Fréttablaðið - 20.12.2013, Page 28

Fréttablaðið - 20.12.2013, Page 28
20. desember 2013 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 28 H U G V E K J A S T Y R K T A R F É L A G L A M A Ð R A O G F A T L A Ð R A Sölutímabil 5. – 21. desember Casa - Kringlunni og Skeifunni Epal - Skeifunni, Hörpu og Leifsstöð Gallerí i8 – Tryggvagötu Hafnarborg - Hafnarfirði Kokka - Laugavegi Kraum - Aðalstræti og Garðatorgi Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsinu Líf og list - Smáralind Módern - Hlíðarsmára Þjóðminjasafnið - Suðurgötu Around Iceland – Laugavegi Blómaval - um allt land Blóma- og gjafabúðin - Sauðárkróki Póley - Vestmannaeyjum Valrós - Akureyri Netverslun - www.kaerleikskulan.is Markmiðið með sölu Kærleikskúlunnar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna og rennur allur ágóði til starfs í þágu þeirra. Mitt nafn er Jakob S. Jóns- son og ég er leikstjóri og leiðsögumaður. Ég legg það ekki í vana minn að skrifa opin bréf til þingmanna og ríkisstjórnar. En nú bið ég þingmenn og ráðherra að gefa mér tvær mínútur, og lesa þetta bréf – og aðrar tvær til að hugleiða efni þess. Fjórar mínútur alls. Ok? Að lokinni 2. umræðu Alþingis um fjárlög 2014 er ljóst að skorin hafa verið niður framlög til Kvikmyndasjóðs og Kvikmyndaskóla Íslands. Auðvitað ríkir skilningur á að niður þurfi að skera til að ná hallalausum fjár- lögum. En það er óskynsamlegt að skera niður til þeirra málaflokka sem hér um ræðir. Skal hér rætt og rökstutt eitt af mörgum sjónarhornum: Öflugur Kvikmyndasjóður trygg- ir að framleiðsla kvikmynda á sér stað á Íslandi. Kvikmyndaskóli Íslands tryggir að til sé fólk með menntun og þekkingu til að fram- leiða kvikmyndir. Af hverju er það mikilvægt? Jú – Ísland laðar að erlenda kvikmynda- gerðarmenn, sem nýta landið sem leiksvið og íslenska kvikmynda- gerðarmenn til starfa. Íslendingar endurgreiða erlendum kvikmynda- framleiðendum 20% af greiddum söluskatti þeirra hér, sem er hlið- stætt endurgreiðslu af seldum vörum í Fríhöfninni í Leifsstöð. Endurgreiðslan hvetur erlenda kvikmyndagerðarmenn til að koma til Íslands og tekjur af kvikmynda- gerð þeirra hér lenda í ríkissjóði, okkur til gleði. En jafnan verður ekki jákvæð nema til komi annars vegar fram- lag okkar í Kvikmyndasjóð og hins vegar framlag til Kvikmyndaskólans. Hvort tveggja tryggir nefni- lega að nauðsynleg þekk- ing sé til staðar. Til að fá milljarðana, þurfum við að kosta til nokkrum millj- ónum. Ég hef starfað sem leið- sögumaður í nokkur ár og hitt þúsundir ferðamanna. Þeir heillast af landi okkar, náttúru og sögu. Erlendar myndir – James Bond, Oblivion, Prometheus – eru eins og gps-hnit í huga þeirra og færa hið magnaða landslag Íslands nær þeim. Og þá nær Íslandi. Allir glaðir Ein væntanleg mynd mun þó hafa sérstöðu: The Secret Life of Walt- er Mitty. Ef marka má kynningar- myndbönd skapar myndin óvenju sterka tilfinningu fyrir landi og náttúru og talar til nýrrar kyn- slóðar bíógesta. Kynningarmynd um The Sec- ret Life of Walter Mitty segir frá hjálparstarfi á Filippseyjum. Ótrúlegt, en satt. Mynd Bens Still- ers fjallar um mann, sem lætur drauma sína rætast – og hjálpar- starf á Filippseyjum snýst um sömu þrár og óskir. Tengingin í huga kvikmynda- áhorfandans verður því „Walter Mitty – Ísland – hjálparstarf á Filippseyjum – draumar rætast!