Fréttablaðið - 20.12.2013, Page 18

Fréttablaðið - 20.12.2013, Page 18
20. desember 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 18 HEILBRIGÐISMÁL Innanríkisráð- herra segir framkvæmd nauðung- arvistunar og sjálfræðissviptingar vera til skoðunar hjá ráðuneytinu. Fréttablaðið hefur fjallað um mála- flokkinn undanfarna viku og komið hefur fram margvísleg gagnrýni. „Þessi mál hafa verið til skoð- unar í ákveðinn tíma. Ráðuneyt- ið er meðvitað um að skoða þarf breytingar á nauðungarvistunum í heild sinni. Við höfum verið í sam- ráði við fjölbreyttan hóp aðila sem koma að málinu og við munum halda áfram þeirri vinnu á nýju ári,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir innan- ríkisráðherra. „Verið er að skoða hvort eigi að byggja þetta öðruvísi upp,“ segir Hanna Birna. „Við höfum til dæmis séð að velferðarþjónustan sækir oftar um nauðungarvistun og sjálf- ræðissviptingu en aðstandendur,“ segir hún en það hefur meðal ann- ars verið gagnrýnt að aðstandendur geðsjúkra komi að því að sækja um nauðungarvistun, þar sem það hafi slæm áhrif á samskipti innan fjöl- skyldna. „Þá teljum við tilefni til að fara yfir verklagsreglur,“ segir Hanna Birna, en á nýju ári mun áðurnefnd- ur hópur samráðsaðila leggja fram minnisblað með hugmyndum að næstu skrefum. Fram hefur komið að innanríkis- ráðuneytið, sem er sá aðili sem sam- þykkir beiðnir um tuttugu og eins dags nauðungarvistanir, tekur ekki saman tölur yfir fjölda nauðung- arvistana eða sjálfræðissviptinga með skipulegum hætti. Almenning- ur hefur því ekki aðgang að upplýs- ingum um fjölda nauðungarvistana VÍSINDI Brot úr halastjörnu Hall- eys virðist hafa lent á jörðinni árið 536 samkvæmt nýjum rann- sóknum á ískjörnum frá Græn- landsjökli. Brotið lenti að öllum líkindum í sjónum. Ryk sem brotið þyrlaði upp olli því að veður kólnaði á jörðinni. Kólnunin leiddi svo af sér þurrka og hungursneyð, samkvæmt umfjöllun á vefnum Live Science. „Ég er með alls konar geim- ryk í ískjarnanum mínum,“ segir Dallas Abbott, prófessor við Kól- umbía-háskóla, sem stýrði rann- sókninni. Hann segir að rykið hafi valdið því að hitastig á jörð- inni lækkaði um þrjár gráður. Halleys-halastjarnan fer fram hjá jörðinni á um það bil 76 ára fresti, síðast árið 1986. Hún er aftur væntanleg árið 2061. - bj Halastjarna breytti veðrinu: Kólnun tengd hungursneyð HAFNARFJÖRÐUR Fríkirkjan fær milljón Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur sam- þykkt beiðni Fríkirkjusafnaðarins í bænum um stuðning við framkvæmdir við Fríkirkjuna vegna 100 ára afmælis hennar. Veita á söfnuðinum eina milljón króna í styrk. MINNINGARATHÖFN Táknmálstúlkurinn Tham- s anqa Jantjie, sem vakti heimsathygli á minn- ingarathöfn um Nelson Mandela fyrir undarlega tilburði sína, hefur verið lagður inn á geðsjúkra- hús. Eiginkona hans, Sizime, telur að Jantjie hafi fengið taugaáfall. Enginn skildi táknmálstúlkun Jantjie á minn- ingarathöfninni, þar sem Barack Obama Banda- ríkjaforseti var á meðal ræðumanna. Síðar kom í ljós að túlkurinn hafði eitt sinn verið ákærður fyrir morð og nauðgun. Sjálfur sagðist hann hafa fengið geðklofakast við athöfn- ina og séð engla en tók það skýrt fram að hann kynni táknmálstúlkun. „Síðustu dagar hafa verið erfiðir. Við höfum reynt að styðja við bakið á honum því