Fréttablaðið - 20.12.2013, Síða 40

Fréttablaðið - 20.12.2013, Síða 40
FÓLK|| FÓ K | HELGIN4 GAMAN Haraldur Marinó, 4 ára, og Andri Marinó, 14 mánaða, voru hugfangnir á Jólahátíð Skoppu og Skrítlu og fengu mynd af sér á eftir með þeim stöllum. Jólasveinninn er ekki langt undan og óvæntir gestir koma í heimsókn. Sýning fer fram á Nýja-sviði Borgarleikhússins í dag og á morgun klukkan 13, 14.30 og 16. Höfundur verksins er Hrefna Hallgrímsdóttir, leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson en leikarar eru þau Linda Ásgeirsdóttir, Hrefna Hallgríms- dóttir, Vigdís Gunnarsdóttir og Viktor Már Bjarnason en auk þess koma fram fimleikastúlkur og ungar ballerínur auk annarra barna. Skoppa og Skrítla ná einstaklega vel til barna í þessari sýningu en foreldrarnir eru ekki síður agndofa. Þannig sagði eitt foreldri að þarna tækist að sýna börnum töfra leikhússins í fallegri umgjörð. Börnin eru agndofa yfir ýmsum brellum eins og þegar kviknar á jólatré einungis með því að pota í það. Í sýningunni eru dansandi dádýr, svífandi stjörnur, englar og nýfallinn snjór. Sýningin hentar börnum allt niður í níu mánaða. Skoppa og Skrítla taka á móti börnum og ræða við þau fyrir og eftir sýningu. Einnig er hægt að fá mynd af sér með þeim. Sýningin verður í gangi í Borgarleikhúsinu til áramóta. TÖFRAHEIMUR SKOPPU OG SKRÍTLU Skoppa og Skrítla laða þessa dagana börn á öllum aldri til sín á jólahátíð. Börnin eru dolfallin að sjá þær vinkonur í hátíðarskapi. Nú krossum við bara fingur og vonum að veðr-ið verði gott. Við vorum svo heppin með veðrið í fyrra,“ segir Elín H. Gísladóttir, for- stöðumaður Sundlaugarinnar á Akureyri, þar sem hún leggur lokahönd á Kertakvöld á laugarsvæðinu fyrir kvöldið. Kveikt verður á útikertum um allt svæðið, ljósin deyfð og ljúf jólatónlist verður leikin í hljóðkerfinu. „Við höfum verið að frysta ískristalla undanfarna daga til að setja utan um kertin sem vörn, en svo fór reyndar að hlána svo þetta er að verða mjög spennandi. Það eru margir óvissuþættir sem þurfa að ganga upp,“ segir hún hlæjandi. „Kertakvöldið hefst klukkan 17 svo fólk geti komist með börnin með sér og leyft þeim að njóta kvöldsins líka. Við dimmum ljósin í klefunum og kveikjum á kertum þar. Svo bjóðum við öllum upp á kökur og kaffi og spilum jólalög. Þetta tókst frábær- lega vel í fyrra og fólk fór héðan alsælt eftir nota- lega stund,“ segir Elín og bætir við að jólastressið líði úr fólki um leið í laugunum. „Kertakvöldið er til þess gert. Við hvetjum auð- vitað alla til að passa vel upp á börnin og hvert ann- að, þar sem við höfum minni lýsingu á svæðinu en annars og varlega þarf að fara kringum útikertin.“ Er kertakvöldið jafnvel orðið að árvissum við- burði í sundlaugunum? „Það gæti bara vel verið. Við vorum allavega margspurð að því í fyrra hvort kertakvöldið yrði ekki örugglega aftur að ári, en það er auðvitað margt sem þarf að ganga upp, til dæmis veðrið. Við vorum einnig með Kósýkvöld í lauginni í febrú- ar. Þá tók Purity Herbs þátt og bauð upp á vörur í klefunum sem gestir gátu gengið í. Eins fengum við nuddara sem nudduðu axlir gesta. Fólk hefur verið mjög hamingjusamt með þessi uppátæki okkar og vonandi verður þetta að árlegum viðburði.“ LOSAÐ UM JÓLASTRESSIÐ Í SUNDI SAMVERUSTUND Í SUNDI Kertakvöld verður haldið í Sundlaug Akureyrar í kvöld. Sundlaugargestir geta slakað á í laugunum við kertaljós og ljúf jólalög. Kertakvöldið var fyrst haldið í fyrra og sló í gegn. Líklega er það orðið að árlegum viðburði. SAMVERUSTUND Kertakvöldið hefst klukkan 17 í dag svo fjölskyldan geti átt notalega stund saman. EKKERT STRESS Jólastressið líður úr sundlaugargestum á Kertakvöldi. Kertakvöld í Sundlaug Akureyrar er nú haldið í annað sinn en það tókst með eindæmum vel í fyrra.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.