“ Þetta er snilldarleg tenging, sem við Íslendingar ættum að notfæra okkur. Ekki síst í ferðaþjónustunni! Hvernig? Jú, dæmi: Íslensk ferðaþjónustufyrirtæki gætu látið 100 krónur af hverjum seld- um miða í Gullna hringinn renna til svipaðrar þróunaraðstoðar og kynningarband The Secret Life of Walter Mitty sýnir. Og auglýsa það. Þar með festir Ísland í sessi ákveðna ímynd, sem tengist mann- úð og þrá okkar manna til að láta drauma rætast. Það er til þess fall- ið að hvetja fólk út um allan heim til að heimsækja Ísland. Af hverju? Jú, hér rætast draumarnir! En þá verða okkar ágætu alþing- ismenn að gera þrennt fyrir 3. umræðu um fjárlög: ■ tryggja óskert (helst aukið) fé til Kvikmyndasjóðs, ■ tryggja óskert (helst aukið) fé til Kvikmyndaskóla Íslands, og ■ tryggja (og helst auka) fé til þró- unarhjálpar til móts við ferðaþjón- ustuna. Þar með skapast forsendur fyrir fjölgun ferðamanna á Íslandi, sem þýðir tekjuauka til kvikmynda- gerðar, ferðaþjónustu og ríkis- sjóðs. Allir glaðir! Getur það betra orðið? Þeirri spurningu geta þingmenn svarað – í verki! Fyrir 3. umræðu og lokaafgreiðslu fjárlaga. Hér rætast draumarnir! Fyrir nokkrum áratugum bentu vísindamenn á að reykingar valda lungna- krabbameini og öðrum alvarlegum fylgikvillum. Þá réðu tóbaksframleið- endur til sín áróðurs- meistara til að sannfæra almenning um að reyk- ingar væru ekki skað- legar. Í dag benda vísinda- menn á að brennsla jarð- efnaeldsneytis, svo sem olíu, veldur loftslagsbreytingum. Það má líkja loftslagsbreytingum við krabbamein sem leggst á heim- inn. Aftur fer hagsmunaáróður í gang. Nú til að gæta hagsmuna olíuframleiðenda sem fengu til sín áróðursmeistara, m.a. gamla reynslubolta úr tóbaksáróðri til að sannfæra almenning um að lofts- lagsbreytingar og olíunotkun séu í lagi. Það reynist hins vegar æ erfið- ara að leyna meininu því þess er víða þegar farið að gæta og fleiri einstaklingar hafa vaknað til vit- undar um skaðleg áhrif loftslags- breytinga. Ísland var í fararbroddi varð- andi bann við reykingum. Reyk- ingabann gekk í gildi í íslensk- um skólum árið 1996. Ég bjó þá í útlöndum og man að þetta vakti mikla athygli fjölmiðla og forvitni almennings. Gagnrýni, hneykslan, furðu og aðdáun. Mikið umtal og fleiri áttuðu sig á samhengi milli reykinga og skaðsemi þeirra og vildu feta í fótspor Íslands – sem var ítrekað tekið sem dæmi í fjöl- miðlum. Nú sjá allir að reyking- ar eru skaðlegar og þykir bannið sjálfsagt. Þetta er að skara fram úr. Líkja má olíunotkun við reyk- ingar og loftslagsbreytingum af þeirra völdum má líkja við krabbamein sem herjar á heim- inn. Þá kemur að siðferðislegri samviskuspurningu til okkar Íslendinga: viljum við vera olíuþjóð? Nokkrir fjársterkir aðilar hvetja Íslendinga til olíuleitar. Ef við stígum það skref þá samþykkjum við um leið að að verða olíuþjóð. Hér er gott að staldra við því nú fáum við Íslendingar aftur tækifæri til að skara fram úr, vekja athygli heimsins á skaðlegu sam- hengi, stöðva það og um leið að vekja athygli á Íslandi. Það er tækifæri. Tækifæri og áhrif þess að neita að leita: Skilaboð til heimsins. Með því að neita að leita segjum við um leið að okkur er ekki sama um heim- inn sem við búum í. Við öxlum ábyrgð og þess vegna neitum við að leita. Slík skilaboð mundu vekja heimsathygli. Í byrjun væru eflaust einhverjir á móti – rétt eins og með reykingarnar. Þegar fleiri sjá samhengið milli