Fréttablaðið - 20.12.2013, Síða 16
20. desember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 16
DANMÖRK Stríður straumur hæl-
isleitenda hefur verið til Dan-
merkur í ár. Samkvæmt frétt
Politiken hafa alls 7.252 sótt þar
um hæli í ár, sem er það mesta
sem verið hefur í tíu ár. Ekki
stendur þó til að breyta lögum í
málaflokknum.
Langflestir koma frá Sýrlandi,
um 1.500 talsins, en næstflestir,
800 manns, frá Sómalíu.
Mörgum er vísað frá, en í ár
hafa 2.831 umsækjandi fengið
hæli, sem er mesti fjöldinn sem
verið hefur í nítján ár.
Þrátt fyrir þessa fjölgun og hið
aukna álag sem hún hefur haft á
stjórnsýsluna, segja dönsk stjórn-
völd að ekki standi til að breyta
löggjöf um hælisleitendur.
Mette Reissmann, talsmaður
Sósíaldemókrata í málaflokknum,
tekur alfarið fyrir slíkt.
„Svarið er nei. Við þurfum ekki
annað en að líta út um gluggann og
horfa yfir heiminn sem við búum
í. Það er óhamingja og átakasvæði
um heim allan. Lögunum hefur
ekki verið breytt lengi og það er
ekkert slíkt í pípunum.“ - þj
Hörmungar og átök fjölga flóttafólki í Danmörku:
Hælisleitendur ekki
fleiri síðasta áratug
FLÝJA ÁTÖK Langt er síðan ásókn hælisleitenda var eins mikil í Danmörku og nú.
NORDICPHOTOS/AFP
Gaia kortleggur Vetrarbrautina
Geimvísindastofnun Evrópu skaut geimfarinu Gaiu út í geim frá skotpalli í Franska Gvæjana í gær. Þess bíður um mánaðarferðalag en
ákvörðunarstaðurinn er í um 1,5 milljóna kílómetra fjarlægð frá jörðu. Tilgangur þessa fimm og hálfs árs verkefnis er að kortleggja og
mæla fjarlægðir til um eins milljarðs stjarna og draga þannig upp þrívíða mynd af Vetrarbrautinni. Hún er búin gríðarlega nákvæm-
um mælitækjum, þar á meðal tveimur stjörnukíkjum sem tengdir eru myndavél sem tekur myndir með eins milljarðs megapixla upp-
lausn. Til samanburðar eru góðar myndavélar í farsímum oft um 10 megapixel. Með henni mun Gaia fylgjast með um einum milljarði
stjarna og margs konar öðrum fyrirbærum, til dæmis reikistjörnum, smástirnum og halastjörnum.
Heimild: ESA
10 m
á breidd
710
kg á þyngd
40 milljónir mælinga skjalfærðar á dag
Kostnaður:
Um 118 milljarðar króna.
Fjarlægð frá jörðu:
1.500.000 km Mesta fjarlægð
frá viðfangs-
efnum: Um
30.000
ljósár
Þjónustusími: 561 4210 Bílabúð Benna dekkjaþjónusta
400
manns munu
vinna að verk-
efninu á jörðu
niðri.
VERKEFNIÐ
Næstu fimm og hálft ár mun Gaia mynda allt í kringum sig og skrásetja
upplýsingar um einn milljarð stjarna, sem er um það bil einn hundraðasti
af stjörnum Vetrarbrautarinnar. Hver stjarna verður mynduð um 70
sinnum meðan á verkefninu stendur og fjarlægðin til hennar mæld sem
og hitastig, birta og efnisuppbygging. Mælitæki Gaiu geta greint hluti í
geimnum sem eru 4.000 sinnum daufari en hægt er að greina með berum
augum og staðsett með nákvæmni sem samsvarar því að geta mælt um-
mál mannshárs úr 1.000 kílómetra fjarlægð. Skekkjumörk fjarlægðarmæl-
inga til stjarna sem eru við miðju vetrarbrautarinnar í um 30.000 ljósára
fjarlægð eru innan við 20%.
HVAÐ Á AÐ FINNA?
Þegar verkefninu lýkur liggur fyrir mynd af þróun síðustu fimm ára og
af því má reikna út hvernig Vetrarbrautin hefur þanist út hingað til og
hvernig þróunin verður héðan í frá. Gagnamagnið sem mun standa eftir
nemur einu petabæti, sem myndi fylla 200.000 DVD-diska. Það mun taka
vísindamenn marga áratugi að vinna úr gagnasafninu.
Gaia