svo virðist sem hann hafi brotnað saman,“ sagði eiginkona hans við dagblaðið The Star í Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Hún fór með Jantjie í skoðun á geð- sjúkrahúsið á þriðjudaginn og þar var óskað eftir því að hann yrði lagður inn þegar í stað. Í síðustu viku sagði hún að eiginmaður sinn hefði átt að fara í skoðun á geðsjúkrahúsinu sama dag og minningarathöfnin fór fram en hann ákvað að fresta því. Afríska þjóðarráðið segist hafa ráðið Jantjie nokkrum árum áður sem táknmálstúlk og það hafi aldrei fengið neina kvörtun yfir störfum hans. - fb Eiginkona Thamsanqa Jantjie telur að hann hafi fengið taugaáfall en hann sá engla við minningarathöfn: Táknmálstúlkur lagður inn á geðsjúkrahús HJÁ OBAMA Thamsanqa Jantjie „túlkar“ orð Baracks Obama við minningarathöfnina. MYND/AP ÓGN Rannsóknin gæti varpað einhverju ljósi á þá þjóðtrú að halastjörnur séu slæmir fyrirboðar. MYND/EGILL AÐALSTEINSSON SVEITARSTJÓRNIR Fjölskylduráð Akraness vill þiggja boð fyrir tvo starfsmenn félagsþjónustunnar um að taka þátt í dagskrá í Kaup- mannahöfn með öðru fagfólki frá Íslandi þar sem kynna á þjón- ustu við flóttafólk. „Stendur til að kynnast starfsumhverfi í málefn- um flóttafólks, hælisleitenda og annarra innflytjenda, skoða mót- tökuþjónustu, velferðarþjónustu, afleiðingar áfallastreitu, sérstakan stuðning við börn og unglinga,“ segir fjölskylduráðið. - gar Boðið til Kaupmannahafnar: Skoða þjónustu við flóttamenn Fleiri nauðungarvistanir að beiðni félagsþjónustunnar Innanríkisráðherra segir nauðungarvistun og sjálfræðissviptingu vera til skoðunar hjá ráðuneytinu sem hefur verið í samráði við hóp aðila sem koma að málinu. Til athugunar er aðkoma aðstandenda að beiðnum um nauðungarvistun, en samkvæmt ráðuneytinu fjölgar beiðnum frá félagsþjónustu en fækkar frá aðstandendum. BEIÐNIR UM NAUÐUNGARVISTUN Gagnrýnt hefur verið að aðstand- endur þurfi að leggja fram beiðni um nauðungarvistun. Hlutfall þeirra beiðna þar sem félagsþjónustan eða samsvarandi fulltrúi sveitarstjórnar leggur hana fram, hefur hækkað. 2010 2011 2012 2013 25% 25% 40% 33% ÁR Hlutfall beiðna frá félagsþjónustunni eða samsvarandi fulltrúa eða þróun þeirra. Þá fór Landspít- alinn þess á leit við innanríkisráðu- neytið að tekinn yrði saman fjöldi sjálfræðissviptinga, en fékk synjun á þeim grundvelli að ekki yrði lögð vinna í slíka gagnaöflun. Frá ráðuneytinu fást þær upplýs- ingar að breyting gæti orðið á þessu í kjölfar endurskoðunar á ferlinu í heild, enda séu tölulegar upplýsing- ar gott stjórntæki og mikilvægar fyrir stefnumótun. „Ég held að það þurfi að skoða þetta allt í samhengi við vinnu ráðuneytisins. Einnig að upplýs- ingar séu aðgengilegar og að staða mála sé skýr. Það skiptir auðvitað miklu máli, enda viljum við tryggja að þessi mál séu unnin eins vel og faglega og frekast er unnt,“ segir Hanna Birna. eva@frettabladid.is NAUÐUNGARVISTUN Innanríkisráðuneytið telur tilefni til þess að fara yfir verklagsreglur. Ráðuneytið er meðvitað um að skoða þarf breytingar á nauðungarvist- unum í heild sinni. Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra. Borgar Apótek | Borgartúni 28, 105 Reykjavík | sími 553-8331 949 kr. ... opnar í Borgartúni og býður lausasölulyf á góðum kjörum!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.