olíunotkunar og loftslagsbreyt- inga mundi það gagnast Íslandi á jákvæðan hátt að vera þekkt fyrir að neita að leita. Til fram- tíðar geta slík skilaboð skapað virðingu á alþjóðlegum vettvangi og í því felast óendanleg tæki- færi. Neyðarhjálp. Veljum við að vera olíuþjóð þá samþykkjum við um leið að auka áhrif loftslagsbreyt- inga. Loftslagsbreytingar valda til dæmis sterkari fellibyljum, öfgum í veðurfari og öðrum náttúruham- förum sem valda neyð. Viljum við það? Mikilvægasta neyðarhjálp- in nú á tímum er fyrirbyggjandi, minnka áhrif loftslagsbreytinga og um leið líkur á slíkri neyð. Hér höfum við tækifæri til að standa okkur. Hreinleiki íslenskra orkugjafa – olía úr tísku. Til að draga úr mengun og um leið áhrifum lofts- lagsbreytinga er nú leitað logandi ljósi að umhverfisvænni orkugjöf- um. Með því að neita að leita gefst Íslendingum frábært tækifæri til að vekja heimsathygli á hreinleika íslenskra orkugjafa. Olía er að fara úr tísku og er þá ekki efnahagsleg- ur ávinningur olíuvinnslu orðin spurning? Íslenskt vinsælt – með allt á tæru. Vegna loftslagsbreytinga hafa þjóðir heims skrifað undir yfir- lýsingar þess efnis að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og þá um leið minnka brennslu jarð- efnaeldsneytis. Í framtíðinni má jafnvel búast við að alþjóðasamfé- lagið beiti þrýstingi, t.d. viðskipta- þvingunum, til að ná settu marki. Slíkt gæti haft alvarlegar afleið- ingar fyrir efnahagslíf okkar. Við erum vön því að íslenskt sé vin- sælt, s.s. sjávar- og landbúnaðaraf- urðir, hönnun, tónlist, tölvuleikir, hestar, hátíðir, ferðir, hugvit o.fl. Við höfum öll hagsmuna að gæta – hugsum dæmið til enda. Stoltið okkar, lambakjötið, fiskurinn, tón- listin, hesturinn, vatnið – þannig mætti lengi telja – allt birtist þetta kaupandanum hreinna og tærara komandi frá landi sem neitar að leita. Ímynd. Hver erum við? Hver vilj- um við vera? Ímynd er dýrmæt. Að neita að leita gefur Íslandi stór- merka og jákvæða ímynd til fram- tíðar. Þorum að skara fram úr. Tækifæri á Norðurslóðum - neita að leita - arðbærast til framtíðar KVIKMYNDIR Jakob S. Jónsson leikstjóri/leiðsögu- maður ORKUMÁL Bergljót Rist sjálfstæður atvinnu- rekandi ➜ Neyðarhjálp. Veljum við að vera olíuþjóð þá sam- þykkjum við um leið að auka áhrif loftslagsbreyt- inga. Loftslagsbreytingar valda til dæmis sterkari fellibyljum, öfgum í veður- fari og öðrum náttúruham- förum sem valda neyð. Viljum við það? ➜ Tengingin í huga kvik- myndaáhorfandans verður því „Walter Mitty – Ísland – hjálparstarf á Filippseyjum – draumar rætast!“ Þetta er snilldarleg tenging, sem við Íslendingar ættum að notfæra okkur. Slagorðin um krónuna Orða má sannleikann misjafnt og ná aðeins hluta hans í hverju tilviki. Segja má, að krónan hafi bjargað þjóðarbúinu frá hruni. Einnig segja, að hruninu hafi verið velt yfir á almenning með gengishruni krónunnar. Hún er í senn hluti af vanda og hluti af lausn. Á Írlandi var ekki hægt að velta kreppunni yfir á al- menning, því evran lætur ekki rokka sér. Leiðir Íslendinga og Íra frá hruninu voru misjafnar, en leiddu báðar til nýs misvægis. Við sitjum uppi með misþróun launa og skulda, sem kallað er for- sendubrestur. Írar sitja uppi með önnur vandamál. Einföld slagorð um krónuna leysa engan ágreining. http://www.jonas.is/ Jónas Kristjánsson AF NETINU

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.