hvort þeir
geri sér grein fyrir hvað þeir eru
að afreka. Það viljum við gera hér,“
sagði Árni í ávarpi sínu.
„Þið eruð að sýna frábæran
mælanlegan árangur á landsmæli-
kvarða og þið eruð skóla ykkar,
umhverfinu og samfélaginu til
sóma og mikil hvatning fyrir aðra
nemendur.“ - fb
Nemendur úr Reykjanesbæ fengu viðurkenningu fyrir frábæran árangur:
Nær hundrað með toppeinkun
FERÐAÞJÓNUSTA Úthlutað var 33,5
milljónum í styrki til nítján verk-
efna úr Þróunarsjóði ferðamála
í gær.
Að sjóðnum standa Landsbank-
inn og atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytið. Markmiðið með
starfrækslu hans er að efla starf-
semi fyrirtækja í ferðaþjónustu
utan háannatíma og auka arðsemi
þeirra.
Þetta er í þriðja sinn sem úthlut-
að er úr sjóðnum og barst honum
61 umsókn að þessu sinni. - shá
Tugir sóttu um þróunarstyrk:
Nítján deila
33,5 milljónum
MEÐ VIÐKURKENNINGARSKJÖL Nem-
endur úr Reykjanesbæ í Víkingaheimum
með viðurkenningarskjölin sín.
Suðurlandsbraut 20, 108 Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
ENA MICRO 9 ONE TOUCH
Líttu við hjá Eirvík og kynntu þér ENA 1 eða ENA 9 OneTouch
með Aroma+ og við bjóðum þér í kaffi.
Fékk hæstu einkun hjá þýsku neytendasamtökunum en 14 vélar
voru prófaðar. Hægt að velja um kaffi, espresso, latte macchiato,
cappuccino eða heitt vatn í te með því að þrýsta á einn hnapp.
JÓLATILBOÐ
Jólagjöf heimilisins
Frábært grill
fyrir íslenskar
aðstæður
Mjög vandað 3ja brennara
gasgrill á sterkri viðargrind
Brennarar úr pottjárni
Grillgrindur og hitadreifarar
úr emaleruðu pottjárni
Lok og grill eru postulíns
emaleruð utan sem innan
Neistakveikja í öllum tökkum
Skúffa undir öllu grillinu sem
tekur fitu - Hitamælir
Orka: 13,2 KW = 45.000 BTU
Grillflötur: 64 x 48,5 cm
Stærð: 150 x 108 x 62 cm
www.grillbudin.is